Morgunblaðið - 27.10.2010, Page 24

Morgunblaðið - 27.10.2010, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010 Dýrahald Kanína óskar eftir heimili Ég er að flytja erlendis og óska því eftir góðu heimili fyrir kanínuna mína. Hún er gæf og finnst gott að láta klappa sér. Leita einnig að ferðabúrum fyrir kött og hund. Hafið samband í síma 867 0722. Húsnæði óskast Vil kaupa hús af byggingaraðila Óska eftir að kaupa einbýli eða raðhús af byggingaraðila gegn 100% láni til 10 ára. Húsið þarf að vera tilbúið til innréttinga, eða nálægt því. Sími 697 9557. Lítil íbúð óskast - skammtímaleiga Reyklaus og reglusöm miðaldra hjón óska eftir lítilli og ódýrri íbúð á höfuðb.svæðinu í 2 – 3 mánuði. Íbúðin þarf helst að vera án húsgagna. Sími 8663946. Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verk Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com. Ýmislegt Tveir alveg nýir Teg. 100161 - Léttfylltur og mjúkur í BC skálum á kr. 4.350,- Buxur í stíl á kr. 1.990,- Teg. 100241 - Léttfylltur og flottur í BC skálum á kr. 4.350,- Buxur í stíl á kr. 1.990,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18. Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is - vertu vinur Dömur! Fjölbreytt úrval af vönduðum götuskóm úr leðri. Verð frá 13.050,- til 16.985,- Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bátar Strandveiðibátur óskast Óska eftir strandveiðibát á 5-6 milljónir staðgreitt, verður að ganga 14 mílur eða meira. S: 8409339 eða gudi@simnet.is. Bílaþjónusta Hjólbarðar 40 feta notaðir gámar til sölu Einnig einn 20 feta geymslugámur með hurðum á hliðinni. Kaldasel ehf. Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur, s. 544 4333 og 820 1070. Vörubíla-vetrardekk - Tilboð 205/75 R 17.5 kr. 29.800 8.5 R 17.5 kr. kr. 33.900 1100 R 20 kr. 69.500 12 R 22.5 kr. 66.500 13 R 22.5 kr. 79.500 Kaldasel ehf. Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur, s. 544 4333. Ný og notuð vetrardekk til sölu Útsala á 13“ dekkjum. Kaldasel ehf. Hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogur. S. 5444333 Húsviðhald Þarf að breyta eða bæta þakið? Hafðu samband, kannaðu hvað ég get gert fyrir þig. Guðmundur Gunnar, húsasmíða- meistari, sími 899 9825. Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Smíði, múrun, málun og flísalögn Iðnaðarmenn óska eftir verkefnum. Viðhald og breytingar inni, úti, smátt og stórt. Baðherbergi, eldhús o.fl. Sjá verk á vinna.is Sími 770 5599. Byssur HAGLABYSSUR og SKOT Vorum að fá sendingu af byssum og skotum á frábæru verði. Sportvörugerðin hf. www. sportveidi.is. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Ástríður KristínArngrímsdóttir fæddist 11. apríl 1935 á Mýrum í Dýrafirði. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 18. októ- ber 2010. Foreldrar hennar voru þau Arn- grímur Friðrik Bjarnason prentari og Ásta Eggerts- dóttir Fjeldsted kaupmaður. Alsystkin Ástríðar voru: Guðmundur Arngrímur, f. 31. október 1923, d. 1. september 1973, Jón Eggert Rík- harð, f. 4. janúar 1925, d. 14. jan- úar 1997, Helga, f. 7 apríl 1926, d. 30. maí 1998, Hrefna, f. 19. júlí 1927, Kristján Pétur, f. 26. júní 1929, Pálmi Kristinn, f. 29. júlí 1930, Sigurður, f. 20. október 1931, stundaði nám í Barna- og gagn- fræðaskóla Ísafjarðar og í Kvenna- skólanum á Löngumýri í Skaga- firði. Þá vann hún sem verkakona á Ísafirði og í Reykjavík; starfaði við fisverkun hjá Vestfirðingi og hjá Íshúsfélagi Ísfirðinga á Ísafirði. Í Reykjavík vann hún á Hrafnistu og Grund og síðan hjá Sjófangi og Sláturfélagi Suðurlands. Hinn 29. desember 1979 giftist Ástríður Högna Magnússyni, f. 21. maí 1913, d. 16. febrúar 1996. Ástríður eignaðist einn son, Sig- urð Sigurðsson, hinn 23. maí 1955, faðir Sigurður Steinþór Krist- jánsson Söebeck, f. 10. ágúst 1927, d. 22. nóvember 1997. Sigurður er kvæntur Áslaugu Jóhannsdóttur, f. 7. október 1956, og eiga þau þrjú börn, Grím, f. 29. desember 1977, m. Anna Björg Erlingsdóttir, f. 15. febrúar 1976, Magnús, f. 4. ágúst 1984, og Ástu Margréti, f. 15. nóv- ember 1985, sbm. Örn Arnaldsson, f. 1. ágúst 1984, og tvö barnabörn, Hrafnhildi Heklu og Arndísi Ás- laugu. Jarðarför Ástríðar fer fram frá Neskirkju í dag, 27. október 2010, og hefst athöfnin kl. 15. d. 30. nóvember 2004, Jósafat, f. 12. maí 1933, d. 13. júlí 2008, Guðríður Erna, f. 27. júlí 1938, og Arn- grímur, f. 7. janúar 1941. Hálfsystkin Ástríðar (samfeðra) voru: Jón, f. 11. júlí 1910, d. 12. ágúst 1965, Lína, f. 13. ágúst 1912, d. 8. apríl 2001, Kristjana Wigö, f. 5. janúar 1914, d. 3. maí 1961, Inga Ólöf, f. 12. júní 1915, d. 2. janúar 1976, Friðrik Axel, f. 9. september 1916, d. 7. mars 1935, Bjarni, f. 31. októ- ber 1919, d. 12. mars 1991, og Hannes Þórður, f. 18. janúar 1921. Ástríður bjó á Ísafirði til ársins 1962 en þá flutti hún til Reykjavík- ur og bjó þar til dánardags. Hún Við Ástríður sitjum í anddyrinu og bíðum eftir ferðaþjónustubílnum. Við erum tímanlega enda báðar stundvísar og samviskusamar og lát- um ekki bíða eftir okkur. Það er laugardagsmorgunn og við erum á leiðinni í Kolaportið eins og við höf- um oft gert undanfarin ár. Ef Ást- ríður er hress og það liggur vel á henni talar hún mikið og segir mér sögur. Hún fer með ljóð og stundum syngur hún líka. Aðra daga liggur ekki eins vel á henni en þá segi ég henni sögur af mér og mínum. Hún hlustar en leggur lítið til og spyr einskis. Þegar Ástríður er ræðin og glöð minnist ég sumardaganna þegar hún kom vestur á Ísafjörð að heimsækja okkur og mömmu sína. Hún kom á hverju sumri og var alltaf í nákvæm- lega eina viku. Þá fylltist húsið í Hafnarstræti 11 af gleði og hlátri. Húsið var gamalt og hljóðbært svo það heyrðist um allt þegar þær mæðgur spjölluðu saman. Stundum hætti malandinn snögglega eins og þær stæðu á öndinni en þá voru þær komnar í Sattið eða Sannar sögur sem Ástríður hafði komið með. Eftir hádegi hljóðnaði húsið þegar Ásta lagði sig og Ástríður arkaði eitthvað út í bæ að heimsækja gamlar vin- konur. Síðan endurtók sagan sig þegar hún kom til baka með mergj- aðar sögur úr bæjarlífinu. Ástríður var góður sögumaður og talaði fal- legt mál sem unun var að hlusta á. Hún kryddaði líka sögurnar hæfi- lega svo þær yrðu áheyrilegri og skemmtilegri. Hún var með afbrigð- um minnug og gat endurtekið orð- rétt samtöl sem höfðu átt sér stað fyrir löngu og farið með heilu ljóða- bálkana utanbókar. Hún kom færandi hendi úr stór- borginni og dró upp úr hverjum pok- anum á fætur öðrum allskyns varn- ing sem hún vildi gleðja okkur með. Kannski var ekki allt sem hún kom með eftir mínu höfði en hvað gerði það til? Hún vildi gleðja og gefa af því litla sem hún átti. Þegar vikan var á enda var hún horfin á braut og húsið í Hafnarstrætinu þagnaði. Aðrir dagar í lífi Ástríðar voru ekki eins góðir. Þá þraukaði hún samt sem áður eins og góðu dagana. Hún lét mótlætið yfir sig ganga án þess að kvarta eða reyna að berjast gegn því. Það var eins og henni fynd- ist hún ekki eiga betra skilið. En Ástríður átti svo sannarlega betra skilið. Hún var vönduð og vel gerð kona sem var mikill húmoristi og mannþekkjari. Hún var einlæg og hreinskiptin og ófeimin að segja skoðun sína á mönnum og málefnum svo sumum þótti nóg um. Okkur Ástríði samdi alltaf mjög vel. Við héldum alltaf góðu sambandi og áttum margar góðar samveru- stundir. Ekki síst síðustu ár hennar á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Hún var þakklát fyrir allt sem ég gerði fyrir hana en í vanmætti sínum gat hún aðeins beðið mér Guðsblessunar í hvert skipti sem ég kvaddi hana. Nú er það ég sem að leiðarlokum bið henni Guðsblessunar. Áslaug Jóhannsdóttir. Ástríður Kristín Arngrímsdóttir Það var hátíð í Bæ þegar Ása og Bangsi komu í heimsókn til Vestmannaeyja. Þau bjuggu í Bandaríkjunum, hann skipstjóri á olíuskipum sem sigldu um heimsins höf, hún glæsileg kona sem tók endalaust á móti íslenskum gestum sem lögðu leið sína vestur. Ása var alin upp í Eyjum og þar bjuggu foreldrar hennar, Þórhallur sím- stöðvarstjóri og Ingibjörg. Ása var ein örfárra kvenna af hennar kyn- slóð sem gengu menntaveginn og tóku stúdentspróf. Hún fór til Boston í Bandaríkjunum til frekara náms skömmu eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Þar kynnt- ist hún Bangsa, Birni Gunnlaugs- syni. Hann var systursonur ömmu minnar og alinn upp af henni, lengst af í Laxnesi í Mosfellssveit eftir að móðir hans dó úr berklum og skildi eftir sig tvo litla drengi. Gunnlaugur faðir Bangsa var í sigl- ingum og settist að í Boston. Þang- að hélt Bangsi að loknu námi í Verslunarskólanum og gekk í her- inn eftir að Bandaríkjamenn hófu þátttöku í styrjöldinni 1941. Ása og Bangsi voru sannarlega glæsilegt par eins og myndir af þeim sýna. Hann í einkennisbún- ingi bandaríska sjóhersins, hún í dragt í anda New Look sem komst í tísku nokkru eftir stríð. Hann sigldi í skipalestum til Múrmansk í stríðinu og hafði margar sögur að segja þegar þau kynntust. Þegar þau hjónin komu til Eyja fannst mér að þau gætu eins verið að koma beint út úr Hollywoodmynd, þau voru svo flott. Reyndar steig Ása á leiksvið í Vestmannaeyjum Ása María Þórhalls- dóttir Gunnlaugsson ✝ Ása María Þór-hallsdóttir Gunn- laugsson fæddist í Vestmannaeyjum 23. júlí 1923. Hún lést á heimili sínu í Pomp- ano Beach, Flórída 18. september 2010. Ása María var jarð- sungin frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 25. október 2010. árið 1929 þegar hún lék barn í leikritinu „Upp til Selja“ sem kvenfélagið Líkn setti upp í leikstjórn Ingibjargar móður Ásu. Til er mynd af leikurum sýningar- innar þar sem Ása er í fremstu röð. Þau Ása og Bangsi voru gestrisin með afbrigðum og naut ég þess eins og fleiri úr minni fjölskyldu eftir að þau fluttu til Flór- ída. Gunnlaugur bróðir minn dvaldi hjá þeim í heilt sumar og mamma heimsótti þau sér til mikillar ánægju eftir að hún komst á eft- irlaun. Aðeins einu sinni náði ég að heimsækja þau en það var í desem- ber 1983. Sólin skein, loftið var rakt og það var ekki ónýtt að svamla í sundlauginni alla daga með Imbu og Birni yngra. Þetta var ljúft líf og ég bjó að því d- vítamínskoti sem ég fékk í kropp- inn allan veturinn. Bangsi sýndi mér umhverfið meðan Ása tók líf- inu með ró, réði krossgátur, las og sinnti heimilinu. Það var íslenskur blær á heimilinu eins og oft vill verða hjá brottfluttum Íslending- um, ekki síst settu tvær gullfal- legar Eyjamyndir eftir gullsmiðinn Baldvin Björnsson fallegan svip á stofuna. Ása fór sjálf að mála á Flórídaárunum og hún hélt sýn- ingar hér á landi og seldi vel. Liða- gigt neyddi hana til að leggja pens- ilinn til hliðar. Síðast hitti ég Ásu fyrir tveimur árum. Hún bauð ættingjum og vin- um til veislu og það reyndist okkar kveðjustund. Að leiðarlokum kveð ég Ásu, Eyjastúlkuna sem hélt út í heim, hitti þar sinn íslenska lífs- förunaut og ílentist í Vesturheimi. Hún er komin heim aftur til að hvíla í íslenskri jörð. Fjölskyldan í Bæ sendir Imbu, Þór og fjölskyldum þeirra samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Ásu Maríu Þórhallsdóttur. Kristín Ástgeirsdóttir. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.