Morgunblaðið - 27.10.2010, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010
Annað kvöld, fimmtudags-
kvöldið 28. október, kl. 20.00
verður haldið menningarkvöld
á Hótel Selfossi, tileinkað Guð-
mundi Daníelssyni rithöfundi,
en 4. október sl. voru liðin 100
ár frá fæðingu hans.
Dagskrá verður fjölbreytt.
Matthías Johannessen, fv. rit-
stjóri, og Óli Þ. Guðbjartsson,
fv. skólastjóri, ræða kynni sín
af Guðmundi og fjalla um rit-
verk hans. Valdimar Bragason prentari segir frá
samskiptum sínum og Guðmundar og les úr verk-
um rithöfundarins. Einnig verða flutt ýmis söng-
og tónlistarverk. Dagskráin verður öllum opin og
aðgangur ókeypis.
Bókmenntir
Fjallað um Guð-
mund Daníelsson
Guðmundur Daní-
elsson rithöfundur
Meistaraverk Williams Shake-
speares, Lér konungur, er
komið út hjá Forlaginu í nýrri
þýðingu Þórarins Eldjárns.
Þýðing Þórarins er gerð í til-
efni af uppsetningu Þjóðleik-
hússins á verkinu en það verð-
ur frumsýnt á annan í jólum í
leikstjórn Benedicts Andrews.
Í verkinu hefur aldurhniginn
konungur ákveðið að skipta
konungsríki sínu á milli dætra
sinna þriggja, og skal hlutur hverrar dóttur fara
eftir því hvað ást hennar á honum er mikil. En
hvað vottar skýrast um ást barna til foreldra?
Þetta er tímalaust listaverk, fullt af visku um
átök kynslóðanna, drambið og það að missa allt.
Bækur
Þórarinn Eldjárn
þýðir Lé konung
Þórarinn Eldjárn
Ný heimildakvikmynd Einars
Þórs Gunnlaugssonar, Norð-
vestur – björgunarsaga frá
Flateyri, verður sýnd í kvik-
myndahúsum víða um land á
næstu dögum.
Áætlaðar eru sýningar á Ísa-
firði á morgun, fimmtudag, og í
Sambíóunum á Akureyri, í
Keflavík og á Selfossi á laug-
ardag og sunnudag kl. 18. Auk
þess er kvikmyndin sýnd í Bíó
Paradís við Hverfisgötu.
Fjölmargir Flateyringar koma fram í mynd-
inni, sem fjallar um snjóflóðin sem féllu á Flateyri
í október 1995. Einnig koma fram björgunarsveit-
armenn og fjölmiðlafólk.
Kvikmyndir
Norðvestur sýnd
víða um land
Einar Þór
Gunnlaugsson
Sjónleikur er nefnist Ódauðlegt verk um
draum og veruleika verður frumfluttur af
Áhugaleikhúsi atvinnumanna í kvöld
klukkan 21, í Útgerð Hugmyndahúss há-
skólanna við Grandagarð. Er þetta fjórða
verkið í röð fimm „ódauðlegra verka um
mannlegt eðli og tilvist“ sem leikhóp-
urinn hefur fært upp í leikstjórn höfund-
arins, Steinunnar Knútsdóttur.
„Hvert af þessum verkum er eins og
hugleiðing um ákveðið stef í mannlegri
tilvist og þetta fjallar sérstaklega um
hugmyndina um hvað er raunverulegt,“
segir Steinunn. „Þetta eru vangaveltur
um veruleika og það rými sem manns-
hugurinn er. Hugsanir, minningar, hug-
renningar; við veltum fyrir okkur hversu
raunverulegt þetta er.“
Steinunn segir vinnsluaðferðina svip-
aða við öll verkin, hún leggur fyrir
grunnhugmynd og farið er í vel útfærðar
stílæfingar út frá þemanu. „Við vinnum
með ákveðna spuna og í þessu tilviki eru
textar verksins annaðhvort fundnir eða
samdir af leikurunum sjálfum,“ segir
hún. „Meira og minna hefur sami hóp-
urinn tekið þátt í verkunum. Leikararnir
taka ríkan þátt í sköpunarferlinu en
ramminn er frekar stífur.“
Leikarar í sýningunni eru þau Aðal-
björg Árnadóttir, Arndís Hrön Egils-
dóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Hannes
Óli Ágústsson, Lára Sveinsdóttir, Orri
Huginn Ágústsson, Ólöf Ingólfsdóttir og
Sveinn Ólafur Gunnarsson. Una Stígs-
dóttir hannar leikmynd og búninga og
Ólafur Finnsson annast myndbands-
vinnslu.
Aðrar sýningar á verkinu verða 7., 9.,
10., 14. og 18. nóvember.
Sýningin er tæp klukkustund.
efi@mbl.is
Hugleiðing um hvað sé raunverulegt
Áhugaleikhús atvinnumanna frumflytur sjón-
leikinn Ódauðlegt verk um draum og veruleika
Á sviðinu Frá æfingu Ódauðlegs verks um draum og veruleika í Hugmyndahúsi háskólanna.
Hinn 18. nóv-
ember næstkom-
andi kemur út
þreföld safnplata
með Kristjáni Jó-
hannssyni ten-
órsöngvara er
nefnist Il grande
tenore. Í tilefni
útgáfunnar blæs
hann til tónlist-
arveislu í Aust-
urbæ föstudaginn 19. nóvember.
Með Kristjáni koma fram Caput-
hópurinn og söngvararnir Diddú –
Sigrún Hjálmtýsdóttir – og Gissur
Páll Gissurarson. Tónlistarstjórn og
útsetningar verða í höndum Guðna
Franzsonar.
Kristján hefur átt langan og
glæsilegan feril og komið víða við,
m.a. í Metropolitan-óperunni og
Scala, virtustu óperuhúsum heims.
Nýuppgerður Austurbær varð
fyrir valinu fyrir tónleikana þar sem
leitað verður eftir ákveðinni nánd
milli listamannanna á sviðinu og
áhorfenda úti í sal.
Aðeins 500 miðar eru í boði á tón-
leikana og hefst sala miða á föstu-
daginn kemur.
Þreföld
safnplata
Kristjáns
Kemur fram með
Caput í Austurbæ
Kristján
Jóhannsson
Fjármálaráðherra Breta hefur lýst
því yfir að menningarráðuneytið
þar í landi þurfi að skera framlög
til menningarstofnana niður um
15%. Innifalið í því er að skera
stjórnunarkostnað stofnana niður
um 41%.
Engu að síður á að ljúka viðbygg-
ingum við Tate Gallery og British
Museum í London.
Nicholas Serota, stjórnandi Tate,
segir að þessi niðurskurður muni
hafa umtalsverð áhrif á rekstur
stofnananna.
„Ekkert verður eins og það var,“
segir hann.
Bretar
skera niður
Skógarhöggsmað-
urinn rænir henni
hins vegar og klippir af henni
vængina33
»
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Bókaútgáfan Bjartur sendir nú frá
sér fimm nýjar íslenskar skáldsögur.
Saga Eiríks Guðmundssonar nefnist
Sýrópsmáninn. Hún fjallar um ung-
an mann sem er rekinn úr vinnu við
Vísindavefinn og heldur þá til Ítalíu
ásamt unnustu og syni. Síðasta
skáldsaga Eiríks, Undir himninum,
kom út fyrir fjórum árum og vakti
verðskuldaða athygli.
„Lesendur fyrri bóka Eiríks
þekkja „sinn Eirík“ í Sýróps-
mánanum en þetta eru samt mjög
ólík verk,“ segir Guðrún Vilmund-
ardóttir, útgáfustjóri Bjarts. „Þetta
er listilega skrifuð og skemmtileg
bók,“ bætir hún við. „Því snarpari og
einfaldari sem athugasemdir Eiríks
eru um lífið því athyglisverðari og
dýpri eru þær.“
Svar við bréfi Helgu nefnist stutt
skáldsaga eftir Bergsvein Birgisson.
„Knöpp saga en afar stór,“ segir
Guðrún um sögu Bergsveins. „Þetta
er klassísk ástarsaga, hjartasker-
andi og fallega skrifuð. Söguhetjan
er bóndi um miðja síðustu öld sem
verður ástfanginn af konu, en verður
að velja milli hennar og sveitarinnar
sinnar. Þetta eru hugleiðingar um
ást og það sem hefði getað orðið.“
Guðrún segir að Útlagar, vænt-
anleg skáldsaga Sigurjóns Magn-
ússonar sé dramatísk örlagasaga.
Sigurjón hefur áður byggt skáldverk
á sögulegum staðreyndum og liðnir
tímar lifna við í meðförum hans. Út-
lagar gerist í lok sjötta áratugarins
og fjallar um unga sósíalista sem
halda til náms í Austur-Þýskalandi.
„Þetta er örlagasaga fólks sem
leitar að ást og sjálfstæði, en þess
bíður annar veruleiki en það bjóst
við,“ segir Guðrún.
Margréti Örnólfsdóttur er margt
til lista lagt og í fyrra vakti skáld-
saga hennar um stúlkuna Aþenu,
talsverða athygli. Von er á nýrri bók
um Aþenu er nefnist Hvað er málið
með Haiti?
Loks ber að geta spennu-
sögu eftir Lilju Sigurð-
ardóttur, Fyrirgefning, en
þar kemur við sögu ást-
arsöguþýðandinn Magni, rétt
eins og í Spori, fyrstu sögu
Lilju. Lilja uppgötvaðist
þegar hún sendi fyrri
söguna inn í Dan
Brown-samkeppni hjá
Bjarti fyrir nokkrum
árum.
Útlagar, ástarsaga bónda og
starfsmaður Vísindavefjarins
Ólíkar íslenskar
skáldsögur koma
út hjá Bjarti í ár
Morgunblaðið/G.Rúnar
Guðrún Vilmundardóttir Útgáfustjórinn segir fimm íslenskar skáldsögur
koma út hjá Bjarti. Þá gefur Bjartur út nýjar norrænar spennusögur.
„Við höfum sérstaka ánægju og
gleði af útgáfu ljóðabókanna,“
segir Guðrún Vilmundardóttir
hjá Bjarti. Þrjár nýjar ljóðabæk-
ur hafa þegar litið dagsins ljós.
Ein þeirra, Leyndarmál annarra
eftir Þórdísi Gísladóttur, hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar á dögunum.
Enginn heldur utanum ljósið
nefnist ný bók Vésteins Lúð-
víkssonar og þá er von á ljóða-
bók frá Óskari Árna Óskarssyni,
Þrjár hendur nefnist hún. Síð-
asta bók Óskars Árna, Skugga-
myndir úr ferðalagi var tilnefnd
til Bókmenntaverðlaunanna fyr-
ir tveimur árum.
„Það eru alltaf tíðindi þegar
Óskar Árni kemur með nýja
ljóðabók, hann gefur svo fína
tilfinningu fyrir Reykjavík, er
sannkallað borgarskáld,“
segir Guðrún. Óskar þýðir
líka Kaffihús treg-
ans eftir Car-
son McCull-
ers, sem
Bjartur gef-
ur út sem
Neon-antík.
Veita ánægju
og gleði
ÞRJÁR LJÓÐABÆKUR
Óskar Árni
Óskarsson