Morgunblaðið - 11.11.2010, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21
i|" xÜâÅ •
{öà•"tÜá~tÑ|
Dalshraun 13Grensásvegur 49
Opið
Mánudaga - fimmtudaga frá 11.30 - 18.30
Föstudaga 10.00 - 19.00
Laugardaga 10.00 - 16.00
Gjafakort
Tilvalin lau
sn fyrir
fyrirtæki og
einstakling
a
Z}tytuܰy
Handhafi þessa gjafakorts á inneignkr.
Í Kjötkompaní
Upphæð í bókstöfum
Kjötkompaní
Dags.
Gildir í 1 ár frá dagsetningu.
Nr. 0001
Grensásvegur 48, 108 Reykjavík
Sími 578 9700
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður
H
arðir, mjúkir og kaldir pakkar eru
góðra gjalda verðir, en í huga
margra er óskagjöfin skemmtilegt
ferðalag. Ekki þarf að leita lengra
en út á Reykjavíkurflugvöll til að
geta verið floginn með hraði í t.d. blómlegt
mennningarlífið á Akureyri eða jafnvel í vest-
urátt til undraheima Grænlands.
Hugguleg helgi
Gróa Ásgeirsdóttir hjá Flugfélagi Íslands seg-
ir hægt að gefa ferðir af ýmsum toga í jólagjöf,
allt frá mjög hagkvæmum jólagjafabréfum
sem gilda á alla áfangastaði innanlands, upp í
fjölbreytta pakka með leikhúsferðum og nátt-
úruævintýrum. „Um þessar mundir er t.d.
mikið sótt í leikhúsferðir til Akureyrar, á sýn-
inguna Rocky Horror. Sýningin hefur enda
slegið í gegn, fengið glimrandi dóma og líka
margir sem hafa gaman af að virða fyrir sér
nýja menningarhúsið Hof,“ segir hún. „Algeng
útfærsla á ferðinni er að fólk fljúgi norður á
föstudags-eftirmiðdegi og fari á sýningu um
kvöldið. Nóttinni er varið á notalegu herbergi
t.d. á Hótel KEA og flogið svo aftur til Reyka-
víkur seint á laugardag eftir að hafa heimsótt
söfn, verslanir og veitingastaði á Akureyri yfir
daginn. Þeir sem vilja geta svo auðvitað lengt
dvölina um eina nótt og upplifað enn meira af
því sem bærinn hefur uppá að bjóða.“
Alls kyns menningarviðburðir eiga sér stað
á áfangastöðum Flugfélags Íslands hringinn í
kringum landið. „Eftir áramót fer svo skíða-
tímabilið af stað af fullum krafti, og vélarnar
fyllast af skíða- og snjóbrettaköppum sem
sækja í brekkurnar hvort heldur er fyrir norð-
an, á Austurlandi eða á Vestfjörðum,“ segir
Gróa. „Þorrablótatíminn er líka vinsæll ferða-
tími og aðfluttir Reykvíkingar kunna margir
afskaplega vel að meta ferðalag á heimaslóðir
til að gera sér glaðan dag með vina- og ætt-
ingjahópnum þar.“
Draumaheimur í vestri
Eflaust eru líka margir spenntir fyrir að sækja
heim nágrannann í vestri sem svo furðufáir
hafa lagt leið sína til. Jafnvel fólk sem hefur
þrætt hverja einustu stórborg í Evrópu á oft
eftir að skreppa þessa stuttu vegalengd sem er
til frænda okkar á Grænlandi. „Það er ég alveg
viss um að marga dauðlangar að ferðast til
Grænlands,“ segir Gróa en Flugfélagið flýgur
þar á fimm áfangastaði yfir sumarið en þrjá á
veturna. „Höfuðstaðurinn Nuuk og umhverfi
hans er ógleymanlegur staður og algjört æv-
intýraland. Raunar hafa allir bæirnir sem við
fljúgum á sína sérstöðu og eru vel ferðarinnar
virði, hvort sem fólk vill upplifa einstaka nátt-
úru, menninguna og fólkið, fara í bátsferð eða
jafnvel á veiðar.“
Ferðirnar til Grænlands eru af ýmsum
stærðum og gerðum og hægt að skreppa í
stutta dagsferð eða gista í lengri eða skemmri
tíma. „Dvöl á Arctic hótelinu í Ilulissat er t.d.
nokkuð sem allir ættu að upplifa. Það er hreint
ótrúlegt að svona heimsklassahótel skuli finn-
ast á þessum stað, og draumi líkast að fylgjast
með lansdslaginu úti fyrir ströndinni taka
stöðugum breytingum meðan ísjakarnir líða
framhjá.“ ai@mbl.is
Óviðjafnanlegt Menningarferðir til Akureyrar eru mjög vinsælar og hægt að gefa pakka sem inni-
heldur flug, gistingu og miða á sýningu, eins og t.d. rómaða uppfærslu leikfélagsins á Rocky Horror.
Morgunblaðið/RAX
Kuldi Grænland bíður með hvítar breiður af snjó
og fíleflda sleðahunda. Frá Kulusuk.
Gjöf sem kemur fólki á flug
Leikhúsferð til Akureyrar eða
skíðaferð í landsfrægar brekk-
ur alltaf vinsælar gjafir. Spenn-
andi Grænlandsævintýri gæti
líka átt heima í jólapakkanum.
Morgunblaðið/Eggert
Hátíðir „Þorrablótatíminn er líka vinsæll ferðatími og aðfluttir Reykvíkingar kunna margir af-
skaplega vel að meta ferðalag á heimaslóðir til að gera sér glaðan dag,“ segir Gróa.