Morgunblaðið - 11.11.2010, Side 22

Morgunblaðið - 11.11.2010, Side 22
O stahúsið hefur um árabil boðið upp á vinsælar matarkörfur fyrir jólin. Körfurnar eru fáan- legar í betri mat- vöruverslunum auk þess að boðið er upp á sérframleiðslu fyrir fyr- irtæki og stofnanir. „Þeir sem vilja sérþjónustu og sérsamsetn- ingu geta því haft samband beint við okkur og við leggjum okkur fram við að mæta öllum óskum,“ segir María R. Ólafsdóttir sölu- stjóri. Litlir og stórir pakkar Engum þykir leiðinlegt að fá góða osta í jólaglaðning og María bend- ir á að ostarnir frá Ostahúsinu séu löngu búnir að vinna munn og maga landsmanna. „Eftir því hvað karfan er stór og vegleg er al- gengt að sjá þar frá fjórum og upp í sex-sjö ostategundir. Ost- arnir geta verið einir og sér en það fer líka vel á að bæta við sa- lami, reyktum eða gröfnum lax, kexi og sultum. Allra veglegustu körfurnar geta jafnvel innihaldið góðan hamborgarhrygg, par- ísarkartöflur, og konfekttómata. Möguleikarnir og útfærslurnar eru bókstaflega óendanlegar.“ Fylltir og freistandi Í ostaúrvalinu má finna sannkall- aða dýrindisosta sem mörgum þykir orðið ómissandi að hafa á veisluborðinu yfir hátíðirnar. „Brie með hvítlauksrönd er t.d. mjög vinsæll um þetta leyti, og fyrir jólin bjóðum við líka upp á fleiri tegundir,“ segir María. „Auk þess seljum við vinsælu rjómaost- ana í dósum og sex mismunandi tegundir af ostarúllum, t.d. beik- on- og paprikurúllu sem á sér marga aðdáendur, og sömuleiðis ostarúllu með villijurtum og port- víni. Ekki má heldur gleyma að minnast á fylltu ostarúlluna með rommrúsínum og ristuðum möndl- um – hún er rosalega góð.“ Engin jól án osta Ostaúrvalið hefur blómstrað hér á landi síðustu ár og bendir María á hvernig ostarnir eru orðnir fastur liður í borðhaldi um jól og áramót. „Ég veit að margir reikna með að fá ostakörfu frá Ostahúsinu í gjöf í desember. Þetta eru mjög vinsæl- ar jólagjafir sem ég held að öllum þyki gaman að þiggja. Svo getur gefandinn líka verið viss um að hann er að gefa eitthvað sem nýt- ist vel enda finna allir eitthvað við sitt hæfi í körfunni,“ segir hún en ostakörfurnar má skoða á Osta- husid.is. ai@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Nammigott María segir gefandann geta verið vissan um að allir finni eitthvað við sitt hæfi í góðri ostakörfu. Osturinn ómissandi á jólaborðinu Gott er að brjóta upp þungan jólamatseðilinn með léttum ostum. Svo getur góður rjómaost- ur gert ótrúlega hluti fyrir rjúpusósuna. Nokkrar útfærslur eru í boði þegar kemur að umbúðunum. Sí- gilt er að raða ostum og mat í fallega körfu, binda inn í sellófan og festa á jólaborða. Ostahúsið býður einnig upp á kassa sem hægt er að loka með fallegu loki með glugga. „Kassarnir eru besta lausnin fyrir stærstu fyr- irtækin því auðvelt er að stafla þeim án þess að hætta sé á að innihaldið verið fyrir hnjaski. Þá mætti jafnvel stafla gjöfunum á bretti og fara um vinnustaðinn í hlutverki jólasveinsins.“ Hægt að pakka á ýmsa vegu Góðir ostar eru að verða æ al- gengari á jólaborðum lands- manna. María segir marga hafa komið auga á hvernig osturinn getur verið skemmtileg viðbót við hátíðarréttina eða verið val- kostur í staðinn fyrir margt af þeim þunga og saltaða mat sem fylgir árstímanum. „Ostarnir geta t.d. verið tilvaldir á fljótlegt og einfalt kalt smáréttaborð þegar tekið er á móti gestum,“ segir hún. „Ljúffengir ostar og kex geta verið fyirrtaks eftir- réttur og svo má ekki heldur gleyma hvað rjómaostarnir eru góðir til matargerðar. Sem dæmi þykir mörgum að sósan með rjúpunum eða hreindýrinu verði allt önnur ef ostarúllu með villijurtum og portvíni er skellt út í sósupottinn.“ Fljótlegt og gott 22 | MORGUNBLAÐIÐ með þekktum lögum úr kvikmyndum og söngleikjum í flutningi frábærra tónlistarmanna. Upplýsingar: ada.gunnars@internet.is Nýr geisladiskur Vantar þig jólagjöf handa starfsfólkinu? Til að auðvelda þér valið langar okkur að benda þér á Gjafakort Arion banka, gjafakort sem hægt er að nota við kaup á vöru og þjónustu hvar sem er. Þú velur upphæðina en starfs- maðurinn velur hvað hann kaupir. Þú færð gjafakortið í fallegum umbúðum í næsta útibúi Arion banka. Gjafakortið er án endurgjalds ef keypt eru fimm eða fleiri kort. arionbanki.is/gjafakort

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.