Morgunblaðið - 11.11.2010, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ | 27
Fjölnota verkfæri
sem hentar fyrir:
Pantið tímanlega!
Nú lí
ður
senn
að
jólum
!
Nýjung í fjáröflun
skoðið heimasíðu ullmax.is
Öflug lausn fyrir
björgunarsveitir,
íþróttafélög
og fleiri.
Bjóðum einstaklinga
einnig velkomna í
vefverslun okkar á
ullmax.is
Hlýja
r og ó
dýrar
jólag
jafir
Ö
ll viljum við gefa eitthvað
sem þiggjandann langar í
og vantar. Eins og núna
árar hefur fólk líka lítið
að gera við óþarfa og
skraut sem jafnvel fer rakleiðis inn í
geymslu eða upp á loft með jóla-
skrautinu.
„Gjafakort í Smáralind eru senni-
lega einhver besta gjöf sem hugsast
getur. Þau eru gjöf sem allir geta
nýtt sér enda í verslunarmiðstöðinni
að finna hátt í 90 verslanir fyrir fólk
á öllum aldri. Það er einfalt og þægi-
legt að nálgast kortin og af-
greiðslutími þeirra er skjótur,“ segir
Lovísa Anna Pálmadóttir verkefn-
isstjóri markaðsdeildar Smáralind-
ar. „Þetta eru verslanir af fjöl-
breyttum toga, sem selja allt frá
fatnaði, skarti og gjafavöru til mat-
vöru. Af nógu er að taka og ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Má sjá stöðuna á netinu
Frá árinu 2002 hafa gjafakort
Smáralindar verið rafræn og eru
svipuð í útliti og hefðbundin debet-
kort. „Gjafakortin eru áfyllanleg og
því hægt að nota aftur ef því er að
skipta,“ segir Lovísa. „Gildistími
kortanna er þrjú ár frá útgáfudegi
þeirra og hægt er að skoða stöðu
kortanna á heimasíðu Smáralindar
eða koma með þau á þjónustuborð
Smáralindar og fá upplýsingar um
stöðuna.“
Í boði eru tvennskonar umbúðir
utanum kortin. „Annars vegar má
velja fallegt umslag sem um leið er
hægt að nýta sem jólakort og skrifa
á kveðju, og hins vegar öskju sem
skreytt er með borða sem gerir kort-
in hátíðleg og skemmtileg í jóla-
pakkann. Innpökkun og afgreiðslu
kortanna önnumst við fyrirtækj-
unum að kostnaðarlausu,“segir
Lovísa.
„Við bjóðum fyrirtækjum einnig
að sérmerkja sjálf gjafakortin og er
þá hægt að prenta t.d. merki fyr-
irtækisins á kortið eða hlýlega jóla-
kveðju. Þetta hefur verið mjög vin-
sæll kostur og að sjálfsögðu þeim að
kostnaðarlausu.“
Nánast eins og reiðufé
Ekkert hámark eða lágmark er á
hverju korti og gefandinn ræður al-
farið upphæð gjafarinnar. „Kortið er
hægt að nota rétt eins og reiðufé, og
gildir í öllum verslunum Smáralind-
ar að Vínbúðinni undanskilinni.
Ekkert er því til fyrirstöðu að nota
innistæðuna á gjafakortinu sem inn-
borgun á dýrari hlut og að sjálfsögðu
eru kortin í fullu gildi á útsölunum.
„Þannig fær þiggjandi kortsins í
raun tækifæri til að fá enn meira fyr-
ir gjöfina enda hægt að gera mjög
góð kaup þegar útsölurnar hefjast
eftir áramót.“
Síðast en ekki síst eru gjafakortin
kjörin fyrir þá sem hafa dregið jóla-
gjafavalið fram á síðustu stundu og
tekur ekki nema örskotstund að af-
greiða mikinn fjölda korta. „Ef kort
eru pöntuð fyrir hádegi þá eru allar
líkur á að okkur takist að hafa þau
tilbúin til afhendingar fyrir hádegi
næsta dag,“ segir Lovísa.
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Þægindi Lovísa segir gjafakortin áfyllanleg og gilda í þrjú ár. Hvenær sem er má skoða inneignarstöðuna á vefnum.
Gjafakort og allir fá ein-
mitt það sem þeir vilja
Enginn aukakostnaður er við útgáfu gjafakorta í Smáralind og hægt er að
bæta við inneignina.Geta verið klár til afhendingar á innan við sólarhring,
Morgunblaðið/Jim Smart
Úrval Allir geta fundið sér eitthvað fallegt með gjafakort við höndina.