Morgunblaðið - 11.11.2010, Side 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
Ekta saltfiskur tilbúinn til útvötnunar.
Þjóðleg gjöf til vina og velunnara
innanlands sem utan.
Pantaðu á www.ektafiskur.is/gullkistan
Sendum um allt land... og allan heim!
Saltfiskur í gjafaumbúðum:
466 1016
www.ektafiskur.is
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip.
Tryggðu þér eintak í tíma.
Þ
að ríkir mikil jólastemning
hjá Eirnýju Sigurðar-
dóttur í Búrinu síðustu
vikur ársins. Góður mat-
ur er jú ómissandi þegar
halda á hátíð og röðin oft langt út
úr dyrum þegar mesta jólaösin
dynur á. „En þó það sé nóg að gera
er enginn asi og stress, að því er
virðist, og sumir viðskiptavinirnir
leggja jafnnvel leið sína sér-
staklega til okkar með heimabak-
aðar kökur og konfekt til að
smakka og hreint dásamlegt að
selja osta og annað hnossgæti í
andrúmsloftinu sem skapast,“ segir
Eirný.
Gjafakortin gleðja
Búrið býður upp á skemmtilega
gjafavalkosti fyrir fyrirtæki. Eirný
segir hægt, ef pantað er tímanlega,
að búa til osta- og sælkerakörfur
við allra hæfi og vel mögulegt að
mæta hvers kyns sérþörfum. „En
gjafakortin okkar eru líka mjög
sniðug, og ég sé að mörgum þykir
gaman að líta til okkar eftir jól eða
áramót með eitt slíkt og velja sér
nokkra uppáhaldsosta í ró og næði,
fá að smakka og uppgötva kannski
eitthvað nýtt,“ segir hún. „Svo er
líka hægt að nota gjafakortin sem
greiðslu fyrir vinsælu námskeiðin
okkar, s.s. undirstöðunámskeið um
helstu ostaafbrigði, og svo hið róm-
aða osta- og bjórpörunarnámskeið
sem við höldum í samstarfi við Ölv-
isholt.“
Í Búrinu er að finna eitt besta
úrval landsins af gæðaostum frá
öllum heimshornum sem og frá inn-
lendum framleiðendum, en Eirný
segir fólk kunna vel að meta slíka
gjöf. „Þetta eru fríðindi sem fólk
kannski lætur ekki nógu oft eftir
sér dagsdaglega og alltaf gaman að
fá að gjöf.“
Ekki er bara ostur í Búrinu held-
ur er þar líka komið saman ákaf-
lega skemmtilegt safn af íslenskri
framleiðslu, s.s. jurtate frá Alkem-
istanum, birkisíróp og þurrkaðir
lerkisveppir. „Það er um að gera að
láta t.d. með gjafabréfi fylgja ís-
lenskar úrvalssultur eða hunang í
gjafaumbúðum. Þegar kalt er úti
eins og nú er engu líkt að geta bætt
smá hunangi út í heitan drykk og
algjör heilsubomba í skammdeginu.
Að fá sér kakóbolla með hlynsírópi
er líka óviðjafnanlegt í jólafríinu,“
segir Eirný. „En t.d. hrútaberja-
sultan, sem oft rýkur úr hillum um
þetta leyti árs, eða rauðrófuchut-
neyið með engifer og chili smell-
passar við hangikjötið og uppstúf-
inn eða villibráðina.“
Réttu áhöldin
Það er næsta víst að gotteríið úr
borðinu er fljótt að hverfa upp í
munn og ofan í maga, svo ef gef-
andinn vill að jólagjöfin lifi lengi
má t.d. lauma með í pakkann góð-
um aukahlut. „Hjá okkur má finna
sætar gjafir eins og hunangs-
skeiðar og keramík-hunangs-
krukkur sem allir kunna vel að
meta, og svo auðvitað ýmis ómiss-
andi áhöld fyrir ostaunnandann.“
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hið ljúfa líf „Þetta eru fríðindi sem fólk kannski lætur ekki nógu oft eftir sér dagsdaglega og alltaf gaman að fá að gjöf,“ segir Eirný Sigurðardóttir góðgætissérfræðingur.
Sælkeravörurnar koma fólki í jólaskapið
Með gjafakorti getur þiggjandinn valið sér osta og
annað hnossgæti eða farið á námskeið. Gott er að
blanda saman auðveldum og voldugri ostum í
gjafakörfu. Íslenskt hlynsíróp eða hrútaberjasulta
eru að margra mati ómissandi í eldhúsinu yfir jólin.
Morgunblaðið/Árni SæbergMorgunblaðið/Árni Sæberg
Allir fá
eitthvað gott
Auðveldasta leiðin til að mæta ólíkum
smekk allra er að gefa gjafabréf, en ef
valið er að setja ost í jólakörfuna bendir
Eirný á að hafa þurfi nokkur atriði í
huga til að gleðja örugglega bragðlauka
sem flestra. Þannig megi t.d. velja tvo
eða þrjá vinsæla og „auðvelda“ osta
sem öllum þykja góðir, en bæta við
tveimur með sterkari persónuleika til
að krydda pakkann. „Eins er gott ef
taka má t.d. tillit til aldurs þiggjandans
því með aldrinum kann fólk oft betur að
meta bragðsterku ostana,“ segir hún.
Best er að láta síðan alveg vera að fara
út í miklar öfgar. „Ákveðnir kraftmiklir
ostar, eins og Munster, ættu ekki að
fara í gjafaöskjuna því þá er hætt við að
hreinlega líði yfir suma þegar þeir
gægjast í pakkann sinn.“
Gæta þarf að
geymslunni
Ostur er kælivara og kallar á vissa var-
kárni í flutningum og geymslu. Ef fyrir-
tæki velja t.d. að gefa gjafakörfu með
kælivöru segir Eirný að huga verði vel
að undirbúningi og tímasetja vandlega
samsetningu og afhendingu til starfs-
manna eða viðskiptavina. „Hættan er
þó ekki bara sú að varan sé ekki kæld
nóg, heldur verður líka að passa að
geyma ekki ostana t.d. úti í bíl í kuld-
anum ef þeir skyldu verða of kaldir og
byrja að frjósa.“