Hamar - 23.12.1958, Qupperneq 5

Hamar - 23.12.1958, Qupperneq 5
i HAMAR 5 ®rv*fc>-5 fVífc>o r<ífc>-j rvífc>s cvífc>i rvifc>j rvifc^j rvifc>j fvifc>i iVifc>j rvifc>j í-vifc>j fvifc>j fVifc>j rvifc>j f-vifc>j fVifc>j fVifc>j rvifc/j rvifc>j rvifc>j rvifc>j rvifc>-j rvifc>j rvifc>j rvifc>j rvifc>j cvifc>j® j Kirkjan og trúarlíí í Hafnarfirði [ ® 'jfTjív; c^tJív? tr^ív? ovJív; t<#v; k#v> ^Sívj o?{ív? ^Jív -wvfcVJ c*^v? K}jív? c*-#v? oijív? í>íJív? -->^ív? ® * V V * \ Þar sem jólin fara nú í hönd, fannst ritstjóra Hamars vel við eiga, að í jólablaðinu kæmi grein um kirkju- og trúarlíf Hafnfirð- inga. Á fáum hátíðum mun kirkjan vera jafnvel sótt sem á jólunum, enda er hún sú hátíð sem er mannanna börnum kær- ust. Boðskapur jólanna á erindi til allra, hvort sem þeir eru kristnir eða ei og væri óskandi, að mennirnir breyttu samkvæmt honum, því frið á jörðu viljum við öll. Hamar sneri sér til eins af prestum kaþólsku kirkjunnar og þeirra tveggja manna í kirkjum bæjarins, Fríkirkjunni og Hafn- arfjarðarkirkju, sem ganga næst- ir prestinum í hinni kristilegu þjónustu kirkjunnar á hverjum stað, en það eru meðhjálpar- arnir, og óskaði eftir að fá að ræða nokkuð við þá um kirkj- urnar og trúarlíf í Hafnarfirði. Urðu þeir vel við þessari beiðni, en meðhjálpararnir eru eins og flestum Hafnfirðingum er, kunnugt, þeir Jóel Ingvarsson, skósmíðameistari, í Hafnar- fjarðarkirkju og Kristinn J. Magnússon, málarameistari, í Fríkirkjunni. Bæði séra Vroom- en, prestur Karmels-klausturs- ins og séra Gerhard Boots tók mjög vel í beiðni Hamars, en þar sem séra Boots er nú þjón- andi prestur St. Josephskirkj- unnar var rætt við hann að þessu sinni. Hafnarfjarðarkirkja. Jóel Ingvarsson, skósmíða- meistari, hefur verið meðhjálp- ari í Hafnarfjarðarkirkju í tólf ár, en í þjónustu hennar og Garðakirkju hefur hann verið í rúm 40 ár. Byrjaði hann með Friðriki Bjarnasyni í söngflokkn um í Garðakirkju. Jóel hefur mikið komið við sögu trúarlífs í Hafnarfirði og haft forustu í K.F.U.M. í fjölda ára, en í þann göfuga kristilega félags- skap gekk hann á fyrsta afmæl- isfundinum árið 1912. — Upphaf Hafnarfjarðar- kirkju? — Hafnarfjarðarkirkja var vígð 20. desember 1914 af Þór- halli biskupi Bjarnasyni, en fyrsti prestur var Árni Björns- son, prófastur, þáverandi prest- ur í Garðakirkju. Kirkjan er sprottin upp úr hinni gömlu Garðakirkju á Álftanesi, en þangað sóttu Hafnfirðingar kirkju öldum saman. Við til- komu hinnar nýju kirkju, var hætt að messa í Garðakirkju, en þó var hún notuð nokkrum sinnum síðar í sambandi við útfarir. Garðakirkja á sér merka sögu og hafa þjóðkunnir menn verið prestar þar, þeirra á með- al má nefna séra Þórarinn Böðv- arsson, séra Jens Pálsson og séra Árna Björnsson, en þeir voru einnig prófastar. Af aðstoðar- prestum minnist ég séra Þor- steins Briem og séra Björns Stefánssonar frá Auðkúlu, en hann lézt fyrir skömmu. Frá því að Hafnarfjarðar- kirkja tók til starfa hafa þjón- andi prestar í henni verið: Séra Árni Björnsson, sem jafnframt var síðasti prestur í Görðum. Hann andaðist í Hafnarfirði 26. marz 1922, en eftir lát hans þjónaði séra Friðrik Friðriksson söfnuðinum, þar til núverandi prestur, Garðar Þorsteinsson, cand. theol. úr Reykjavík var vígður til Garðaprestakalls sum- arið 1932. Hann er einnig pró- fastur og þjónar auk Jiess Bessa- staða- og Kálfatjarnarkirkju. — Má geta þess hér, að sér Garð- ar heldur guðþjónustur á Elli- heimilinu Sólvangi öðru hvoru, en það er mikið starf að þjóna svo víða sem hann gerir. — Hverjir hafa verið með- hjálparar? — í Garðakirkju man ég eft- ir Magnúsi á Dysjum, Guð- mundi Eyjólfssyni frá Hlíð í Garðahreppi, föður Ingvars Guð mundssonar í Hafnarfirði, Gísla Jónssyni, föður Margrétar, Torfa og Jóns Gíslasonar, sem allir Hafnfirðingar þekkja. Gísli var síðasti meðhjálparinn í Garða- kirkju og hinn fyrsti í Hafnar- fjarðarkirkju. Skömmu áður en hann lézt, tók Steingrímur Torfason við, en við fráfall hans tók ég að mér meðhjálpara- starfið. Var það fyrir 12 árum sem fyrr er getið. Flestir núlif- andi Ilafnfirðingar minnast enn Steingríms heitins. — Yngri kynslóðin kann yfir- leitt ekki góð skil á, í hverju meðhjálparastarfið er fólgið. Hvað gefur þú frætt okkur um það, Jóel? — Starf meðhjálpara í okkar söfnuði er eins og í flestum öðrum söfnuðum, fólgið í dag- legulegu eftirliti með kirkjunni. Þegar kemur til stærri verka eða verkefna, annast sóknar- nefndarformaður eða sóknar- nefndin það, sem gera þarf. — Eins og meðhjálparar hafa ætíð gert við þessa kirkju, frá því er ég man, aðstoða ég við messu- gjörðina, les bæn, skrýði prest- inn og þjóna svo sem við á í hverri guðþjónustu. Starf með- hjálparans er þjónustustarf í kirkjunni og á hann að leiða söfnuðinn í upphafsbæninni, undirbúa hann undir að með- taka athöfn guðþjónustunnar. Það eru margir, sem vinna að kirkjustarfinu og guðþjón- ustunni auk préstsins og með- hjálparans. Organistinn, og kór- inn, hafa á hendi mikilvægt hlutverk, ef guðþjónustan á að fara vel fram og öðlast áhrifa- ríkan blæ. Af organistum við Garða- kirkju og Hafnarfjarðarkirkju minnist ég frú Guðrúnar, konu séra Jens prófasts, Runólfs Þórðarsonar, Salomons Heiðars, Gísla Sigurgeirssonar og Frið- riks tónskálds Bjarnasonar. Allt Við vígsluathöfn hins fagra pípuorgels í Hafnarfjarðarkirkju. Meðhjálparinn í Hafnarfjarðarkirkju, Jóel Ingvarsson, les bæn. Til hægri er prófasturinn, séra Garðar Þorsteinsson. þetta fólk lék á orgel Garða- kirkju og mun Friðrik Bjarnason hafa verið síðasti organisti Garðakirkju og hinn fyrsti hjá Hafnarfjarðarkirkju. Var hann organisti kirkjunnar þar til fyr- ir nokrum árum, að Páll Kr. Pálsson tók við af honum. Margir hafa komið við sögu kirkjukórsins og væri of langt mál að geta þeirra allra. Um safnaðarlífið og kirkjuna mætti skrifa langt mál. Það er ætíð einlægur ásetningur þeirra, sem annast málefni kirkjunnar, að hún megi vera sem hlýlegust og virðulegust svo að fólki megi líða vel meðan á guðþjónustu stendur. Það er ekki langt síð- an, að kirkjan var lagfærð að utan sem innan og fyrir nokkr- um árum var sett nýtt og vand- að pípuorgel í hana. Þá var og söngloftið stækkað. Safnaðar- stjórn skipa nú: Gestur Gamal- íelsson, formaður, Olafur Tr. Einarsson, ritari. Jón Gestur Vigfússon, gjaldkeri, Magnús Guðjónsson og ég meðstjórn- endur. Safnaðarfulltrúi er Ól- afur Tr. Einarsson og hringjari kirkjunnar er Ingólfur Jónsson. í Hafnarfjarðarkirkju er starf- rækt kvenfélag, sem hefur gert kirkjunni margt til góða, prýtt hana og skreytt, fært henni góð- ar gjafir og stutt hana á marg- víslegan hátt. Meðal annars má nefna, að það gaf kirkjunni fermingarkirtla, ínjiig fagra og einnig gáfu konurnar dýra dregla í kirkjuna. Formaður fé- lagsins er frú Margrét Gísla- dóttir. Presturinn, sem er andlegur leiðtogi safnaðarins í trúarleg- um efnum, hefur tekið upp það nýmæli til að örva kirkjusókn- ina að óska eftir því við foreldra væntanlegra fermingarbarna á vorin, að þeir mættu með ferm- ingarbörnunum í kirkju við guð- þjónustu. Hefur þetta borið góðan árangur. Á ári hverju eru haldnar yfir 30 guðþjónustur í kirkjunni, en með þeim, sem eru haldnar á Sólvangi eru þær töluvert fleiri. — Við, sem yngri erum vit- um vel, hversu lítil áherzla er nú lögð á að útbreiða kristna trú í skólum landsins, en meira lagt upp úr að túlka og kenna sjónarmið efnishyggjunnar. Því langar mig til að spyrja þig, Jóel, sem hefur komið jafn mik- ið við sögu kristilegra félaga ungra manna og kvenna í Hafn- arfirði í hverju starfsemi K.F. U.M. og K. er fólgið og hver er staða þessara félaga innan kirkjunnar. — Mér er ljúft að svara þess- ari spurnignu. Tilgangur K.F. U.M. og K. er hinn sami og kirkjunnar, sem er að efla trú- arlíf meðal ungra manna og kvenna og glæða áhuga þess fyrir kirkjusókn. — K.F.U.M. og K. er þá ekki sértrúarflokkur, eins og maður Framhald á bls. 7)

x

Hamar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.