Hamar - 23.12.1958, Qupperneq 7

Hamar - 23.12.1958, Qupperneq 7
HAMAR 7 t K X x. V. ■f (Framhald af bls. 5) verður stundum var við að fólk heldur? — Nei, því fer víðs fjarri, að K.F.U.M. og K. sé sértrúar- flokkur. Þessi félagsskapur starfar innan kirkjunnar og í anda hennar. Með starfsemi okkar viljum við leiðbeina ung- um mönnum og konum til Krists á þeim grundvelli, sem K.F.U. Til þess að útbreiða boðskap trúarinnar, höldum við almenn- ar samkomur og efnum til margra samverustunda. A vet- urna er starfræktur sunnudags- skóli og haldnir drengja- og ung lingafundir. Sams konar starf- semi er fyrir stúlkur. A sumrin er rekin starfsemi í Kaldárseli eftir því sem tök eru á. Mjög góð aðsókn er að sunnudags- mæli fyrir skömmu eða er ekki svo, Kristinn? — Jú. Hún átti 45 ára afmæli þann 14. desember, en þann dag var hún vígð árið 1913. Var það þáverandi sóknarprestur, séra Ólafur Ólafsson, sem fram- kvæmdi athöfnina. Fríkirkju- söfnuðurinn var sjálfur stofnað- ur 20. apríl 1913 og reisti hann fyrstu kirkjuna í Hafnarfirði. Er Fermingarathöfn í Fríkirkjunni, séra Kristinn Stefánsson ferrnir. M. og K. félögum var settur og samþykktur á alþjóðafundi kristilegra félaga ungra manna í París árið 1855. Grundvallar- inntak samþykktarinnar hljóðar svo: „Kristilegt félag ungra manna leitast við að safna saman ungum mönnum, sem viðurkenna Jesúm Krist, Guð sinn og Frelsara, samkvæmt heilagri ritningu, og vilja vera lærisveinar hans í trú og líf- erni, og starfa í sameiningu að útbreiðslu ríkis Hans með- al ungra rnanna." í þessum anda höfum við starfað hér í Hafnarfirði, eins og öll hliðstæð kristileg fé- lög gera annars staðar á Islandi. Ég tel, að þessi trúaryfirlýsing sé í fullkomnu samræmi við trú- arjátningu kirkjunnar, enda hef- ur séra Friðrik Friðriksson ætíð sagt, að starfsemi K.F.U.M. og K. sé fyrst og fremst þjónusta fyrir íslenzku kirkjuna. K.F.U. M.-húsið okkar hér í Hafnar- firði gegnir því hlutverki safn- aðarhúsa- fyrir þá, sem vilja vinna að útbreiðslu kristinnar trúar jafnframt larkjustarfinu, enda fer það oft saman, að þeir, sem vinna mest í safnaðarlífi kirkjunnar eru einnig mikið starfandi í K.F.U.M. og K. — Ilvenær var K.F.U.M. og K. stofnað í Hafnarfirði? — Þessi félög voru stofnuð hér af Þorsteini Briem og Val- gerði konu hans 2. febrúar 1911. Fljótlega eftir stofnuna tók séra Friðrik við starfsemi félaganna og má geta þess hér, að enn kemur hinn aldni og mikilsvirti æskulýðsleiðtogi einu sinni í viku, á hverju mánudagskvöldi, til að tala við drengina. Er hann nú 91 árs,vel ern, en blindur. skóla barna og okkur finnst hafa lifnað yfir unglingastarfinu. Við höfum ágætt hús fyrir starfsemina, sem er K.F.U.M. og K.-húsið við Hverfisgötuna, en það var byggt árið 1928. — Skálinn í Kaldárseli var byggður fyrir sumarstarfsemina árið 1925. Bæði þessi hús voru byggð á framlögum og fyrir vinnu áhugamanna. Að lokum vil ég segja þetta: Jólin nálgast enn einu sinni. Þau flytja okkur boðskap frið- arins. Okkur verður þá hugsað til fyrsta jólasöngsins, sem sung- inn var á Bethlehemsvöllum: „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu.“ Um leið og ég óska lesendum Hamars og öllum Hafnfirðing- um gleðilegra jóla óska ég þess, að við sem hlýðum á boðskap jólanna í kirkjunni, færum að, eins og hirðarnir forðum í Bethlehem: „Vér skulum fara rakleiðis til Bethlehem og sjá þann atburð sem orðinn er og Drottinn hefur kunngjört oss.“ Við skulum lesa spádómana um Frelsarann og þakka: „Fijrir allt, sem að oss hann g af- Overðskulduðum kærleik af. Honum sé pökk af hfarta skýrð. Iionum sé eilíft lof og dýrð. Sé Drottni dýrð.“ (M. Lutlier. — St. Thorarensen.) Fríkirkjan. Kristinn J. Magnússon, mál- arameistari, hefur verið með- hjálpari í Fríkirkjunni í Hafnar- firði í tæplega 20 ár og er hann jafnframt í safnaðarráði. Hef- ur hann komið mikið við sögu kirkjunnar á síðustu áratugum. — Fríkirkjan átti meriksaf- joað kirkja safnaðarins, sem er við Linnetsstíginn. Tildrög þess, að söfnuðurinn var stofnaður voru m. a. þau, að nokkrir Hafn- firðingar sem mikinn áhuga höfðu fyrir að kirkja risi upp í Hafnarfirði, komu saman til fundar og samþykktu í einu hljóði, að stofna fríkirkjusöfn- uð fyrir íbúa Hafnarfjarðarbæj- ar, Garða- og Bessastaðahreppa. Um 100 manns beittu sér fyrir stofnun safnaðarins. Fríkirkjusöfnuðurinn er sam- kvæmt lögum hans „félagsskap- ur þeirra manna og kvenna, sem eiga sameiginlega þá hugsjón, að halda uppi guðþjónustum (messugerðum) og öðrum kirkju- legum athöfnum. Og eiga kirkju hús með hljóðfæri, messuskrúð- um og öðru tilheyrandi, útaf fyr- ir sig, óháð öllum, nema sínum eigin lögum, þar sem landslög nú eða síðar eigi banna slíkt.“ Fyrstu guðþjónusturnar fóru fram í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði — hin fyrsta á sum- ardaginn fyrsta 1913, sem þá bar upp á 24. apríl. Sumardag- urinn fyrsti hefur því jafnan verið talinn afmælisdagur safn- aðarins. — Hverjir hafa verið prestar safnaðarins frá upphafi? — Þeir hafa verið þrír. Hinn fyrsti var séra Ólafur Ólafsson frá 1913 til ágústloka 1930, en hann kom mikið við stofnsögu safnaðarins. Hann rækti prests- starf sitt af mikilli samvizkusemi og alúð. Var hann búsettur í Reykjavík og samgöngur oft erfiðar áður en bifreiðarnar komu til sögunnar. Var oft örð- ugt fyrir hann að rækja starfið, en hann lét aldrei veður né ófærð hefta för sína, en séra Ólafur var aldraður orðinn, er hann lét af störfum. Þá kvaddi söfnuðurinn sér til prests cand. theol. Jón Auðuns frá ísafirði. Var hann valinn samkvæmt safn aðarlögum, með þeim hætti, að stjórn safnaðarins, ásamt 4 þar til völdum mönnum úr söfnuð- inum, samdi við hann að taka að sér prestsþjónustustarfið og var sú ráðning samþykkt á lög- mætum safnaðarfundi. Var hann síðan vígður til safnaðarins af biskupi, dr. Jóni Helgasyni, þ. 17. ágúst 1930. Séra Jón þjón- aði við Fríkirkjuna til ársins 1946. Er hann nú dómprófast- ur í Reykjavík og lands- kunnur fyrir prestsstörf sín. Við prestsstörfum af honum tók séra Kristinn Stefánsson og er hann þjónandi prestur safnaðarins, eins og öllum er kunnugt. Var hann valinn á sama hátt og séra Jón Auðuns og vígður af biskup Sigurgeir Sigurðssyni. Fríkirkjusöfnuðurinn hefur verið mjög heppinn með presta sína, sem allir hafa verið miklir andans menn og látið að sér kveða í trúarlífi og mannúðar- störfum. — Meðhjálparar? — Þeir hafa einnig verið þrír eins og prestarnir. Fyrsti með- hjálpari kirkjunnar var Jón Þórðarson, kaupmaður frá 1913—1933, þá tók Sigurður frá 1933—1939, en það ár lézt hann og tók ég þá við og hef verið meðhjálpari síðan. — Safnaðarstarf Fríkirkjunnar er nokkuð frábrugðið því sem er í þjóðkirkjunni, eða er ekki svo, Kristinn? — Jú. Það má segja það. — Safnaðarstjórnir eru að sjálf- sögðu hjá báðum kirkjunum, en auk þess höfum við sérstakt safnaðarráð, sem skipað er fjór- um mönnum, og tvö félög, sem starfa sérstaklega í þágu kirkj- unnar. Þau eru Kvenfélag Frí- kirkjusafnaðarins, sem stofnað var árið 1923. Átti félagið því 35 ára afmæli á þessu ári. Frum- kvæðið að stofnun félagsins áttu mæðgurnar frú Jensína heitin Árnadóttir og frú Guðrún Ein- arsdóttir, ásamt Guðríði Guð- mundsdóttur, konu séra Ólafs. Núverandi formaður er Ólafía Guðmundsdótir. — Markmið félagsins er, að vinna að heill og velferð safnaðarins, í einu og öllu, og hefur félagið ætíð af mikilli trúmennsku stefnt að því marki. Konurnar hafa látið sér annt um kirkjuna, skreytt hana og prýtt og gefið henni góðar gjafir og verðmætar. — Meðal annars má minnast á að á 45 ára afmæli kirkjunnar s.l. vor gaf kvenfélagið kirkjunni hökul og altarisklæði, sem bæði eru fögur og vönduð. Þá er starfandi Bræðrafélag Fríkirkju- safnaðarins, en það var stofnað árið 1930 í húsi K.F.U.M. í Hafnarfirði. Tilgangur Bræðra- félagsins er að styðja og styrkja safnaðarlífið bæði í andlegu og efnalegu tilliti, einkum þó að því er fjárhag snertir. Núverandi formaður félagsins er Þórður Þórðarson. Safnaðarstjórn skipa nú: Guð- jón Magnússon, formaður, Jón Sigurgeirsson, gjaldkeri, Gísli Sigurgeirsson, Guðjón Jónsson og Jónas Sveinsson. I safnaðar- ráði eru: Jón Hjörtur Jónsson, Þórður Þórðarson, Marsveinn Jónsson og ég. Safnaðarstjórnin, safnaðarráð, félögin og aðrir áhugamenn fyr- ir málefnum kirkjunnar hafa ætíð leitast við að halda henni vel við. Kór og tum hafa ver- ið stækkuð og ýmsar viðgerð- ir og endurbætur farið fram á kirkjunni. Fór síðast fram gagn- gerð viðgerð á kirkjunni sum- arið 1957 og var hún þá máluð utan og innan. Árið 1956 var sett nýtt og vandað þýzkt pípuorgel. Er það ellefu radda. Reglulegar guðþjónustur fara fram í kirkjunni. Almennar messur annan hvern sunnudag, hátíðamessur á jólum og öðr- um stórhátíðum kirkjunnar. — Barnaguðþjónustur eru um jól- in og stundum oftar. Alls munu vera haldnar um 30 messur á ári. Góður kór syngur við guð- þjónusturnar og er núverandi Séð í kór Fríkirkjunnar.

x

Hamar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.