Hamar - 23.12.1958, Blaðsíða 24

Hamar - 23.12.1958, Blaðsíða 24
24 HAMAR Þessi teiknimynd er úr sögunni Gulleyjan eftir Robert Louis Stevenson. Nú er spurt hvar þeir hafi falið sig Langi-Jón með tréfótinn og páfagaukurinn, og hvar hafa tveir vinir Langa- Jóns falið sig? Þeir, sem búa í húsunum A, B, C, D og E, eru mjög óvinveittir hver öðrum, þó þeir séu nágrannar. Hveí- þeirra um sig geymir bílinn sinn í bílskúrnum til hægri á myndinni. — Húsbóndinn í húsi A, geymir bílinn sinn í bílskúr A. B í bílskúr B o. s. frv. Þegar þeir ganga til bílskúra sinna, gæta þeir þess mjög vand- lega, að ganga aldrei yfir leið nokkurs nágranna síns. Nú skuluð þið draga línur frá húsunum til bílskúranna til að sýna, hvernig þeim tekst það. Þið megið aldrei láta línurnar skerast eða láta línurnar fara út fyrir myndina. Á árunum 1928 til 1931 var gefið út blað hér í Hafnarfirði, er nefndist „Brúin.“ Ritstýrði Valdimar Long blaðinu í fyrstu en síðar Þorleifur Jónsson. Margir eldri Hafnfirðingar muna vel eftir „Brúnni", enda var bún merkilegt framlag til blaðaútgáfu hér í bæ. Jólablað Hamars birtir hér til fróðleiks og skemmtunar fyr- ir lesendur sína, örlítið sýnis- horn á víð og dreif úr „Brúnni" fyrir tæpum 30 árum: EFTIRFARANDI birtist í 2. tölublaði Brúarinnar 8. desem- ber 1928, undir fyrirsögninni: Við lestur Brúarinnar: Lyftibrú er lögð um Fjörð lífshorf nú er svona: Fáleik snúa í friða-gjörð, fagna, trúa, vona. Bol og grand er ber að hart bræddu í vandans eldi. Yfir landið leiddu bjart ljós, frá andans veldi. J. B. P. í JÓLABLAÐI Brúarinnar 1928 voru meðal annars þessar fréttir: Togarar: Ver kom inn síðast- liðið laugardagskvöld með lifr- artunnur. Sviði á sunnudaginn með 153 tunnur og Surprise á mánudagsmorgun með 165 tunnur Línubátar: Eljan og Papey komu báðar inn í vikunni, en höfðu fengið heldur tregan afla. Jólapott hefur hjálpræðisher- inn sett upp hér í miðbænum. Nýir línubátar, tveir að tölu, bætast við fiskiskipaflota bæjar- ins nú um áramótin. Hefur verzl un Böðvarssona keypt annan. Heitir sá Andey. Hinn bátinn hefur keypt nýmyndað útgerð- arfélag er „Sæbjörg" heitir. Bát- urinn er fenginn í Þýzkalandi og mun Ólafur skipstjóri Þórðar- son, sem nú er ytra, koma með hann innan tíðar. 12. JANÚAR 1929 birtist þessi auglýsing í Brúnni: „Vinna er til í svipin, tekjur rýrar og þörfin aldrei meiri á ódýrum nauðsynjum. Ætli mat- vörurnar séu ekki eins og allt annað ódýrastar hjá Valdimar Long. I sama blaði voru m. a. þess- ar fréttir: RAUSNARLEG GJÖF. Eins og kunnugt er, dvelur Ágúst Flygenring, fyrrum alþingis- maður og einn mesti frömuður þessa bæjar nú í Kaupmanna- höfn vetrarlangt. Að sjálfsögðu hafa bæjarbúar minnst þessa vinsæla forvígismanns síns í fjarveru hans, en þó hefur hann minnst þeirra en rækilegar. Með síðustu ferð Gullfoss kom hing- að fögur og vegleg kirkjuklukka. Er hún send Hafnfirðingum sem gjöf frá Flygenring. Kemur þessi höfðingskapur hans reyndar eng um á óvart, er kjynnst hafa manninum, ræktarsemi hans gagnvart kirkjunni fyrr og síð- ar og stórlegri rausn á öllum sviðum. FJÁRHAGSÁÆTLUN Hafn- arfjarðarkaupstaðar árið 1929 birtist í Brúnni 15. desember 1928. Heildarniðurstöðutölur fjárhagsáætlunarinnar þá voru kr. 332.300,00 og útsvör námu kr. 226.300,00. Nú munu útsvör- in vera eitthvað um 16 milljón- ir króna. Þessi auglýsing var í sama blaði: BÆJARBÚAR geta alltaf fengið nýórpin egg í Flensborg. Nú hefur hins vegar verið hinn mesti hörgull á eggjum fyrir jólin. Frá fyrstu Jónsmessuhátíð Magna í Hellisgerði, 24. júní 1923. Þáverandi bæjarstjóri, Magnús Jónsson, flytur ræðu og afhendir Magna Hellisgerði. — Ræðustóllinn sést glöggt á myndinni, og á flötinni fyrir neðan hann, þar sem mannfjöldinn stendur, vaxa nú tré, sem ná langt upp fyrir ræðustólinn. (Ljósm.: Guðbjartur Ásgrímsson). Prófessorinn siglir af stað á trjáfleka til að rannsaka hafstraumana. Neðst til vinstri á myndinni sérðu, hvaðan hann leggur af stað. Hann barst með straumnum, þar til liann kom að lítilli eyju á miðri myndinni. Þaðan sigldi hann svo áfram að bryggjunni og húsunum efst til hægri. Getur þú fundið leiðina, sem hann fór? Indíánarnir í Suður-Ameríku hafa sitt sérstaka lag á að mæla hæð trjáa. Auðvitað gætu þeir klifrað upp í tré með málband, en þeir hafa miklu auðveldari aðferð. — Þeir ganga það langt frá trénu að þeir sjái rétt toppinn á því, þegar þeir beygja sig áfram svo að fingumir nemi við ristar. Bilið milli fótanna á að vera eitt fet. Fjarlægðin frá þeim til trésins er þá jöfn og hæð þess. Neðst til vinstri á myndinni sérðu hús vagn- stjórans og fyrir utan húsið stendur strætis- vagninn. Vagnstjórinn hefur lofað að aka börn- unum til aftnsöngs á aðfangadagskvöld. En það er dálítill vandi að velja rétta leið. Það má ekki aka nema einu sinni fram hjá hverju húsi, Húsin eru nítján og í hverju húsi er eitt barn, sem hann á að sækja. Getur þú hjálpað vagnstjóranum að velja veginn? Aðeins einu sinni fram hjá hverju húsi og gæta þess að ekkert húsið verði eftir, því það væri Ieiðinlegt, ef barnið þaðan gæti ekki komist til kirkjunnar?

x

Hamar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.