Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 6
Karl
Sigurbjörnsson
„Það er fólkið í landinu, þjóðin sjálf, sem fer með
æðsta valdið,“ sagði forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, í nýársávarpi sínu. Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra sagði nauðsynlegt að
leiða til lykta áratuga deilur um auðlindamál á
nýju ári í sínu ávarpi og biskup Íslands, herra Karl
Sigurbjörnsson, sagði stórháskalegt „ef hreyfiafl-
ið andspænis áföllum þjóðlífsins verður hin óhelga
þrenning: reiði, hatur og hefnigirni“.
Ólafur Ragnar sagði að á liðnu ári hefði þjóðin
sýnt að hún gæti tekið forystuna. „Atkvæða-
greiðslan 6. mars var afdráttarlaus vitnisburður
um hve vel stjórnskipun lýðveldisins virkar þegar
mest á reynir, að þjóðin er fullfær um að fara með
valdið sem henni ber.“ Þjóðin fari sjálf með æðsta
valdið, enda sé vilji fólksins kjarni lýðræðisins.
Hinn eindregni þjóðarvilji hafi á örlagastundum
reynst Íslendingum býsna vel.
Þá vék hann orðum að fátækt í þjóðfélaginu,
sem hann segir smánarblett á þjóðinni. „Samfélag
sem kennir sig við norræna velferð getur ekki liðið
að vikulega standi þúsundir í biðröðum eftir mat.“
Því sé brýnt að grípa til aðgerða til að sigrast á fá-
tæktinni.
Í áramótaávarpi sínu sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra rökstudda ástæðu til að
ætla að nú væru bjartari tímar framundan. „Nú
sjást loks jákvæð teikn um bata og um að mikill ár-
angur hafi náðst. Og ég fullyrði að framundan séu
ár uppbyggingar og vaxtar.“
Sameign þjóðarinnar
Þá vék hún orðum að þeim málum sem verða til
umfjöllunar á stjórnlagaþingi. „Á nýju ári þurfum
við einnig að leiða til lykta áratuga deilur um auð-
lindamál. Við þurfum að ná sátt um nýjan grunn
að sjálfbærri og sanngjarnri stefnu varðandi dýr-
mætustu auðlindir þjóðarinnar, meðal annars um
fiskveiðistjórnunarkerfið. Auðlindir sjávar, orkan
í iðrum jarðar og þau verðmæti sem fólgin eru í
vatninu, jafnt heitu sem köldu eiga að vera sam-
eign þjóðarinnar og þannig þarf að ganga frá mál-
um að arðurinn renni með sanngjarnari hætti en
verið hefur til allra Íslendinga,“ sagði hún.
Andi tortryggni og vantrausts sækir að
Sr. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði í nýársá-
varpi sínu stórháskalegt ef reiði, hatur og hefni-
girni verða hreyfiaflið til að takast á við aðsteðj-
andi vanda. „Svo margt ber því miður vott um það
og það hve andi tortryggni, vantrausts og virðing-
arleysis sækir að. Það er ógnvænlegt, því verði sá
andi ofan á þá er allt tapað.“
Foreldrar þyrftu að hafa stuðning við mótun og
rækt andlegs lífs á heimilunum. „Ef trú er vikið út
af hinu opinbera rými, ef foreldrar og trúsöfnuðir
fá ekki uppörvun og stuðning samfélagsins við að
bera börn sín til skírnar, kenna þeim bænir og
vers og þekkja sögu, mynd og orð Krists og minna
þau ungu á skapara sinn og lausnara, þá hverfur
kristni úr vitund og menningu, nema hugsanlega
sem fjarlægur niður úr horfinni tíð.“
Þjóðin fari með æðsta valdið
Vilji fólksins er kjarni lýðræðisins, sagði forseti Íslands í nýársávarpi For-
sætisráðherra vill útkljá auðlindamál Biskup segir reiði og hefnigirni hættulega
Ólafur Ragnar
Grímsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011
www.simnet.is/lif
Ég undirritaður Þorbjörn Ásgeirsson
hef opnað heimasíðu mína, 222.simnet.is/lif.
Hún fjallar um stjörnulíffræði og spennusöguna „Sér grefur gröf
þótt grafi“, hún er einnig gegnum gangandi heimspeki. Einnig eru
þarna aðrar greinar með ýmiskonar fróðleik. Stjörnulíffræðin er
„dulspeki“, hún er byggð m.a. á forsendum „Lífeindarinnar“,
sem hefur svipað hlutverk að gegna og ljóseindin.
Þessar báðar tegundir einda hafa innifaldar geymdir sem skila frá
sér og taka á móti upplýsingum.
Þorbjörn Ásgeirsson, nuddfræðingur.
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, væntir þess að nið-
urstaða fáist um hvort embættið fái
aðgang að upplýsingum um nokkra
af viðskiptavinum gamla Kaup-
þings, og starfsemi bankans, í lok
febrúar. Úrskurðar æðsta dóms-
stigs í Lúxemborgar er nú beðið.
Ólafur segist vongóður um að emb-
ætti sérstaks saksóknara fái gögnin
sem um ræðir, afhent. Fram kom á
vefsíðu enska dagblaðsins Daily
Telegraph í gær að eigendur Ban-
que de Havilland, sem reistur var á
rústum Kaupþings í Lúxemborg,
berðust nú gegn því að embætti sér-
staks saksóknara fengi gögnin af-
hent. Bankinn er í eigu hinnar
ensku Rowland-fjölskyldu, sem
heldur því fram að Havilland-banki
tengist ekki á nokkurn hátt Kaup-
þingi í Lúxemborg. Í síðasta mán-
uði úrskurðaði dómstóll í Lúx-
emborg að bankinn yrði að afhenda
gögnin en sonur Davids Rowland,
Jonathan, sem tók við sem forstjóri
bankans eftir að Magnús Guð-
mundsson var leystur frá störfum
vegna rannsóknar embættis sér-
staks saksóknara, staðfestir að
bankinn hafi ásamt nítján við-
skiptavinum sínum, áfrýjað nið-
urstöðunni. Ólafur Þór segist í sam-
tali við Morgunblaðið ekki geta
gefið upplýsingar um hvaða við-
skiptavinir bankans það hafi verið
sem áfrýjuðu niðurstöðu dómstóls-
ins. Inntur eftir því hvaða þýðingu
gögnin muni hafa fyrir rannsókn á
málefnum Kaupþings, getur Ólafur
heldur ekki sagt til um það. Raunar
hafi hann ekki endanlega hugmynd
um hvaða upplýsingar leynist í
gögnunum, enda hafi þar til bær yf-
irvöld í Lúxemborg annast húsleit-
ina hjá Banque de Havilland.
Væntir niðurstöðu
um Kaupþings-
gögn í febrúar
Segist ekki þekkja hvað leynist
nákvæmlega í gögnunum frá Lúx
Morgunblaðið/Golli
Í Héraðsdómi Ólafur Þór Hauksson
er sérstakur saksóknari.
Verði frum-
varp um
breytingu á
sveitarstjórn-
arlögum sam-
þykkt gæti
það þýtt að
borgarfull-
trúar í
Reykjavík
yrðu að minnsta kosti 23, en þeir
eru í dag 15. Fjöldi
sveitarstjórnarfulltrúa er skil-
greindur á ákveðnu bili, og tengd-
ur við íbúafjölda sveitarfélagsins
undanfarin átta ár.
Frumvarpsdrögin liggja fyrir á
vef innanríkisráðuneytisins en þau
eru afrakstur vinnu starfshóps. Í
frumvarpsdrögunum eru ekki
lagðar til „grundvallarbreytingar
á sveitarstjórnarlögum“ eins og
það er orðað í skilabréfi starfs-
hópsins. Hins vegar komi þar fyrir
nýmæli m.a. um fjármál sveitarfé-
laga, samvinnu sveitarfélaga, rétt-
indi og skyldur sveitarstjórn-
armanna og möguleika íbúanna til
aðgangs að upplýsingum.
Fjöldi fulltrúa í
sveitarstjórnum
gæti breyst
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sæmdi tólf einstaklinga
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu á Bessastöðum á nýárs-
dag.
Eftirtaldir hlutu heiðursmerkið:
Ágústa Þorkelsdóttir bóndi,
Refsstað, Vopnafirði, fyrir störf í
þágu dreifbýlis og heimabyggðar.
Björgvin Halldórsson tónlist-
armaður, riddarakross fyrir fram-
lag til íslenskrar tónlistar.
Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari, fyrir framlag til íslenskrar
tónlistar.
Dóra Guðbjört Jónsdóttir gull-
smiður, fyrir framlag til þjóðlegrar
gull- og silfursmíði.
Jón Karl Karlsson, fyrrverandi
formaður Verkamannafélagsins
Fram og Alþýðusambands Norður-
lands, fyrir störf í þágu verka-
lýðsmála og réttindabaráttu.
Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir, fyrrverandi sveit-
arstjóri, oddviti og alþing-
ismaður,
Reykhólahreppi, fyrir
framlag til félagsmála
á landsbyggðinni.
Karl M. Guðmunds-
son fv. íþróttakennari
og fræðslustjóri ÍSÍ,
fyrir störf að æsku-
lýðs- og íþróttamálum.
María Jóna Hreins-
dóttir ljósmóðir, fyrir brautryðj-
endastörf í þágu fósturgreiningar
og ljósmóðurfræða.
Pétur Gunnarsson rithöfundur,
fyrir ritstörf og framlag til ís-
lenskra bókmennta.
Ragnar Axelsson ljósmyndari
Morgunblaðsins, fyrir framlag til
ljósmyndunar og umfjöllun um lífs-
hætti frumbyggja á norðurslóðum.
Rannveig Löve, fyrrverandi
kennari, Kópavogi, fyrir brautryðj-
andastarf á sviði lestrarkennslu og
störf að málefnum berklasjúklinga.
Sigurgeir Guðmundsson, formað-
ur Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, fyrir forystu á sviði björg-
unar og almannavarna.
Tólf sæmdir riddarakrossi
íslensku fálkaorðunnar
„Ég er auðvitað þakklátur fyrir þetta því þetta er klapp á bakið,“ segir
Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, sem er meðal þeirra sem
forseti Íslands sæmdi riddarakrossi á nýársdag.
Í aldafjórðung hefur Raxi skrásett lífið í veiðimanna-
samfélögum á norðurslóðum og á árinu kom út bók hans
Veiðimenn norðursins sem inniheldur myndir frá þessum
tíma. Þá er nýlokið sýningu hans á sama myndefni í Gerð-
arsafni í Kópavogi en þaðan fer sýningin út í heim.
„Það hafa þrjú, fjögur lönd beðið um hana svo ég
get ekki annað en verið ánægður,“ segir Raxi og ját-
ar því að nýliðið ár hafi einkennst af velgengni. „En
þetta er eins og Ómar sagði: lífið er eins og sjórinn
– aldan er stundum há og svo kemur lægð. Það er
best að sigla í lygnum polli.“
Þá hafa myndaseríur frá ferð hans á suður-
skautið fyrr í vetur birst í Sunnudagsmogganum
undanfarið og birtist þriðji hluti þeirrar umfjöll-
unar næstkomandi laugardag.
Best að sigla í lygnum polli
RAGNAR AXELSSON LJÓSMYNDARI MEÐAL ORÐUHAFA
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Morgunblaðið/Eggert
Heiðruð Orðuhafarnir fengu riddarakrossinn afhentan við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag.