Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 Thule Á nýársdag sæmdi forseti Íslands Ragnar Axelsson, ljósmyndara Morgunblaðsins, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til ljósmyndunar og umfjöllun um lífshætti frum- byggja á norðurslóðum í meira en tvo áratugi. Á ferðum sínum hefur Rax hitt marga merka veiðimenn og á myndinni er einn þeirra úti á hafís í nyrstu byggð heims. RAX Óvissa er það sem upptekur hugi margra nú í byrjun árs og ekki að undra miðað við það sem undanfarið hefur á gengið hérlendis. Árin tvö sem liðin eru frá hruni fjármálakerfisins hafa verið mörgum erf- ið persónulega, skekið undirstöður samfélags- ins og veikt trú manna á grónar stofnanir og stjórnmála- kerfið í landinu. Úttektin sem gerð var á hruninu af rannsóknarnefnd Alþingis og skilað var vorið 2010 er góðra gjalda verð, en hefur ekki gagnast sem skyldi í þjóðfélags- umræðunni. Þar er um að kenna út- haldsleysi fjölmiðla og máttleysi stjórnmálaflokka að takast á við og leita svara við þeim spurningum sem skýrsla nefndarinnar vekur. Ákallið eftir að sækja helstu gerendur hrunsins til saka gat ekki borið skjótan ávöxt vegna seinvirkni dómskerfisins. Geir H. Haarde dinglar heldur einmana í snörunni sem Alþingi bjó honum á meðan aðr- ir sluppu og hafa sumpart hlotið veg- tyllur síðan svona eins og til að sanna samtryggingu stjórnmálamanna. Samhengi hrunsins hérlendis við fjármálakreppuna á Vesturlöndum og aðild Íslands að EES- samningnum hefur ekki heldur fengið þá athygli sem skyldi og því vantar mikið á að heildstæð mynd liggi fyrir til að ráða ráðum um framtíð lands okkar og þjóðar. Of mikið færst í fang samtímis Bráðaviðbrögð við hruninu hafa eðlilega kallað á krafta stjórnmálamanna, opinberra stofn- ana og fjármálakerfis. Margt hefur þar bærilega til tekist miðað við örð- ugar aðstæður á sama tíma og annað hefur mislukkast. Hæst ber þar Ice- save-glímuna þar sem stjórnvöld vanmátu stöðu Íslands og ætluðu sér að hespa málið af án viðunandi grein- ingar og umræðu. Annar af- drifaríkur þáttur var óhæfilegur dráttur á stefnumótun um viðbrögð við „vanda heimilanna“, sem auðvit- að er jafn misjafn og heimilin eru mörg. Áróður stjórnarandstöðu og fleiri um patentlausnir átti þar hlut að máli ásamt lagalegri óvissu um ýmsa þætti. – Allt hefði þetta nægt landslýð og stjórnkerfi að fást við þótt ekki væri ráðist í viðameiri mál, horft til framtíðar, svo sem endur- skoðun stjórnarskrár lýðveldis okk- ar, að ekki sé talað um að sækja fyrir Íslands hönd um aðild að Evrópu- sambandinu. Hvoru tveggja var þó knúið fram fyrir forgöngu ríkis- stjórnar og með þátttöku stjórnar- andstöðu á Alþingi, umsóknin um ESB-aðild með naumum meirihluta en aðeins einn greiddi atkvæði gegn lögum um stjórnlagaþing. Svikist var aftan að kjósendum með fyrri ákvörðunina og sú síðari um endur- skoðun stjórnarskrárinnar hefði þurft mun lengri aðdraganda og betri undirbúning, meðal annars til að ræða ítarlega spurninguna um samskipti Íslands við önnur ríki. Halda stjórnmálaflokkarnir velli? Sú spurning er áleitin hvernig nú- verandi stjórnmálaflokkum reiðir af í eftirleik hrunsins. Flokkarnir þrír sem um stjórnvölinn héldu, lengst af Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur og Samfylkingin á lokaspretti, eru eðlilega laskaðir og í sárum eftir það sem gerðist og hafa engan veginn náð að rétta við og verða trúverðugir í augum margra fyrrum stuðnings- manna. Engin viðhlítandi endur- skoðun hefur farið fram á stefnu þeirra og starfsháttum og látið hefur verið við það sitja að skipta út nokkr- um andlitum og biðja alþjóð óskil- greindrar afsökunar á þætti þeirra í ófarnaði liðinna ára. Afkvæmi þess- arar framgöngu flokkanna hafa birst m.a. í nýjum framboðum eins og Borgarahreyfingunni sem gufaði upp og Besta flokknum sem situr uppi með skrekkinn eftir að hafa óvænt fengið fjöldafylgi í höf- uðstaðnum. Vinstri grænir sem komu óspjallaðir frá hruninu og gerðust burðarás í ríkisstjórn fyrir tveimur árum, hafa ekki megnað að veita samtímis forystu í vandasöm- um ráðuneytum og halda lifandi glóðinni í lýðræðislegu og stefnu- markandi flokksstarfi, sem margir höfðu átt hlut að, m.a. í aðdraganda alþingiskosninganna 2007. Það ásamt því að bregðast yfirlýstri stefnu um andstöðu við aðild að Evr- ópusambandinu er meginástæðan fyrir því ósætti innan VG sem blasað hefur við alþjóð nú í meira en ár. Á hvoru tveggja þarf að verða gagn- gerð breyting eigi flokkurinn að halda styrk til frambúðar samtímis því að umhverfismálin þurfa að fá meira vægi í stefnumörkun hans en hingað til. Evrópusamband í tilvistar- kreppu Á liðnu ári birtust með skýrum hætti veikleikar og brotalamir innan Evrópusambandsins sem fyrr en varir geta gjörbreytt stöðu þess og einstakra aðildarríkja. Þetta viður- kenndu nú um áramótin ýmsir tals- menn ESB með „forsetann“ Rompuy fremstan í fylkingu. Vand- inn tengist fyrst og fremst evru- samstarfinu og gífurlegum mótsögn- um sem af því stafa. Þýskur útflutn- ingsiðnaður hefur beitt evrunni sér til hagsbóta á sama tíma og fram- leiðni og samkeppnisaðstaða ann- arra ríkja líður fyrir spennitreyju evrunnar. Við þetta bætist mikil skuldsetning og hækkandi fjár- magnskostnaður margra ESB-ríkja. Það er óheyrilegt að íslensk stjórn- völd séu nú að hefja aðlögun að þess- ari fallvöltu samsteypu með aðild að markmiði í trássi við stóran hluta þjóðarinnar. Binda verður enda á þann leiðangur sem fyrst og leitast við að sameina þjóðina um gild og brýn viðfangsefni. Af nógu er þar að taka. Eftir Hjörleif Guttormsson » Geir H. Haarde dinglar heldur ein- mana í snörunni sem Al- þingi bjó honum á með- an aðrir sluppu og hafa sumpart hlotið vegtyllur síðan. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Rýnt í landslag stjórnmálanna í ársbyrjun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.