Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 ódýrt alla daga Forsteiktar fiskibollur 899kr.kg Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gífurlegt eignatjón hefur orðið í mestu flóðum sem um getur í Queens- landríki í Ástralíu. Útlitið næstu daga er dökkt en spáð er þrumuveðri og úr- helli. Það versta er því ekki yfirstaðið og reikna yfirvöld með því að vatna- vextirnir muni valda vandræðum út mánuðinn. Líf tvö hundruð þúsund manna hefur farið úr skorðum og kolagröftur og annar iðnaður orðið fyrir mikilli röskun. Kona drukknaði þegar bíll hennar fór á kaf og er sjómaður talinn af eftir að hans var saknað. Um 1.000 manns höfðust við í neyðarskýlum í nótt en margir vildu ekki yfirgefa heimili sín af ótta við gripdeildir. Mikið álag á björgunarsveitir Samgöngur hafa víða lamast og hafa björgunarsveitir og lögregla unn- ið nótt sem nýtan dag við að koma fólki sem hefur orðið innlyska á heim- ilum sínum á öruggan samastað og undir læknishendur. Er ekki vitað um frekara manntjón. Björgunarliðið er örþreytt og er liðsauki frá öðrum ríkjum landsins á leið til Queensland til aðstoðar. Raskar útflutningi Fram kemur á vef The Australian að tjónið sé metið í milljörðum ástr- alskra dala, eða sem svarar hundruð- um ma. kr. Má þar nefna að útflutn- ingur á kolum frá ríkinu mun að óbreyttu ekki komast í fullan gang fyrr en í vor, en þar er um að ræða eina mikilvægustu útflutningsvöru landsins. Þá hefur sykurrækt og ann- ar landbúnaður orðið fyrir tjóni, ásamt því sem miklar vatnsskemmdir hafa orðið á húsum og vegamannvirkjum. Flætt hefur yfir svæði sem er á stærð við Frakkland og Þýskaland og búa yfirvöld í borginni Rockhampton sig undir að fjöldi húsa fari á kaf. Flugvöllur borgarinnar, þar sem um 77.000 manns búa, er lokaður og hefur öll umferð til hennar verið bönnuð, að því er fram kemur í The Courier Mail, helsta dagblaði ríkisins. Segir þar einnig að bærinn Emerald hafi farið svo illa út úr flóðunum að það kunni að taka allt að tvö ár að bæta upp skað- ann. Flóðamet gæti fallið Veðurfræðingar spá úrhelli í Rock- hampton næstu daga og því að vatns- hæðin nái hámarki á miðvikudag er hún fari í 9,4 metra. Útlitið er enn dekkra í bænum St. George, um 500 km vestur af höfuðstað ríkisins, Bris- bane, en þar eru taldar líkur á að flóðahæðin jafni metið frá því í fyrra er hún náði 13,39 metrum, eftir að yf- irborð árinnar Balonne hækkaði um 11 metra um helgina. Til að gera illt verra hefur þrumuveður og haglél aukið á tjónið en haglið getur skemmt bíla og þök húsa. Yfir 20 bæir og borgir hafa orðið fyrir tjóni í vatnavöxtunum og mun umfang vatnsskemmdanna ekki skýr- ast að fullu fyrr en að nokkrum vikum liðnum, þegar vatnið sjatnar. Hættulegar skepnur á sveimi Á sumum stöðum er ekki lengur óhætt fyrir fólk að hafast við í húsum sínum vegna þess að krókódílar og snákar hafa borist með vatninu og svamla nú um á milli húsanna. Flóðin eru sem áður segir þau mestu í sögu ríkisins og komst And- rew Fraser, fjármálaráðherra Queensland, svo að orði að vatns- flaumurinn væri í ætt við hamfaralýs- ingar Biblíunnar, enda uppi neyðar- ástand á miklu landflæmi. Eigendum smærri fyrirtækja og einyrkjum í frumframleiðslu hefur þegar verið heitið hátt í þremur millj- ónum króna til að koma rekstrinum í samt horf þegar vatnið hörfar. Hve- nær það verður er óvíst. Hamfaraflóð í Queensland Reuters Eyðilegging Nánast allt íbúðarhúsnæði í bænum Theodore hefur orðið fyrir miklum skemmdum. Reuters Á þurru landi Hundur og páfagauk- ur deila búri á leið á öruggan stað.  Ástralskar björgunarsveitir glíma við mestu flóð á sögulegum tímum í ríkinu  Miklar skemmdir á íbúðarhúsum og mannvirkjum  200.000 manns hafa orðið fyrir röskun eða tjóni  Ótti við gripdeildir FLÓÐ Í ÁSTRALÍU 250 km Stórar kolanámur í Queensland hafa lokast vegna geysilegra flóða að undanförnu og er útlit fyrir að marga mánuði muni taka að koma útflutningi í sama horf Brisbane Hay Point Bowen Basin Foxleigh Moranbah German Creek Gladstone Bundaberg Callide Dawson Flóðin hafa sett stórt strik í reikning kola- vinnslu en alls veltir kolaiðnaður landsins hátt í 6.000 ma. kr. á ári TJÓNIÐ ER MIKIÐ Kolanámur með samanlagða vinnslu upp á 90 milljónir tonna á ári liggja undir vatni Yfirvöld vara við heilsu- farslegri hættu vegna flóðavatns, s.s. vegna mengunar, ásamt hættunni af krókódílum og snákum Lokun Bundaberg-hafnar hefur raskað útflutningi á sykri frá Ástralíu en landið er einn mesti sykurútflytj- andi veraldarinnar Miðlungsflóð Stórflóð Hafnir sem hafa lokast/ umferð raskast Kolanámur þar sem vatn hefur flætt QUEENSLAND Kóralhaf Repúblikaninn Arnold Schwarzenegger lætur í dag af embætti ríkis- stjóra Kaliforníu eftir sjö ára setu. Hann kveður embættið sem einn óvinsælasti ríkisstjórinn í sögu sam- bandsríkisins en nýleg könnun leiddi í ljós að aðeins 22% aðspurðra voru ánægð með störf hans undir lokin. Við honum tekur demókratinn Jerry Brown en hann var áður ríkis- stjóri á árunum 1975-1983. Schwarzenegger varð lítt ágengt í glímunni við geysilegan skuldavanda Kaliforníu og á það sinn þátt í fyrir- sögnum á borð við „Hasta La Vista, Failure“, eða „Vertu sæll, misheppn- aður“, með vísan til frægrar setning- ar hans í hlutverki „Tortímandans“. Vöðvatröllið hyggst þó ekki setj- ast í helgan stein heldur leggja hönd á plóg í baráttumálum sem eru hon- um hugstæð, þar með talið á vett- vangi umhverfismála. „Tortím- andinn“ kveður  Schwarzenegger stefnir á grænu málin Arnold Schwarzenegger

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.