Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011
Thule Á nýársdag sæmdi forseti Íslands Ragnar Axelsson, ljósmyndara Morgunblaðsins, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til ljósmyndunar og umfjöllun um lífshætti frum-
byggja á norðurslóðum í meira en tvo áratugi. Á ferðum sínum hefur Rax hitt marga merka veiðimenn og á myndinni er einn þeirra úti á hafís í nyrstu byggð heims.
RAX
Óvissa er það sem
upptekur hugi margra
nú í byrjun árs og ekki
að undra miðað við það
sem undanfarið hefur á
gengið hérlendis. Árin
tvö sem liðin eru frá
hruni fjármálakerfisins
hafa verið mörgum erf-
ið persónulega, skekið
undirstöður samfélags-
ins og veikt trú manna
á grónar stofnanir og stjórnmála-
kerfið í landinu. Úttektin sem gerð
var á hruninu af rannsóknarnefnd
Alþingis og skilað var vorið 2010 er
góðra gjalda verð, en hefur ekki
gagnast sem skyldi í þjóðfélags-
umræðunni. Þar er um að kenna út-
haldsleysi fjölmiðla og máttleysi
stjórnmálaflokka að takast á við og
leita svara við þeim spurningum sem
skýrsla nefndarinnar vekur. Ákallið
eftir að sækja helstu gerendur
hrunsins til saka gat ekki borið
skjótan ávöxt vegna seinvirkni
dómskerfisins. Geir H. Haarde
dinglar heldur einmana í snörunni
sem Alþingi bjó honum á meðan aðr-
ir sluppu og hafa sumpart hlotið veg-
tyllur síðan svona eins og til að sanna
samtryggingu stjórnmálamanna.
Samhengi hrunsins hérlendis við
fjármálakreppuna á
Vesturlöndum og aðild
Íslands að EES-
samningnum hefur
ekki heldur fengið þá
athygli sem skyldi og
því vantar mikið á að
heildstæð mynd liggi
fyrir til að ráða ráðum
um framtíð lands okkar
og þjóðar.
Of mikið færst í
fang samtímis
Bráðaviðbrögð við
hruninu hafa eðlilega kallað á krafta
stjórnmálamanna, opinberra stofn-
ana og fjármálakerfis. Margt hefur
þar bærilega til tekist miðað við örð-
ugar aðstæður á sama tíma og annað
hefur mislukkast. Hæst ber þar Ice-
save-glímuna þar sem stjórnvöld
vanmátu stöðu Íslands og ætluðu sér
að hespa málið af án viðunandi grein-
ingar og umræðu. Annar af-
drifaríkur þáttur var óhæfilegur
dráttur á stefnumótun um viðbrögð
við „vanda heimilanna“, sem auðvit-
að er jafn misjafn og heimilin eru
mörg. Áróður stjórnarandstöðu og
fleiri um patentlausnir átti þar hlut
að máli ásamt lagalegri óvissu um
ýmsa þætti. – Allt hefði þetta nægt
landslýð og stjórnkerfi að fást við
þótt ekki væri ráðist í viðameiri mál,
horft til framtíðar, svo sem endur-
skoðun stjórnarskrár lýðveldis okk-
ar, að ekki sé talað um að sækja fyrir
Íslands hönd um aðild að Evrópu-
sambandinu. Hvoru tveggja var þó
knúið fram fyrir forgöngu ríkis-
stjórnar og með þátttöku stjórnar-
andstöðu á Alþingi, umsóknin um
ESB-aðild með naumum meirihluta
en aðeins einn greiddi atkvæði gegn
lögum um stjórnlagaþing. Svikist
var aftan að kjósendum með fyrri
ákvörðunina og sú síðari um endur-
skoðun stjórnarskrárinnar hefði
þurft mun lengri aðdraganda og
betri undirbúning, meðal annars til
að ræða ítarlega spurninguna um
samskipti Íslands við önnur ríki.
Halda stjórnmálaflokkarnir
velli?
Sú spurning er áleitin hvernig nú-
verandi stjórnmálaflokkum reiðir af í
eftirleik hrunsins. Flokkarnir þrír
sem um stjórnvölinn héldu, lengst af
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur
og Samfylkingin á lokaspretti, eru
eðlilega laskaðir og í sárum eftir það
sem gerðist og hafa engan veginn
náð að rétta við og verða trúverðugir
í augum margra fyrrum stuðnings-
manna. Engin viðhlítandi endur-
skoðun hefur farið fram á stefnu
þeirra og starfsháttum og látið hefur
verið við það sitja að skipta út nokkr-
um andlitum og biðja alþjóð óskil-
greindrar afsökunar á þætti þeirra í
ófarnaði liðinna ára. Afkvæmi þess-
arar framgöngu flokkanna hafa birst
m.a. í nýjum framboðum eins og
Borgarahreyfingunni sem gufaði
upp og Besta flokknum sem situr
uppi með skrekkinn eftir að hafa
óvænt fengið fjöldafylgi í höf-
uðstaðnum. Vinstri grænir sem
komu óspjallaðir frá hruninu og
gerðust burðarás í ríkisstjórn fyrir
tveimur árum, hafa ekki megnað að
veita samtímis forystu í vandasöm-
um ráðuneytum og halda lifandi
glóðinni í lýðræðislegu og stefnu-
markandi flokksstarfi, sem margir
höfðu átt hlut að, m.a. í aðdraganda
alþingiskosninganna 2007. Það
ásamt því að bregðast yfirlýstri
stefnu um andstöðu við aðild að Evr-
ópusambandinu er meginástæðan
fyrir því ósætti innan VG sem blasað
hefur við alþjóð nú í meira en ár. Á
hvoru tveggja þarf að verða gagn-
gerð breyting eigi flokkurinn að
halda styrk til frambúðar samtímis
því að umhverfismálin þurfa að fá
meira vægi í stefnumörkun hans en
hingað til.
Evrópusamband í tilvistar-
kreppu
Á liðnu ári birtust með skýrum
hætti veikleikar og brotalamir innan
Evrópusambandsins sem fyrr en
varir geta gjörbreytt stöðu þess og
einstakra aðildarríkja. Þetta viður-
kenndu nú um áramótin ýmsir tals-
menn ESB með „forsetann“
Rompuy fremstan í fylkingu. Vand-
inn tengist fyrst og fremst evru-
samstarfinu og gífurlegum mótsögn-
um sem af því stafa. Þýskur útflutn-
ingsiðnaður hefur beitt evrunni sér
til hagsbóta á sama tíma og fram-
leiðni og samkeppnisaðstaða ann-
arra ríkja líður fyrir spennitreyju
evrunnar. Við þetta bætist mikil
skuldsetning og hækkandi fjár-
magnskostnaður margra ESB-ríkja.
Það er óheyrilegt að íslensk stjórn-
völd séu nú að hefja aðlögun að þess-
ari fallvöltu samsteypu með aðild að
markmiði í trássi við stóran hluta
þjóðarinnar. Binda verður enda á
þann leiðangur sem fyrst og leitast
við að sameina þjóðina um gild og
brýn viðfangsefni. Af nógu er þar að
taka.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Geir H. Haarde
dinglar heldur ein-
mana í snörunni sem Al-
þingi bjó honum á með-
an aðrir sluppu og hafa
sumpart hlotið vegtyllur
síðan.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Rýnt í landslag stjórnmálanna í ársbyrjun