Morgunblaðið - 06.01.2011, Síða 1

Morgunblaðið - 06.01.2011, Síða 1
F I M M T U D A G U R 6. J A N Ú A R 2 0 1 1  Stofnað 1913  4. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur fylgir með Morgu nblaði nu í da g FRAMKVÆMDU GÓÐA HUGMYND ÆTLAÐ LÁN GALDRA- HÓTEL MARAÞON- KARÓKÍ BJARKAR VIÐSKIPTABLAÐIÐ OG FINNUR.IS NORRÆNA HÚSIÐ 30GAMLA MATARBÚÐIN 10 Meðlimir lána- nefndar Kaup- þings, Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri, Sigurð- ur Einarsson stjórnarformað- ur, Bjarki Diego, yfirmaður lána- sviðs móðurfélags Kaupþings, og stjórnarmennirnir Gunnar Páll Pálsson og Bjarnfreður Ólafsson vildu ekki tjá sig um lánafyrir- greiðslu til rússneska auðkýfingsins Alishers Usmanovs þegar Morgun- blaðið leitaði eftir því í gær. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru litlar eða engar líkur á því að ætlað 270 milljarða króna lán til Usmanovs hafi verið afgreitt af lánasviði Kaupþings. Fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur sagt fréttir af því í vikunni að á síðasta fundi lánanefndar bankans hinn 24. sept- ember 2008 hafi verið teknar ákvarðanir um samtals 450 millj- arða króna lánveitingar, en þar af áttu 270 milljarðar að fara til Usm- anovs. »Viðskipti Lánanefnd tjáir sig ekki um lán til Usmanovs Alisher Usmanov Staðan í inn- heimtu sekta og sakarkostnaðar er slæm. Rúm- lega nítján þús- und mál eru til innheimtu og að- eins í desem- bermánuði síðast- liðnum þurfti að afskrifa 87 mál, upp á 6,7 millj- ónir króna. Útlit er fyrir að fjöldi krafna fyrnist í ár, m.a. vegna pláss- leysis í fangelsum landsins. Að meðaltali afplánuðu tveir fang- ar vararefsingu á dag árið 2010. Hins vegar eru 884 einstaklingar eftirlýstir í kerfi lögreglu vegna ógreiddra sekta hjá Innheimtu- miðstöð sekta og sakarkostnaðar. Þó svo að þeir megi búast við að vera handteknir mega þeir allt eins búast við að vera sleppt strax úr haldi þar sem ekki er pláss til afplánunar. »13 Fjöldi krafna vegna sekta fyrnist í ár  Áhrif plássleysis Frelsi Vararefsing er sjaldan afplánuð.  Ennþá er stefnt að því að skrá Ice- landic Group á hlutabréfamarkað, eins og sagt var þegar Framtaks- sjóður Íslands keypti hlut í fyrirtæk- inu. Ágúst Einarsson, stjórnar- formaður Framtakssjóðsins, segir að viðræður við erlenda fjárfesting- arsjóðinn Triton snúi að sölu á ein- stökum erlendum eignum fyrirtæk- isins, svo sem verksmiðjum í útlöndum. „Ef til stæði að selja fyr- irtækið allt væri framkvæmdin að sjálfsögðu allt önnur, en viðræð- urnar núna snúa aðeins að sölu á til- teknum erlendum eignum Icelandic, sem mun ekki hafa nein áhrif á ís- lenskt atvinnulíf.“ »Viðskipti Enn stefnt að skráningu Icelandic á markað „Okkur telst til að helmingur allra nýrra bíla sem seldust á síðasta ári hafi farið til bílaleiganna. Í hinum hópnum eru almennir viðskipta- vinir sem kaupa gjarnan bíla sem eru kannski aðeins fyrir ofan miðju í verðlagi. Þá er þetta gjarnan fólk sem er sæmilega statt, er með pen- inga í handraðanum,“ segir Özur Lárusson hjá Bílgreinasambandinu um þá staðreynd að veruleg aukn- ing varð í sölu nýrra fólksbíla í fyrra en þá voru 3.106 slíkir fluttir inn til landsins. Hann segir verð á nýjum bílum vera of hátt vegna gengisfalls krónunnar og að ungt fólk treysti sér ekki til að kaupa nýjan bíl. »13 Bílaleigurnar og þeir efnameiri kaupa bíla Morgunblaðið/Jim Smart Bílar Bílaleigur kaupa flesta bíla. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umræðu um ágreiningsmál innan þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er ekki lokið. Næsta lota verður á þingflokksfundi næstkomandi mánudag. Á þing- flokksfundinum í gær var ekki rætt um breytingar á skipan í nefndir þingsins og reyndi því ekki á það hvort þremenningarnar sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga hafa traust fé- laga sinna til starfa sinna í þinginu. Á fundinum var rætt um mál sem valdið hafa ágreiningi, ekki síst eftir að þrír þingmenn VG sátu hjá við lokaafgreiðslu fjárlaga, meðal ann- ars um efnahagsstefnuna og Evr- ópusambandsumsóknina. Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður VG, sagði eftir fundinn að niðurstaða fundarins væri skýr, allir þingmenn flokksins styddu ríkisstjórnina. Opinskáar umræður Þótt vinnufundur þingflokksins í gær stæði í fjórar til fimm klukku- stundir fékkst ekki niðurstaða í þau mál sem ágreiningur er um og áherslur í þeim verkum sem fram- undan eru á stjórnarheimilinu. Steingrímur sagði raunar að tekist hefði að jafna ágreining í sumum málum en eftir væri að ræða málin frekar. Árni Þór Sigurðsson, starf- andi formaður þingflokks VG, sagði að umræðan héldi áfram á fundi næstkomandi mánudag. Þingmenn VG sem rætt var við sögðu að umræðurnar hefðu verið hreinskiptnar og opinskáar en nið- urstaða væri ekki fengin. Vísaði á stjórn þingflokksins Ásmundur Einar Daðason á sæti í fjárlaganefnd og var sérstaklega gagnrýndur fyrir það að sitja hjá við lokaafgreiðslu fjárlaga með Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasyni. Á fundinum í gær var ekki rætt um breytingar á störfum þremenning- anna í nefndum þingsins. Steingrím- ur vísaði á stjórn þingflokksins þeg- ar hann var spurður hvort þau nytu trausts í þessi störf. Árni Þór sagði að engar breytingar hefðu orðið þar á. MFara í að þétta raðirnar »4 Morgunblaðið/Golli Í Aðalstræti Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason vildu lítið segja þegar þau yfirgáfu skrifstofur VG eftir fundinn í gærkvöldi, fyrst þingmanna flokksins. Umræðunni ekki lokið  Þingflokkur VG mun halda áfram að ræða ágreiningsmál og verkefni ríkis- stjórnarinnar á næstu fundum  Ekki var rætt um breytingar á skipan í nefndir Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra sagði að fundur VG í gærkvöldi hefði hreinsað loftið. Deilurnar innan VG hefðu engin áhrif á störf ríkisstjórnarinnar eða umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. „Eftir þennan fund liggur ljóst fyrir að óánægja þessara [þriggja] þing- manna er ekki svo mikil að þeir telji rétt að hverfa frá stuðningi við ríkisstjórnina,“ sagði hann. gislibaldur@mbl.is Loftið hreinsað SAMSTARFIÐ ÓBREYTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.