Morgunblaðið - 06.01.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Niðurstaða vinnufundar þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í gær var að þingflokkurinn í heild styður ríkisstjórnina, að sögn formanns flokksins, Steingríms J. Sigfússonar. Hann segir að menn verði að gefa sér meiri tíma og verk- efnin framundan og vinnubrögð verði áfram rædd innan flokksins. Skeytin hafa flogið milli nokkurra þingmanna VG eftir að þrír þing- menn, þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daða- son, sátu hjá við lokaafgreiðslu fjár- laga fyrir jól. Ágreiningnum var vís- að til þessa þingflokksfundar þótt Atli Gíslason og fleiri vildu ræða þau fyrr. Fundurinn stóð frá hádegi til klukkan sjö með um tveggja klukku- stunda hléi um miðjan daginn. Í sókn í seinni hálfleik „Fundurinn var góður og hrein- skiptnar umræður. Niðurstaðan var alveg skýr hvað það varðar að það er engin breyting á okkar stöðu sem rík- isstjórnarflokks. Það styðja allir þingmenn flokksins ríkisstjórnina,“ sagði Steingrímur. „Við ætlum að halda áfram að funda og ræða þau stóru viðfangsefni sem við erum með í höndunum eða við vitum að eru framundan. Við ætl- um að reyna að gefa okkur meiri tíma til að þétta raðirnar og tala saman. Reyna að bæta vinnubrögð okkar hvað það snertir. Við verðum að horf- ast í augu við það, eins og aðrir, að við höfum verið að glíma við mjög stór og erfið viðfangsefni. Menn hafa verið störfum hlaðnir,“ segir Steingrímur. Hann vonast til að nú gefist betri tími til samráðs og fundarhalda og að rækta tengslin við grunneiningar flokksins, svæðisfélögin. „Við lítum svo á að við séum að gera hérna ákveðin kaflaskil. Það er að nálgast tveggja ára afmæli ríkis- stjórnarinnar og það má segja að við séum að fara inn í seinni hálfleikinn og þá ætlum við að fara úr vörn í sókn.“ Þegar Steingrímur var spurður að því hvort komið hefði verið til móts við þremenningana sagði hann að í þingflokknum væru fimmtán þing- menn. „Við þurfum öll að taka tillit til skoðana hvert annars og finna sam- nefnara og bestu málamiðlunina í þeim tilfellum sem við erum ekki al- gerlega sammála, annaðhvort mál- efnalega, við mat á stöðu eða í vinnu- brögðum. Það gleymist oft í umræðunni, eins og undanfarna daga, að við erum 90% sammála og erum tiltölulega heildstæður flokkur með skýra stefnu og erum að uppi- stöðu til sammála um okkar stefnu og okkar vinnu. En auðvitað koma upp mál, ekki síst við svona aðstæð- ur, þar sem menn þurfa að skiptast á skoðunum um það hvernig eigi að taka á hlutunum og við ætlum að gera það. Ég tel að þessi umræða undan- farna daga hafi næstum að segja ver- ið barnaleg, vegna þess að það voru engin stór tilefni til að ætla að það væri að verða grundvallarbreyting á stöðu okkar sem ríkisstjórnarflokks. Við erum með tiltölulega nýlega samþykkt flokksráðsfundar, þar sem samþykkt var einróma eindreginn stuðningur við þátttöku okkar í þessu ríkisstjórnarsamstarfi.“ Treystum hvert öðru „Já, já, við treystum hvert öðru og ræðum það sem við þurfum að ræða […] og jöfnuðum ýmsan ágreining,“ sagði Steingrímur þegar hann var spurður að því hvort traust ríkti inn- an þingflokksins eftir ágreininginn síðustu vikur. Hann sagði að vissu- lega hefði hjáseta þremenninganna við lokaafgreiðslu fjárlaga verið erfið uppákoma og hana borið tiltölulega brátt að. Þingflokkurinn ætlaði hins vegar ekki að láta það trufla áfram- haldandi vinnu flokksins í ríkisstjórn. Fara í að þétta raðirnar  Allir þingmenn VG styðja ríkisstjórnina  Málin verða áfram til umræðu í þingflokknum  „Fundurinn var góður og hreinskiptnar umræður,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG Morgunblaðið/Ómar Setið Þingflokkur VG kom saman um hádegi í gær. Hlé var gert á fundinum en síðan haldið áfram til rúmlega sjö. Fundað vegna hjásetu » Boðað var til fundarins í kjölfar þess að Lilja Móses- dóttir, Atli Gíslason og Ás- mundur Einar Daðason sátu hjá við lokaafgreiðslu fjárlaga. » Steingrímur J. Sigfússon sagði traust ríkja innan þing- flokksins. Hjásetan hefði verið erfið uppákoma og hana borið tiltölulega brátt að. „Það hefur engin breyting orðið á stuðningi þingflokks- ins í heild sinni við ríkisstjórnina. Það eru hins vegar fjölmörg verkefni sem bíða okkar sem ríkisstjórnar- flokks. Við eigum eftir að fara betur yfir þau og ræða þau við okkar samstarfsflokk, hvernig ætlum við að taka á efnahagsstefnunni þegar AGS fer, hvernig ætlum við að taka á sjávarútvegsmálum, auðlindamálum og svo framvegis,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, starfandi þing- flokksformaður VG, við blaðamenn eftir fundinn í gær. „Allt eru þetta stórmál sem þarf að takast á við á næstu vikum og mánuðum og við þurfum að sjálfsögðu að ræða okkur í gegnum. Við erum að gera það og munum gera það áfram.“ Næsti fundur þing- flokksins verður næstkomandi mánudag. Árni Þór sagði of snemmt að segja til um það hvort ESB-málin færu í annan farveg. „Þetta viðfangsefni er í ákveðnum farvegi. Það fara að koma ákveðin kaflaskipti í það þegar við förum að móta okkar samningsstöðu í einstökum málum. Þá þurfum við að ræða saman um það, bæði innan flokksins og á milli flokkanna,“ segir Árni Þór. Spurður hvort það ríkti traust á milli þremenninganna og annarra þing- manna flokksins sagðist Árni Þór telja að svo væri. Þurfum að ræða okkur í gegnum málin „Það voru sérstaklega rædd þau stóru mál sem hafa ver- ið til umræðu í okkar flokki og valdið málefnaágrein- ingi, eins og efnahagsstefnan, vinnubrögðin og síðast en ekki síst Evrópusambandsumsóknin og staða hennar,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG. Hann segist fagna því að fram hafi farið hreinskiptnar og opn- ar umræður og þær hafi verið löngu tímabærar. Ásmundur Einar hefur talað fyrir breyttri stefnu í Evrópumálum. Hann segir að umsóknarferlið hafi verið rætt og sú staða sem málið sé komið í með kröfum um aðlögun að stjórnkerfi ESB. „Kröfur þessa efnis eru að byrja að birtast okkur, hægt og rólega,“ segir Ásmundur. Spurður að því hvort hann telji að ný stefna verði tekin segir Ásmundur að ekki náist að útkljá svo stórt mál á einum stuttum fundi. „Menn voru sammála um að ræða málið áfram. Ég bind töluverðar vonir við að einhver niðurstaða fáist í það enda var samþykkt flokksráðsfundar VG afdráttarlaus og öllum fjárveitingum frá ESB hafnað sem og allri aðlögun að sambandinu.“ Ásmundur segist ekki vera á leið úr þingflokknum enda fari sjónarmið hans vel saman við þau grunnsjónarmið sem VG var stofnað um. Bind vonir við niðurstöðu í ESB-málum „Þetta voru mjög hreinskiptnar umræður um ágrein- ingsmálin. Þeim lauk ekki og verður fram haldið á þing- flokksfundi á mánudag,“ sagði Lilja Mósesdóttir, þing- maður VG, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég legg áherslu á að við mótum sem fyrst efnahags- stefnu sem tekur við af AGS sem er á leiðinni út,“ segir Lilja og telur sig hafa fengið nokkrar undirtektir. „Við skiptumst á skoðunum um það og ég óskaði eftir að við ræddum málið frekar.“ Spurð að því hvort hún teldi að hluti þingmanna flokksins vildi hana út úr þingflokknum sagðist Lilja ekki hafa orðið vör við það á þessum fundi. „Ég upplifði það eftir hjásetuna að ákveðinn þrýst- ingur væri frá Samfylkingunni um að ekki yrði litið á okkur sem hluta af stjórnarliðinu.“ Lilja sagðist aðeins taka einn dag í einu í pólitíkinni þegar hún var spurð að því hvort hún teldi að fylkingarnar væru að ná saman og bætti því við að hún tryði ekki öðru en að það yrði. Tek einn dag í einu í pólitíkinni Þegar nokkrir nemendur við Menntaskólann á Akureyri könnuðu verð á smokkum á Íslandi í nýjum áfanga í skólanum ofbauð þeim hversu hátt það er. Verðkönnunin var hluti af verkefni í svonefndum Íslandsáfanga sem verið er að reyna í fyrsta skipti í MA, fyrstum skóla á landinu, og áttu nemendur þar að velja sér málstað og berjast fyrir honum. „Okkur fannst verð á smokkum svo hátt að við fórum að kynna okk- ur þetta og komumst þá að því að þeir eru í hæsta mögulegum [virðis- auka]skattsflokki og eru flokkaðir sem munaðarvara en ekki heilbrigð- isvara,“ segir Birta Kristjánsdóttir, einn nemendanna. Eftir því sem þau komust næst við eftirgrennslan sína var ódýrasta stykkið af smokkum á landinu á 80 krónur. „Okkur finnst þetta svo mikilvægt því þjóðfélagið er að borga mjög há gjöld fyrir kynsjúkdóma og með- höndlun þeirra og ótímabærar þung- anir, þá bæði fóstureyðingar og að styðja einstæðar mæður,“ segir hún. 90% á undirskriftalista „Við hugsuðum okkur þetta þann- ig að fyrst væri hægt að lækka verð fyrir unglinga og námsfólk sem er ekki að vinna eða vinnur lítið. Það er enginn að fara segja unglingum að hætta að stunda kynlíf svo það yrði þá bara gert áfram óvarið,“ segir Birta. Nemendurnir stofnuðu Facebook- síðu sem hluta af verkefninu og stóðu þar að auki fyrir undir- skriftasöfnun í skólanum um að breyta virðisaukaskattlagningu á smokkum. Segir Birta að um 90% nemenda við menntaskólann hafi skrifað nafn sitt undir og ætlunin sé að skila list- anum til heilbrigðisráðu- neytisins og annarra yfir- valda sem málið varðar. kjartan@mbl.is Vilja gera smokka ódýrari  Nemendur við Menntaskólann á Akureyri vekja athygli á háu verði á smokkum  Flokkaðir sem munaðarvara Ríkið setur smokka í hæsta skattþrep þannig að á þeim er 25,5% virðisaukaskattur og eru þeir flokkaðir sem mun- aðarvara. Beiðni frá Sótt- varnaráði um ókeypis smokka fyrir ungt fólk hefur legið á borði heilbrigðis- ráðuneytisins frá árinu 2004. Í hæsta skattþrepi HÁTT VERÐ Á SMOKKUM Maður á tvítugsaldri sem reyndi að ræna útibú Arionbanka í Árbæ í gærmorgun og viðhafði ógnandi til- burði við starfsmenn bankans gaf sig sjálfur fram við lögreglu í gær- kvöldi og játaði aðild sína að verkn- aðinum. Gisti ungi maðurinn fanga- geymslur lögreglunnar í nótt og stóð til að yfirheyra hann nú í morgun. Játaði aðild að tilraun til banka- ráns í Árbænum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.