Morgunblaðið - 06.01.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011
Ríkisstjórnarútvarpið fékk stjórn-málafræðing í gærmorgun til
að spá í spilin um framtíð ríkisstjórn-
arinnar. Eðli máls samkvæmt var
talið heppilegast að ræða málin við
innanbúðarmanninn
Eirík Bergmann Ein-
arsson, fyrrverandi
varaþingmann Sam-
fylkingarinnar.
Eftir hefð-bundnar um-
ræður um „órólegu
deildina“ í Vinstri grænum sagðist
Eiríkur telja fremur líklega niður-
stöðu að ríkisstjórnin færi að líta á
sig sem minnihlutastjórn.
Að því búnu hélt varaþingmaður-inn fyrrverandi því fram að
minnihlutastjórnir væru algengari
en ekki á Norðurlöndum, en að ís-
lensk stjórnmál hefðu ekki verið
nægilega „þroskuð“ til að halda úti
slíkum stjórnum.
Ekki er óalgengt úr slíkri átt aðÍsland sé dregið niður og gert
lítið úr því. Stundum er það gert til
að þjóna hagsmunum ESB, en nú eru
líkur á að Samfylkingin geti ekki
haldið saman meirihlutastjórn og þá
er því dreift að tími hinna þroskuðu
stjórnmála sé runninn upp.
Nú, þegar það hentar Samfylk-ingunni, heitir það þroski hjá
frændum okkar á Norðurlöndum að
geta ekki komið saman meiri-
hlutastjórnum, en vanþroski hjá Ís-
lendingum að hafa tekist það.
Íslenskir stjórnmálamenn hafa líkaverið of vanþroskaðir til að
stunda samráðsstjórnmál gegn al-
menningi, en að mati stjórnmála-
fræðings Samfylkingarríkisstjórnar-
útvarpsins er æskilegt að úr þessu
verði bætt ef það mætti verða til þess
að lengja í forystuleysi Samfylking-
arinnar í íslenskum stjórnmálum.
Eiríkur Berg-
mann Einarsson
Þroskað samráð
gegn kjósendum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.1., kl. 18.00
Reykjavík -4 skýjað
Bolungarvík -1 alskýjað
Akureyri -5 snjókoma
Egilsstaðir -5 snjókoma
Kirkjubæjarkl. -2 skýjað
Nuuk 0 heiðskírt
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 0 snjókoma
Kaupmannahöfn -1 heiðskírt
Stokkhólmur -1 alskýjað
Helsinki -12 skýjað
Lúxemborg -2 heiðskírt
Brussel 1 léttskýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 2 skúrir
London 5 skýjað
París 2 súld
Amsterdam 0 heiðskírt
Hamborg -2 heiðskírt
Berlín -3 heiðskírt
Vín -3 alskýjað
Moskva -8 skýjað
Algarve 17 skýjað
Madríd 8 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 10 skýjað
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -20 heiðskírt
Montreal -5 léttskýjað
New York 2 heiðskírt
Chicago -6 skýjað
Orlando 20 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:13 15:55
ÍSAFJÖRÐUR 11:52 15:25
SIGLUFJÖRÐUR 11:37 15:07
DJÚPIVOGUR 10:51 15:16
BAKSVIÐ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra segir að setning reglugerð-
ar um viðburði í opinni dagskrá sjón-
varps taki lengri tíma en hún hafi
gert ráð fyrir, en vonar að biðinni
ljúki senn. Það breyti samt ekki
þeirri ákvörðun 365 miðla að sýna
flesta leiki Íslands í heimsmeist-
arkeppninni í handbolta, sem hefst í
Svíþjóð í næstu viku, í læstri dag-
skrá Stöðvar 2 sports og sama gildi
hugsanlega um HM 2013.
Í byrjun ágúst sem leið tryggði
Stöð 2 sport sér réttinn til að sjón-
varpa frá heimsmeistarakeppninni í
handbolta í Svíþjóð 2011 og á Spáni
2013. Í kjölfarið hóf mennta-
málaráðuneytið að vinna í því að
leikir Íslands á HM yrðu sýndir í op-
inni dagskrá eins og verið hefur í
Sjónvarpinu í um fjórðung aldar.
Of seint í rassinn gripið
Í sumar sagði menntamálaráð-
herra mikilvægt að hægt væri að
fylgjast með leikjunum í beinni út-
sendingu í opinni dagskrá og hún er
enn á sömu skoðun en áréttar að
ráðuneytið geti ekki haft áhrif á
gang mála fyrr en reglugerð, þar
sem birtur sé listi yfir mikilsverða
viðburði, liggi fyrir. Eftirlitsstofnun
EFTA hafi yfirumsjón með málinu á
öllum stigum, enda sé heimildina til
að birta slíkan lista að finna í sjón-
varpstilskipun ESB. Sýna verði
fram á áhorfstölur þeirra viðburða
sem talið er að eigi heima á slíkum
lista og sem sendir eru út með reglu-
bundnum hætti, hafa víðtækt sam-
ráð við hagsmunaaðila við undirbún-
ing og ákvarða framkvæmdina og
hugsanleg ágreiningsmál í samræmi
við Evrópureglur. Að lokum þurfi
samþykki allra EES-ríkja á fundi
með framkvæmdastjórninni áður en
listinn taki gildi hér á landi. „Þetta
er því ekki eitthvað sem er afgreitt á
nokkrum mánuðum, segir hún.“
Katrín viðurkennir að sennilega
hafi verið farið of seint af af stað
með að huga að reglugerð í þessu
efni. Málið hafi oft verið rætt, en fyr-
ir sína tíð hafi sú ákvörðun ávallt
verið tekin á hinum pólitíska vett-
vangi að láta kyrrt liggja.
„Mér fannst borðleggjandi að fara
í þessa vinnu, þegar málið kom upp í
sumar, en hún tekur meiri tíma en
ég átti von á,“ segir hún.
Menntamálaráðherra segir auk þess
að ekki sé hlaupið að því að setja
saman lista um viðburði sem eigi að
sýna í opinni dagskrá í sjónvarpi.
Ekki sé aðeins um íþróttaviðburði að
ræða heldur ýmsa menn-
ingarviðburði sem sýndir
séu með reglubundnum
hætti. Sem dæmi nefn-
ir Katrín að í Aust-
urríki séu árlegir ný-
árstónleikar
sinfóníu-
hljómsveit-
arinnar og
Óperudans-
leikurinn á listanum
yfir mikilsverða við-
burði. Hún spyr til
dæmis hvort þetta
eigi að eiga við um
viðburði eins og dagskrá í tengslum
við opnun tónlistarhússins Hörpu.
21 stórmót frá 1984
Íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta komst óvænt inn á Ólympíu-
leikana í Los Angeles 1984 og hefur
síðan verið með á fernum Ólympíu-
leikum að auki (1988, 1992, 2004,
2008), tekið níu sinnum þátt í úr-
slitakeppni heimsmeistaramótsins
(1986, 1990, 1993, 1995, 1997, 2001,
2003, 2005, 2007), leikið sex sinnum í
úrslitakeppni Evrópumótsins (2000,
2002, 2004, 2006, 2008, 2010) og
tvisvar í B-keppninni (1989, 1992).
Úrslitakeppni HM í Svíþjóð er því
21. stórmót liðsins síðan 1984, en
vegna þessarar frammistöðu hefur
gjarnan verið talað um handbolta
sem þjóðaríþrótt og leikmennina
sem strákana okkar.
Þjóðaríþrótt
Árangurinn hefur kallað á mikla
umfjöllun í fjölmiðlum. Rúv hefur til
dæmis sýnt alla leiki Íslands og fleiri
til í fyrrnefndum mótum beint og í
opinni dagskrá. Þannig hefur Sjón-
varpið fært þjóðaríþróttina og strák-
ana okkar beint inn í stofu lands-
manna. Þessi mikla umfjöllun hefur
m.a. gert það að verkum að áhugi
landsmanna á leikjunum hefur verið
ótvíræður. Til dæmis var um 82%
uppsafnað áhorf á leik Íslands og
Danmerkur í EM fyrir um ári. Upp-
safnað áhorf á leik Íslands og Pól-
lands var um 77%, 76,4% á leik Ís-
lands og Frakklands, 73,6% á leik
Íslands og Noregs og 71,8% á úr-
slitaleik Frakklands og Króatíu.
Fyrir skömmu lék kvennalands-
liðið í úrslitakeppni EM. Sjónvarpið
sýndi beint frá mótinu og var upp-
safnað áhorf á leik Íslands og Króat-
íu 44,7%, 28,7% á leik Íslands og
Rússlands og 25,6% á leik Íslands og
Svartfjallalands.
Um svipað leyti sýndi Stöð 2 sport
frá heimsbikarmóti karla í Svíþjóð í
læstri dagskrá. Uppsafnað áhorf á
leik Íslands við Svíþjóð var 7,6% og
við Noreg 7,1%.
Erfið fæðing og læst á meðan
Handbolti hefur verið kallaður þjóðaríþrótt Íslendinga en blikur eru á lofti
Reynslan sýnir að áhorf er mun minna á kappleiki í læstri dagskrá en opinni
Morgunblaðið/hag
Þjóðaríþrótt Íslenska landsliðið í handbolta hefur nánast verið heima í
stofu landsmanna í aldarfjórðung, en nú verður breyting á því.
Sláandi munur er á uppsöfnuðu
áhorfi á beinum útsendingum
leikja í opinni dagskrá Sjón-
varpsins og læstri útsendingu
Stöðvar 2.
Í haust léku U21-lið Íslands
og Skotlands í fótbolta tvo leiki
um sæti í úrslitakeppni EM. Úti-
leikurinn var sýndur beint í op-
inni dagskrá Sjónvarpsins og
var uppsafnað áhorf 58%.
Heimaleikurinn var sýndur í
læstri útsendingu á Stöð 2
sport 2 og var uppsafnað áhorf
11%.
Uppsafnað áhorf á EM-leik Ís-
lands og Portúgals í Sjónvarp-
inu var 61,3%, en 12,7% á Stöð
2 sport 2 á leik Danmerkur og
Íslands. Munurinn var enn
meiri á beinum útsend-
ingum stöðvanna frá
HM sl. sumar.
Læst dagskrá
laðar ekki að
BEINAR ÚTSENDINGAR