Morgunblaðið - 06.01.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011
Þjóðminjasafn Íslands er glæsilegt
safn sem við Íslendingar mættum
monta okkur meira af og heimsækja
oftar. Þjóðminjasafnið heldur úti
flottri vefsíðu á slóðinni Natmus.is
og þar má lesa margan fróðleik um
starfsemi safnsins sem er mjög víð-
tæk.
Á síðunni eru upplýsingar um sýn-
ingar, útgáfu, fræðslu, hvað er í boði
fyrir gesti, minjar og rannsóknir og
þar undir eru upplýsingar um forn-
leifar, forvörslu, húsasafn, munasafn,
þjóðháttasafn og ljósmyndsafn. Svo
má lesa sér til um safnið, sögu og
starfsemi þess.
Þjóðminjasafnið telst stofnað 24.
febrúar 1863. Í dag er það vísinda- og
þjónustustofnun í eigu íslenska ríkis-
ins. Því er ætlað að vera miðstöð
þjóðminjavörslu og rannsókna á
menningarsögulegum minjum í land-
inu. Hlutverk þess er að auka og
miðla þekkingu á menningararfi ís-
lensku þjóðarinnar frá upphafi til
vorra daga og stuðla að því að sem
flestir geti haft gagn og gaman af
sögu og minjum lands og þjóðar.
Meginhluti safnhússins við Suð-
urgötu 41 í Reykjavík hýsir grunnsýn-
ingu Þjóðminjasafnsins: Þjóð verður
til – menning og samfélag í 1200 ár.
Vefsíðan www.natmus.is
Morgunblaðið/Ernir
Búningur og bátur Tvennt af mörgu á sýningu í Þjóðminjasafni Íslands.
Hvernig varð þjóðin til?
Í dag er þrettándi og síðasti dagur
jóla. Þrettándinn er alltaf 6. janúar
og heitir upphaflega opinberunar-
hátíð og hefur verið tengdur ýmsum
kristnum trúaratburðum, einkum
skírn Krists og Austurlandavitr-
ingum. Hérlendis hefur hann öðru
fremur verið lokadagur jóla, segir í
bók Árna Björnssonar, Sögu dagana.
Margir gera sér aðeins glaðari dag
í dag í tilefni þess að jólahátíðinni
lýkur nú formlega, þeir bera fram
betri mat, borða restina af jólakon-
fektinu og skella sér á þrettánda-
brennu en eitthvað verður af þeim
um landið í kvöld.
Endilega …
… kveðjið jólin
með stæl
Morgunblaðið/Kristinn
Þrettándinn Brennur verða í kvöld.
Það er oft gert grín að tæknikunnáttu
eldra fólks og ungt fólk ranghvolfir
augunum yfir töktum foreldra sinna
með fjarstýringuna eða tölvumúsina.
Sérfróðir segja að lykillinn að því að
fá mömmu og pabba til að nota
tæknina sé ekki að kaupa það nýjasta
og flottasta handa þeim, heldur leita
að búnaði sem svarar grunnþörfum og
gerir það sem þau vilja sérstaklega
gera. Það er líka hjálplegt ef það að
læra á búnaðinn er ekki alveg nýtt fyrir
þeim, að þau þekki smá til. Það þarf
líka að vera gulrót á hinum endanum,
eitthvað hvetjandi. Svo tækni festist
við eldra fólk verður að skilja hvað fær
þau til að finnast notkun á búnaðinum
skemmtileg. Það sem heillar ungt fólk
er ekki endilega það sem heillar það
eldra og verður jafnvel það sem fælir
þau frá.
Tæknibúnaður fyrir eldra fólk þarf
að hafa þrjár viðmiðanir: einfaldleika í
notkun, að auðvelt sé að leita sér upp-
lýsinga um notkun með símaaðstoð og
búnað sem er auðvelt að vinna með.
Þegar tækið er komið upp verður
ánægjan að vega þyngra en átakið.
Það er líka mikilvægt að meta
hversu stórt tæknilegt skref eldra fólk-
ið er tilbúið að taka. Þeir sem kunna á
myndbandstæki og mynddiskaspilara
eru líklegri til að fagna nýjum búnaði.
Einfaldur búnaður sem svarar per-
sónulegum þörfum er málið, eins og
tölvupóstur, eitthvað sem gerir það
auðveldara að vera í sambandi við fjöl-
skylduna og skoða myndirnar af
barnabörnunum.
Lesbúnaður eins og Kindle er líka
Tækni
Eldra fólk vill tæknibúnað
sem svarar grunnþörfum
Reuters
Eldra fólk Líka fyrir tækni.
Bónus
Gildir 6.- 9. jan. verð
nú
áður mælie. verð
Appelsínur .............................. 198 219 198 kr. kg
Grape ..................................... 198 219 198 kr. kg
Frosnir mangóbitar 1 kg........... 498 598 498 kr. kg
Frosnir ananasbitar 1 kg .......... 498 598 498 kr. kg
Bónus floridanasafi 1 ltr .......... 179 195 179 kr. ltr
ES haframjöl 500 g ................. 69 75 138 kr. kg
Barilla spagettí 1 kg ................ 259 277 259 kr. kg
Bónus lýsisperlur 300 stk. ....... 398 498 398 kr. pk.
Bónus engiferdrykkur 500 g ..... 149 298 298 kr. ltr
Fjarðarkaup
Gildir 6. - 8. jan. verð
nú
áður mælie. verð
Nautagúllas úr kjötborði........... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Lambafille m/fitu úr kjötborði... 2.998 3.498 2.998 kr. kg
Svínakótelettur úr kjötborði ...... 998 1.458 998 kr. kg
Hamborgarar 4x80 g ............... 496 596 496 kr. pk.
SS rauðvínslegið lambalæri ...... 1.902 2.378 1.902 kr. kg
Fjallalambs hangif.partur úrb.... 2.128 2.364 2.128 kr. kg
Toppur 2 ltr............................. 198 239 99 kr. ltr
Appelsínur .............................. 148 198 149 kr. kg
Hagkaup
Gildir 6. - 9. jan. verð
nú
áður mælie. verð
Holta kjúklingavængir ferskir .... 299 398 299 kr. kg
Holta kjúklingaleggir ferskir ...... 659 878 659 kr. kg
Holta kjúklingabitar blandaðir... 559 798 559 kr. kg
Holta kjúklingalundir ferskar ..... 1.931 2.758 1.931 kr. kg
Íslands naut wok strimlar ......... 2.024 2.698 2.024 kr. kg
Íslands lamb helgarst. úrb. læri 1.874 2.498 1.874 kr. kg
Floridana heilsusafi 1 ltr .......... 199 244 199 kr. stk.
Myllu Risabrauð ...................... 199 238 199 kr. stk.
Krónan
Gildir 6. - 9. jan verð
nú
áður mælie. verð
Grísahryggur úrb...................... 999 1.998 999 kr. kg
Grísapanna............................. 998 1.698 998 kr. kg
Núðlur m.kjúklingi ................... 629 898 629 kr. kg
Lambafille m. fiturönd ............. 2.998 3.498 2.998 kr. kg
Grísagúllas ............................. 998 1.698 998 kr. kg
Grísasnitsel............................. 998 1.698 998 kr. kg
Ísl. m. kjúklingabringur ............ 1.998 2.298 1.998 kr. kg
Kexsm. karamellusnúðar .......... 399 549 399 kr. pk.
Lambi eldhúsrúllur................... 398 498 398 kr. pk.
Nóatún
Gildir 6. - 9. jan. verð
nú
áður mælie. verð
Lambalæri kryddað/ókryddað... 1.348 1.498 1.348 kr. kg
Lambalærissneiðar .................. 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Lamba sirloinsneiðar ............... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Lamba framhryggjarsneiðar ...... 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Ungnautagúllas ....................... 1.899 2.398 1.899 kr. kg
Ísl. m. kjúklingur heill .............. 695 869 695 kr. kg
Ristorante pítsa funghi............. 499 649 499 kr. stk.
Jöklabrauð.............................. 279 399 279 kr. stk.
Bounty zewa eldhúsrúllur ......... 398 498 398 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 6. - 9. jan. verð
nú
áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur heill .............. 749 1.072 749 kr. kg
Ísfugls kjúklingalæri og -leggir .. 698 998 698 kr. kg
Toppur sódavatn 2 ltr............... 289 210 105 kr. ltr
Hámark súkkulaði 250 ml........ 179 199 716 kr. ltr
Trópi appelsínu m/aldinkj. 1 ltr 239 289 239 kr. ltr
Capri Sonne djús 10x200 ml ... 598 739 60 kr. stk.
Hunt́s spagettísósa 0sta 751 g 279 349 372 kr. kg
Helgartilboðin
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
ÍGömlu matarbúðinni erum.a. seldar vörur undir vöru-merkinu Urta Islandica semþær Þóra og Ólöf Erna
standa að. Undir því merki er fyrst
og fremst framleitt te úr þurrk-
uðum íslenskum jurtum.
„Þar ber helst að nefna að-
albláberjate sem er að öllu leyti úr
þurrkuðum bláberjum. Svo erum
við með te sem heitir Boðflennur en
það er úr hvönn, kerfli og njóla,“
segir Þóra en nafnið vísar í að jurt-
irnar eru taldar boðflennur í ís-
lenskri náttúru en eru allar þekktar
lækningaplöntur sem eru notaðar
til að ráðast gegn óboðnum gestum,
bakteríum og veirum, í mannslík-
amanum.
Að auki búa þær til krydd-
sultur og síróp úr jurtum og berj-
um. Sírópið var upphaflega hugsað
til að setja út í teið en að sögn Þóru
nota margir það í eftirrétti og í sal-
öt.
Vörur úr íslenskum jurtum
ekki nógu sýnilegar
Þóra segir að sér og Ólöfu hafi
þótt vera þörf fyrir búð eins og
Gömlu matarbúðina á heilsu-
vörumarkaðnum þar sem mikil
áhersla er lögð á jurtir.
„Mér fannst að það mætti
vinna meira með íslenskrar jurtir til
að þær næðu máli. Þrátt fyrir að
það séu þónokkrir að framleiða úr
þeim fannst mér fannst það litla
sem er framleitt ekki ná að vera al-
mennilega sýnilegt. Hugmyndin var
að koma inn með það sem vantaði
þannig að þetta næði einhverju máli
með hinum framleiðendunum, næði
samlegðaráhrifum og yrði sýni-
legra. Það má í því samhengi til
dæmis nefna íslenskar snyrtivörur
sem eru gerðar úr jurtum. Nú eru
komnir nógu margir framleiðendur
til að snyrtivörurnar séu sýnilegar
og raunverulegt val,“ segir Þóra.
Aðspurð segir Þóra að Urta Is-
landica vörunum og Gömlu mat-
arbúðinni hafa verið vel tekið. „Við
erum búnar að fá frábærar við-
Sérhæfa sig í vörum
úr íslenskum jurtum
Í haust var Gamla matarbúðin opnuð við Austurgötu í Hafnarfirði. Verslunin sér-
hæfir sig í vörum sem eru unnar úr íslenskum jurtum en í henni er einnig að finna
handverk, hönnun og myndlist sem vísa í jurtir og sjávargróður. Eigendurnir Þóra
Þórisdóttir myndlistarmaður og Ólöf Erna Adamsdóttir kennari kynntust á braut-
argengisnámskeiði Impru þar sem konur eru hvattar til að hrinda góðum hug-
myndum í framkvæmd – og er það nákvæmlega það sem þær gerðu.
Sætindi Þóra og Ólöf búa til kryddsultur og síróp úr jurtum og berjum.
Baðsalt Margt fallegt og gott fyrir líkama og sál er til sölu í búðinni.