Morgunblaðið - 06.01.2011, Side 12

Morgunblaðið - 06.01.2011, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Afleiðingar hlýnunar sjávar suður og vestur af landinu hafa verið þær, svo dæmi séu nefnd, að meira af úrkomu hefur fallið sem regn í stað þess að falla sem snjór. Sömuleiðis hafa orðið talsverðar breytingar á út- breiðslu fiskteg- unda á íslensku hafsvæði. „Síðustu 10-15 árin hafa orðið breytingar á Norð- ur-Atlantshafi á þá lund að hlýsjór úr austanverðu haf- inu hefur breiðst út í auknum mæli til vesturs vegna þess að hringstreymi kaldari sjávar frá Labradorhafi hefur gefið eftir,“ segir Héðinn Valdimars- son, haffræðingur á Hafrannsókna- stofnuninni. „Fyrir vikið hefur meira verið af heitari og saltari sjó á íslensku haf- svæði en áður. Ákveðnustu einkennin hafa verið fyrir sunnan og vestan land en jafnramt fyrir norðan og austan, þó að sveiflur þar hafi verið meiri þessi síðustu ár. Hlýnunin hefur að stærst- um hluta orðið fyrir áhrif breytinga á hringrás lofthjúpsins eða lægðagangi þar, með orkuskiptum sjávar og lofts á þessu hafsvæði,“ segir Héðinn. Flókið samspil Fram kom í Morgunblaðinu í gær að vísindamenn við svissneska stofnun um haffræði og tækni (EAWAG) hafa fundið vísbendingar um miklar breyt- ingar á hafstraumum í Norður-Atl- antshafi frá 8. áratug síðustu aldar. Straumarnir hafa áhrif á veðurfar á norðurhveli jarðar. Breytingar hafi verið greindar á djúpsjávarkóröllum í Atlantshafi sem bendi til þess að áhrif hins kalda Labradorstraums séu að dvína. Straumurinn kaldi mætir hlýj- um Golfstraumnum sem kemur úr suðri. Labradorstraumurinn og Golf- straumurinn eru liðir í flóknu samspili veðurfarslegra þátta sem kenndir eru við „Norður-Atlantshafssveifluna“ en hún ræður miklu um veðurfar í Evr- ópu og Norður-Ameríku. Vísinda- menn hafa bent á truflun eða breyt- ingu á sveiflunni sem skýringu á rökum eða hörðum vetrum í Evrópu og miklum sumarþurrkum í Rúss- landi á nýliðnum árum. Héðinn sagðist ekki hafa kynnt sér niðurstöður þessarar rannsóknar sér- staklega, en fyrir lægi að eftir 1996-7 hefði orðið hlýnun í sjónum við Ísland. Í hlýsjónum sunnan við neðansjávar- hryggina milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja/ Skotlands hins vegar næmi þessi hlýnun 1-1,5 gráðum í efri sjávarlög- um. Langtímabreytingar á hringrás „Fæðuskilyrði í sjónum breytast oft í kjölfar hlýnunar eða kólnunar,“ segir Héðinn. „Þessi hlýnun hefur leitt til þess að nokkrum árum síðar fór að verða vart við aukna ýsugengd norður fyrir land, aukna útbreiðslu á skötusel, breytingar á göngum upp- sjávafiska eins og kolmunna, sem rauk upp úr öllu um tíma með bættri nýliðun, og makríllinn fór síðan að breiða úr sér í kjölfarið. Á sama tíma hefur það gerst á og við landið að meira af úrkomunni hef- ur fallið sem regn en ekki sem sjór eins og áður. Það er erfitt að skilja á milli hvað er vegna breyttrar hringrásar í and- rúmsloftinu og hvað er vegna breyt- inga á eðli hafstrauma. Þetta er ná- tengt og ef breytingar verða í sjónum þá verða breytingar í andrúmsloftinu og öfugt. Ég tel haldbærustu skýr- ingu þessarar hlýnunar síðustu ár vera tengda langtímabreytingum á brautum lægða og hringrás lofthjúps- ins,“ segir Héðinn. Regn frekar en snjór og breytt fiskgengd  Breytingar á hringrásinni í andrúmsloftinu og á eðli strauma í hafinu eru nátengdar, segir haffræðingur G RÆN L A N D Í S L A N D L A B R A D O R Í R L A N D NÝFUNDNA- LAND N O R E G U R NORÐ UR ATL ANTSHAFSSTRAUMUR NO RE GS ST RA U M U R Labrador- haf No rs ka ha fið Grænlands- haf LA B RA D O RS TR AU MUR DJ ÚP ST RA UM AR TIL SU Ð U RS GOLFSTRAUMUR Reykjavíkurborg hækkaði fjárhags- aðstoð til fram- færslu í nóvember sem leið og er fjárhæðin í sam- ræmi við tilmæli velferðarráð- herra. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hefur Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra beint þeim tilmælum til sveitarstjórna að þær hækki mánaðarlega fjárhags- aðstoð sína til einstaklinga þannig að hún verði sambærileg við atvinnu- leysisbætur, en grunnatvinnuleysis- bætur eru 149.523 kr. á mánuði. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, segir að Reykjavíkur- borg hafi þegar hækkað fjárhags- aðstoðina og á ekki von á frekari hækkunum að sinni. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar til framfærslu einstaklinga er 149.000 kr. frá og með 1. janúar sl., en var áður 125.540 krónur. Fjárhagsaðstoð til hjóna er nú 223.500 kr. en var 200.864 kr. steinthor@mbl.is Reykjavík á undan ráðherra Björn Blöndal Lýsing í innri hluta Hvalfjarðar- ganga fullnægir kröfum staðla þar að lútandi, samkvæmt niður- stöðum mælinga sem Mannvit verkfræðistofa hf. hefur gert. Lýsing verður aukin nokkuð innan beggja munna ganganna á árinu 2011 í samræmi við hertar kröfur frá árinu 2010, að sögn Spalar sem á og rekur göngin. Áætlaður kostnaður er 15 millj- ónir króna. Sem kunnugt er fengu Hval- fjarðargöngin ekki háa einkunn í skýrslu EuroTap í fyrra og var m.a. fundið að lýsingunni. Samkvæmt mælingum Mannvits er lýsing á innra svæði ganganna, sem er tæplega 5 km langt, 5-30% yfir lágmarkskröfum. Breyta þarf lýsingu á fyrstu 80 metrunum inn- an við gangamunna. Auka þarf lýsingu á hluta svo- kallaðs aðlögunarsvæðis, sem tek- ur við af innkeyrslusvæði og nær um 430 metra inn fyrir ganga- munna beggja vegna. Lýsing bætt í göngunum Héðinn sagði að sambærilegar breytingar hefðu orðið upp úr 1920 þegar hlýnaði og stóð það skeið fram undir 1960. Hann sagðist telja að hlýnunin þá og nú gætu átt sér hliðstæðar or- sakir. Héðinn sagðist varast að spá um framhaldið, þróunin gæti orðið í hvora áttina sem væri. Það sem væri fast í hendi væri að hitastig sjávar hefði hækkað fyrir 10-15 árum og hit- inn hefði síðan sveiflast í kring- um hærra meðaltal. Erfitt að spá um þróunina SVIPAÐ Á SÍÐUSTU ÖLD Héðinn Valdimarsson Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Val á langhlaupara ársins stendur nú yfir á hlaupavefnum hlaup.is og verða úrslit tilkynnt á laugardag. Þetta er í annað skipti sem lang- hlaupari ársins er valinn og líkt og fyrr eru útnefndir langhlauparar ársins af báðum kynjum. Mikill áhugi er á langhlaupum á Íslandi um þessar mundir, mikið framboð af keppnishlaupum úti um allt land og þátttökumet í hlaupunum eru slegin með reglu- legu millibili. Ágæt afrek voru unnin á árinu; mörg brautarmet voru slegin með eftirminnilegum hætti, Íslandsmet voru sett og ekki má heldur gleyma því að ótal margir bættu sinn persónulega ár- angur. Mikill fjöldi hlaupara var til- nefndur og af þeim valdi valnefnd sex karla og sex konur. Hægt er að kjósa um langhlaupara ársins á www.hlaup.is fram til miðnættis í dag, fimmtudag. Þar má einnig lesa rökstuðning valnefndar fyrir tilnefningunum en ástæðurnar fyr- ir tilnefningum eru eins misjafnar og hlaupararnir eru margir. Sá elsti 84 ára Þær konur sem tilnefndar eru í stafrófsröð þessar: Anna Sigríður Sigurjónsdóttir 49 ára, Helen Ólafsdóttir 39 ára, María Krist- jánsdóttir 47 ára, María Kristín Gröndal 30 ára, Rannveig Odds- dóttir 37 ára og Sigurbjörg Eð- varðsdóttir 52 ára. Þeir karlar sem eru tilnefndir eru þessir: Björn Margeirsson 31 árs, Guðmundur Sigurðsson 50 ára, Gunnlaugur Júlíusson 58 ára, Höskuldur Kristvinsson 61 árs, Jón Guðlaugsson 84 ára og Sig- urjón Sigurbjörnsson 55 ára. Morgunblaðið/Eggert Áhugi Þátttökumet var sett í Gaml- árshlaupi ÍR og fleiri hlaupum. Kosið um langhlaup- ara ársins ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Fréttir af eldsvoða í húsi við Eiðs- vallagötu að morgni sunnudags hafa varla farið fram hjá neinum. Það var stórkostlegt lán í óláni að fjögur ungmenni björguðust naumlega úr húsinu en nýjustu tíðindi eru afleit; að kveikt hafi verið í.    Hugsanlegt er að kviknað hafi óvart í húsinu, kannski var það vilj- andi, en lögreglan er sem sagt viss um að það hafi verið af mannavöld- um. Full ástæða er til að hvetja alla sem hugsanlega getað aðstoðað við rannsókn málsins að gefa sig fram.    Lögreglan hefur óskað eftir því að ná tali af ungum manni, sem var á vettvangi þegar lögregla og slökkvi- lið komu að húsinu en gafst ekki tækifæri til að ræða við þá. Hann er talinn dökkhærður og grannur og víst þykir að hann hafi verið klædd- ur í gallabuxur og svarta peysu með rauðum merkingum.    Rétt er að taka fram að viðkom- andi liggur ekki undir grun en lög- regla telur engu að síður mikilvægt að ná tali af honum. Sími lögregl- unnar er 464-7705.    Hreggviður Harðarson, einn þeirra sem björguðust úr eldsvoð- anum í Eiðsvallagötu, lýsti lífs- reynslunni í Morgunblaðinu á þriðjudaginn. Hann sagði blaða- manni þá að vinirnir ættu eftir að hitta Steinþór Stefánsson, sem fyrir algjöra tilviljun var í göngutúr í Eiðsvallagötu, heyrði í reykskynj- aranum og gat vakið einn þeirra sem svaf innandyra. „Ég á líka eftir að skila honum úlpunni,“ bætti Hregg- viður svo við. Þegar hann kom út, á nærbuxum og bol, smeygði Steinþór sér úr úlpunni og klæddi hann í.    Þórsarar halda ekki þrettánda- gleði að þessu sinni, eins og þeir hafa gert í áratugi með örfáum undan- tekningum. Þrettándagleðin hefur verið mikilvæg tekjulind í gegnum árin en síðustu ár hafa Þórsarar boð- ið bæjarbúum til skemmtunarinnar. Ekki tókst að útvega styrktaraðila í ár en formaðurinn, Sigfús Helgason, vonast til þess að geta tekið upp þráðinn strax næsta ár.    N4 Sjónvarp hér á Akureyri stóð á dögunum fyrir vali á Norð- lendingi ársins. Fjölmargir voru til- nefndir en fyrir valinu varð Helga Sigríður Sigurðardóttir. Enginn vafi var á því, segir á vef N4, hvað áhorf- endum stöðvarinnar var efst í huga: hetjuleg barátta og ótrúleg björgun Helgu Sigríðar, sem er aðeins 13 ára, en hneig niður í Sundlaug Ak- ureyrar og var um tíma mjög hætt komin eftir kransæðarstíflu.    Hjörleifur Örn Jónsson er ein- leikari á marimbu á fyrstu tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Norð- urlands á þessu ári. Þeir verða í Hofi síðdegis á sunnudag og á efnisskrá eru Holberg-svíta eftir Edvard Grieg, Konsert fyrir marimbu og strengjasveit eftir Ney Rosauro og Kammersinfónía í c-moll eftir Shos- takovich.    Tónleikaárið á Græna hattinum hefst með því að söngfuglinn Sigríð- ur Thorlacius og hinn glaðbeitti Bogomil Font koma fram ásamt Guðmundi Óskari úr Hjaltalín, Magnúsi Tryggvasyni Eliassen trommara og Davíð Þór Jónssyni hljómborðsmeistara. Eru tónleik- arnir kallaðir óveðurstónleikar (!) og verða á laugardagskvöldið.    Ken Leslie, sem nú dvelur í gestavinnustofu Gilfélagsins, opnar sýningu í gallerí BOXi í dag kl. 17. Óhugnalegt við Eiðsvallagötu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Bjargvættur og úlpueigandi Steinþór Stefánsson við Eiðsvallagötu 5.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.