Morgunblaðið - 06.01.2011, Síða 14
fordæmi,“ sagði Rene Otayek, sér-
fræðingur í málefnum Afríku við
rannsóknastofnun í Frakklandi.
Hann sagði þetta í fyrsta skipti sem
haldin væri þjóðaratkvæðagreiðsla í
Afríkuríki um aðskilnað tiltekins
svæðis sem hefur verið hluti af rík-
inu frá því að evrópsku nýlenduveld-
in skiptu álfunni.
Íbúar Erítreu samþykktu sjálf-
stæði frá Eþíópíu í þjóðaratkvæða-
greiðslu árið 1993 eftir 30 ára stríð.
Erítrea er þó ólík Suður-Súdan að
því leyti að landið var ekki hluti af
sambandsríkinu Eþíópíu fyrr en árið
1952 og var innlimað í Eþíópíu tíu ár-
um síðar.
Samræmist þjóðarétti
Roland Marshall, sérfræðingur í
málefnum Súdans við rannsókna-
stofnun í París, sagði að mestu máli
skipti að stjórnvöld í Súdan og Sam-
einuðu þjóðirnar hefðu samþykkt
þjóðaratkvæðagreiðsluna. „At-
kvæðagreiðslan er haldin í samræmi
við reglur þjóðaréttar,“ sagði hann.
„En hún sýnir að það er hægt að
knýja fram aðskilnað. Og úr því að
þetta er hægt getur það borgað sig
að berjast fyrir aðskilnaði.“
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Suður-Súd-
an á sunnudaginn kemur um hvort
landshlutinn eigi að fá sjálfstæði
skapar fordæmi fyrir aðskilnaðar-
hreyfingar í öðrum Afríkulöndum,
að mati sérfræðinga í málefnum álf-
unnar.
Búist er við að tillaga um að
Suður-Súdan verði sjálfstætt ríki
verði samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslunni og stærsta landi Afríku
verði skipt í tvennt. Það yrði söguleg
niðurstaða því að Einingarsamtök
Afríku, sem heita núna Afríkusam-
bandið, hétu því á sjöunda áratug
aldarinnar sem leið að halda í landa-
mærin sem mörkuð voru í Afríku á
ríkjaráðstefnu í Berlín árið 1885
þegar evrópsk nýlenduveldi skiptu
álfunni á milli sín. Eftir að Afríkurík-
in fengu sjálfstæði voru leiðtogar
þeirra sammála um að nauðsynlegt
væri að halda landamærunum
óbreyttum, ella væri hætta á að deil-
ur um landamæri og aðskilnaðar-
kröfur hleyptu allri álfunni í bál og
brand.
„Suður-Súdan skapar óneitanlega
Þjóðaratkvæðagreiðslan gæti gefið
aðskilnaðarsinnum í Afríku byr í seglin
Sjálfstæði Suður-Súdans
talið skapa fordæmi
300 km
Olíuleiðsla
Helstu olíulindir Múslímar
í meirihluta
Olíuvinnslu-
svæði
Trúarhópar
Súnní-
Múslímar
Afrísk trúar-
brögð
Kristnir 5%
25%
70%
Stærð: 2,5 millj. ferkm
Íbúafjöldi: 43,9 millj.
VLF: 10.700 milljarðar
VLF á mann: 255.000 kr.
Verðbólga: 11,2%
SÚDAN Í HNOTSKURN (’09) Þjóðernishópar
Blökku-
menn
Arabar
Beja
6%
Aðrir
3%
52%39%
ÞJÓÐARATKVÆÐI Í SÚDAN
Heimildir: Reuters, CIA World Factbook
Tillaga um að Suður-Súdan verði sjálfstætt ríki verður borin
undir þjóðaratkvæði þar á sunnudaginn kemur
Atkvæðagreiðslan á að
standa í sjö daga
Kjörsóknin þarf að vera 60% til að
niðurstaðan gildi
1955 Uppreisn aðskilnaðarsinna í
suðurhlutanumhefst
1972 Friðarsamningur undirritaður í
Addis Ababa
1983 Komið á íslömskum lögum,
sharia, í öllu landinu, borgarastríð
blossar upp að nýju
2002 Stjórn Súdans og
uppreisnarmenn undirrita
vopnahléssamningmeð ákvæði um
að Suður-Súdan geti sóst eftir
sjálfstæði sex árum síðar
2003 Uppreisnarmenn í Darfur
grípa til vopna. Herinn og vígasveitir
sem styðja stjórnina brjóta
uppreisnina á bak afturmeð
fjöldamorðum
2005 Borgarastríðinu lýkurmeð
friðarsamkomulagi og
samsteypustjórnmynduð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um
sjálfstæði Suður-Súdans og
Abyei-héraðs heimiluð
2008 Stjórnin og leiðtogar
Suður-Súdans ná samkomulagi um
stjórn Abyei-héraðs
2010 Febr. Stærsta
uppreisnarhreyfingin í Darfur, JEM,
og stjórnin undirrita friðarsamning.
Forseti Súdans lýsir yfir því að
stríðinu í Darfur sé lokið
2010 Des. SPLM lýsir yfir stuðningi
við aðskilnað Suður-Súdans
SPLM/A
Þjóðfrelsis-
hreyfing/her
Súdans
JEM
Réttlætis-
og jafnréttis-
hreyfingin
Ráðamenn í Khartoumhafa beitt
landsvæðiðmisrétti frá
nýlendutímanum
Um70% allrar olíuframleiðslunnar í
Súdan eru framleidd í suðurhlutanum
SAGA ÁTAKANNA
SUÐUR-SÚDAN
HELSTU UPPREISNARHREYFINGAR
Flestir íbúanna eru kristnir eða
hefðbundinnar afrískrar trúar
EÞÍÓPÍA
Khartoum
Port Sudan
Darfur
Abyei
Rauða-
haf
Juba
KENÍAÚGANDA
EGYPTALAND
TSJAD
LÍBÍA
AUSTUR-
KONGÓ
S Ú D A N
NO R Ð U R
S U Ð U R
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011
Árleg snjó- og íshátíð var sett í gær í kín-
versku borginni Harbin sem nefnd hefur
verið „ísborgin“. Hátíðin stendur í mánuð og
búist er við að milljónir manna sæki hana til
að skoða snjólistaverk og íshallir sem eru
eins og klipptar út úr ævintýrabókum.
Reuters
Snjó- og íshátíð sett í kínverskri ísborg
Um 40 bæir hafa orðið fyrir
tjóni af völdum mestu flóða sem
orðið hafa í sögu Queenslands-
ríkis í Ástralíu. Leðja, sem
berst með flóðunum, er talin
geta skaðað lífríkið í rifinu
Miklatálma, stærsta kóralrifi
heims, að sögn Michelle Devlin,
sem stundar rannsóknir á rif-
inu.
Flóðin ná yfir svæði sem er á
stærð við Frakkland og Þýska-
land og hafa valdið um 200.000 manns tjóni. Hermt
er að 1.200 íbúðir séu á kafi í vatni.
Um 75% kolanáma lokuð
Yfirvöld í Queensland segja að flóðin hafi þegar
kostað kolanámufyrirtæki sem svarar 110 millj-
örðum króna vegna tafa í kolavinnslu. Áætlað er að
námufyrirtækin tapi jafnvirði rúmra 11 milljarða
króna á dag. „75% kolanáma okkar eru lokuð núna
vegna flóðanna, þannig að þau hafa gríðarleg áhrif á
heimsmarkaðinn,“ sagði Anna Bligh, forsætisráð-
herra Queensland.
Flóðin virtust hafa náð hámarki í borginni Rock-
hampton í gær og vatnshæðin var þá 9,2 metrar, ívið
minni en gert hafði verið ráð fyrir. Veðurfræðingar
sögðu að flóðin myndu halda áfram næstu vikurnar
þar sem útlit væri fyrir áframhaldandi úrhelli.
Flóð hafa
valdið tjóni
í 40 bæjum
Um 1.200 íbúðir á kafi í
vatni í Queensland í Ástralíu
Eitt flóðasvæðanna
í Rockhampton.
Allt að 100
dauðar dverg-
krákur hafa fund-
ist í bænum Fal-
köping í Svíþjóð
og ekki er vitað
hvað olli dauða
þeirra. Sérfræð-
ingur sem rann-
sakar fuglana
sagði að of
snemmt væri að
fullyrða nokkuð um orsökina. Dag-
ens Nyheter hafði eftir fuglafræð-
ingnum Anders Wirdheim, að fugl-
arnir hefðu líklega orðið mjög
hræddir, flogið um í blindni og fallið
niður eftir að hafa rekist hver á ann-
an eða á einhverja hluti. „Dverg-
krákur nátta sig í stórum hópum.
Þegar fuglarnir verða hræddir eiga
þeir til að fljúga upp hundruðum
saman.“
Wirdheim sagði að mjög óvenju-
legt væri að svo margir fuglar fynd-
ust dauðir í Svíþjóð. Um 5.000 dauð-
ir fuglar fundust í Arkansas í
Bandaríkjunum um áramótin og 500
í Louisiana skömmu síðar en ekki er
vitað hvað olli dauða þeirra.
Dularfullur
fugladauði
í Svíþjóð
Einn dauðu
fuglanna skoðaður.
Yfirvöld í Sádi-
Arabíu hafa
fangað gæsa-
gamm sem grun-
aður er um að
hafa njósnað í
þágu ísraelsku
leyniþjónust-
unnar Mossad.
Fuglinn var með
GPS-sendi sem
merktur var Tel
Aviv-háskóla og það varð til þess að
sádi-arabísk dagblöð birtu ásakanir
um að Mossad hefði notað fuglinn
til að njósna. Ísraelskir fuglafræð-
ingar sögðu þetta fáránlega
samsæriskenningu og sendirinn
hefði aðeins verið notaður til að
fylgjast með ferðum fuglsins.
„Njósnafugl“
handtekinn
Gæsagammur.Redie Bereketeab, fræðimaður við
Norrænu Afríkustofnunina, telur
hættu á að stríð blossi upp að nýju
í Súdan vegna ýmissa óleystra
deilumála. Enn sé t.a.m. deilt um
mikilvægt hérað, Abyei, hvernig
marka eigi landamærin, hvernig
semja eigi um nýtingu vatns úr Níl
og hvernig skipta eigi tekjum af
olíuframleiðslunni í Súdan. Einnig
þarf að semja um hvernig skipta
eigi gríðarlegum skuldum Súdans,
auk þess sem óvissa er um hvort
Suður-Súdanar, sem búa í norður-
hlutanum, fái ríkisborgararétt þar.
Í höfuðborginni einni búa tvær
milljónir manna af suðursúdönsk-
um uppruna.
Hætta á að stríð hefjist á ný
MÖRG DEILUMÁL ERU ENN ÓLEYST