Morgunblaðið - 06.01.2011, Síða 16

Morgunblaðið - 06.01.2011, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Núverandiríkisstjórnstendur ekki í lappirnar en áköfustu stuðn- ingsmenn hennar benda hróðugir á að hún geti þó enn setið. Og þótt hún njóti aðeins stuðn- ings 35 prósenta þjóðarinnar geti hún samt setið og setið. Þetta er að forminu til rétt. En er endilega víst að þótt „fyrsta hreinræktaða vinstristjórnin“ hafi breyst í setulið, af því að hún stendur ekki lengur fyrir neitt, að stuðningsmönnum hennar á þingi muni líða vel með það. Er það álitleg fram- tíðarsýn fyrir næstu kosningar að sækja fram á sitjandanum? Fræðimenn og hinar talandi stéttir halda því fram að þótt stjórnin sé þannig augljóslega sest í kör, sem er áfangi í að leggjast í hana, þá sé stjórnar- andstaðan ekki mikið burðugri, því hún meini í raun ekkert með kalli sínu eftir kosningum. Hún óttast að eiga ekki upp á pall- borðið hjá kjósendum þrátt fyr- ir bullandi óvinsældir stjórnar- herra og ekki sé útilokað að þingsins bíði gnarrvæðing eins og borgarstjórnarinnar. Þess utan horfi einstakir þingmenn hennar skelfingu losnir til þeirrar prófkjörsbaráttu sem kosningum fylgi. Ríkisstjórn með þannig stjórnarandstöðu gæti ekki einu sinni fallið þótt hún innst inni vildi það helst. Það sé því uppi mjög óvenjuleg staða. Nú er lítill vafi á að kjós- endur tækju þingrofi og kosn- ingum vel. Þeir vita að ekkert getur orðið verra eða vitlausara en það ástand sem nú er. Og þótt sjálfsagt séu ekki allir enn komnir með upp í kok af gnarri er ekki líklegt að margur sé sólginn í tvöfaldan skammt. Kaffihúsaspekingar og þeir „fræðimenn“ sem fréttastofur leita helst til hafa reynst mis- vitrir. En þeir hafa þó dálítið hald í fréttum sem bárust um yfirlýsingar eins af þingmönn- um Framsóknar- flokksins. Vefritið AMX segir svo frá fyrir fáeinum dög- um: „Siv Friðleifs- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins, vill ekki þjóðstjórn eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins. Henni líst ekki held- ur á kosningar. Siv sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun að hún teldi að kosningar núna væru eitt af því sísta sem samfélagið þyrfti á að halda um þessar mundir. Hún hefði frekar verið tals- maður þess að stjórnmálamenn reyndu að einbeita sér að upp- byggingu í samfélaginu í stað þess að skapa meiri óróleika.“ Siv telur sem sagt að „sam- félagið“ þurfi síst af öllu á kosn- ingum að halda núna. Ef hún á við samfélagið í þinghúsinu fer hún sjálfsagt nærri um það. En utan þess gilda önnur sjónar- mið og væntingarnar þar eru gjörólíkar. Orð þessa þing- manns Framsóknarflokksins verða naumast skilin öðruvísi en svo en að hún muni taka af- stöðu til mála með hliðsjón af því hvort ríkisstjórnin komi þeim í gegn af eigin rammleik eða ekki. Sé sprungið undir rík- isstjórninni muni Siv breytast í varadekk í málinu, óháð því hvaða afstöðu hún eða flokkur hennar hafa til þess. Slík fram- ganga er að vísu á svig við ákvæði stjórnarskrár um frum- skyldu þingmanna við af- greiðslu mála. En þingmað- urinn virðist vilja vinna það til svo hún og þeir hinir í lokaða „samfélaginu“ þurfi ekki að horfa framan í alvörusam- félagið með þeim óróleika sem slíku kynni að fylgja, fyrr en þeir geta ekki vikist undan því lengur við lok kjörtímabils. Framsóknarflokk- urinn hefur verið að vinna sér traust. Einstakir þingmenn mega ekki grafa undan því} Sérkennileg staða Forsætisráð-herra leggur mikla áherslu á að sameina atvinnuvega- ráðuneytin í eitt og verður ekki betur séð en helsti tilgangur þess sé að fækka ráðherrum Vinstri grænna og sérstaklega að losna við óþægan ráðherra. Ljóst er orðið að áhugi á sameiningu þessara ráðuneyta er enginn í þeim atvinnugrein- um sem um ræðir. Áhuginn hef- ur aldrei verið fyrir hendi í sjávarútvegi og landbúnaði og í fyrradag ritaði formaður Sam- taka iðnaðarins grein hér í blaðið þar sem hann lýsir and- stöðu við þessi áform. Í áliti meirihluta allsherjarnefndar frá því í haust þar sem fjallað var um þetta mál er lögð áhersla á að samráð þurfi að fara fram áður en breyting á atvinnuvegaráðuneytum geti orðið að veruleika. Nú þegar af- staða þeirra sem samráðið snýr að liggur fyrir ætti forsætisráð- herra að sjá að sér og láta málið niður falla. Í ljósi reynslunnar er þó líklegra að hún haldi áfram að reyna að niðurlægja þingmenn Vinstri grænna. Atvinnuvegirnir leggjast alfarið gegn sameiningu atvinnu- vegaráðuneyta} Skýr afstaða V onandi er ekki verið að ljóstra upp miklu leyndarmáli þegar sagt er frá því að fleiri en einum ráðherra Samfylkingar er hlýtt til formanns Sjálfstæðisflokksins og þeir hefðu síður en svo á móti því að vinna með honum. Sennilega yrði sú samvinna til meiri farsældar en hið ólánlega sambýli við Vinstri græna þar sem hysteríuköst einstakra þingmanna eru orðin nær daglegt brauð með tilheyrandi leið- indum fyrir þjóðina. En Samfylkingin virðist þó enn um sinn dæmd til samvista við flokk sem er sundurtættur af innanflokksátökum. Formaður Sjálfstæðisflokksins virðist svo dæmdur til valdaleysis, sem er náttúrlega óþol- andi tilhugsun fyrir sjálfstæðismenn. Sannar- lega má margt þokkalegt segja um sjálfstæð- ismenn en þeir eru sérkennilega innréttaðir að því leyti til að þeir telja að engir aðrir en þeir séu færir um að stjórna landi og þjóð svo fullur sómi sé að. Þegar vel liggur á manni dáist maður að þessu sjálfstrausti en svo koma stundir þegar maður hefur litla þolinmæði gagnvart þessu yfirlæti. Formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni, hefur ekki tekist í nægilegum mæli að skapa sér það traust sem formaður stórs stjórnmálaflokks þarf að njóta eigi hann að verða einn af forystumönnum þjóðarinnar. Hann kemur reyndar ágætlega fyrir og virðist sanngjarn og góðgjarn. En það er með Bjarna eins og Hamlet, hann á í vandræðum með að gera upp hug sinn. Of oft virðist sem hann eigi í innri baráttu um það hvort hann eigi að vera hann sjálfur eða eigi að vera eins og aðrir vilja hafa hann. Og þessir „aðrir“ eru gömlu brýnin í hans eigin flokki, menn- irnir sem nú um stundir nýta orku sína í að telja landsmönnum trú um að allar helstu hættur sem geti steðjað að lítilli þjóð sé að finna innan Evrópusambandsins. Þar deila þeir hugmyndafræði með þeim einstaklingum í Vinstri grænum sem telja helstu leið þjóðar- innar til farsældar vera að snúa aftur til nátt- úrunnar og tína fjallagrös. Og svo nær þessi hópur enn furðulegri samhljómi við forseta Íslands. Þetta segir manni að allir geta náð saman að lokum. Sem í þessu sambandi er ekki mjög hughreystandi tilhugsun. Afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins til Evrópusambandsins er óljós. Stundum talar hann um það af velvilja en öðrum stundum talar hann eins og gömlu forystumennirnir í hans eigin flokki. Hann er samt aldrei sérlega sannfærandi sem harður andstæð- ingur Evrópsambandsins. Það er meira eins og hann sé að reyna að gera gömlu mönnunum til geðs. Vera eins og þeir vilja hafa hann. Enda þekkir hann þá vel, ólst upp meðal þeirra og sér þá sem eins konar föðurímynd. Flest vitum við að það er ekki gott að láta aðra hefta sig. Sjálfstæði er alls ekki það sama og gömul sjálfstæðisstefna. Allir ein- staklingar eiga að hafa frelsi til að finna sig á sínum eigin forsendum. Bjarni Benediktsson verður einhvern tímann að fara að heiman. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Fer Bjarni að heiman? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Vinnuveitendaárið 2011 er gengið í garð FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is O ft er talað um það sem „vinnuveitendajól“ þeg- ar helgidaga jóla ber upp á helgi, en það þýðir auðvitað að frídögum launafólks fækkar, og því meir sem skörunin er meiri. Jólin sem nú eru senn gengin um garð falla sannarlega undir þessa óformlegu skilgreiningu, en jóladagur var laugardagur og ann- ar dagur jóla því vitaskuld sunnudag- ur. Það var síðan við hæfi að nýja árið hæfist á laugardegi, því segja má að árið í ár sé í heild sinni „vinnuveit- endaár.“ Óvenjufáir frídagar Sé dagatal ársins skoðað sést að óvenjumargir frídagar lenda á helgi. Auk þess lenda tveir á sama degi, skírdagur og sumardagurinn fyrsti, en páskarnir eru óvenjuseint í ár. Jól- in verða lítt skárri en nú, í frídögum talið, en jóladag ber að þessu sinni upp á sunnudag. Séu annar í páskum, annar jólum og annar í hvítasunnu taldir sem frídagar falla 7 slíkir á virka daga á árinu, en þar sem tveir lenda á sama degi verða frídagarnir einungis 6. Þetta er töluvert minna en und- anfarin tvö ár. Frídagarnir voru 14 árið 2009 og 11 á síðasta ári. Hagur fríþurfi vænkast aftur á næsta ári, en þá verða frídagarnir 13, meðal annars vegna þess að jóladagur verður á þriðjudegi. Eins og sjá má geta sveiflurnar verið miklar á milli ára. Á árum eins og í ár, þegar frídagar eru fáir, kem- ur sú umræða gjarnan upp hvort ráð- ast eigi í tilfæringar hátíðisdaga, til dæmis til þess að færa frídaga sem lenda á helgi á virkan dag, og þá sem fyrir eru á virkum dögum nær helg- um. Sú umræða fer hins vegar ekki jafn hátt á þeim árum sem eru hlaðin frídögum, líkt og var árið 2009, og verður aftur árið 2012. Meðaltalið sigrar að lokum Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segist opinn fyrir því að skoða breytingar en leggur áherslu á það að horft sé á málið til lengri tíma. „Af því við erum með það kerfi sem við erum með gengur þetta alltaf svolítið fram og til baka. En meðaltalið sigrar allt- af að lokum,“ segir hann. Málið snúist í raun ekki um það hvort frídagarnir sjálfir séu fleiri eða færri, heldur þessar sveiflur sem verði á milli ára. Vilhjálmur segir þetta meðal annars hafa verið rætt við gerð kjara- samninga. „Það var rætt hvort ætti að flytja frídagana til, þannig að til dæmis fimmtudagsfrídagarnir færð- ust yfir á helgar. Einu sinni var þetta komið nokkuð langt, en þá vantaði kannski úrslitaáhugann til þess að keyra þetta í gegn.“ Hann segir aðspurður að ástæða þess að ekki hafi verið ráðist í ein- hvers konar breytingar sé að sam- komulag hafi ekki náðst í samfélag- inu um hvernig eigi að haga málum. „Ég hef til dæmis sjálfur velt því fyr- ir mér af hverju ekki er haldið upp á sumardaginn fyrsta þegar er komið fram á sumar. En sumt fólk er mjög vanafast og vill halda upp á sum- ardaginn fyrsta og engar refjar. Það þarf að fara fram almenn umræða um þetta,“ segir Vilhjálmur. Hann nefnir einnig uppstigningardag sem dæmi um frídag sem hugsanlega mætti færa til. „Það er oft lítið um að vera í kringum hann og ég held að það væri alveg dæmigerður frídagur sem mætti flytja nær helgi. Það er hægt að nota daga eins og uppstigning- ardag, eftir einhverri reglu, til þess að taka þá ennþá lengri helgi í kring- um 17. júni,“ nefnir Vilhjálmur sem dæmi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sumardagurinn fyrsti Íslendingar fagna fyrsta degi sumars á fimmtu- degi á tímabilinu 19.-25. apríl. Í ár ber hann upp á skírdag, 21. apríl. 14 Frídagar árið 2009 11 Frídagar árið 2010 6 Frídagar árið 2011 13 Frídagar árið 2012 * Árið 2011 ber tvo frídaga upp á sama dag og teljast þeir því sem einn frídagur. Aðfangadagur og gaml- ársdagur eru báðir taldir sem heilir frídagar öll árin. ‹ SVEIFLUR MILLI ÁRA › »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.