Morgunblaðið - 06.01.2011, Page 19

Morgunblaðið - 06.01.2011, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 ✝ Páll Ólafssonfæddist 6. júní 1953 í Kópavogi. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 29. desember 2010. Foreldrar hans voru Ólafur Kristófer Pálsson, málmsmiður, síðar afgreiðslumað- ur hjá Olís, frá Fiti undir Vestur- Eyjafjöllum, f. 27. júní 1921, d. 2. maí 2005, og Sigríður Petra Vilhjálmsdóttir, húsfreyja, frá Siglufirði en alin upp í Reykja- vík, f. 8. júní 1926, d. 4. mars 2010. Systkini Páls eru: 1) Kristinn Rich- ardsson, sölumaður, f. 27. maí 1946, d. 13. mars 2006. Kona hans var Kristín Þorvaldsdóttir, starfsmaður í mötuneyti, f. 28. ágúst 1951. Börn þeirra eru Rebekka Gylfadóttir, f. 1970, Þorvaldur Gísli, f. 1973 og Arnfreyr, f. 1974. Áður átti Krist- inn soninn Ólaf, f. 1965. 2) Heiðrún Hulda Ólafsdóttir f. 16. ágúst 1948, d. 4. október 1954. 3) Vigdís Hulda Ólafsdóttir, skrifstofumaður, f. 14. desember 1950. Maður hennar var Hálfdán Bjarnason, bifreiðastjóri, f. 28. apríl 1949, d. 13. febrúar 1995. Börn þeirra eru Sigríður Laufey, f. 1968, Bjarni f. 1972, Ólafur, f. 1976 og Hörður Kristján, f. 1983. Páll kvæntist þann 14. september 2001 Þóru Björk Hjartardóttur, málfræðingi og dósent við Háskóla Íslands, f. 16. ágúst 1958. Foreldrar hennar eru Hjörtur Gunnarsson, kennari, f. 4. apríl 1932 og Guðrún Þor- steinsdóttir, kennari, f. 28. júlí 1921, d. 28. mars 1983. Páll lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1974 og B.A.-prófi í bókasafnsfræði, sál- arfræði og almennri bókmenntasögu frá Háskóla Íslands 1978. Hann starfaði á Há- skólabókasafni á námsárum sínum en hóf störf sem bókasafns- og upplýs- ingafræðingur á Kleppsspítala árið 1978. Frá 1982 stjórnaði hann sér- fræðibókasafni Geðdeildar Land- spítalans við Hringbraut. Eftir sam- einingu bókasafna sjúkrahúsanna í Reykjavík árið 2001 varð hann starfsmaður Heilbrigðisvísinda- bókasafns Landspítala – háskóla- sjúkrahúss og starfaði þar til dauðadags. Náttúran í sinni margbreytilegu mynd átti hug Páls allan og þekk- ing hans á landinu var víðtæk. Hann var mikill útivistarmaður og göngugarpur og ófá eru spor hans um fjöll og firnindi jafnt að vetri sem sumri. Hann tók virkan þátt í starfsemi Ferðafélags Íslands og átti sæti í stjórn félagsins og nefnd- um þess um árabil. Hann var enn fremur fararstjóri hjá Ferðafélag- inu um margra ára skeið. Páll verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, 6. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Þótt við hefðum fylgst með veik- indum Palla frá upphafi kom það okkur illilega á óvart þegar okkur bárust þau tíðindi að hann hefði lát- ist nokkrum klukkustundum fyrr. Þótt nánir ættingjar okkar og vinir hafi á undanförnum árum þurft að lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum óvægna lifir lengi vonin, ef vinur veikist, um að betur muni fara í þetta sinn. Við kynntumst Palla fyrir all- nokkrum árum þegar þau Þóra Björk tóku saman og giftust ekki löngu síðar. Samhentari hjón var vart hægt að hugsa sér. Áhugamál- in voru hin sömu, gönguferðir jafnt að vetri á gönguskíðum sem að sumri upp um fjöll og firnindi, mest innan lands en þó einnig erlendis. Gagnkvæm hlýja, ástúð og virðing einkenndi allt þeirra fas. Leiðir okkar lágu oft saman á sumrin hvort heldur var í göngum með Trimmklúbbi Seltjarnarness, Góðvinum Grunnavíkur-Jóns eða Ferðafélagi Íslands. Efstar í minn- ingunni eru ef til vill ferð TKS um Lakasvæðið, sem Þóra skipulagði af stakri nákvæmni, án efa með styrk frá Palla, ganga um Gerpis- svæðið fyrir austan einnig með TKS og ferð góðvina til Grunnavík- ur á Ströndum. Alls staðar kom þekking Palla á landinu vel í ljós sem hann miðlaði okkur hinum á sinn hæga og rólega hátt. Hann var ekki einn af þeim sem sífellt þurftu að koma þekkingu sinni að. Langt var frá því en sjaldan var komið að tómum kofunum ef hann var spurð- ur. Þá stóð ekki á svörum. Þóra Björk hefur misst mikið. Það sem eftir lifir eru minningarn- ar um traustan og góðan mann sem aldrei fyrnast. Við sendum henni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún Kvaran og Jakob Yngvason. Við hlaupafélaganir töluðum stundum um að við myndum hlaupa saman sem háaldraðir menn. Aldrei var sú hugsun nærri að einhver okkar myndi falla frá langt fyrir aldur fram. Raunin hefur hins veg- ar orðið önnur. Við horfum á eftir öðrum félaga okkar á innan við hálfu ári. Nú kveðjum við þann okk- ar fjögurra sem í raun var ímynd heilbrigði og hreysti, Pál Ólafsson. Við söknum hans sárt. Kynni okkar hófust á Kleppsspít- ala fyrir um 20 árum þar sem við vorum allir við störf. Þá var Páll þegar orðinn mikill ferðagarpur, fór um fjöll og firnindi, oft sem leið- sögumaður. Það var ekki síst fyrir þennan áhuga Páls á hreyfingu og útiveru sem litli hlaupahópurinn okkar varð til. Páll var kjölfestan í hópnum, sá sem hélt öllum þráðum í sinni hendi, vissi meira um hlaup en við hinir, ákvarðaði hlaupaleiðir, fylgdist með veðri og vindum og all- ar upplýsingar um hver gæti mætt eða ekki mætt fóru í gegnum Pál. Þá var hann ávallt með nýjustu tíð- indi úr þjóðlífinu til frekari grein- ingar á meðan hlaupið var. Páll var áreiðanlegur og taktfastur. Hann mætti jafnan fyrstur og hlaupastíll hans var ákveðinn og jafn. Páll var einstaklega traustur vin- ur, umburðarlyndur og greiðvikinn. Hann var ekki alltaf margmáll um sína einkahagi en þoldi vel forvitni og gassagang okkar hinna. Hann bara brosti. Hann var hins vegar í essinu sínu þegar kom að því að lið- sinna, leiðbeina og þjóna öðrum á sviði upplýsinga og bóka. Ekkert var auðveldara en biðja Pál að hjálpa sér, upplýsingarnar, greinin, bókarkaflinn var kominn í næsta hlaupatíma. Eftir langan og farsæl- an starfsferil þekkti hann sitt svið, sitt fólk, hver þurfti hvað og hvern- ig. Í hugum flestra var alltaf hægt að gera ráð fyrir Páli og hans trausta félagsskap og látlausu þjón- ustu.Það er í raun ótrúlegt að þessi trausti vinur okkar skuli nú allur. Við gerðum ráð fyrir að þau ein- kenni sem hann kvartaði yfir fyrir stuttu myndu ganga yfir og við myndum hlaupa áfram um ókomna tíð. Sú varð ekki raunin. Við minn- umst góðs vinar og hlaupafélaga og sendum eftirlifandi eiginkonu, fjöl- skyldu og ástvinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hörður Þorgilsson. Sigurjón Stefánsson. Páll réðst sem bókavörður að Kleppsspítalanum, síðar geðdeild Landspítalans, fyrir rúmum 30 ár- um. Kom sér vel fyrir okkur sam- starfsmenn hans að hann kunni vel sín fræði og var hjálpfús og áhuga- samur við heimildaleit fyrir aðra starfsmenn deildarinnar, hvort sem var vegna meðferðar sjúklinganna eða vegna rannsókna sem starfs- mennirnir unnu að á hverjum tíma. Það kom sér og vel hve lipur og ólatur hann var því að safnið var dreift á þrjá staði sem hann þurfti að fara á milli til þess að veita öðr- um starfsmönnum deildarinnar að- stoð. Jafnframt aðalstarfinu við fræða- safnið sinnti Páll bókasafni fyrir sjúklinga Kleppsspítalans sem hann hafði opið einu sinni til tvisvar í viku hverri. Það safn var upphaf- lega kallað bókasafn Víðihlíðar sem hjónin Ragnhildur Hjaltadóttir og Kristján Siggeirsson gáfu til deild- arinnar um miðjan fimmta áratug síðustu aldar. Framan af önnuðust vistmenn það með aðstoð forstöðu- konu spítalans. Síðar fluttist það í aðalbygginguna á Kleppi og þar sá Páll um safnið af sömu lipurð og al- úð við alla sem þangað leituðu. Eftir að bókasafn geðdeildarinn- ar varð hluti af læknisfræðibóka- safni Landspítlans hefur það nýtt lipurð Páls og hversu vel hann var á sig kominn, en hann var í frístund- um skokkari og fjallagarpur. Ný- lega þurfti ég á aðstoð hans að halda vegna heimildaleitar og frétti þá að hann væri staddur að störfum á Landakoti. Að venju brást Páll skjótt við beiðni minni og sendi mér rafrænt greinina strax næsta morg- un, er hann kom til starfa á geð- deildinni. Þannig hafði samstarf okkar alltaf verið í meira en 30 ár, aldrei nein óþarfa bið eða töf. Fráfall Páls er missir fyrir alla sem á aðstoð hans hafa þurft að halda og mikill skaði þegar slíkur afbragðs maður fellur frá á besta aldri vel innan við sextugt. Fjölskyldu Páls votta ég innilega samúð. Tómas Helgason. 29. desember lést á Landspítal- anum starfsmaður Heilbrigðisvís- indabókasafns Landspítalans, Páll Ólafsson, eftir stutt en erfið veik- indi. Páll hóf störf sem bókasafns- og upplýsingafræðingur á Land- spítalanum fyrir 32 árum. Hann var stjórnandi Geðdeildarbókasafnsins frá upphafi, fyrst á Kleppi og síðar á geðdeild, Hringbraut. Eftir sam- einingu bókasafnanna 2001 varð hann starfsmaður Heilbrigðisvís- indabókasafns LSH og starfaði þar til dauðadags. Einnig hafði hann umsjón með deildarsafni öldrunar- deildarinnar á Landakoti frá árinu 2004. Páll var sérstaklega góður starfs- maður og ætíð mjög vel liðinn af sínu samstarfsfólki og þeim sem hann veitti þjónustu. Það var gott að leita til hans sem leiðbeinanda og eða að finna efni fyrir safngesti. Einnig fylgdist hann vel með fræðasviði starfsmanna geðdeildar og færði hann þeim gjarnan greinar og annað efni sem hann taldi að kæmi þeim að gagni í þeirra starfi. Hann annaðist safnkennslu fyrir geðdeildina og þá sérstaklega læknanema. Hann gegndi einnig fé- lags- og trúnaðarstörfum í tengslum við vinnuna og hjá BHM. Hann var vinsæll meðal samstarfs- fólks, ætíð vingjarnlegur og traust- ur. Á kaffistofu starfsmanna bóka- safnsins kom í ljós hvað hann var góður hlustandi og á svipnum sá maður að hann skildi svo vel hvað klukkan sló. Innskot hans voru allt- af áhugaverð og hnitmiðuð. Hann var útivistarmaður og hlaupari og hljóp gjarnan í hádegishléinu með nokkrum félögum. Það var aðdáun- arvert að sjá þá hlaupa fyrir gluggann, hvernig sem viðraði. Síð- ast hljóp hann sex kílómetrana í byrjun nóvember og er erfitt að skilja hversu hratt sjúkdómurinn vann á þessum hrausta manni. Hann fór í gönguferðir bæði hér á landi og erlendis. Einnig var hann fararstjóri í slíkum ferðum. Var ætíð gaman að frétta af ferðum hans og var gott að sækja til hans fróðleik um ferðaútbúnað þar sem hann fylgdist vel með öllum nýjung- um á því sviði. Hans er sárt saknað af samstarfsmönnum. Við vottum aðstandendum hans samúð og þá sérstaklega konu Páls, Þóru. F.h. starfsmanna Heilbrigðisvís- indabókasafns Landspítalans, Sólveig Þorsteinsdóttir, deildarstjóri. Er ég frétti af andláti Páls Ólafs- sonar bókasafnsfræðings var ég mjög sleginn. Ég kynntist Páli vel þegar ég hóf störf á geðdeild LSH árið 1986. Við könnuðumst hvor við annan frá æskuslóðum okkar í aust- urbæ Kópavogs, hann þó eilítið eldri en ég. Á geðdeildinni á þess- um tíma var þá þegar rík vísinda- rannsóknarhefð. Páli var alltaf mik- ið í mun að kynna fyrir okkur þau skrif og þær rannsóknir sem aðrir starfsmenn höfðu unnið að. Því þótt deildin hafi ekki verið stór þá voru menn ekki alltaf að ræða um nýj- ustu skrif sín og erfitt gat verið að fylgjast með öllum skrifum sam- starfsmanna. Fjölmargar voru ferðirnar til Páls til að afla gagna, panta bækur frá útlöndum og ekki síst til að leita aðstoðar við að leita að vísindagreinum. Þekking Páls á starfi sínu var víðtæk og til fyrir- myndar. Hann var alltaf tilbúinn að leggja á sig töluverða vinnu við leit og söfnun á þeim greinum og upp- lýsingum sem við þörfnuðumst. Hann hafði líka frumkvæði að því að fylgjast með og láta okkur vita um greinar í erlendum tímaritum sem hann hélt að kæmu okkur að notum. En það var ekki bara vegna fræðanna sem gott var að setjast niður hjá Páli. Hann var mjög áhugasamur um ýmis málefni, þar á meðal um útiveru og náttúru sem við höfðum sameiginlega áhuga á. Páll var einn af þeim samstarfs- mönnum sem auðguðu deildina og var ómissandi hlekkur í þeirri keðju sem nauðsynleg er til að halda gangandi góðu fræðilegu- og vís- indalegu starfi. Pál hitti ég síðast í sumar í jarðarför fyrrverandi sam- starfsmanns okkar frá geðdeildinni. Ég þakka Páli fyrir samfylgdina og votta Þóru eiginkonu hans mína dýpstu samúð. Hans verður mikið saknað. Eiríkur Líndal, sálfræðingur. Góður ferðafélagi og fjallagarpur er fallinn frá, óvænt og allt of snemma. Við göngufélagar hans stöndum eftir hnípnir og sorg- mæddir og finnst tilveran í hæsta máta ósanngjörn. Palli kom inn í trimmklúbbinn okkar í fylgd Þóru sinnar og var fastur förunautur í fjallaferðum sem farnar voru á veg- um klúbbsins eða í tengslum við hann. Hann var reyndur útivistar- maður og nutum við hin góðs af reynslu hans og glöggskyggni á veður og náttúrufar. Palli var ekki margmáll enda ekki auðvelt að komast að í jafn kjaftaglöðum hópi en hann átti til þegar að mál voru til lykta leidd og þögn færðist yfir, að horfa til fjalla og vekja athygli okk- ar hinna á ýmsu í náttúrunni sem farið hafði fram hjá öllum nema honum. Hann var góður göngumað- ur, fróður og notalegur ferðafélagi og brosti kankvís um leið og hann setti upp fjallahattinn sinn. Við þekktum hann líklega þó mest í gegnum ást hans á Þóru sinni. Viss- um hvernig hann tók á móti henni eftir hlaup og erfiðar æfingar með heimalöguðum orkudrykkjum, hvernig hann horfði á hana og brosti og sagði hana svo fallega svona útitekna, hvernig þau tvö voru fullkomnir ferðafélagar og lífsförunautar. Nú fer daginn aftur að lengja og fyrr en varir förum við að huga að fjallaferðum vorsins. Þær ferðir verða ekki eins og forð- um, sætið hans Palla verður ekki fyllt en minning um góðan dreng verður borin áfram í hugum okkar og hjörtum. Um leið og við þökkum honum alltof stutta samfylgd send- um við okkar innilegustu samúðar- kveðjur til Þóru og fjölskyldu Palla. Hugur okkar er hjá ykkur. F.h. félaga í TKS, Guðrún Geirsdóttir. Ég þekkti Pál Ólafsson sem Palla hennar Þóru, en við Þóra höfum verið saman í trimmklúbbi í nokkur ár. Klúbburinn sem aðallega er hlaupahópur stendur einnig fyrir nokkrum alvöru gönguferðum á hverju ári og þar kom Palli iðulega sterkur inn. Ljúfur og hæglátur, en afar góður göngufélagi. Mikill nátt- úruunnandi og fjölfróður. Úr þess- um ferðum á maður margar skemmtilegar minningar og sumar broslegar, alla vega eftir á, eins og þegar Palli datt niður um sömu jök- ulsprunguna í tvígang á Hrútfjalls- tindum. Sennilega er erfiðasta ferð- in sem við fórum saman á Sveinstind í Öræfajökli. Sú ferð var farin fyrir einungis hálfu ári og engan gat þá grunað að Palli myndi greinast með krabbamein sem leiddi hann til dauða á einungis nokkrum vikum. Palla verður sárt saknað af okkur göngufélögunum. Friðbjörn. Kveðja frá vísinda-, mennta- og gæðasviði Landspítala Þótt Landspítalinn sé eflaust í hugum flestra fyrst og fremst spít- ali þar sem leitast er við að lækna og líkna, fer það kannski ekki eins hátt frá degi til dags, að þar fer fram umfangsmikil háskólastarf- semi, þar sem nemendur í hinum ýmsu heilbrigðisstéttum stunda nám og starfsþjálfun og þar sem stundaðar eru vísindarannsóknir, sem standast strangasta erlendan samanburð. Á þennan hátt er leit- ast við að leggja grunn að framtíð- armönnun heilbrigðiskerfisins, auk þess sem vísindaleg hugsun er í daglegu starfi undirstaða þess að starfsfólk heilbirgðiskerfisins geti tileinkað sér framfarir, sem kunna að verða til annars staðar, auk þess að vera stöðugt að leita leiða til að bæta sitt starf fyrir skjólstæðinga sína. Til þess að árangur náist á há- skólasjúkrahúsi þurfa því að vera til staðar innviðir sem menn taka kannski ekki eftir á hverjum degi, en verða fljótt varir við ef eitthvað bregst eða þjónusta, sem þeir taka sem sjálfsagða, er ekki lengur til staðar. Þessi lýsing á til dæmis við um starfsemi Heilbrigðisvísinda- bókasafns Landspítalans. Þar starfar fólk sem viðheldur stöðug- um og tafarlausum aðgangi heil- brigðisstarfsmanna að nýjustu og bestu upplýsingum hvaðanæva úr heiminum, upplýsingum sem eru nauðsynlegar til kennslu, vísinda- starfa sem og þjónustu við sjúk- linga. Slíkur starfsmaður var Páll Ólafsson bókasafns- og upplýsinga- fræðingur sem lést á Landspítalan- um þann 29. desember sl., eftir stutt en erfið veikindi. Páll hóf störf á Landspítalanum fyrir 32 árum og þjónaði starfsfólki á geðdeildunum frá upphafi, fyrst á Kleppi og síðar á geðdeildinni við Hringbraut. Eftir sameiningu bókasafnanna 2001 varð hann hluti teymisins á Heilbrigðisvísinda- bókasafni LSH þar sem hann starf- aði til dauðadags. Páll barst ekki á heldur nýtti sína sérfræðiþekkingu til hins ýtrasta og vann sín störf af hinni mestu fagmennsku. Þannig varð hann með sinni hljóðlátu og markvissu framgöngu mjög vel lið- inn af þeim sem hann veitti sína þjónustu sem og samstarfsfólki sínu. Veikindi Páls komu okkur öllum á óvart og ekki síst hve alvarleg þau reyndust. Hann tókst á við þau af bjartsýni og æðruleysi þótt hann augljóslega gerði sér grein fyrir því að brugðið gæti til beggja vona. Maður ræður ekki alltaf sínum næt- urstað. Páll skilur eftir sig stórt skarð í litla hópnum okkar. Eigin- konu og aðstandendum vottum við einlæga samúð. Páls Ólafssonar verður sárt saknað. Kristján Erlendsson læknir, framkvæmdastjóri. Páll Ólafsson HINSTA KVEÐJA Eitt er dauðanum ofviða eins og okkur hinum við fortíðinni fær hann ekki hróflað né við minningum haggað né um aldur hugblæ og arfleifð góðs manns. Magnús Skúlason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.