Morgunblaðið - 06.01.2011, Page 20

Morgunblaðið - 06.01.2011, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 ✝ HrafnhildurGunnarsdóttir, ávallt kölluð Hrabba, fæddist í Reykjavík 26. nóvember 1955. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 28. desember 2010. Hrafnhildur var dóttir Þuríðar Krist- jánsdóttur, f. 9.1. 1921, d. 28.4. 1991, frá Krithóli, Lýtings- staðahreppi, Skaga- firði og Gunnars Jó- hannssonar, f. 9.2. 1922, d. 9.1. 1979, frá Mælifellsá í sama hreppi. Foreldrar Þuríðar voru Ingibjörg Jóhannsdóttir, f. í Þorsteinsstaðakoti 1888, d. 1947, og Kristján Árnason frá Gili í Svart- árdal, f. 1885, d. 1964. Foreldrar Gunnars voru Lovísa Sveinsdóttir frá Mælifellsá, f. 1894, d. 1979, og Jóhann Pétur Magnússon frá Gil- haga í Lýtingsstaðahreppi, f. 1892, d. 1979. Foreldrar Hrafnhildar voru búsett að bænum Varmalæk í Skagafirði til ársins 1954 þar sem þau ráku saumastofu og verslun en fluttu þá til Reykjavíkur. Hrafn- hildur var næstyngst 8 systkina. Systkini Hrafnhildar eru Bragi dótturina Hildi Ýri, f. 5.1. 1988. Fyrir átti Örn eina dóttur, Margréti Örnu, f. 19.10. 1976, er gift Svavari Þóri Guðmundssyni, f. 27.11. 1977. Börn þeirra eru Nína Rakel, f. 21.3. 2007, og Guðmundur Þór, f. 27.1. 2009. Hrafnhildur gekk í Hlíðaskóla til 9 ára aldurs og lauk gagnfræða- prófi frá Laugalækjarskóla árið 1972. Hrafnhildur lærði síðar til sjúkraliða og starfaði við það á ár- unum 1975-1986, m.a. á ungbarna- vökudeild, blóðskilunardeild og lyf- lækningadeild Landspítalans. Einnig starfaði hún á sjúkrahúsi Vestmannaeyja um tíma og á skurðstofu Fæðingarheimilis Reykjavíkur þar til það var lagt niður árið 1986. Á árunum 1990- 1994 vann Hrafnhildur við bók- bandsstörf hjá Frjálsri fjölmiðlun og Bókbandsstofunni Flatey. Árið 1997 kláraði Hrafnhildur nám frá tölvu- og rekstrarsviði Rafiðn- aðarskólans og árið 2002 markaðs- og útflutningsnám frá Endur- menntun Háskólans. Hún var sölu- fulltrúi hjá Mjólkursamsölunni frá árinu 1998 til lokadags. Hrafnhildur verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 6. jan- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Gunnarsson, f. 21.6. 1944, d. 9.1. 2006, Sveinn Þröstur Gunn- arsson, f. 26.7. 1945, Hjörtur Þór Gunn- arsson, f. 16.9. 1946, d. 1.11. 2007, Kristján Ingi Gunnarsson, f. 25.9. 1949, Jóhann Vísir Gunnarsson, f. 19.1. 1951, Svanhild- ur Helga Gunn- arsdóttir, f. 27.11. 1952, og Gunnar Þór- ir Gunnarsson, f. 2.5. 1962. Hrafnhildur Gunnarsdóttir átti tvö börn með fyrrum sambýlis- manni sínum, Hrafni Haukssyni, f. 2.8. 1952, d. 26.4. 2000, þau Önnu Grétu, f. 19.7. 1976, er gift Álfgeiri Loga Kristjánssyni, f. 20.2. 1975. Synir þeirra eru Hugi Freyr, f. 1.12. 1999, og Nói Steinn, f. 23.9. 2005, og Gunnar Hauk, f. 25.11. 1980, er í sambúð með Lilju Ósk Björnsdóttur, f. 31.5. 1980. Börn þeirra eru Hrefna Rós, f. 22.12. 2004, og Björn Jaki, f. 21.10. 2008. Hrafnhildur og Hrafn slitu sam- vistum 1981. Hrafnhildur giftist 26. nóvember 1985 Erni Jóhannessyni, f. 10.4. 1952, og áttu þau saman Ég kveð þig með trega og söknuði mamma mín og vildi ég hefði getað notið nærveru þinnar miklu lengur. Þú varst kölluð frá okkur alltof snemma en ég trúi því að þú hafir æðra hlutverki að gegna. Ég veit að nú ertu komin á góðan stað þar sem þú þarft ekki að þjást lengur en bar- áttu þinni við illvígan sjúkdóm er nú lokið. Þú barðist til síðasta dags af æðru- og óttaleysi og ætlaðir ekki að gefast upp, enda afskaplega sterk kona. Þú varst yndisleg mamma og amma og ávallt til staðar fyrir okk- ur systkinin, maka og börn. Ég veit að þú átt eftir að vera með okkur áfram og hafa áhrif í okkar lífi. Megir þú hvíla í friði, elsku mamma mín. Í dag skein sól á sundin blá og seiddi þá, er sæinn þrá og skipið lagði landi frá. Hvað mundi fremur farmann gleðja? Það syrtir að, er sumir kveðja. Ég horfi ein á eftir þér og skipið ber þig burt frá mér. Ég horfi ein við yztu sker. Því hugur minn er hjá þér bundinn, og löng er nótt við lokuð sundin. En ég skal biðja, og bíða þín uns nóttin dvín og dagur skín. Þó aldrei rætist óskin mín til hinsta dags ég hrópa og kalla, svo heyrast skal um heima alla. (Davíð Stefánsson.) Þín dóttir, Anna Gréta. Þín ég minnist, móðir mín elskuleg, sterk og stoðin mín. Sorg og söknuður okkar leiðir skilja þrátt fyrir þinn sterka einlæga vilja. Okkar góðu minningar ég mun ætíð geyma uns leiðir okkar sameinaðar í eina. Ég kveð þig nú með koss á kinn sofðu rótt í hinsta sinn. Þín dóttir, Hildur Ýr. Hrafnhildur Gunnarsdóttir tengdamóðir mín er látin úr krabba- meini, langt fyrir aldur fram. Dauðastríð Hröbbu, eins og hún var jafnan kölluð, var stutt, enda ekki hennar stíll að láta aðra sjá um sig lengi. Hrafnhildur var einstök manneskja; hjartahlý, umhyggju- söm og góður vinur og félagi í alla staði. Í henni er mikil eftirsjá. Ég var afar lánsamur að eignast Hröbbu sem tengdamóður fyrir 18 árum þegar við Anna Gréta fórum fyrst að vera saman. Á þessum tíma var líf mitt í töluverðri óreiðu og sú óreiða átti eftir að aukast næstu 2-3 ár á eftir. Til Hröbbu gat ég alltaf leitað án þess að finnast ég dæmd- ur. Hún var gædd sérstöku jafn- aðargeði sem svo margir sækjast eftir en fáir öðlast tök á. Líkt og ekkert kæmi henni á óvart, að lífið þyrfti bara að fá að ganga sinn vanagang. Sem betur fór sá Hrabba eitthvað meira en óreiðuna við strákinn og ég fann aldrei fyrir dómhörku eða fyrirframgefnum skoðunum frá henni þrátt fyrir að vera ekki beint efni í drauma- tengdasoninn á þessum tíma. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjáv- ar. Í gegnum árin fór ætíð vel á með okkur Hröbbu og hún var okkur Önnu ávallt hjálpleg, traustur félagi þegar mest á reyndi. Henni var margt til lista lagt. Hún var gædd miklum skipulagshæfileikum og list- ræn var hún nokkuð. Þegar mikið bar við tók hún jafnan á sig mestu ábyrgðina en lét yfirleitt ekki mikið fyrir sér fara. Innan fjölskyldunnar ríkti nokkurs konar þögult sam- komulag um ábyrgð Hröbbu við stórar og mikilvægar athafnir. Allir vissu hvar mesta ábyrgðin lá og engin gerði athugasemdir við það enda Hrabba ætíð best til þess fallin meðal okkar að bera miklar byrðar. Í gegnum árin hef ég verið í félagi við Hrafnhildi í ótal ferðalögum, bæði innanlands og utan, sem og í veislum og við skemmtanir hvers konar, bæði innan fjölskyldunnar og annars staðar. Ég kveð hana nú sem góðan og traustan vin, allt of snemma. Sérstaklega þótti mér vænt um að vera beðinn af henni að sjá um veislustjórn í 50 ára afmæl- isveislu hennar haustið 2005. Þá þótti mér afar vænt um komu henn- ar og Arnar til Stokkhólms snemm- sumars 2010 þegar ég varði dokt- orsritgerð mína frá Karolinska Institutet og við hátíðarkvöldverð að lokinni vörninni. Stolt þeirra af tengdasyninum var ósvikið. Far vel góði vinur. Minningin um dugnaðarkonuna Hrafnhildi Gunn- arsdóttur mun hjálpa okkur sem eftir sitjum við að takast á við miss- inn. Ég votta Erni Jóhannessyni, eft- irlifandi eiginmanni Hrafnhildar, Önnu Grétu, Gunnari Hauki, Hildi Ýr og Margréti Örnu, mökum þeirra og börnum ásamt öðrum fjöl- skyldumeðlimum, vinum og félögum Hröbbu mína einlægustu samúð á þessari kveðjustund. Guð geymi Hröbbu okkar. Álfgeir Logi. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Örn. Með nokkrum orðum vil ég minn- ast elskulegrar mágkonu minnar, Hrafnhildar, sem lést milli jóla og nýárs aðeins 55 ára að aldri. Það er svo óraunverulegt að hugsa sér að þessi sterka og hrausta kona sé horfin héðan eftir minna en árs veikindi. Hún var næstyngst átta systkina og sú þriðja þeirra sem fékk það erfiða hlutskipti að berjast við krabbamein. Eldri bræður henn- ar Bragi og Hjörtur létust í árs- byrjun 2006 og árslok 2007. Hrabba var ákveðin í að vinna þennan bar- daga og lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir þjáningar og erfiðar meðferðir í marga mánuði, en þar kom að hún varð að lúta í lægra haldi og ógnvaldurinn sigraði. Ég sá Hröbbu fyrst þegar hún var 9 ára gömul hnáta, á heimili til- vonandi tengdaforeldra minna í Hvassaleiti. Hún var ekki há í loft- inu en mjög fjörug, kraftmikil og dugleg stelpa, sem var þá strax far- in að taka til hendinni og hjálpa til á stóru og erfiðu heimili. Hrabba gerðist síðar barnfóstra hjá okkur Hirti þegar hún var 13 ára og gætti Rikka sonar okkar eitt sumar. Hún var sérlega samviskusöm og barn- góð og sýndi þá strax hvað í henni bjó og að það var hægt að treysta henni fullkomlega. Þau frændsystk- in hafa svo verið vinnufélagar og vinir síðustu 13 árin hjá Mjólkur- samsölunni. Það var þessi góði eig- inleiki sem mér fannst alltaf ein- kenna Hröbbu, hún var dugleg, ósérhlífin, traust og vönduð mann- eskja og hún var ávallt tilbúin að hjálpa til við hvaðeina sem hennar nánustu þörfnuðust. Hrabba var prúðmenni og róleg yfir öllu því sem henni var falið og vann öll sín verk af vandvirkni og yfirvegun og var mjög flink kona sem maður dáðist ósjálfrátt að. Hrabba og Örn, eiginmaður henn- ar, áttu silfurbrúðkaup í nóvember sl. Hann og börnin þeirra sjá nú öll á bak yndislega góðri eiginkonu, móður og vini sem ávallt var til staðar fyrir þau og barnabörnin sín, þegar þau þurftu á að halda. Hrabba var í eðli sínu hógvær kona og trygglynd og fremur dul á sína hagi, en var samt félagslynd og hafði gaman af að skemmta sér á góðum stundum í góðra vina hópi og ferðaðist víða, bæði innanlands og utan. Seint í haust fór hún með æskuvinkonum sínum til Kaup- mannahafnar, þá orðin mikið veik. Hún vildi greinilega nýta tímann og naut ferðarinnar vel. Hún var vin- sæl meðal fjölmargra vina og vinnu- félaga sinna og ég veit að oft var leitað til hennar þegar skipuleggja þurfti ferðir og ýmsar uppákomur á vinnustaðnum á liðnum árum. Ég veit líka fyrir víst að það er mikill missir að henni þar og að hennar verður sárt saknað. Við í fjölskyldunni trúum því varla enn að Hrabba sé farin frá okkur og munum sakna hennar mjög mikið, því hún var góð systir, mágkona og frænka, sem okkur þótti öllum vænt um og lífið verður mun snauðara án hennar. Erfiðast- ur er þó missir eiginmanns, barna, tengdabarna og barnabarna og votta ég þeim og systkinum hennar og öðrum ættingjum mína innileg- ustu samúð. Megi fögur minning Hrafnhildur Gunnarsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma; ég vona að þú eigir eftir að hafa það gott og gaman. Síðan vona ég líka að þér eigi eftir að líða vel með mömmu þinni og pabba, og bræðrum þínum. Guð geymi þig. Hugi Freyr Elsku amma. Ég veit að þú ert núna að fara til Guðs og í jörðina. Ég veit að það er langt til Guðs og mig langar að segja bless við þig, amma. Ég vona að það verði gott hjá þér hjá Guði. Ég sakna þín, amma. Þinn, Nói Steinn. ✝ Þórunn K. Helga-dóttir fæddist í Hafnarfirði 4. febr- úar 1920. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ 29. desember 2010. Þórunn var dóttir hjónanna Helga Ólafssonar, trésmíða- meistara, f. 8.5. 1891, d. 25.10. 1976, og Þóru Guðrúnar Krist- jánsdóttur, hús- móður, f. 27.7. 1891, d. 17.1. 1976. Systur Þórunnar: Kristjana Pálína, f. 5.8. 1921, d. 8.11. 1984, Ólafía, f. 28.8. 1924, og Sólrún Katrín, f. 18.4. 1928. Þórunn giftist þann 18. maí 1946 Sveini H. Þórðarsyni, fyrrv. skatt- stjóra, f. 21.2. 1916, d. 22.7. 1987. Þau byggðu sér hús stuttu síðar á Ölduslóð 9 í Hafnarfirði og bjuggu þar allan sinn búskap. Þau eign- uðust tvær dætur: 1) Þóra Guðrún, f. 8.7. 1951, maki Arnór Egilsson, f. 6.7. 1948. Börn þeirra eru Krist- ín Ósk, Halldór Helgi, Sveinn Ólafur og Kjartan Ingimar. 2) Þórdís Helga, f. 23.8. 1956, maki Vig- fús Jóhannsson, f. 3.9. 1955, d. 22.3. 2006. Börn þeirra eru Heiða Björk, Hannes Bjarki, Hanna Björk, Helga Björk og Hilm- ar Bjarki. Lang- ömmubörn Þórunnar eru þrjú. Þórunn lauk gagn- fræðaprófi frá Flens- borgarskólanum í Hafnarfirði. Hún fór snemma út á vinnumarkaðinn og vann alla tíð, að undanskildum þeim árum sem hún var heima með dætur sínar ungar. Þórunn hóf störf á Skattstofu Reykjanes- umdæmis árið 1964 og starfaði þar sem fulltrúi þangað til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Útför Þórunnar fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 6. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku amma. Nú er komið að leiðarlokum. Þín verður sárt saknað. Við viljum þakka fyrir allar heimsóknirnar til okkar í Svíþjóð. Við vorum alltaf full tilhlökkunar þegar von var á þér. Það var alltaf spennandi að sýna þér nýtt land og nýja siði. Sérstaklega minnumst við ferðar okkar til Stokkhólmsborgar, þegar við gengum milli safna og nutum lífsins. Í okkar huga ert þú og Ölduslóðin Ísland. Þar eru okkar rætur. Þar hittumst við frænd- systkinin og þar héldum við okkar fermingarveislur sem þú hjálpaðir okkur að halda af miklum mynd- arskap. Síðustu árin voru þér erfið. Megi þúsund englar fylgja þér til betri heims. Takk, amma, fyrir allt. Kristín Ósk, Halldór Helgi, Sveinn Ólafur og Kjartan Ingimar. Amma Þórunn hefur alla tíð ver- ið stór hluti af lífi okkar systk- inanna. Nánast alla okkar ævi höf- um við búið nálægt henni og samgangur verið mikill. Í nær 20 ár, eða á meðan heilsan leyfði, heimsótti amma okkur nánast dag- lega. Amma fylgdist með öllu sem var að gerast hjá okkur systkinun- um og mætti á hvers kyns sam- komur, hvort sem um var að ræða opið hús í leikskóla, kóratónleika, jazzballett-sýningar eða viðburði í tónlistarskólanum. Þá voru það ófá skiptin sem hún ferðaðist með okk- ur, bæði innanlands og erlendis. Amma var alltaf tilbúin til að að- stoða okkur og stóðu dyrnar á Ölduslóðinni okkur systkinunum alltaf opnar. Í gegnum árin höfum við setið með henni í fallega garð- inum hennar sem hún lagði svo mikla rækt við, bakað með henni parta, vöfflur og pönnukökur, rætt um viðburði líðandi stundar við eld- húsborðið og búið hjá henni. Minningarnar sem við eigum um ömmu eru ófáar, og munum við varðveita þær að eilífu. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma, takk fyrir öll skemmtilegu samtölin, umhyggj- una, hlýjuna og samveruna. Hvíld- in er nú tekin við og verður án efa tekið vel á móti þér. Þú hefur verið svo stór hluti af tilveru okkar, og nú hefur myndast mikið tómarúm. En við huggum okkur við það að þér líði nú betur. Þú verður alltaf hluti af lífi okkar og vitum við að þú munt fylgjast áfram með okkur, eins og þú hefur alltaf gert. Hvíl í friði, elsku amma okkar. Þín barnabörn, Heiða Björk, Hannes Bjarki, Hanna Björk, Helga Björk og Hilmar Bjarki. Þórunn K. Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.