Eyjablaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 4
4
EYJABLAÐIÐ
Vidtalid
*
Umsjón: Ragnar Oskarsson
Skólanum er um megn að
vera í samkeppni við
undanþágurnar
í mörg ár hefur það viögengist að stór hluti stjórnenda fiskiskipa
hefur starfað án tilskilinna réttinda. Einna alvarlegast er þetta
ástand hvað vélstjóra snertir og hefur það síst farið batnandi
undanfarin ár. Kristján Jóhannesson deildarstjóri við Fram-
haldsskólann í Vestmannaeyjum hefur í mörg ár látið réttindamál
vélstjóra til sín taka og oftar en einu sinni bent á að ríkjandi ástand
sé ekki viðunandi. Evjahlaöiö ræddi við Kristján uni þessi mál og
önnur er tengjast vélstjóramenntun almennt.
Hvernig er réttindamálum
vélstjóra í Vestmannaeyjum
háttað í dag?
Vélstjóratelag Vestmanna-
eyja hefur í gegnum tíðina
haldið nákvæma skrá unt
undanþágur til vélstjóra og í
fyrra voru þær 70 hér í Eyjum.
Síðan þá hafa undanþágurnar
án efa aukist þótt ég hafi ekki
nákvæmar tölur þar um á reiö-
um höndum. Undanþágurnar
eru flestar veittar til vélstjóra á
rninni bátum. en þeim fer fækk-
andi eftir því sem bátarnir
stækka.
Hver veitir undanþágurnar?
Bæjarfógetaembættið veitir
undanþágurnar að fengrium
meðmælum frá vélstjórafélag-
inu hér. í flestunr tilvikum
mælir Vélstjórafélagið með
undanþágunum svo tiltölulega
lítið mál er að fá þær. Mér
finnst sjálfum að Vélstjóra-
félagið ætti að vera harðara í
sambandi við þessar undan-
þágur en auðvitað á það erfitt
um vik. því ástandið er þess
eðlis.
Hvernig er þessum málum
háttað annars staöar á landinu í
samanburði við það sem hér
gerist?
Eg veit að ástandið er slæmt
á Suðausturlandi og á Aust-
fjörðum og mun verra en hér.
Þetta má m.a. rekja til þess að
fyrir austan er ekkert vélstjóra-
nám í boði.
Nú liggur Ijóst fyrir að ekki er
hægt að manna fiskiskipaflot-
ann án undanþágumanna og
ekki er unnt að uppræta undan-
þágurnar með einu alsherjar
banni. Hvað er hægt að gera?
í tengslum við Vélskóla ís-
lands er verið að undirbúa
námskeið fyrir réttindalausa
vélstjóra 25 ára og eldri sem
þegar hafa öðlast í.þ.m. tveggja
ára reynslu í starfi. Meiningin
er sú að með slíku námskeiði
geti menn öðlast I. stigs rétt-
indi. Komið hefur til tals að
fara eins að hér í Eyjum, þ.e. að
bjóða upp á sams konar nám-
skeið. Hér er öll aðstaða fyrir
hendi svo ekki ætti málið að
stranda þess vegna.
Hvað finnst þér um þessa
leið?
t*að er nauðsynlegt að gera
eitthvað og ég held að þessi
leið sé rétt miðað við aðstæður.
Það er auövitað hart að þurfa
að reka menn sem hafa starfað
lengi sem vélstjórar og öðlast
Kristján
reynslu í starfi og sjálfsagt að
gefa þeint kost á slíkum nánr-
skeiðum. Hitt er svo annað, að
erfitt getur verið fjárhagslega
fvrir þessa menn að leggja út í
slíkt nám en þarætti ríkisvaldið
auðvitað að koma inn í t.d. með
skattaívilnunum.
Hver er að öðru leyti þáttur
Vélskólans í baráttunni gegn
undanþágum?
Skólinn getur afar lítið gert
meðan undanþágurnar eru eins
auðfengnar og raun ber vitni
um. Reyndin er einfaldlega sú
að skólanum er um megn að
vera í samkeppni við undan-
þágurnar því þær kosta tiltölu-
lega lítið, en skólinn er dýr og
þess vegna ekki eins fýsilegur
kostur.
Telur þú að skólinn hér veiti
góða menntun og útskrifi góða
vélstjóra?
Skólinn útskrifar í raun ekki
vélstjóra með réttindi því áður
en réttindi fást þart' vélstjóra-
efni að fá ákveðna reynslu á sjó.
Menntunin sem skólinn veitir
er nreira almenns eðlis og
fræðileg og í þeim efnum held
ég að skólinn standi fyliilega
fvrir sínu. T.d. held ég að að-
staðan í skólanum nú sé góð og
þess vegna geti hann fullnægt
þeim kröfum sem til hans eru
gerðar. Sumt af hinu fræðilega
námsefni er reyndar að verða
úrelt. en það stendur vonandi
til bóta. Þá fer ekki hjá því að
maður hafi áhyggjur af því að
fjárveitingar til Framhalds-
skólans hafa verið skornar við
nögl í sambandi við kennslu-
stundafjölda og getur það auð-
\itað skaðað \élstjóranámið.
Nú hefur aðsókn að vél-
stjóranámi verið dræm undan-
farin ár. Áttu von á að breyting
verði á í náinni franitíð.
Já ég á von á því. Ég held að
sú brevting verði samfara sam-
drætti í sjávarútvegi og menn
fari fljótlega að sækja sér
menntun til að trvggja sitt starf.
Tengist vélstjóranámið á
einhvern hátt öryggismálum
sjómanna sem nú er svo mikið
um rætt?
Að sjálfsögðu. Fullyrða má
varðandi öryggismál sjómanna
að menntun vélstjóra er einn
stærsti þátturinn vegna þess að
þeir sem lært hafa hiutina eru
öðru jöfnu hæfari en hinir.
Menntun vélstjóra er fyrst og
fremst fyrirbyggjandi þátturog
verður auðvitað að vera nteð í
umræðu og aðgerðunt er tengj-
ast örvggismálum sjómanna.
Viðtal R.Ó.
TIL UMHUGSUNAR
A síðasta bæjarstjórnarfundi bar Arnar Sigurmundsson
sarnan störf bæjarfulltrúa í núverandi og fyrrverandi
meirihluta. Taldi hann allt önnur og betri vinnubrögð
tíðkast nú en þá. nú væru það bæjarfulltrúarnir sjálfir sem
hefðu völdin. en áður hefðu vondu embættismennirnir
stjórnað öllu með harðri hendi. Þessa þulu þekkja menn
reyndar frá því fvrir síðustu bæjarstjórnarkosningar því hún
var eitt aðalkosningabragð sjálfstæðismanna þá. En full-
yrðing Arnars um að nú ráði bæjarfulltrúarnir sjálfir er ekki
rétt. Astandið innan núverandi meirihluta er nefnilega
þannig að Arnar er maðurinn sem öllu vill ráða og hann fer
ekkert dult með þann vilja sinn. Þetta kom greinilega í Ijós á
umræddum bæjarstjórnarfundi er Sigurður Jónsson flutti
ásamt Andrési Sigmundssyni tillögu um að varðveita bát
nokkurn sern mjög hefur verið til umræðu undanfarið. Þar
sem Arnari var ekki kunnugt um tillöguna fyrirfram ogekki
fylgjandi henni varð hann bálreiður og talaði unt skrípaleik.
meiriháttar brandara og þar fram eftir götunum. Hann
reyndi nteð öllunt mætti að fá tillöguna fellda og var auðséð
á öllu að hann taldi sig sjálfkjörinn til að ráða ferðinni innan
meirihlutans enda fór svo að tillagan var felld.
Öll frantkoma Arnars á umræddum bæjarstjórnarfundi
sýndi svo sannarlega að hann telur sig þann sem ráða á
ferðinni og eftir sínum hugmyndum eigi hinir bæjarfull-
trúarnir að fara. Undirritaður er sem sé þeirrar skoðunar að
bæjarfulltrúar meirihlutans ráði ekki ntiklu þegar allt
kemur til alls. Arnar stjórnar og ræður. —Félagi
INNLANS
SKÍRTEINI
ÚTVEGSBANKANS
BERA HÆSTU VEXTISEM NOKKUR
ÍSLENSK INNLÁNSSTOFNUN BÝÐUR
---OG ÞVÍ FYLGJA FLEIRIGÓÐIR KOSTIR.-
RAÐGJAFINN I GTVEGSBANKANCIM
LEIÐIR ÞIG í ALLAN SANNLEIKANN CJM ÞAÐ.
KOMDU Á EINHVERN AFGREIÐSLUSTAÐ
ÚTVEGSBANKANS
OG SPYRÐU EFTIR RÁÐGJAFANUM.
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL ÞJÓNUSTA