Skátablaðið - 01.02.1945, Blaðsíða 9
BADEN POWELL:
FORINGJAHÆFILEIKAR
Foringjahæfileiki er lykillinn að árangri
— en foringjahæfileika er erfitt að skil-
greina, og foringja er erfitt að finna. Ég
hef oft sagt: „Sérhver asni getur verið yfir-
boðari og æfður maður getur verið feið-
beinandi, en maðurinn er fæddur foringi
eins og skáldið, en verður ekki gerður að
foringja.“
Ég get samt sagt, að það eru fjögur aðal-
atriði, sem foringinn verður að gæta:
1) Hann verður algerlega að treysta og
trúa því, sem liann segir, svo að félagar
hans smittist af honum og taki þátt í áhuga-
málum hans.
2) Hann verður að vera glaðvær og dug-
legur, en hafa jafnframt samúð og góðan
skilning á félögum sínum og tryggja þannig
fullkomna samvinnu mifli þeirra.
3) Hann verður að treysta sjálfum sér
vegna kunnáttu sinnar. Þannig öðlast hann
traust félaga sinna.
4) Það, sem hann boðar öðrum, verður
hann að gera og gefa þannig sjálfur félög-
um sínum fordæmi til eftirbreytni.
Undirstöðuatriðum foringjahæfileikanna
væri ef til vill hægt að ná á símskeytamáli
með orðunum: félagslyndi og hæfni.
í gær var ég að tala við einn af skóla-
stjórum okkar, en hann er mikill uppeldis-
fræðingur. Hann sagði mér frá nokkrum
uppeldisaðferðum sínum, en þær höfðu
annars fengið hárin til að rísa á höfði skóla-
eftirlitsmanns. Þessar aðferðir eru þó þær
sörnu og skátafræðslan styðst við.
Við skulum taka eitt af dæmum hans. —
Stúlka nokkur var mjög slæm í reikningi,
SKÁTABLAÐIÐ
svo að hann spurði hana, hvaða námsgrein
henni líkaði bezt.
„Auðvitað matreiðsla,“ var svarið.
„En hvaða námsgrein finnst þér sízt?“
„Reikningur."
„Jæja, í trúnaði sagt, þá er það nú eins
með mig, mér líkar ekki reikningur. En
svo við víkjum nú aftur að matreiðslunni.
Hvernig væri, að þú syðir nú te í stað þess
að fara í reikningstíma í dag? Þú hefur
góðar kökur með því og svo getum við
drukkið saman. Þú verður að kaupa allt
hið nauðsynlegasta, en hafðu það nú ekki
of dýrt.“
Þessa hugmynd framkvæmdi hún með
mestu gleði og næsta dag sagði hann við
hana: „Þetta te var alveg ágætt. Getur þú
ekki eldað meira og nú í stærri stíl. Við get-
um sagt fyrir fimm. Þú býður þá nokkrum
kunningjum með.“
Þetta var framkvæmt, fljótt og vel. Árang-
urinn varð sá, að með því að finna, hve
mikið hún þurfti af bökunarefni og við
verðútreikninginn, þá hafði stúlkan verið
í reikningstíma.
Með áhuga á verkinu og stolti yfir þeirri
ábyrgð, sem á henni hvíldi, hafði hún ekki
aðeins lært reiking, heldur einnig skilið
hina hagnýtu notkun hans.
Það er með þessari sömu aðferð, sem
skátaforinginn kemur frant þeim áhrifum,
sem hann vill fá, þ. e. a. s. með skátaleikj-
um, sem drengurinn hefur áhuga á.
(Úr „B.-P.s Outlook".)