Skátablaðið - 01.02.1945, Blaðsíða 16
Ú R HEIMl SKÁTA
Framhald af bls. 13.
við landgöngubrúna undir fánum og
kvöddu forseta með fánakveðju.“
„í sumar létum við girða land, sem við
ætlurn að reyna með skógrækt í. Ætlum
við bæði að grisja það kjarr, sem er þar
fyrir og einnig að gróðursetja trjáplöntur.
Girðingin er 120 X 80 metrar að stærð.
Þá höfum við einnig í sumar ráðist í að
byggja gufubaðstofu hér í þorpinu, og höf-
um við þegar komið henni undir þak. Erum
við nú búnir að einangra alla veggi með
þúnnu torfi. Þeir verða síðan múrhúðaðir,
hema í baðstofunni sjálfri, sem verður þilj-
uð innan með panel og hann svo lakkbor-
inn. Húsið, sem er 7 X 5>6o metrar, er allt
úr steinsteypu, og hafa skátarnir sjálfir
unnið mikið að byggingunni."
Vétrarstarfsemin hófst í október og virðist
ætla að ganga vel.
SkátaféSagið Fálkar,
Skagafirði.
Skátafélagið „Fálkar" mun vera fyrsta fé-
lagið og líklega það eina á íslandi, sem
stofnað hefur verið og starfar uppi í sveit.
22. marz 1934 var stofnuð Skátasveit Stað-
16
arhrepps með þremur félögum. Fyrstu sex
árin starfaði hún með skátafél. „Andvarar“
á Sauðárkróki og var þá sem önnur sveit
þess. Síðan 1940 hefur sveitin starfað sem
sjálfstætt félag innan vébanda B. í. S. Á
s. 1. ári varð því skátasveit þessi tíu ára, og
óskar Skátablaðið henni til hamingju með
þetta merka afmæli. Er nú sýnt og sannað,
að skátastarfsemin þrífst engu verr í sveit-
um en í kaupstöðum, þrátt fyrir strjálbýli
og ýrnsa aðra örðugleika.
í surnar fóru „Fálkar“ meðal annarra
ferða út í Drangey og einnig í berjaferð
„fram í sveit“, og var sú ferð farin á hest-
um.
Vetrarstarfið hófst með fjölmennri dans-
samkomu í samkomuhúsi Staðarhrepps til
ágóða fyrir félagið. í vetur mun félagið
starfa í þremur flokkum auk ylfingaflokks.
Félagsfundir eru haldnir einu sinni í
mánuði.
„Skátafélagið „Fálkar“ þakkar öllum, sem
hafa stutt félagið á liðnum árum, því að
þeir eru margir, sem það hafa gert, og
sumir ættu skilið meira en þakklætisorðin
tóm.
Nti eftir þessi reynsluár líta „Fálkar"
björtum augum á framtíðina.“
Félagsforingi „Fálka“ er Sigurður Jóns-
son.
Skátafélagið Fylkir,
Siglufirði.
(12. jan. 1945.)
Eins og kunnugt er, er Siglufjörður mesta
síldveiðistöð landsins. En síldin vill ekki
láta veiða sig nema á sumrin, og er þá svo
tímafrek, að lítill tími verður aflögu fyrir
skátana að fara í útilegur, skemmtilegustu
starfsemi skátahreyfingarinnar.
í maímánuði var farið í 5 daga félagsúti-
legu fram í Hóldalsbotn og tóku flestir fé-
SKÁTABLAÐIÐ