Skátablaðið - 01.02.1945, Page 17
lagsmenn þátt í henni. Farið var í fjall-
göngur á næstliggjandi fjöll. í aðra útilegu
var farið út á Siglunes í miðjum júní.
„17. júní gengu skátar fylktu liði um
götur bæjarins. Nokkrir hagleiksmenn úr
félaginu smíðuðu og skreyttu inngangshiið
að hinum nýja íþróttaveili bæjarins og þótti
það mjög fallegt."
Vetrarstarfsemin er nú í fullum gangi og
er í ráði að stofna R. S.-sveit.
Húsnæðisvandræði hafa háð starfsemi fé-
lagsins frá byrjun, en nú er í ráði að byggja
hús og er þá vonandi, að hagur félagsins og
allur aðbúnaður batni að mun.
22. janúar varð Skátafélagið Fylkir 10
ára. Áformuðu þeir að halda skemmtun og
gefa út blað í tilefni af því. Óskar Skáta-
blaðið því hér með til hamingju með þetta
merka afmæli.
Kvenskátáfél. Valkyrjan,
Akureyri.
(23. nóv. 1944.)
Frá sumarstarfseminni: „Féiag okkar tók
þátt í skrúðgöngunni um bæinn þann 17.
júní og hjálpuðu skátastúlkurnar lítið eitt
við skreytingu á torgi því, er hátíðahöldin
fóru fram á. Á sumardaginn fyrsta var
sameiginleg kirkjuganga hjá drengja- og
kvenskátum Akureyrar. Kvenskátarnir buðu
nokkrum drengjum til kaffidrykkju hjá sér
á eftir.
Félag okkar fór aðeins tvær ferðir í
sumar. 28 stúlkur héldu á landsmót kven-
skáta í Vatnsdalshólum. Fór mótið vel
fram og varð öllum til gleði. Hin ferðin
var farin í Garðsárgil. Önnur sumarstörf
voru kartöflurækt og kvenskáta-kofabygg-
ing á Vaðlaheiði."
Vetrarstarfsemin: „Frá því um miðjan
ágúst hafa skátastúlkurnar hérna mætt eitt
kvöld í viku til þess að sauma á bazar, sem
halda á 3. desember þ. á. Einu sinni í mán-
uði hverjum var einnig soðið kakaó handa
öllum mættum. Þessi saumakvöld hafa verið
mjög ánægjuleg, lesin framhaldssaga og
sungið.
Útlit fyrir vetrarstarf okkar er fremur
gott. Nokkar nýjar stúlkur eru að bætast
í hópinn."
Kvenskátafélag Húsavíkur
(13. nóv. 1944.)
„17. júní tóku bæði skátafélögin á Húsa-
vík þátt í hátíðahöldunum. Fólk varbeðiðað
safnast saman á höfðanum fyrir utan Hvík
kl. 10 f. h. og þangað komu skátar gangandi
í fylkingu undir fánum. Var þá hafin skrúð-
ganga með barnaskólabörn í fararbroddi og
skáta þar næst, og haldið upp að Borgarhól,
þar sem sagt er, að Garðar Svavarsson hafi
fyrst setzt að. Hélt sýslumaður þar ræðu og
karlakórinn söng nokkur lög. Var síðan
haldið í kirkju, þar sem prófastur héraðsins
hélt hátíðaguðsþjónustu. Um kvöldið fóru
nokkrir skátar (drengir og stúlkur) fram að
Laugum, þar sem þeir settu upp tjaldborg
með 11 tjöldum, og aðstoðuðu eftir getu við
undirbúning hátíðahaldanna næsta dag. A
þessari héraðssamkomu stóðu þeir heiðurs-
vörð og aðstoðuðu eftir mætti.
Á sumardaginn fyrsta var haldin skáta-
messa í Húsavíkurkirkju og gengu skátarnir
fylktu liði í kirkju. Um kvöldið héldu bæði
skátafélögin opinberan dansleik með veit-
ingum í samkomuhúsi bæjarins. Tveim
dögum seinna héldu félögin sameiginlegan
sumarfagnaðarfund.
Við komu forsetans tóku skátarnir á
móti honum fyrir utan samkomuhúsið
og heilsuðu með fánakveðju. Eftir að for-
setinn hafði tekið þátt í kaffiveizlu í sam-
komuhúsinu, var gengið að kirkjunni, þar
sem forseti ávarpaði mannfjöldann frá
SKÁTABLAÐIÐ