Skátablaðið - 01.04.1945, Síða 14
HÁS
Útiæfingar eru skemmtilegur liður í
skátastarfinu, en hafa verið stundaðar allt
of lítið. Það er ekki nauðsynlegt að fara
langt út fyrir bæina til að halda sumar æf-
ingar. Bezt er þó að geta haft nokkuð stórt
svæði til umráða. Laugardags eða sunnu-
dags eftirmiðdagar eru ágætur tími til æf-
inganna.
Ég ætla nú að lýsa því hér, hvernig hægt
væri að hafa eina slíka æfingu. Gerum ráð
fyrir, að það sé sveit, sem æfinguna heldur
og í henni séu 27 skátar: 1 sveitarforingi,
1 aðstoðarforingi, 1 yfirflokksforingi, 4
flokksforingjar og 20 aðrir skátar.
Sveitarforinginn þarf auðvitað að halda
foringjafund til að undirbúa æfinguna. Þar
er rætt um fyrirkomulag og hvað á að taka
fyrir. Æðri foringjar sveitarinnar geta síð-
an skipt hinum ákveðnu verkefnum niður
á flokkana, svo að flokksforingjarnir viti
ekki fyrirfram hvað hver flokkur fær.
Nú hefur foringjafundurinn ákveðið þessa
tilhögun:
Dagskrá:
Útiæfing við ........
26. maí kl. 1.30.
! ÚTI
Kl. 1.30 Þátttakendur mæta. Tjöld reist — annar undirbún.
- 2.30 Fylkt. Ávarp sveitarforingja.
- 2-45 Göngur.
- 3-i5 Æfingar hjá flokkum. Keppni.
- 5-!5 Drukkið.
- 5-45 Fylkt. Sveitarforingi skýrir úrslit.
— 6.00 Tjöld tekin niður. Heimferð.
Foringjafundurinn hefur talið nauðsyn-
legt, að hver flokkur hefði sitt tjald. Þá
þarf líka að vera tjald fyrir aðalstöðvarnar
þ. e. aðsetursstað æðri foringja sveitarinn-
ar. í hverju tjaldi þurfa auk þess að vera
semaforflögg og sáraumbúðir. Enn fremur
er gert ráð fyrir að kakóið sé hitað í aðal-
stöðvunum og í því skyni sendi hver flokk-
ur mann þangað kl. 4.45.
Kallmerki eru ákveðin þannig:
AB — aðalstöðvar.
CD — 1. flokkur
EF - 2. -
GH - 3. -
IK - 4. -
LM — allir flokkar.
Sveitarforinginn hefur verið svo forsjáll
að senda einn 1. flokks skátann til að gera
kort af staðnum, svo að foringjafundurinn
geti haft það við hendina til frekari ákvarð-
ana.
Jæja, nú skulum við snúa okkur að sjálfri
æfingunni. Strax og þátttakendurnir koma
fer hver flokkur á sinn stað, sem er fyrir-
fram ákveðinn, tjaldar sínu tjaldi og býr sig
á annan hátt undir æfinguna. Kl. 2.30 er
gefið merki frá aðalstöðvunum, um að allir
skuli safnast þar saman. Merkið má gefa
SKÁTABLAÐIÐ
14