Skátablaðið - 01.04.1945, Blaðsíða 22
KROSSGÁTA.
Láréttar skýringar:
í. Vetrarbústaður skáta. — 5. Sumarbú-
staðir skáta. — 10. Vagga frelsarans. — 12.
Grunar. — 13. Mannsnafn (þf.). — »4. Tafl.
— 15. Ekki sætur. — 17. Húsdýr. — 19. Bóka-
útgáfuflokkur. — 22. Upphrópun. — 23.
Ögn. — 24. Hvá. — 26. Engin undantekin.
— 29. Bergmál (þf-). — 31. Forfaðir. — 33.
Vafa. — 34. Hár. — 35. Set. — 36. Upphafs-
stafir. — 37. Safnar saman. — 40. Tveir eins.
41. Smáhár. — 42. Bardagi. — 43. Stefna. —
47. Tvíhljóði. — 48. Eina málgagn B. í. S.
Lóðréttar sk'ýringar:
1. Haf. — 2. kemur auðveldlega í kulda.
— 3. Beita. — 4. Á kjólfötum. — 6. Hátíð. —
7. Æstu. — 8. Enskur drengur. — 9. Hestur.
— íx. Fyrsta grein jólablaðsins 1944. — 15.
Vend. — 16. Fyrirtæki í Hafnarfirði. — 17.
Glaðar. — 18. Fer á sjó. — 20. Tónn. — 21.
Ending. — 24. Geymsla. — 25. Veiða. — 27.
Leyfa afnot. — 28. Grískur bókstafur. 29.
Ókleif. — 30. -slu-sérpróf. 32. Á fæti. — 33.
Fæði. — 37. Kyrrð. — 38. Stafur. — 39. Guð.
— 44. Skammst. — 45. Tónn. — 46. Verk-
færi (þf.). — 47. Tvíhljóði.
saman. Ég held nú niður í gegnum bæinn
og niður að höfn. Þar má sjá menn með
svarta poka á bakinu ganga niður bryggj-
urnar. Þetta eru sjómenn að leggja út á
hafið. Þeir virðast einnig í góðu skapi. Þeir
syngja létt lög eða blístra. Þetta eru þeir
menn, sem drýgstan þátt eiga í velferð þjóð-
ar vorrar. Þeir sem fá einna mest að kenna
á hinni mislyndu veðráttu íslands. Þeir
virðast ánægðir samt. Það er blásið í eim-
pípu. Eitt skipið sést líða út höfnina. Mér
verður hugsað til gamallar sjómannskonu,
sem eitt sinn sagði undir sömu kringum-
stæðum: „Guð blessi ykkur.“ Ég fer nú
upp í bæinn aftur. Þar mæti ég tveimur
lögregluþjónum. Þeir eru gæzlumenn lands-
22
ins laga og gæta þess að enginn geri neitt,
sem ekki sæmir heiðvirðum borgara. Þeir
hlæja innilega að einhverju, sem þeir voru
að tala um. Ég er nú ósjálfrátt kominn í
bezta skap. Af hverju sem það er. Ég fer
nú heirn að sofa. Því næst svíf ég ánægður
inn í Iand draumanna. Gerti.
Skátablaðið
Útgefandi: BANDALAG ÍSLENZKRA SKÁTA
Ritstjórn: Páll Gíslason, ritstjóri, Björn Svein-
bjarnarson, fréttastj., Axel L. Sveins, gjaldk.,
Jónas B. Jónsson og Helgi S. Jónsson.
Utanáskrift: Pósthólf 831. — Verð árg. 10 kr.
Prentsmiðjan ODDI h.f.
SKÁTABLAÐIÐ