Skátablaðið - 01.04.1945, Side 16
HAFSTEINN 0. HANNESSON:
Gæzlumenn og skátafélög
Allir, sem eitthvað hafa starfað að skáta-
málum, hafa tekið eftir því, hve oft það
kemur fyrir með skátafélög, einkum á hin-
um smærri stöðum, að þau lognast út af
eftir tveggja til fjögra ára starf. Astæðan til
þess er oftast sú, að drengir þeir, sem höfðu
forustuna í félaginu til að byrja með, flytj-
ast burtu af staðnum oftast til framhalds-
náms eða í atvinnuleit. — Þá er félagið
forustulaust, meðlimirnir 12—16 drengir,
sem standa uppi aðstoðarlausir, — flokks-
fundunum smáfækkar, útilegurnar hverfa,
— og eftir eitt eða tvö ár er félagið dautt,
— fundarbækur þess og aðrar eigur týndar.
Þetta er sorgarsaga, sem endurtekur sig
enn í dag. En það er skylda okkar að hugsa
um þetta vandamál, og gera tillögur til úr-
bótar, því að svona má þetta ekki ganga.
Beztu lausnina tel ég vera þá, að á hverj-
um stað verði fengnir nokkrir fullorðnir,
vel metnir borgarar til þess að vera bak-
hjarl skátafélagsins.
Stjórn B.Í.S. hefur rætt þetta mál, sbr.
bréf hennar til félaganna dags 17. nóv. 1943,
og telur brýna þörf á því að tryggja skáta-
félögunum sem virkasta aðstoð málsmet-
andi manna á hverjum stað, þar sem félög
eru starfandi.
Og lausn stjórnar B.Í.S. á þessu er í
„Reglugerð um deildarráðsforingja og for-
ingjaráð“. Reglugerð þessi var mikíð rædd
á aðalfundi B.Í.S. í sumar, og fékk heldur
misjafna dóma. Nokkrir skátaforingjar lýstu
sig jafnvel talsvert andvíga reglugerðinni,
og umræðum lauk með því, að Skátahöfð-
16
ingi lýsti því yfir, að reglugerð þessa ætti
ekki að skoða sem skipun, sem framkvæma
ætti strax í dag, heldur væri þetta það, sem
koma ætti hjá öllum skátafélögum, smátt
og smátt á næstu árum.
Við umræðurnar kom í ljós, að Skáta-
félag Akureyrar hefur sinn „verndara“ og
skátafélagið Faxi í Vestmannaeyjum sitt
„öldungaráð“, og Einherjar hafa nýlega
stofnað sitt „styrktarfélag“. — Sést á þessu,
að jafnvel hin stærri félög hafa fundið
þörf hjá sér til þess að hafa einhvern bak-
hjarl fyrir félagsstarfið.
Ég er ekki nákunnugur fyrirkomulaginu
á Akureyri og í Vestmannaeyjum, en Magni,
styrktarfélag skáta á ísafirði, er „félag með
þeim höfuðtilgangi að vera á siðferðilegan,
og undir sérstökum kringumstæðum á fjár-
hagslegan hátt, styrktarstoð Einherja“. Fé-
lagið er opið öllum, en aðallega ætlað
gömlum skátum, er hættir eru virkri skáta-
starfsemi, og svo foreldrum skátanna sjálfra.
— Magni kýs annan endurskoðenda reikn-
inga Einherja, og einn mann í foringjaráð
Einherja, og nýtur hann þar fullra rétt-
inda. Ef Einherjar hætta störfum, renna
eigur þeirra til Magna. — Félag þetta er
hið fyrsta hér á landi með svona stefnu-
skrá. Og enn er ekki fengin reynsla fyrir
þessu nýja fyrirkomulagi.
Hér á eftir fara tillögur mínar um gæzlu-
menn skátafélaga, starfssvið þeirra og sam-
band við skátafélagið. Nafnið gæzlumaður
hefur mér fundizt heppilegast, það skýrir
sig sjálft, — betur en „verndari" og „öld-
SKÁTABLAÐIÐ