Morgunblaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
www.noatun.is
Fermingarveislur
Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun.
1990
KR./MANN
VERÐ FRÁ
AÐEINS
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Boðuðu verkfalli í níu fiskimjöls-
verksmiðjum, sem hefjast átti í gær-
kvöldi, var aflýst í gær. Sameiginleg
samninganefnd Afls starfsgreina-
félags og Drífanda stéttarfélags af-
lýsti fyrst verkfalli í fiskimjölsverk-
smiðjum á félagssvæði sínu og
Verkalýðsfélag Akraness fylgdi í
kjölfarið.
„Við erum ánægðir með að það
skyldi vera tekin skynsamleg
ákvörðun,“ sagði Jóhann Pétur And-
ersen, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra fiskimjölsframleiðenda.
Hann sagði að búið hefði verið að
stoppa flestar verksmiðjurnar þar
sem verkfall var boðað.
Jóhann kvaðst reikna með að
verksmiðjurnar færu allar í gang aft-
ur. Ekki væri þó víst að það gerðist
strax heldur biðu líklega einhverjir
eftir að hrognataka hæfist.
Skortur á samstöðu
„Ástæða þess að verkfallinu er af-
lýst er skortur á samstöðu milli
verkalýðsfélaga á landinu en brætt
er á vöktum í verksmiðjunni á Þórs-
höfn og í Helguvík og enn ekki boðað
til vinnustöðvunar þar,“ segir í yf-
irlýsingu Afls og Drífanda. Samn-
inganefndin lýsti miklum vonbrigð-
um með þróun mála. Hún benti m.a.
á að afstaða Verkalýðsfélags Þórs-
hafnar, sem ekki hafði boðað verk-
fall, og gangsetning fiskimjölsverk-
smiðju Síldarvinnslunnar í Helguvík
veikti mjög stöðu Afls og Drífanda til
verkfalls.
Samningaviðræður Afls og Dríf-
anda við SA vegna fiskimjölsverk-
smiðja halda áfram í næstu viku und-
ir stjórn ríkissáttasemjara.
„Það var ekkert annað í stöðunni
eftir að hinar bræðslurnar afboðuðu
verkfall,“ sagði Vilhjálmur Birgis-
son, formaður Verkalýðsfélags
Akraness, um afboðun verkfalls á
Akranesi. „Það er illa komið fyrir ís-
lenskri verkalýðshreyfingu og aum-
ingja íslenskir launþegar. Það er
með ólíkindum að verða vitni að því
að menn skuli ekki hafa kjark eða
þor til að standa í lappirnar,“ sagði
Vilhjálmur. Hann sagði það vera sitt
mat að Samtök atvinnulífsins (SA)
og Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
hefðu bundist órjúfanlegum böndum
um að hér skyldu engir fá neitt um-
fram það sem samið yrði um í sam-
ræmdri launastefnu. „Þetta tel ég
vera meginástæðu þess hvernig hér
fór,“ sagði Vilhjálmur.
Samninganefnd bræðslumanna
Loðnuvinnslunnar á Þórshöfn og SA
undirrituðu í gær yfirlýsingu í fjór-
tán liðum um sérkröfur starfsmanna
fyrirtækisins. Ekki náðist sátt um
launakjör og verður kjaradeilan um
launaliðinn áfram hjá ríkissátta-
semjara. Ef Verkalýðsfélag Þórs-
hafnar boðar til verkfalls til að knýja
á um launakröfur þá fellur yfirlýs-
ingin úr gildi.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Loðnufrysting Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hafa keppst við að frysta loðnu áður en boðað
verkfall bræðslumanna skylli á. Nú hefur verkfallinu verið frestað og því ljóst að hægt verður að vinna loðnuhrogn.
Verkfalli bræðslumanna
aflýst á elleftu stundu
Talsmenn bræðslumanna segja að skort hafi á samstöðu milli verkalýðsfélaga
Samtökin InDefence segja að Ice-
save-samningarnir, sem eru til um-
ræðu á Alþingi, feli óbreyttir í sér
„óásættanlega áhættu fyrir Ísland“.
Þjóðaratkvæðagreiðsla sé eina úr-
ræðið sem eftir sé til að ljúka málinu
með „sæmilegri sátt meðal þjóðar-
innar“. Samtökin skora þess vegna á
Alþingi að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um samningana.
„Í ítarlegri umsögn InDefence-
hópsins til Alþingis um Icesave III
samningana var á það bent að
óbreyttir samningar fælu í sér
óásættanlega fjárhagslega áhættu
fyrir Ísland,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá InDefence. „Sú áhætta er
staðfest í öðrum efnahagslegum um-
sögnum til Alþingis. Í umsögninni
ráðlagði InDefence-hópurinn fjár-
laganefnd og Alþingi að sameinast
um eina breyting-
artillögu sem
hefði minnkað
fjárhagslega
áhættu þjóðar-
innar. Krafa um
þessa breytingu
styðst m.a. við 11.
gr. innstæðutil-
skipunar Evrópusambandsins. Í til-
lögu þessari fólst viðleitni til að ljúka
Icesave-málinu í meiri sátt við ís-
lensku þjóðina. Alþingi sýnir enga
viðleitni í því að berjast fyrir breyt-
ingum á samningunum og mæta
þannig óásættanlegri fjárhagslegri
áhættu Íslendinga.“
InDefence bendir á að í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Icesave II hinn 6.
mars á liðnu ári synjuðu 98% þeirra
kjósenda, sem tóku afstöðu, staðfest-
ingar á lögum sem forseti Íslands
hafði skotið til þjóðarinnar. „Sam-
bærilegt frumvarp liggur nú fyrir
Alþingi en kosningar til Alþingis
hafa ekki farið fram síðan fyrra
frumvarp var til umfjöllunar á
þingi.“
Eina leiðin til að ljúka
málinu í sæmilegri sátt
„Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
MMR vilja 62% landsmanna fá að
kjósa um nýju Icesave III samn-
ingana. Úr því sem komið er telur
InDefence-hópurinn að eina leiðin til
að ljúka Icesave-málinu í sæmilegri
sátt við þjóðina sé að þjóðin fái að
kjósa um afdrif þess. Alþingi er því
hvatt til þess að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um Icesave III
samningana.“
InDefence hvetur til
þjóðaratkvæðagreiðslu
Segir Icesave fela í sér óviðunandi áhættu fyrir Ísland
Lögmaður slitastjórnar Glitnis hef-
ur skrifað Charles E. Ramos, dóm-
ara í hæstarétti New York, bréf þar
sem farið er fram á að réttarhöld í
skaðabótamáli Glitnis gegn sjö ein-
staklingum og endurskoðunar-
fyrirtæki hefjist að nýju.
Michael C. Miller, lögmaður hjá
Steptoe & Johnson, vísar í bréfi til
dómarans til þess að er Ramos
ákvað í desember að vísa málinu
frá dómi hafi hann sett ákveðin
skilyrði. Þessi skilyrði hafi ekki
enn verið uppfyllt. Skilyrðin voru
að sjömenningarnir og Pricewater-
houseCoopers myndu ekki mót-
mæla lögsögu íslensks dómstóls í
málinu. Einnig að þeir lýstu því yfir
að því yrði ekki mótmælt að dómur,
sem kunni að falla í sambærilegu
máli á Íslandi, yrði aðfararhæfur í
New York.
Segir Miller að rúmur hálfur
mánuður sé einnig liðinn frá því
dómarinn staðfesti orðalag yfirlýs-
ingar, sem þeir sem málið beindist
gegn yrðu að fallast á svo frávísun-
in yrði staðfest. Tveir þeirra,
Hannes Smárason og Pálmi Har-
aldsson, hafi ekki fallist á yfir-
lýsinguna og gefið til kynna að þeir
muni ekki gera það. Óskar Miller
eftir því að úr því að skilyrði fyrir
frávísun hafi ekki verið uppfyllt
verði málinu haldið áfram fyrir
dómstólnum í New York án tafar.
Hannes og Pálmi hafa hins vegar
lýst því yfir að þeir áfrýi þeirri nið-
urstöðu dómarans í desember að
setja tiltekin skilyrði fyrir frávísun
málsins.
Vilja að réttarhöld
hefjist að nýju
Á landinu starfa
nú 220 læknar
við heilsugæslu í
200,45 stöðugild-
um. Þau stöðu-
gildi sem ekki
eru setin teljast
26,3, segir í svari
Guðbjarts Hannessonar velferð-
arráðherra við fyrirspurn Eyglóar
Harðardóttur um heimilislækna.
Af þessum fjölda vantar átta hjá
Heilsugæslu höfuborgarsvæðisins,
5,8 stöðugildi hjá Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands og 6,9 hjá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Í
svarinu kemur fram að tölurnar
séu fengnar frá rekstraraðilum
heilsugæslu í landinu. Almennt séu
stöður heimilislækna ætlaðar sér-
fræðingum í heimilislækningum.
26 heimilislækna
vantar á landinu
Eftir var að veiða 75-80 þúsund
tonn af 252.000 tonna loðnu-
kvóta Íslendinga í gær, að mati
Björns Jónssonar hjá kvótamiðl-
un LÍÚ. Afli íslenskra skipa var
því orðinn einhvers staðar á
bilinu 170-180 þúsund tonn á ver-
tíðinni. Þá voru Norðmenn búnir
að veiða um 30 þúsund tonn og
Grænlendingar um 6 þúsund
tonn.
Hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson er væntanlegt til hafnar í
dag eftir loðnuleit allt í kringum
landið síðustu tvær vikur. Þor-
steinn Sigurðsson, sviðsstjóri
nytjastofnasviðs, kvaðst eiga von
á nýjum útreikningum um
hrygningarstofn loðnu í dag.
Þetta er þriðji leiðangurinn í
vetur til að kanna ástand og
stærð loðnustofnsins. Í október
var loðnan mæld, samhliða
haustralli og mælingum á ástandi
sjávar. 6.-22. janúar síðastliðinn
var Árni Friðriksson við loðnu-
mælingar og voru sex veiðiskip til
aðstoðar í upphafi leiðangursins.
Loðnuleiðangri að ljúka
EFTIR AÐ VEIÐA UM ÞRIÐJUNG LOÐNUNNAR