Morgunblaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykja-
víkur tilkynnti í gær, flestum að
óvörum, að borgin ætlaði að bæta allt
að 200 milljónum króna við fjárveit-
ingar til grunnskólastarfs á haust-
önn 2011. Tillaga um það verður tek-
in fyrir í borgarráði á fimmtudag.
Fram kom hjá fulltrúum meiri-
hlutanum á borgarstjórnarfundi í
gær að til þess að standa straum af
þessum kostnaði yrði m.a. lagt til að
útsvar yrði hækkað upp í hámark,
14,48%, sem á að skila rúmlega 200
milljónum á ársgrundvelli.
Í tilkynningu frá borginni segir að
aukið fjárframlag til menntasviðs
muni gera borginni kleift að standa
vörð um list- og verkgreinakennslu.
Jafnframt verði auknu fé varið í for-
fallakennslu og gæslu.
Með þessu er horfið frá niður-
skurði á kennslumagni upp á 2,8%
sem boðaður var í fjárhagsáætlun
2011. Þar kom jafnframt fram að
menntasvið myndi horfa til mögu-
legra tækifæra til aukins sveigjan-
leika í skólastarfi sem kynnu að bjóð-
ast í viðræðum menntamálaráðu-
neytis við Samband íslenskra
sveitarfélaga. Í tilkynningunni frá í
gær kom fram að nú væri ekki útlit
fyrir að ráðuneytið myndi veita
þennan sveigjanleika.
Samkvæmt upplýsingum frá
menntasviði í gær átti niðurskurður
á kennslumagni að skila 135 milljóna
sparnaði og hagræðing í gæslu og
næðisstund átti að skila 21 milljón.
Guðrún Valdimarsdóttir, formað-
ur Samfoks (Samtaka foreldra
grunnskólabarna í Reykjavík), segir
samtökin fagna aukafjárveitingunni
en hún dugi hins vegar hvergi nærri
til. Guðrún segir að þegar tekið hafi
verið tillit til aukafjárveitingarinnar
nemi niðurskurður til menntasviðs
eftir sem áður 800 milljónum. Ef
komast ætti hjá niðurskurði á
kennslumagni hefði þurft að bæta
við 250 milljónum og einnig þyrfti
meira fé til gæslu. Þá væri ekki sann-
gjarnt að kenna grunnskólanum um
að nauðsynlegt væri að hækka
skatta.
„Við höfum óskað eftir því að það
verði forgangsraðað í þágu barna og
unglinga og þau sleppi einhverju
öðru,“ segir hún.
Allt að 200 milljónum til
viðbótar í grunnskólana
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011
Útsvarið hækkað í hámark
Formaður Samfok fagnar aukinni fjárveitingu til grunnskóla, en segir hana hvergi nærri duga til
Horfið frá niðurskurði á kennslumagni upp á 2,8%, sem boðaður var í fjárhagsáætlun fyrir þetta ár
Foreldrar og starfsfólk einhuga um að verja leikskólana, segir formaður Félags leikskólakennara
Morgunblaðið/Ómar
Niðurskurði mótmælt Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík og leikskólastarfsmenn fjölmenntu við Ráðhús Reykjavíkur í gær og mótmæltu niðurskurði til leikskólanna og sameiningatillögum.
Mörg hundruð manns söfnuðust
saman við Ráðhús Reykjavíkur
seinnipartinn í gær til að sýna
samstöðu gegn frekari nið-
urskurði í leikskólum borg-
arinnar. Samtök foreldrafélaga
leikskóla í Reykjavík stóðu að
fundinum og var starfsfólk leik-
skólanna einnig hvatt til að mæta.
Fundurinn var friðsamlegur en
augljóst var að það er hiti í for-
eldrum og starfsmönnum leik-
skóla sem fjölmenntu á fundinn.
„Ég vil að þetta sé skoðað bet-
ur, það er ekki búið að sýna mér
að þetta spari krónu. Mér finnst
þetta illa skipulagt og lítið rætt
við fólk. Það er mikill innri órói,
fólk veit ekki hvað tekur við og
stjórnendur vita ekki hvort þeir
verða með vinnu eftir mánuð eða
tvo mánuði,“ sagði Brynhildur
Jónsdóttir leikskólastarfsmaður
fyrir utan Ráðhúsið í gær. Fleiri
voru á sömu skoðun.
„Okkur hefur ekki verið sagt
neitt, það er mikil óvissa og það
er ástæðan fyrir þessum fundi.
Það þarf að koma 400 börnum
inn í leikskólana á næsta ári og
það á að gera með því að henda
fimm ára krökkunum inn í grunn-
skólana. Við viljum sjá hvaða
starf verður fyrir þessi börn, á að
troða þeim inn í skóla sem þegar
eru yfirfullir eða hvað á að gera,“
sagði Ingi Þór Ágústsson, for-
maður foreldrafélagsins í Lauf-
skálum.
Flestir á staðnum vildu að það
yrði hætt við sameiningarhug-
myndirnar og margir voru
óánægðir með að fá ekki bein
svör frá borginni og að grasrótin
fengi ekki að vera með í skipu-
lagningunni. „Það á að sameina
stofnanir sem eru gjörólíkar hvað
varðar stefnur og strauma.
Stjórnun færist fjær börnunum og
starfsfólkinu, ég get ekki séð
nokkurn faglegan ávinning nema
síður sé,“ sagði leikskólastjóri á
Skógarborg.
Foreldrar nefndu að þeir væru
hræddir um að fagþekkingin færi
úr leikskólunum og sögðu komið
að sársaukamörkum. Flestir voru
bjartsýnir á að samstöðufund-
urinn hefði áhrif og voru gríð-
arlega ánægðir með þátttökuna í
honum.
„Ég held að það sé að rofa til
og að borgarfulltrúar séu að sjá
að þetta er of hratt og bratt og
langt gengið. Það er mikil sam-
staða og foreldrar, starfsfólk
leikskólanna og skólastjórnendur
eru einhuga um að verja leik-
skólana fyrir frekari niðurskurði
og standa vörð um faglegt starf í
leikskólum,“ sagði Marta Dögg
Sigurðardóttir, formaður Félags
leikskólakennara.
ingveldur@mbl.is
Mikill innri órói
og óvissa fólks
Foreldrar og leikskólastarfsmenn
fjölmenntu á samstöðufund í Ráðhúsinu
„Við slógum alltaf þann varnagla að við myndum horfa
til viðræðna sveitarfélaganna og menntamálaráðuneyt-
isins um hugsanlega breytingu á grunnskólalögum. En
það lítur ekki út fyrir að fólk muni ná saman,“ segir
Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs. Í byrjun
janúar hafi komið í ljós að grunnskólunum reyndist erf-
itt að ná markmiðum fjárhagsáætlunar, sérstaklega
vegna forfalla og gæslu. Meirihlutinn hafi verið með-
vitaður um að ef í ljós kæmi að staðan væri ekki ásætt-
anleg yrði að grípa inn í og staðan væri ekki ásættan-
leg.
Viðræður við menntamálaráðuneytið snúast um að
fækka lögbundnum kennslustundum á
viku og segir Oddný að sparnaður í
kennslukostnaði um 2,8% hafi verið
háður samkomulagi við ráðuneytið.
Einhvers staðar þurfi að finna
fjármuni til að greiða fyrir 200 millj-
óna aukafjárveitingu. Oddný segir
að það verði kynnt á fimmtudag
hvernig borgin muni greiða
þetta. Að hennar mati væri rétt-
látasta leiðin að hækka útsvar.
„Þannig dreifum við byrðunum
á sanngjarnastan hátt. Ég held
að Reykvíkingar hljóti að sýna
því skilning.“
Hvað segja þær um fyrirhugaðan niðurskurð í skólakerfi borgarinnar?
Oddný Sturludóttir
Tillagan um 200 milljóna króna aukafjárveitingu til
grunnskóla í borginni kom Þorbjörgu Helgu Vigfús-
dóttur, fulltrúa Sjálfstæðisflokks í menntaráði, ekki á
óvart. „Ég sá að þetta myndi aldrei ganga upp. Það
sem er enn verra er að það er gríðarlegur nið-
urskurður eftir sem er illa útfærður og það er ýmis
kostnaður enn falinn því mikil framúrkeyrsla var í
sérkennslu og í afleysingum vegna langtímaveikinda í
fyrra, bæði í leikskólum og grunnskólum,“ sagði hún.
Meirihlutanum hefði verið bent á að leiðrétta þyrfti
tekjugrunn leikskóla og grunnskóla vegna þessarar
framúrkeyrslu en á það hefði ekki verið hlustað.
Aðspurð hvort gengið væri nógu
langt með þessari aukafjárveit-
ingu, sagðist Þorbjörg Helga ekki
hafa forsendur til að meta það því
upplýsingar um rekstrarstöðu
skólanna væru hjá menntasviði
og einungis þar. Hún er andvíg
útsvarshækkun og bendir á að
óvenjuhá upphæð sé undir liðnum
ófyrirséð eða 660 milljónir auk
þess sem ýmsir kostn-
aðarliðir hjá borginni
hefðu hækkað, án þess að
þá hefði verið talin þörf á
útsvarshækkun.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík boða til mótmælagöngu frá
Skólavörðuholti að Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 16.30 á fimmtudag. Í til-
kynningu frá félaginu segir að skólaráðsfulltrúar og stjórnir foreldra-
félaga ætli að standa vörð um skólagöngu barna sinna og ætli að reisa
vörðu við aðalinngang Ráðhússins kl. 17 en hálftíma síðar hefst í húsinu
opinn fundur um grunnskólamál.
Aftur mótmælt á fimmtudag
ÓÁNÆGÐIR FORELDRAR