Morgunblaðið - 16.02.2011, Síða 10

Morgunblaðið - 16.02.2011, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is S aga kakóbaunarinnar nær allt til ársins 1200 fyrir Krist en þá ræktuðu Ol- mekar í Mið-Ameríku fyrstir manna kakótré, en þeir eru fyrir- rennarar Asteka og Maja,“ segir Héðinn Svarfdal Björnsson, félagsvísinda- maður og rithöf- undur, en hann ætlar að fræða fólk um hið un- aðslega fyrirbæri súkkulaði á nám- skeiði hjá Endur- menntun seinna í þessum mánuði. „Olmekar tóku eftir að apar kunnu vel að meta ávöxt kakótrésins, hann er sætur og ekki ólíkur mangói en inni í honum er kakóbaunin. Þegar menn svo átta sig á að nýta má baun- irnar til drykkjargerðar með því að brenna þær verður kakódrykkurinn til en hann er fyrirrennari súkku- laðis í föstu formi,“ segir Héðinn og bætir við að kakódrykkurinn til forna hafi verið beiskur mjöður, kryddaður með chillipipar eða van- illu og drukkinn einvörðungu af há- stétt og kóngafólki, því þetta var dýr og fágæt nýlenduvara. „Prestarnir notuðu hann í tengslum við trúar- brögð til forna og því var hann bók- staflega matur guðanna (Theobroma cacao). En kakódrykkurinn þótti líka örvandi vökvi fyrir lífsþrótt og kynmátt.“ „Astekinn Montesuma á að hafa drukkið allt að 50 bolla af kakódrykk á dag og áður en hann hélt inn í kvennabúr sitt, kakóið hefur því ver- ið Viagra þess tíma. Einnig eru til sögusagnir um að Casanova, löngu seinna í Evrópu, hafi dælt súkkulaði í konur sem hann vildi fleka því hann trúði að það væri kynhvetjandi. En seinna hefur komið í ljós að gleði og vellíðanin tengd súkkulaðiáti er meira skilyrt en efnafræðileg því mörg þeirra 300 efnasambanda sem finnast í súkkulaði eru í mjög litlu magni.“ Spánverjinn Cortes kom með kakóbaunir til Evrópu árið 1525 og hann vissi hvað átti að gera með þær, ólíkt Columbusi. Spánverjar byrjuðu að blanda sykri saman við drykkinn. Árið 1847 hófst súkkulaði- gerð á Englandi, í því fasta formi sem við þekkjum og 1875 kemur mjólkursúkkulaðið til sögunnar, en það var uppfinning Svisslendingsins Daniel Peter. Hann seldi Nestlé ná- granna sínum hugmyndina og sú súkkulaðigerð varð stórveldi. Sviss- lendingar voru snemma duglegri við að þróa aðferðir í súkkulaðigerð á nítjándu öldinni, Rodolf Lindt fann upp aðferð til að gera súkkulaði fínna og hreinna.“ Lækkar blóðþrýsting Á námskeiðinu er fyrst og fremst frætt um hið dökka kakóríka súkkulaði og jákvæð áhrif þess. „Dökkt súkkulaði inniheldur miklu minni sykur en mjólkursúkkulaði og því eru jákvæðir eiginleikar einvörð- ungu tengdir neyslu dökka súkku- Matur guðanna, súkkulaðið góða Til forna var kakó einskonar Viagra, Astekinn Montesuma á að hafa drukkið allt að 50 bolla af kakódrykk á dag og áður en hann hélt inn í kvennabúr sitt. Einnig eru til sögusagnir um að Casanova hafi dælt súkkulaði í konur þær sem hann vildi fleka því hann trúði að það væri kynhvetjandi. Saga súkkulaðis er marg- slungin og ekki er súkkulaði sama og súkkulaði. Astekar Þeir kunnu vel að meta kakódrykkinn og notuðu við trúarathafnir. Héðinn Svarfdal Björnsson Allir sem reynt hafa vita að gæða- súkkulaðimoli sem nostrað hefur ver- ið við er gleðjandi bæði fyrir augu og munn. Slíkur moli er unaðslegur þar sem hann rennur á tungu og því er um að gera að leita uppi hvar hægt er að nálgast slíka munaðarvöru. Vef- verslunin chocolate.com býður upp á handunnið súkkulaði gert af meist- arahöndum bandarískra súkku- laðisnillinga sem hafast við í litlum en metnaðarfullum fyrirtækjum. Full- yrt er á vefsíðunni að súkkulaðið sem þar er í boði sé ferskara, listrænna og óvenjulegra en verksmiðjuframleitt súkkulaði. Til að komast að raun um hvort það sé rétt er eina ráðið að panta sér mola hið fyrsta. Það er ein- stök ánægja að flakka um þessa síðu og skoða dásemdirnar sem þar er að finna. Skella sér svo á nokkra mola fyrir sjálfan sig og nokkra ein- staklega góða fyrir þann sem manni þykir vænt um. Súkkulaði er klassísk gjöf og viðeigandi við hin ólíkustu tækifæri. Fallega innpakkaður og vel formaður moli sem bragðast jafnvel og hann lítur út, bræðir hvert hjarta. Fólk ætti að láta óhikað eftir sér að fullnægja unaðstilfinningunni sem hríslast um kroppinn þegar súkku- laðiát er viðhaft. Nammmmmm. Vefsíðan www.chocolate.com Gott Fáir geta staðist súkkulaðisælu sem fylgir því að sporðrenna mola. Óteljandi súkkulaðigjafir Nú þegar farið er að birta og daginn tekið að lengja hressast flestir við eft- ir vetrardrungann. Þá er um að gera að nota tækifærið og halda matar- boðin sem þú ætlaðir að halda í janúar en nenntir því ekki. Eða taka til í skápnum sem þú hafðir ekki tíma til fyrir jólin. Allur slíkur undirbúningur sem styttir biðina eftir vorinu er góður og maður verður um leið eftirvænting- arfullur. Það er jú ekkert svo langt í blessað vorið sem er rétt hinum megin við hornið. En þangað til skulum við njóta þess að finna birtu og sól fylla okkur af krafti. Hina dagana, þegar veðrið er vont, má svo bara kúra sig undir teppi og hafa það notalegt. Byggja sig þannig smám saman upp og komast út úr vetrarhíðinu. Skref fyrir skref er best og muna að brosa. Endilega... ...styttið biðina eftir vorinu Morgunblaðið/Ernir Sólskin Smám saman tekur daginn að lengja. Hvert er hlutverk Tryggingastofn- unar? Hlutverk Tryggingastofnunar er að framfylgja lögum um almannatrygg- ingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna auk þess að sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin hverju sinni. Tryggingastofnun heyrir undir vel- ferðarráðuneytið og er ein stærsta þjónustustofnun landsins. Stofnunin setur ekki lög eða reglugerðir og ákvarðar ekki fjárhæðir bóta. Hver eru helstu verkefnin? Tryggingastofnun ríkisins skiptist í október 2008 í Tryggingastofnun rík- isins og Sjúkratryggingar Íslands. Helstu verkefni Tryggingastofnunar í dag varða lífeyrismál og fjölskyldu- og vistunarmál. Hverjar eru helstu greiðslurnar? Réttur til ellilífeyris myndast við 67 ára aldur. Sá sem náð hefur þeim aldri og hefur búið hér á landi í minnst þrjú ár á aldrinum 16-67 ára getur átt rétt á greiðslu ellilífeyris. Upphæð lífeyris fer eftir aðstæðum og tekjum hvers og eins. Sú skylda hvílir á umsækj- endum að veita Tryggingastofnun réttar og nauðsynlegar upplýsingar um tekjur og persónulegar aðstæður. Tryggingastofnun greiðir örorkulíf- eyri til einstaklinga með skerta starfsgetu. Til að hægt sé að greiða út örorkulífeyri verður að liggja fyrir örorkumat, byggt á læknisfræðilegum forsendum. Rétt til örorkulífeyris eiga 75% öryrkjar á aldrinum 18-67 ára. Réttur til lífeyris er jafnframt háður búsetu. Elli- og örorkulífeyrisþegar geta einnig átt rétt á tekjutryggingu og uppbótum á ellilífeyri svo sem heim- ilisuppbót fyrir þá sem búa einir, uppbót vegna lyfjakaupa, umönn- unar og vegna reksturs bifreiðar ef um líkamlega hreyfihömlun er að ræða. Þessar greiðslur eru þó all- flestar háðar ákveðnum skilyrðum, t.d. varðandi tekjur lífeyrisþega, bú- setu á Íslandi, heimilisaðstæðum og fleira. Sérstök uppbót til framfærslu tryggir lífeyrisþegum mánaðarlega lágmarksfjárhæð. Allar tekjur, nema uppbætur sem koma til móts við kostnað, hafa áhrif við útreikning á þessum greiðsluflokki. Heimilt er að greiða einstaklingum á aldrinum 18-67 ára endurhæfing- arlífeyri í allt að 18 mánuði þegar ekki er ljóst hver starfshæfni verður til frambúðar í kjölfar sjúkdóma eða slysa. Áður en til mats á endurhæfingar- lífeyri kemur þarf umsækjandi að hafa lokið áunnum rétti sínum til veikindalauna frá atvinnurekanda, sjúkradagpeninga frá sjúkrasjóði stéttarfélags, og að eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi er hægt að lengja greiðslu- tímabilið um aðra 18 mánuði. Endurhæfingarlífeyrisþegar geta átt rétt á tekjutryggingu og uppbótum á lífeyri eins og aðrir lífeyrisþegar að undanskilinni uppbót vegna reksturs bifreiðar. Umönnunargreiðslur eru fjár- hagsleg aðstoð til foreldra sem eiga börn sem glíma við fötlun eða alvarleg veikindi. Þetta er félagsleg aðstoð sem veitt er þegar umönnun er krefj- andi og kostnaður vegna heilbrigð- isþjónustu, meðferðar og þjálfunar er orðinn umtalsverður og tilfinnanlegur fyrir foreldra. Foreldragreiðslur eru ætlaðar til mótvægis við tekjutap foreldra lang- veikra eða alvarlega fatlaðra barna. Um sameiginlegan rétt foreldra er að ræða. Meðlag telst ekki til greiðslna al- mannatrygginga en Tryggingastofnun annast milligöngu um greiðslu þess fyrir foreldra barna undir 18 ára aldri sem óska þess. Við 18 ára aldur barns getur barnið sótt um meðlag vegna menntunar og notið þess til 20 ára aldurs. Innheimtustofnun sveitarfé- laga sér um að innheimta greiðslur hjá meðlagsskyldu foreldri og end- urgreiðir Tryggingastofnun. Barnalífeyrir er greiddur með börn- um yngri en 18 ára, ef annað hvort for- eldra er látið eða er elli-, örorku- eða endurhæfingarlífeyrisþegi. Upphæð barnalífeyris er sú sama og meðlags. Við 18 ára aldur getur barnið sótt um barnalífeyri vegna náms og starfs- þjálfunar og notið þess til 20 ára ald- urs. Þinn réttur Helstu verkefni og hlutverk Tryggingastofnunar Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Niðurföll og rennur í baðherbergi Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum - Flúðum evidrain Mikið úrval margar stærðir MAX 30 cm 12.900 MASSIVE 60 cm 36.900AQUA 35 cm11.900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.