Morgunblaðið - 21.02.2011, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
ostur
Ríkur af mysupróteinum
9%
aðeins
Prófaðu bragðgóða Fjörostinn,
fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Dómstólaleiðin er þyrnum stráð og
algjörlega óvíst hvaða niðurstaða
leiðir af henni. Auk þess tekur hún
langan tíma og öll töf á málinu er
slæm fyrir Ísland. Þetta sagði for-
seti Alþýðusambands Íslands
(ASÍ) í gær þegar ljóst var að
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, synjaði Icesave-lagafrum-
varpinu staðfestingar. Álit fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnu-
lífsins er á sömu nótum. Hann
mælir með að þjóðin gefi samþykki
sitt í atkvæðagreiðslunni enda sé
ekki betri kostur að hafna samn-
ingunum og halda út í óvissuna.
„Við höfum nokkuð lengi talið
skynsamlegast að semja sig frá
þessu máli,“ segir Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ. „Okkar áhyggju-
efni hefur verið að þetta hefur taf-
ið hér uppbyggingu og mun gera
það áfram á meðan málið er ekki
leyst. Það er ljóst að um þetta
verður óvissa áfram. Það er ekkert
annað að gera en að hraða þessari
atkvæðagreiðslu.“ Hann telur
óvissutímabil verða framlengt hér
á landi ef Icesave-samningnum
verði hafnað í þjóðaratkvæða-
greiðslunni.
Hindrun sem þarf að yfirstíga
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir þann samning sem liggi
á borðinu ásættanlegan og lausn
málsins eina af þeim hindrunum
sem þurfi að yfirstíga til að koma
efnahagslífinu í gang fyrir alvöru,
fá fjárfestingar af stað og atvinnu-
leysi niður.
„Sjálfur mæli ég með því að það
verði sagt já og málið klárað. Ég
tel ekki að það sé betri kostur í
stöðunni að hafna samningunum
og halda út í þá óvissu sem það
hefur í för með sér fyrir lausn
málsins.“
Vilhjálmur segir ákvörðun for-
setans sem slíka vera staðreynd,
svo það hafi ekkert upp á sig að
spá í hana of mikið. „Nú liggur
ábyrgðin á þessu máli hjá þjóðinni
í þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Dómstólaleið þyrnum stráð
Gylfi segir það hafa verið vitað
mál frá því í fyrra, þegar forsetinn
sendi Icesave II í dóm þjóðarinn-
ar, að þessi staða gæti komið upp.
Einnig að það hefði að sumu leyti
verið líkleg niðurstaða. Hann segir
hins vegar að ef þjóðin hafni
samningunum að nýju sé verið að
framlengja óvissutímabilið hér á
landi um nokkurra ára skeið. „Ég
hygg að það sé engin endurkoma
að samningaborði eftir þetta. Það
er krafa þjóðarinnar að fara með
þetta dómstólaleiðina. Sú leið hef-
ur alltaf verið mörgum þyrnum
stráð og algerlega óvisst til hvaða
niðurstöðu það muni leiða.“
Gylfi segir þá leið munu taka
mjög langan tíma. „Á meðan hygg
ég að það verði mikil óvissa um
okkar mál. Öll töf á framgangi
þessa vonda máls mun kosta okkur
eitthvað. Sá reikningur tikkar
bara. Ég held að því miður endi
reikningurinn alltaf hjá þjóðinni,
spurningin er bara um formið á
honum.“
Ábyrgðin liggur nú hjá þjóðinni
Forseti Alþýðusambands Íslands telur enga endurkomu að samningaborði vegna Icesave-málsins
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mælir með að þjóðin samþykki og klári þannig málið
Gylfi
Arnbjörnsson
Vilhjálmur
Egilsson
Nokkurrar undrunar gætti þegar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, ljóstraði því upp á blaða-
mannafundi á Bessastöðum í gær
að starfsmenn skrifstofu forseta
hefðu hringt í slembiúrtak þeirra
sem skráðir voru á undirskriftalista
kjosum.is. Aðstandendur síðunnar
höfðu í vikunni sætt nokkurri gagn-
rýni vegna framkvæmdarinnar,
meðal annars fyrir það að ógjörn-
ingur var fyrir einstaklinga að
komast að því hvort þeir væru
skráðir eða ekki. Brugðið var á það
ráð að hringja í 100 manna úrtak
áður en listinn var afhentur forseta
á föstudaginn, og sögðust rúm 93%
þeirra 74 sem svöruðu hafa skráð
sig á listann.
„Við ákváðum að hringja í fleiri
sem höfðu skráð sig en [aðstand-
endur kjosum.is] gerðu. Ég ætla
ekki að fara að nefna tölur í því
efni, en það voru samt fleiri en þeir
hringdu í sjálfir,“ sagði Ólafur. „Ég
get hins vegar sagt það hér að við
náðum í þorrann af þeim sem við
reyndum að hringja í og 99% af
þeim sem við náðum í játuðu því að
hafa sett nöfnin sín á þennan lista.
Það er sem sé hærra hlutfall sem
kom fram í okkar athugun en hjá
þeim.“ Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu forseta var hringt í fólk á
laugardaginn, og var sú vinna al-
farið unnin af starfsmönnum skrif-
stofunnar og aðilum þeim tengdum.
einarorn@mbl.is
Könnuðu áreið-
anleika sjálfir
Starfsmenn forseta settust við símann
Morgunblaðið/Þorkell
Staðastaður Starfsmenn skrifstofu
forseta gerðu símakönnun.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Íslendingar þurfa nú að undirbúa
þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave í
annað sinn. Innanríkisráðuneytið
sér um framkvæmd atkvæðagreiðsl-
unnar en það er landskjörstjórn,
sem ber ábyrgð á henni. Landskjör-
stjórn sagði sem kunnugt er af sér
störfum í lok janúar sl. í kjölfar þess
að Hæstiréttur Íslands ógilti kosn-
ingar til stjórnlagaþings sem fram
fóru á síðasta ári. Sem stendur
gegna varamenn hlutverki lands-
kjörstjórnar en Alþingi á eftir að
kjósa nýja aðalmenn. Það eru
stjórnmálaflokkarnir sem tilnefna
fulltrúa til setu í landskjörstjórn.
Alþingi kýs nýja landskjörstjórn
á næstunni
Það verður gert á
næstunni, að sögn Ástu
Ragnheiðar Jóhann-
esdóttur, forseta Alþing-
is. Hún segir þetta vera á
dagskrá Alþingis og hún
hafi verið búin að leggja
þetta fyrir þingflokks-
formenn áður en
ljóst var hver
niðurstaða forseta Íslands yrði. Lög
um framkvæmd þjóðaratkvæða-
greiðslna tóku gildi 2. júlí í fyrra.
Þar kemur fram að þjóðaratkvæða-
greiðsla skuli fara fram innan
tveggja mánaða ef forseti synji laga-
frumvarpi staðfestingar. Þinginu
ber jafnframt skylda til að halda
kosningarnar svo fljótt sem kostur
er. Innanríkisráðuneytið auglýsir
kosningarnar samkvæmt lögum í
síðasta lagi einum mánuði fyrir at-
kvæðagreiðsluna.
Verkefni þingsins er nú að ákveða
hvernig spurningin verður orðuð
sem borin verður upp en innanrík-
isráðuneytið ákveður síðan kosn-
ingadaginn. Hann getur í síðasta
lagi orðið 20. apríl.
Þann 6. mars 2010 hafnaði mikill
meirihluti kjósenda lögum um rík-
isábyrgð á Icesave-skuldbindingum.
Þá var kjörsókn 62,7%. 134.397
sögðu nei, sem var 98,1% gildra at-
kvæða en 2.599 sögðu já, eða 1,9%
gildra atkvæða. Kostnaður við þjóð-
aratkvæðagreiðsluna í fyrra var
áætlaður um 230 milljónir króna.
Þjóðaratkvæða-
greiðslan undirbúin
Samkvæmt lögum verður kosið í síðasta lagi 20. apríl
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði til þann möguleika að
kosið yrði til stjórnlagaþings samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Ice-
save í viðtali eftir ákvörðun forseta í gær. Ágúst Geir Ágústsson, formað-
ur starfshóps um viðbrögð við ákvörðun Hæstaréttar um að ógilda kosn-
ingar til stjórnlagaþings, sagðist telja þetta líklega niðurstöðu. „Þá er
þetta kostnaðarspursmál sem menn hafa verið að líta til ekki leng-
ur fyrir hendi,“ sagði hann. Hann sagði eðlilegast og réttast út frá
lagalegum sjónarmiðum að kosið yrði að nýju á milli þeirra 522
frambjóðenda sem voru í kjöri í upphaflegu kosningunum til
stjórnlagaþings.
Líka kosið til stjórnlagaþings?
TVÖFALDAR KOSNINGAR HUGSANLEGAR
Morgunblaðið/Golli
Ákvörðun tilkynnt Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti ákvörðun sína um að synja lögunum staðfestingar á blaða-
mannafundi á Bessastöðum síðdegis í gær. Jafnframt lagði hann fram yfirlýsingu ákvörðuninni til stuðnings.
Forseti Íslands synjar Icesave-lögum staðfestingar