Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 13
Morgunblaðið/Golli
13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
„Ég tel að Jóhanna og Stein-
grímur eigi að víkja strax á morg-
un og fá inn annað fólk fyrir sig
persónulega. Ef þjóðin hafnar
þessu svo í þjóðaratkvæða-
greiðslu finnst mér eðlilegt að
þessari bensínlausu ríkisstjórn
verði ýtt til hliðar og það verði
farið út í kosningar,“ segir Þór
Saari, þingmaður Hreyfing-
arinnar. Hann ítrekar að þetta sé
sín persónulega skoðun, en þing-
flokkur Hreyfingarinnar hefur
ekki tekið afstöðu til málsins í
heild. Öll greiddu þau atkvæði
gegn frumvarpi fjármálaráð-
herra, og með því að málinu yrði
vísað í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Alþingi hefur ekki haft burði
til þess að klára þetta mál sjálft.
Aldrei. Það er bara kominn tími
til að þjóðin fái að segja síðasta
orðið – í annað sinn – um þetta
mál og um vinnubrögð meirihlut-
ans á Alþingi,“ segir Þór. „Al-
þingi Íslendinga nýtur ekki mikils
trausts nema 9% þjóðarinnar. Það
hefur ekki aukist mikið við allan
þennan flumbrugang í þessu máli
og þeim málum hafa verið fyrir á
þinginu.“
Ekki haft
burði til að
klára málið
Morgunblaðið/Ómar
Þór Saari
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra og formaður Samfylking-
arinnar, sagði sín fyrstu viðbrögð
við ákvörðun forseta Íslands vera
vonbrigði. „Ég taldi að það lægi
fyrir að forseti myndi samþykkja
þetta, í ljósi þess að það var aukinn
meirihluti sem samþykkti frum-
varpið á þingi,“ sagði Jóhanna. Hún
vísaði þar að auki til þess að samn-
inganefndin, undir forystu Lees
Buchheits, hefði verið skipuð
fulltrúum allra flokka.
Jóhanna sagðist frekar myndu
hafa horft til stuðnings við rík-
isábyrgðarfrumvarpið sjálft en
þess að mjótt hafi verið á munum í
kosningu Alþingis um hvort efna
ætti til þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt
og forsetinn vísaði til. „Við búum jú
við þingræði hér,“ sagði hún.
Þingmenn Samfylkingarinnar
voru samstiga við afgreiðslu máls-
ins á þingi og greiddu allir frum-
varpi fjármálaráðherra atkvæði
sitt, og greiddu allir atkvæði gegn
því að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði
haldin. Jóhanna, sem kveðst oft
hafa fengið betri gjöf á konudag-
inn, segir að kosningar verði haldn-
ar eins fljótt og verða má.
Kosningar
eins fljótt og
verða má
Morgunblaðið/Ómar
Jóhanna Sigurðardóttir
„Ég er fyllilega sáttur við þetta. Við
greiddum atkvæði með því að þetta
færi fyrir þjóðina,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, um þá ákvörðun forset-
ans að hafna Icesave-lögunum stað-
festingar.
„Það lá fyrir okkur á Alþingi að
taka afstöðu til málsins eins og búið
hafði verið um það. Ég komst að
þeirri niðurstöðu að rétt væri að
ljúka ágreiningi um Icesave-
samningana með því að styðja þing-
málið. Ég var líka þeirrar skoðunar
að málið ætti að fara til þjóðarinnar
vegna þess hvernig það var með-
höndlað á fyrri stigum,“ segir
Bjarni. Hann kaus með frumvarpi
fjármálaráðherra á Alþingi, en ekki
fylgdu allir þingmenn flokksins hon-
um að málum. Á hinn bóginn voru
þeir allir á einu máli um að vísa ætti
málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Bjarni segir ljóst að það verði nið-
urstaðan og nú sé það hvers og eins
að taka afstöðu til málsins. Komi
ekkert óvænt upp á muni fara fram
þjóðaratkvæðagreiðsla og þá þurfi
góða kynningu á málinu til að menn
geti tekið um það upplýsta ákvörð-
un, segir hann.
Fyllilega
sáttur við
ákvörðunina
Morgunblaðið/Ómar
Bjarni Benediktsson
„Ég velti því fyrir mér hvað þetta
þýðir upp á framhaldið fyrir okkur,
ef stjórnskipunin verður þróuð eða
túlkuð í þessa veru, og hvernig það
verður þá að reyna að leysa mál og
takast á við erfið viðfangsefni,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
fjármálaráðherra og formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Hann kvaðst mjög undr-
andi á ákvörðun forseta Íslands.
Steingrímur sagðist hafa verið
tiltölulega rólegur eftir afgreiðslu
þingsins, og farinn að sjá fyrir end-
ann á málinu. „Má ég minna á að við
erum að reyna að koma þessu landi
út úr ákaflega erfiðri efnahags-
kreppu? Það verður að takast á við
og reyna að leiða til lykta mjög
mörg erfið mál. Þetta er bara eitt af
þeim, sem þarf einhvern veginn að
takast á við og leysa til þess að við
getum komist áfram. Ef hlutir af
þessu tagi gera okkur það ómögu-
legt, tefja það árum saman, þá er
þetta erfitt, satt best að segja,“
sagði Steingrímur. Hann segir Ice-
save-reikninginn hins vegar langt í
frá þann stærsta sem Íslendingar
þurfi að bera vegna efnahagshruns-
ins sem hér varð.
Verður erfitt
að takast á
við erfið mál
Steingrímur J. Sigfússon
Morgunblaðið/Eggert
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segist vera sáttur við þá ákvörðun
forseta Íslands að beita málskots-
rétti sínum og vísa Icesave-málinu í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sigmundur Davíð segir niðurstöð-
una í fullu samræmi við það sem á
undan er farið í hinni löngu vegferð
þessa erfiða máls.
„Forsetinn er ekki að taka afstöðu
til samningsdraganna heldur fyrst
og fremst þess að almenningur eigi
að eiga síðasta orðið,“ segir Sig-
mundur Davíð.
Allir þingmenn Framsókn-
arflokksins greiddu því atkvæði á
Alþingi að málinu yrði vísað í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Sigmundur var
einn þeirra sjö þingmanna flokksins
sem kusu gegn frumvarpi fjár-
málaráðherra um ríkisábyrgð, en
tveir sátu hjá – Guðmundur Stein-
grímsson og Siv Friðleifsdóttir.
Sigmundur Davíð segist vona að
aðdragandi þeirrar þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem nú er framundan,
verði með þeim hætti að fólki gefist
tækifæri til að taka upplýsta afstöðu
til málsins, sem byggist á stað-
reyndum en ekki hræðsluáróðri.
Í samræmi
við forsögu
málsins
Sigmundur D. Gunnlaugsson
Morgunblaðið/Kristinn
Andri Karl
andri@mbl.is
„Ekki verður hjá því komist að utan-
ríkisráðuneytið fari í nákvæmlega
samskonar upplýsingaherferð gagn-
vart ríkisstjórnum annarra landa
eins og síðast,“ segir Össur Skarp-
héðinsson, utanríkisráðherra. „Við
munum draga öll skip á flot og senda
alla sem vettlingi geta valdið á allra
næstu dögum til að skýra þetta.“
Össur segir að óformlega hafi ver-
ið rætt við utanríkisráðuneyti Hol-
lendinga og Breta í gær og víst að
menn haldi að sér höndum og skoði
málin næstu daga. „Þetta var nið-
urstaða sem örugglega kemur mörg-
um á óvart, enda margir sem ekki
skilja þetta ákvæði í stjórnarskrá
okkar.“
Farvegur sem gert er ráð fyrir
Þegar forseti Íslands synjaði laga-
frumvarpi um Icesave staðfestingar
í janúar 2010 sagðist Össur ekki
telja að ákvörðunin hefði áhrif á að-
ildarumsókn Íslands að Evrópusam-
bandinu. Nú þegar ljóst þykir að
kosningin snúist um samþykkt eða
vísun málsins til dómstóla segir Öss-
ur engin rök hníga að neikvæðum
áhrifum. „Helst vildi ég leysa þetta
mál með samningum, en sé það ekki
fært þá stendur dómstólaleiðin eftir
og hún er farvegur sem gert er ráð
fyrir í regluverki Evrópusambands-
ins. Ef þetta mál fer í þann farveg,
sé ég ekki hvernig er hægt með
nokkrum skaplegum rökum að halda
því fram að sá ferill skaði umsókn-
arferil okkar. Það eru engin rök fyr-
ir því,“ segir Össur en bætir við. „En
af langri lífsreynslu veit ég sem er,
að heimurinn gengur ekki alltaf eftir
skiljanlegum rökum.“
Spurður hvort hann telji ein-
hverjar líkur á því að sest verði aftur
að samningaborði, fari svo að þjóðin
hafni lögunum í þjóðaratkvæða-
greiðslu segir Össur að hann viti það
öðrum mönnum betur hvað þurft
hafi til að koma síðustu samninga-
viðræðum aftur af stað. Enn meiri
átök muni þurfa til í þetta skiptið.
Því sé líklegast að málið fari fyrir
dómstóla verði það fellt.
Ætti engin áhrif
að hafa á ferlið
Ráðist verður í upplýsingaherferð
Morgunblaðið/Ómar
Ráðherra Össur Skarphéðinsson.