Morgunblaðið - 21.02.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
Tilboð óskast í rekstur Hótel Hlíðar/ Króks sem liggur í skjóli Hellisheiðar
í Ölfusinu skammt frá ótal náttúruperlum, golfvöllum, reiðhöllum og
fleiri afþreyingarmöguleikum.
Hótelið er fullbúið sem 3ja stjörnu hótel og leigist í því ástandi.
Húsið verður til sýnis miðvikudaginn 23. febrúar n.k.
og er tilboðsfrestur til 28. febrúar.
Eigendur áskilja sér rétt til að velja hvaða tilboð sem er eða hafna þeim öllum.
Til leigu rekstur á Hótel Hlíð, Ölfusi
Frekari upplýsingar gefur Sigrún Þorgrímsdóttir í síma 575 4059
eða í sigrunbt@byr.is
Hundruð manna myrt í Líbíu
Líbísk stjórnvöld ráðast gegn mótmælendum Skotárásir á líkfylgd í Benghazi
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Þungvopnaðar öryggissveitir Múammars Gaddafis,
einræðisherra Líbíu, eru sagðar hafa skotið á lík-
fylgd fallinna mótmælenda í borginni Benghazi,
næststærstu borg landsins, í gær. Erlendir fjöl-
miðlar herma að um 200 manns hafi verið skotin til
bana af vígamönnum hliðhollum Gaddafí undan-
farna daga.
Samkvæmt erlendum fjölmiðlum hafa mótmæl-
endur stóra hluta af Benghazi á sínu valdi. Sjón-
varpsfréttastofan Al Jazeera fullyrti í gær að mót-
mælendur hefðu náð farartækjum og vopnum af
hermönnum og hafði eftir heimildarmönnum sínum
að hluti hermanna í borginni hefði slegist í lið með
mótmælendum. Engar fréttir hafa borist af óeirð-
um eða mótmælum í Trípólí, höfuðborg landsins.
Gaddafi hefur stjórnað landinu með harðri hendi
en hann tók við völdum árið 1969 og er sá Arabaleið-
togi sem setið hefur lengst á valdastól. Mótmælin
virðast vera innblásin af byltingunum í Túnis og
Egyptalandi á dögunum og eru þau sögð hin mestu í
fjögurra áratuga valdatíð Gaddafi.
Vítahringur ofbeldis
Ljóst er á atburðum síðustu daga að Gaddafi hik-
ar ekki við beitingu vopnavalds gegn mótmælend-
um. Mannréttindasamtökin Human Right Watch
segja að 90 manns hafi verið myrtir í átökum mót-
mælenda og öryggissveita forsetans í Benghazi á
laugardag. Reuters-fréttastofan hefur eftir sjónar-
votti að þungvopnaðar öryggissveitir Gaddafi hafi
framið fjöldamorð í borginni.
Tugir þúsunda fylgdu þeim sem létust á laug-
ardag til grafar í gær en að sögn breska blaðsins
The Daily Telegraph hófu öryggissveitirnar skor-
hríð á líkfylgdina. The Financial Times hefur eftir
sjónarvottum að atburðarásinni í Benghazi að víta-
hringur ofbeldis sé að myndast í borginni. Örygg-
issveitir myrða mótmælendur sem svo fjölmenna í
líkfylgd fallinna félaga þar sem skotárásir hefjast á
ný.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir tíðinda-
manni sínum í Miðausturlöndum að mótmælin í
Líbíu séu þau kröftugustu sem Gaddafi hefur staðið
frammi fyrir í valdatíð sinni. Hinsvegar virðist vera
erfitt að henda reiður á atburðarásinni í landinu, að
sögn BBC. Erlendum fréttamönnum er meinað að
starfa í landinu og fregnir herma að netaðgangur
hafi verið takmarkaður.
Tíu börn fórust í eldsvoða á mun-
aðarleysingjahæli fyrir fötluð börn í
bænum Haapsalu í norðvesturhluta
Eistlands í gær. Ríkisstjórn Eist-
lands hefur lýst yfir þjóðarsorg í
landinu í dag til minningar um fórn-
arlömbin.
Fjölmiðlar á staðnum sögðu frá
því að slökkvilið hefði verið kallað út
upp úr hádegi í gær og það hefði tek-
ið um tvær klukkustundir að ráða
niðurlögum eldsins.
Alls voru 37 börn auk níu fullorð-
inna í húsinu sem er timburhús. Öll
voru börnin alvarlega fötluð og flest
þeirra voru í hjólastól en alls bjuggu
47 börn á heimilinu. 28 barnanna
voru munaðarleysingjar eða höfðu
verið yfirgefin af foreldrum sínum
en hin börnin höfðu verið send þang-
að þar sem foreldrar þeirra gátu
ekki annast þau.
Tíu mun-
aðarlaus
börn fórust
Þjóðarsorg í Eist-
landi vegna eldsvoða
Samkvæmt nýrri skoðanakönnum
á fylgi flokka á Írlandi þá ætla
39% Íra að kjósa Fine Gael í þing-
kosningunum á föstudag. Að sögn
stjórnmálaskýrenda er flokkurinn
nálægt því að fá hreinan meiri-
hluta í kosningunum en kosn-
ingakerfið er þannig að 40% at-
kvæða duga til þess.
Kosningabaráttan hefur að mestu
snúist um neyðarlán Evrópusam-
bandsins til írskra stjórnvalda.
Fine Gael og írski verkamanna-
flokkurinn hafa lagt áherslu á að
endursemja þurfi um skilyrði láns-
ins. Fine Gael hefur hinsvegar lagt
áherslu á niðurskurð til að mæta
erfiðri stöðu í ríkisfjármálum
landsins en verkamannaflokkurinn
leggur áherslu á skattahækkanir.
Samkvæmt könnuninni nýtur
verkamannaflokkurinn fylgis 17%
kjósenda. Fianna Fail sem er nú í
ríkisstjórn nýtur 16% fylgis.
Fine Gael með
yfirburðastöðu
Úkraínskir áhugamenn um hersögu klæddu sig upp í sovéska einkenn-
isbúninga í gær og settu á svið með viðeigandi tækjum og tólum bardaga
við innrásarher þriðja ríkisins sem átti sér stað við þorpið Kalynivka árið
1944. Bardaginn var settur á svið í tengslum við hátíðarhöld þann 23. febr-
úar en þá heiðra Rússar, Úkraínumenn og íbúar sumra annarra fyrrver-
andi Sovétlýðvelda þá sem gegna herþjónustu.
Föðurlandsstríðið mikla rifjað upp
Reuters
Veruleg hætta er á því að rekstur hins
opinbera í Bandaríkjunum muni lam-
ast í næsta mánuði. Bandaríkjaþing
verður að samþykkja fjárlög ársins
fyrir 4. mars og ef ekki næst sátt á
milli meirihlutans í fulltrúadeildinni
og öldungadeildarinnar um fjárlögin
þá mun hið opinbera ekki hafa aðgang
að rekstrarfé.
Meirihluti repúblikana í fulltrúa-
deildinni samþykkti um helgina að
skera niður í ríkisrekstrinum um 61
milljarð Bandaríkjadala fyrir lok
næsta september. Demókratar, sem
hafa nauman meirihluta í öldunga-
deildinni, eru alfarið á móti tillögum
fulltrúardeildarinnar og segja jafn
stórtækan niðurskurð draga verulega
úr viðsnúningnum í hagkerfinu. Bar-
ack Obama, forseti, hefur ennfremur
hótað að beita neitunarvaldi sínu
sendi þingið honum niðurskurðarfjár-
lög til staðfestingar.
Vika til stefnu
Demókratar í öldungadeildinni
vinna nú að sínum fjárlagatillögum og
ljóst er að þeir eru ekki tilbúnir að
ganga jafn langt og meirihluti repú-
blikana í fulltrúadeildinni. Öldunga-
deildin kemur ekki saman fyrr en í
næstu viku og þar af leiðandi hafa
þingmenn eina
viku til þess að ná
sáttum í málinu.
Þar sem
Bandaríkjaþingi
hefur ekki enn
tekist að koma sér
saman um fjárlög
þessa árs er rekst-
ur hins opinbera
fjármagnaður
með bráðabirgðaákvæðum þingsins.
Ef ekki einu sinni næst samstaða á
þinginu um áframhald á slíku mun því
rekstur hins opinbera stöðvast eftir
þann 4. mars. Slíkt gerðist síðast um
miðjan tíunda áratug síðustu aldar en
þá voru repúblikanar eins og nú með
meirihluta í fulltrúadeildinni og for-
setinn var úr röðum demókrata.
Jim Boehner, leiðtogi repúblikana í
fulltrúadeildinni, hefur sagt að þeir
muni ekki styðja áframhaldandi
bráðabirgðafjármögnun ríkisins eftir
4. mars án þess að til verulegs nið-
urskurðar komi. Stjórnmálaskýrend-
ur telja að repúblikanar eigi erfitt
með að fallast á miklar málamiðlanir í
deilunni þar sem fjölmargir þing-
menn í þeirra röðum voru kosnir
vegna loforða um að skera niður í
rekstri ríkisins. ornarnar@mbl.is
Hætta á að ríkis-
reksturinn lamist
Átök um fjárlög á Bandaríkjaþingi
John Boehner