Morgunblaðið - 21.02.2011, Side 20

Morgunblaðið - 21.02.2011, Side 20
20 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Matur & vín Þann 11. mars gefurMorgunblaðið út sérblað ummat og vín. Spjallað verður við ýmsa úr veitingageiranum sem deila girnilegum uppskriftum til lesenda. –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 7. mars. MEÐAL EFNIS: Kokkar gefa girnilegar uppskriftir Framandi matargerð. Námskeið í matargerð. Lambakjöt. Nautakjöt. Kjúklingar Villibráð. Sjávarfang. Eftirréttir. Kokkabækur uppskriftir frá höfundum. Uppskriftir. Spennandi óvissuferðir. Ásamt fullt af fróðleiksmolum og spennandi efni. SÉ RB LA Ð Mat ur & vín Í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum sem fram fóru 29. maí 2010 voru tveir listar í framboði í Hveragerði, þar var D-listi Sjálf- stæðisflokksins og A-listinn sameiginlegt framboð Fram- sóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna. Um framboð A- listans skrifaði Björgvin G. Sigurðsson, fyrrv. ráðherra, grein á vefmiðlinum Pressan þar sem hann talaði um að í Hveragerði hefði verið kynnt- ur sterkur og öflugur listi sem yrði framtíðarmódel félagshyggju- aflanna á Íslandi, en framtíð- armódel félagshyggjuaflanna er í raun eldgamalt og fullreynt módel Sovétríkjanna. Svo skrifar hann: „Hvergerðingarnir marka nú framtíðarsporin og verður það góða gengi sem framboðinu er spáð okkur vonandi raunsönn lexía um hve miklu má áorka í samein- uðu breiðu afli frá miðju lengst til vinstri.“ Þegar kosningum var lokið og lokatölur voru birtar kom í ljós að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver- andi ráðherra, hafði rangt fyrir sér, A-listinn, sameiginlegt fram- boð Framsóknarflokks, Samfylk- ingar og Vinstri grænna, fékk að- eins 445 atkvæði eða 35,6% atkvæða og tvo menn inn í bæj- arstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn í Hveragerði fékk 804 atkvæði eða 64,4% atkvæða og fimm menn inn í bæjarstjórn, stærsti sigur Sjálf- stæðisflokksins á landsvísu í sveit- arstjórnarkosningunum var í Hveragerði. Á þeim níu mánuðum sem liðnir eru frá því að kosningar fóru fram hefur maður oftar en einu sinni orðið var við rifrildi á milli þeirra sem voru á A-listanum og sést þar að það er lítil sem engin samstaða innan þessa sameiginlega fram- boðs, eru það þá einna helst fram- sóknarmenn og samfylkingarmenn sem eru að deila um hin ýmsu málefni. En athyglisverðara er það þó að sjá að Róbert Hlöðvers- son sem var í fyrsta sæti á A- listanum fyrir kosningar og var kjörinn bæjarfulltrúi A-listans í Hveragerði titlar sig nú sem bæj- arfulltrúi Samfylkingarinnar í Hveragerði, bæði á Fésbókarsíðu sinni og í grein sem kom út í nýj- ustu útgáfu Hverafuglsins. Það er því spurning fyrir hvaða lista starfar Róbert sem bæjarfulltrúi, Samfylkinguna eða A-listann. Get- ur það hugsast að draumsýn Björgvins G. sé klofin í herðar niður líkt og A-listinn í Hvera- gerði? FRIÐRIK SIGURBJÖRNSSON, nemi og varaformaður Asks, félag ungra sjálfstæðismanna í Hveragerði A-listinn í Hveragerði klofinn? Frá Friðrik Sigurbjörnssyni Friðrik Sig- urbjörnsson Sú söguskýring að stóriðjuframkvæmdir hafi á árunum 2004- 2008 vegið þungt í efnahagshruninu og átt stóran þátt í að skapa hið mikla efna- hagslega ójafnvægi á sama tíma er lífseig. Hún stenst hins veg- ar enga skoðun. Þvert á móti má færa sterk rök fyrir því að umrædd uppbygg- ing hafi vegið umtalsvert upp á móti þeim almenna samdrætti sem verið hefur í íslensku efnahagslífi undangengin þrjú ár. Fjárfesting vegna Kárahnjúkavirkjunar og byggingar álvers í Reyðarfirði nam tæpum 300 milljörðum á ár- unum 2005-2008. Þetta er um 8% af landsframleiðslu. Þessi eft- irspurnaraukning var með öllu fyrirsjáanleg og varð raunar minni fyrir íslenskt efnahagslíf þar sem vægi erlends vinnuafls í fram- kvæmdunum var mun meira en upphaflega var búist við. Fjárfest- ingar í stóriðju á árunum 2004- 2007, sem nú skila mikilvægum út- flutningstekjum, eru dropi í hafið miðað við ævintýralegan fjár- austur í fjármálakerfinu og skammsýni í ríkisfjármálum. Dropi í hafið Við upphaf þensluskeiðsins árið 2004 var ákveðið að lækka tekju- skatt um 3 prósentustig sem komu til framkvæmda á árunum 2005- 2007 á sama tíma og brýnt var að draga úr eftirspurn. Bankarnir voru einkavæddir og stjórnvöld ákváðu að rýmka mjög útlána- heimildir Íbúðalánasjóðs. Bindi- skylda bankanna var um svipað leyti lækkuð úr 4% í 2% sem jók mjög á getu þeirra til útlána. Frá 2004 til 2007 jukust útlán til heim- ilanna í landinu um 761 milljarða. Markaðsverð á húsnæði á þessu tímabili hækkaði um 85%. Útlána- aukning til fyrirtækja og eign- arhaldsfélaga var miklu meiri eða 2.580 milljarðar. Á árunum 2004-2007 hækkaði markaðsverðmæti hlutabréfa skráð í Kauphöll Íslands um 2.497 milljarða á föstu verðlagi ársins 2009 og vega stóru bankarnir mjög þungt. Í árslok 2003 var verðmæti skráðra hlutabréfa um 46,7% af landsframleiðslu en fór í 210% árið 2007. Auðsáhrif vegna hækkandi hlutabréfa- og húsnæð- isverðs voru gífurleg. Þau hvöttu til óhóflegrar neyslu og lántöku sem engan veginn fékk staðist á sama tíma og ráðstöfunartekjur jukust hratt og krónan styrktist. Af veikum mætti reyndi Seðla- bankinn að berjast við þensluna með hækkun vaxta. Það hafði þveröfug áhrif þar sem einu áhrif- in voru að gengi krónunnar styrktist. Afleiðingin var enn meiri erlend skuldasöfnun og neysla – efnahagslega ójafnvægið jókst enn. Allt gerist þetta á sama tíma og vextir í heiminum eru í lágmarki og mikið framboð af lausu fé rataði hingað. Ytri að- stæður lögðust þannig einnig á ár- arnar við að spenna upp íslenska hagkerfið. Leiðrétting varð óhjá- kvæmileg en vissulega óraði eng- an fyrir því hversu sársaukafull sú leiðrétting yrði. Þótt fjárfestingar í stóriðju á þessu tímabili hafi ver- ið miklar voru þær, hvernig sem á það er litið, aðeins sáralítill part- ur. Ekki verður dregin önnur ályktun en að alvarlegur efna- hagsskellur hefði dunið á okkur hvort sem ráðist hefði verið í stór- iðjuframkvæmdir eða ekki. Fjárfesting í stóriðju skilað miklum ávinningi Á undanförnum misserum höf- um við séð áhrif stóriðjufjárfest- ingu áranna 2003-2008 með áþreif- anlegum hætti. Útflutningstekjur þjóðarinnar vegna áliðnaðar hafa aukist um 180 milljarða króna frá árinu 2003 og náðu um 220 millj- örðum króna á síðasta ári. Hrein- ar gjaldeyristekjur þjóðarinnar vegna áliðnaðar námu rúmum 100 milljörðum króna á síðasta ári. Því til viðbótar hefur útflutnings- verðmæti járnblendis og aflþynna aukist um u.þ.b. 14 milljarða króna. Því hefur útflutnings- verðmæti stóriðju aukist um nærri 200 milljarða króna á ári frá 2003. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var í sögulegu hámarki árið 2009, en það ár var 13% af landsframleiðslunni tilkomin vegna afgangs af viðskiptum við útlönd. Á undanförnum 30 árum hafði það áður mest numið liðlega 5%. Ætla má að þetta hlutfall verði enn hærra vegna ársins 2010. Tekjur orkufyrirtækja hafa á sama tíma vaxið mjög og námu liðlega 80 milljörðum króna árið 2009 samanborið við um 35 millj- arða króna árið 2003. Eigið fé orkufyrirtækjanna hefur einnig styrkst verulega en á und- anförnum 10 árum hefur það auk- ist um 220 milljarða króna og nam liðlega 300 milljörðum um mitt síðasta ár. Eitt af helstu vandamálum ís- lensks efnahagslífs nú er lítil fjár- festing í atvinnulífinu. Horfur eru hins vegar jákvæðar hvað varðar fjárfestingu í stóriðju á komandi árum. Má þar nefna nýtt álver í Helguvík, straumhækkun og ný- sköpun í álverinu í Straumsvík og kersmiðju Alcoa á Reyðarfirði, auk mögulegra framkvæmda á Norðurlandi. Heildarfjárfesting að virkjanafjárfestingum meðtöldum er áætluð um 500 milljarðar króna á næstu 5-6 árum. Miðað við nú- verandi álverð mun þessi fjárfest- ing auka útflutningsverðmæti þjóðarinnar um 110 milljarða króna á ári hverju og bæta vöru- skiptajöfnuð um u.þ.b. 50 milljarða á ári. Af ofangreindu má sjá hversu fjarstæðukennt það er að kenna framkvæmdum við stóriðju um hrun í íslensku efnahagslífi. Þvert á móti gegnir þessi fjárfest- ing nú lykilhlutverki í því að vinna okkur út úr þeirri kreppu sem við nú erum stödd í. Lífseig en röng söguskýring um stóriðju og efnahagshrunið Eftir Bjarna Má Gylfason og Þor- stein Víglundsson »Miðað við núverandi álverð mun þessi fjárfesting auka útflutn- ingsverðmæti þjóð- arinnar um 110 millj- arða króna á ári hverju og bæta vöruskiptajöfn- uð um u.þ.b. 50 millj- arða á ári. Bjarni Már Gylfason Bjarni Már er hagfræðingur SI, Þor- steinn er framkvæmdastjóri Samáls. Þorsteinn Víglundsson Jóhann Ísberg, formaður Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi, óskar eftir því í Morgunblaðinu föstudag- inn 18. febrúar, að ég birti Kópa- vogsbúum glæru- sýningu sem Kópavogsbær greiddi fyrir vor- ið 2006. Af því tilefni vísa ég í vef Morgunblaðs- ins – slóðina: http:// www.mbl.is/ media/17/2617.pdf. Þar er hana að finna og þar hefur hún verið í nokkra daga – í anda opinnar stjórnsýslu og gagnsæis. Jóhann fullyrðir að þessi sýning hafi verið notuð af bæjarstjóra á opnum fundum fyrir bæjarbúa. Gott og vel, en ég minnist þess ekki að það hafi verið opnir fundir fyrir bæjarbúa á þessum tíma til þess að nota glærusýninguna á. Ég set líka spurningarmerki við að bæjarstjóri fari yfir stefnuskrá síns flokks og vegi að öðrum stjórn- málaflokkum í kynningum sem hann er með á opnum fundum fyrir bæjarbúa. Það vekur ugglaust líka spurningar hjá fleirum en mér hvers vegna glærusýning þessi ber sama nafn og kjörorð Sjálfstæð- isflokksins í sveitarstjórnarkosning- unum í Kópavogi þetta ár. Ásökunum og ávirðingum Jó- hanns í minn garð í þessari grein og öðrum hirði ég ekki um að svara. HAFSTEINN KARLSSON bæjarfulltrúi. Svar til Jóhanns Ísberg Frá Hafsteini Karlssyni Hafsteinn Karlsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.