Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 25
þar sem önnum kafnar konur eiga í hlut hefur oft þurft að kalla til varamenn. Þannig kynntumst við þriðju dóttur Önnu, Sjöfn, og nut- um þess líka að fá Önnu til að hlaupa í skarðið. Um árabil hefur verið hápunktur í starfsemi klúbbsins að halda um Jónsmessu austur í bústað til Önnu þar sem hún tók okkur fagnandi og bauð upp á nýbakaða jólaköku, pönnu- kökur og sérrí. Hún tók okkur alltaf opnum örmum og sýndi svo ekki varð um villst hve mjög hún naut komu okkar. Sem þakklæt- isvott færðum við henni í nokkur ár trjáplöntur sem við plöntuðum í kringum bústaðinn undir styrkri stjórn hennar. Til slíkra verka kunni hún vel enda hafði hún í áratugi stundað skógrækt í landi sínu. Ánægðust var Anna þó þeg- ar sest var við spilaborðið en þar var hún svo sannarlega á heima- velli. Þó að minnið væri aðeins farið að bregðast henni á síðustu árum bar ekki á því þegar hún var að spila og þar sýndi hún mátt sinn þó að ýmislegt annað vefðist fyrir henni. Fyrstu árin sem við heimsótt- um Önnu austur í bústað sátum við og spiluðum langt inn í bjarta sumarnóttina og enduðum á að fara í langa göngu sem stóð jafn- vel fram að sólarupprás. Þetta líkaði Önnu vel og kvartaði hún sáran undan því síðustu ár hvað við værum orðnar lélegar að vaka og entumst stutt við spila- mennskuna. Hún var kappsöm að eðlisfari og vildi að við spiluðum mörg spil og vektum lengi. Í einni af þessum ferðum útnefndum við Önnu heiðursfélaga kúbbsins, þann fyrsta og eina. Anna átti barnaláni að fagna og þegar fór að halla undan fæti sýndi fjölskyldan henni mikla um- hyggju og alúð og sá til þess að hún gat búið áfram á heimili sínu eins og hún óskaði sér. Við minn- umst Önnu með hlýhug og þakk- læti og vottum afkomendum hennar og fjölskyldu samúð okk- ar. Blessuð sé minning hennar. Gullveig, Margrét, Berta, Hlín Helga, Marsibil, Jós- efína, Sigríður og Sigrún. Í dag kveðjum við Önnu Bjarnadóttur á Hlíðarveginum eða Önnu ömmu eins og hún var kölluð á okkar heimili. Okkar kynni hófust um 1980 þegar við fluttum í kjallarann til hennar. Þar áttum við nokkur yndisleg ár með Önnu og ýmislegt brallað og þar kynntumst við nýjum hliðum á lífinu. Anna var þannig að hún var alltaf að, ef ekki í hesthúsinu eða garðinum þá fann hún sér eitt- hvað annað skemmtilegt að gera. Ófá skipti mætti hún í kjallarann til að bjóða upp á nýbakaðar pönnukökur eða annað góðgæti. Það var ekki að finna mikinn ald- ursmun á okkur og henni, hún var mikill vinur og félagi og gott að leita til hennar. Okkur fannst Anna alltaf setja aðra í fyrsta sæti, hún hugsaði mikið um að öðrum liði vel og gerði mikið af því að gleðja aðra. Hún hafði ákveðnar skoðanir og lá ekki á þeim, það fór ekki á milli mála hvað hún vildi og ætlaði sér. Hún gat m.a. leiðbeint kenn- urum Iðnskólans í sveinsprófi í hárgreiðslu þar sem hún var eitt módelið og ég hafði bara svolítið gaman af þessu þá og enn meira þegar frá leið. Alltaf var opið hús fyrir okkur á Hlíðarveginum þegar á þurfti að halda eftir að við fluttum aust- ur og alltaf jafnhlýjar móttökur. Við viljum þakka allar þær góðu stundir sem við fengum og nutum með Önnu og biðjum Guð að blessa minningu hennar. Börn- um Önnu og fjölskyldum þeirra vottum við okkar innilegustu samúð. Sigrún og Einar. Í dag kveður Kópavogsdeild Rauða krossins sjálfboðaliðann og hugsjónakonuna Önnu Bjarnadóttur, sem vann mikið og óeigingjarnt starf í þágu deildar- innar. Anna kom fyrst til starfa með deildinni árið 1984 þegar stofnaðir voru sjúkravinir í kjöl- far opnunar á Sunnuhlíð. Sjúkra- vinir sáu um handavinnu, lásu fyrir fólk og stóðu fyrir samveru, allt gert til að stytta stundir og auka lífsgæði heimilismanna. Frá árinu 1988 vann Anna síðan við verkefnið Föt sem framlag sem byggist á því að útbúa ungbarna- pakka fyrir börn sem notaðir eru í neyðaraðstoð Rauða krossins. Anna gaf ekki bara vinnu sína heldur opnaði hún heimili sitt og gerði það að miðstöð sjálfboða- liðaverkefnisins í rúm 15 ár en þangað kom reglulega fastur kjarni tólf sjálfboðaliða og útbjó ungbarnapakka af mikilli alúð og hlýju. Verkefnið tók síðan stakka- skiptum árið 2007 þegar deildin fór að bjóða upp á prjónakaffi einu sinni í mánuði í húsnæði sínu í Hamraborginni og eru vel yfir 60 sjálfboðaliðar í hópnum í dag. Litla verkefnið sem unnið var heima í stofu hjá Önnu er orðið með stærri verkefnum deildar- innar. Það er samstilltur hópur sjálf- boðaliða sem mætir í prjónakaffi, mikil gleði og kátína í gangi og þangað var Anna dugleg að mæta með prjónana sína. Það var í raun undantekning ef hún mætti ekki enda mjög trú sínu verkefni. Það sama má segja um fjölskyldu hennar og fyrir það erum við mjög þakklát. Anna var gerð að heiðursfélaga deildarinnar á alþjóðadegi sjálf- boðaliðans í desember síðastliðn- um og er annar heiðursfélagi Kópavogsdeildar. Hún var sann- ur eldhugi og með samvinnu og samstilltu átaki okkar allra hjá Kópavogsdeild vinnum við áfram að því að gera heiminn betri. Með vinsemd og virðingu þökkum við Önnu mikið og óeigingjarnt starf. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd sjálfboðaliða og starfsmanna Kópavogsdeildar, Linda Ósk Sigurð- ardóttir framkvæmdastjóri, Ingibjörg Lilja Diðriks- dóttir formaður. Anna Bjarnadóttir var bráð- gáfuð, fróð og afar skemmtileg kona. Hörkudugleg og drífandi í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hlátur hennar hljómar enn í huga manns og minningin um þessa eintöku konu er falleg. Sem barn bar maður óttablandna virðingu fyrir Önnu á Hlíðarvegi 14, fannst hún strangasta mamman í öllu hverfinu og kalla alltof oft á dótt- ur sína inn frá leikjum til að gera eitthvert gagn eða vinna eitthvað gagnlegt. Sjálf var hún sívinn- andi. Síðar kynnist maður Önnu, þá var hún hrókur alls fagnaðar við bridgeborðið. Þar kom greind hennar og snerpa glögglega í ljós. Hún spilaði af kappi þó hún væri komin langt á níræðisaldurinn. Þegar RKÍ ákvað að koma á tilraunaverkefni sem fólst í því að sjálfboðaliðar saumuðu föt fyrir þróunarlönd var leitað til Önnu, enda þekkt af dugnaði. Hún tók verkefnið í sínar hendur og betri manneskju var ekki hægt að fá. Hún dreif það af stað af krafti og hefur sinnt því æ síðan af mikilli alúð. Síðastliðna tvo áratugi hefur hún og fjöldi sjálfboðaliða hjá Kópavogsdeild RKÍ saumað og prjónað föt og pakkað fyrir send- ingu. Fötin hafa farið víða um heim þar sem þau hafa glatt og vermt. Hundruð barna hafa notið góðs af handavinnu Önnu. Anna var fróð um Öndverðar- nesið. Það var ánægulegt að fá að fræðast hjá henni um heiti á kennileitum í hverfinu, þau þekkti hún vel. Við þökkum fyrir að hafa kynnst Önnu. Blessuð sé minning hennar. Birna Stefnisdóttir og Aðalsteinn Steinþórsson. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Elskulega dóttir okkar, móðir mín, tengdadóttir, systir og amma VIGDÍS JÓNSDÓTTIR frá Selfossi, Hátúni 10 Reykjavík lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þriðjudaginn 15. febrúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju, laugardaginn 26. febrúar n.k. kl: 13:30 Guðríður Magnúsdóttir, Jón Hjartarson, Guðjón Þórisson, Hanna Rut Samúelsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir Lysgard, Stein Age Lysgard, Grímur Jónsson, Stéfanía Geirsdóttir, og barnabörn. Elskulegur sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, JÚLÍUS FOSSBERG FRIÐRIKSSON Rauðumýri 10, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 4. febrúar. Útförin fór fram í Höfðakapellu þann 15. febrúar í kyrrþey að ósk hins látna. Laufey Árnadóttir, Hreiðar I. Júlíusson, Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Friðrik G. Júlíusson, Jarþrúður H. Júlíusdóttir, Ægir K. Sævarsson, barnabörn og bræður. ✝ GuðbjörgMaría Hann- esdóttir fæddist í Reykjavík 14. febr- úar 1932. Hún lést á líknardeild LSP í Kópavogi 4. febrúar 2011. Foreldrar hennar voru Auð- björg Undína Sig- urðardóttir, f. 5.8. 1903, d. 19.12. 1973, og Hannes Pétur Sigurlaugsson, f. 19.9. 1899, d. 30.7. 1941. Systir hennar er Anna Guðrún Hannesd. Scheving, f. 19.1. 1936. Maki hennar var Georg Scheving, f. 26.3. 1937, d. 27.8. 2007. Þau eiga þrjú börn. Fyrri maður Guðbjargar var Ólafur Þ. Magnússon, f. 30.4. 1927, d. 10.1. 1976. Þau voru barnlaus. Hinn 2.10. 1980 giftist Guðbjörg eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðmundi R. Karlssyni, f. 21.2. 1931. Dóttir hans er Erna Þrúð- ur, f. 1955, maki Gunnlaugur Guð- jónsson, f. 1957. Börn þeirra eru 1) Steinunn, f. 1981, maki Ragnar Løv- dahl, f. 1980, börn: Gunnlaugur Ernir, f. 2003, Benedikt Elí, f. 2007. 2) Hjalti, f. 1983. 3) Gunnar Karl, f. 1988. Guðbjörg útskrifaðist frá Verslunarskóla Íslands 1951 og vann alla tíð við skrifstofu- og verslunarstörf. Fyrst hjá Guð- mundi Jörundssyni útgerð- armanni og síðar hjá Íslenskum heimilisiðnaði. Útför Guðbjargar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 21. febr- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Amma kom inn í líf foreldra minna á svipuðum tíma og ég. Hún kynntist afa mínum og þau giftu sig nokkrum mánuðum áður en ég fæddist og því mætti segja að ég hafi fengið aukaömmu í sængurgjöf, og gjöfin var stór. Hún amma mín var mér einstak- lega góð alla tíð og var góð fyr- irmynd í lífinu. Hún vildi alltaf allt fyrir alla gera og var ætíð einstak- lega orðvör og nærgætin. Ég dáð- ist að því þegar við spjölluðum saman hversu jákvæðum augum henni tókst alltaf að sjá lífið og fólkið í kringum sig. Í öllu sem hún tók sér fyrir hendur virtist amma alltaf hafa í huga hvernig það gæti nýst fólk- inu í kringum hana. Hún var ein- staklega greiðvikin sem lýsti sér meðal annars í því þegar þau afi gerðust áskrifendur að Stöð 2, þá þurfti í raun enginn annar að gera það, því í áraraðir tók amma upp á vídeó fyrir okkur öll, vinkonur sín- ar og ættingja, og skutlaðist um allan bæ með poka fulla af kirfi- lega merktum vídeóspólum. Hún var líka einstaklega dugleg að rækta sambandið við fólkið í kringum sig og var félagslynd og þótti skemmtilegt að umgangast fólk og kynnast nýju fólki. Hún og afi komu varla frá útlöndum án þess að það fylgdu sögur af nýjum samferðafélögum sem þau kynnt- ust á ferðalögum sínum. Félagslyndi ömmu Guggu var sérstaklega áberandi í boðum þar sem fáir þekktust og margir farn- ir að telja á sér tær eða horfa upp í loft. Þá gat amma svifið um og spjallað við hvern sem var, alveg óháð því hvort hún þekkti viðkom- andi eða ekki. Hún geislaði innan um fólk og hafði einstaklega góða nærveru. Presturinn sagði við okkur í gær að enginn vissi sína ævina fyrr en öll væri og að við ættum að njóta lífsins meðan við gætum. Ég hef margoft hugsað með mér að þegar ég verð eldri vonist ég til að geta notið lífsins eins og amma og afi hafa gert. Eftir að þau fóru á eftirlaun hef ég fylgst með þeim, hvernig þau hafa verið á ferð og flugi, skoðað sýningar, setið á kaffihúsum, heimsótt vini og kunningja og ferðast um heiminn og ég hef hugsað með mér að þetta hljóti að vera rétta leiðin, að nýta hvern dag svo þegar kemur að kveðjustund geti maður horft til baka, sáttur við farinn veg. Ég trúi því að amma mín hafi verið sátt við sinn. Elsku afi, missirinn er mikill, en ég þakka þér fyrir að hafa komið með yndislega ömmu og langömmu inn í líf okkar. Hvíldu í friði elsku amma. Steinunn. Mín hjartkæra og eina systir er látin og þó að veikindi hafi gert vart við sig hjá henni er maður ekki viðbúinn. Alltof fljótt kvaddi hún. Við áttum ekki bernskuárin saman vegna skilnaðar foreldra okkar 1937. Gugga, eins og hún var kölluð af flestum, ólst upp hjá móður okkar, Maríu ömmu og Sigurði afa í Reykjavík, en ég fór til fósturforeldra vestur á Flateyri og 1949 fluttum við suður. Mikil var tilhlökkunin að hitta skyld- fólkið sitt. Þau bjuggu á Brekku- stíg vestur í bæ, í steinbæ sem er einn af fáum steinbæjum sem eftir eru í Reykjavík, en hann er ennþá „gamli bærinn minn“ á baklóð- inni. Það var stór stund í litla bæn- um. Blóðböndin eru sterk. Sam- band okkar Guggu varð mikið og gott, hún var mér sönn og trygg systir, sem ég þakka fyrir að hafa átt. Gugga hélt mikið upp á Vest- urbæinn, Brekkustígurinn var hennar gata. Við fórum í bíltúr fyrir nokkru í Vesturbæinn. Hún vann um tíma í kjötbúð á Hofsvallagötunni sem ung stúlka, hún sagði frá litlu búð- unum á hverju horni, mundi nöfn kaupmanna, og þekkti með nafni ótal marga nágranna – hún eign- aðist vinkonur í æsku sem ennþá halda sambandi þótt flestar þeirra séu fluttar úr Vesturbænum. Vesturbæjarblaðið las hún alltaf. Móðir okkar giftist síðar Jóni Ólafssyni ættuðum úr Grundar- firði. Gugga var þá í Verzlunar- skólanum og bjuggu þau öll á Vegamótum II á Seltjarnarnesi ásamt Maríu ömmu háaldraðri en Sigurður afi var þá látinn. Ég átti heima í „Skjólunum“ og naut þess að kynnast fólkinu mínu ennþá betur, það var stutt á milli bæja. Við systur eignuðumst svo okkar heimili og eru minningarnar margar og góðar í gegnum árin. Ég bið Guð að styrkja Guð- mund mág minn á erfiðum tímum. Systir góð ég þakka þér það sem þú hefur verið mér. Gott var að eiga þig Gugga mín geta komið æ til þín. Guð blessi minningu systur minn- ar. Anna Guðrún. Látin er góð vinkona fjölskyld- unnar og um hugann fara minn- ingar um konu sem hafði svo margt til að bera og mikið að gefa. Gugga var glæsileg kona og hafði sérlega góða nærveru. Hún var jákvæð, glettin, greind og skemmtileg. Hún lét sér annt um samferðafólk sitt og var afar greiðvikin. Á miðjum aldri missti hún fyrri mann sinn, Óla frænda, en var svo lánsöm að finna hamingjuna á ný með Guðmundi. Saman áttu þau kærleiksríkt líf, nutu þess að ferðast erlendis og vera saman allt fram á síðasta dag. Það er með söknuði sem við kveðjum Guggu og þökkum góðar samverustundir, vinsemd og um- hyggju í gegnum árin. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Elsku Guðmundur, við vottum þér og öðrum aðstandendum sam- úð okkar. Megi minningin um yndislega konu ylja ykkur um ókomin ár. Sigurveig, Elfa og fjölskylda. Þegar við hugsum til Guggu þá förum við aftur í tímann og sjáum hana ljóslifandi fyrir okkur við skrifborðið sitt í Íslenskum heim- ilisiðnaði, með kaffibollann innan seilingar að gera upp daginn. Við hófum störf í Íslenskum heimilisiðnaði sem óharðnaðir unglingar og ungar konur. Margt lærðum við á þeim góða vinnu- stað, þar sem við unnum með okk- ur eldri konum. Á þessum litla vinnustað unnum við náið saman og bárum hag hver annarrar fyrir brjósti. Gugga var potturinn og pannan í öllu sem þar fór fram því skrifstofan hennar var rúmgóð og í raun hluti af kaffistofunni svo það var ekkert sem fór framhjá henni. Skrifstofan hennar var sem lífæð fyrirtækisins. Það var ósjaldan sem gestir og gangandi ráku inn nefið og fengu kaffi og nýjustu fréttir af því sem helst bar til tíðinda hverju sinni. Það var alltaf gott að tylla sér hjá Guggu og spjalla um daginn og veginn því hún kom ávallt fram við okkur eins og jafningja þó svo við værum bara unglingar. Hún messaði aldrei yfir okkur eða lagði okkur lífsreglurnar með einhverj- um hroka. Hún benti okkur þó á ýmislegt sem hægt væri að gera betur, en hún gerði það alltaf með mikilli virðingu þannig að það var auðvelt að taka tilsögn frá henni. Það var aldrei neinn asi á Guggu, hún eins og leið yfir gólf verslun- arinnar þar sem hún fór frá einum kassa til annars til að gera upp eða bæta á skiptimyntina. Að sama skapi var hún var alltaf mjög létt í lund og það þurfti lítið til að fá hana til að skella uppúr, og ávallt vann hún verk sín hratt og örugg- lega. Kæri Guðmundur og fjöl- skylda, við samhryggjumst ykkur innilega á þessum erfiðu tímum og biðjum góðan Guð að veita ykk- ur styrk til að takast á við sorgina. Elsku Gugga, við þökkum þér viðkynninguna og þá umhyggju og virðingu sem þú sýndir okkur ávallt. Hvíl í friði. Yngri deildin í Heimó, Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir, Lára Magnea Jónsdóttir, Helga Stefánsdóttir. Guðbjörg María Hannesdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.