Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 26

Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 ✝ ErlendurBirgir Bland- on flugstjóri fæddist í Reykja- vík 23. febrúar 1965. Hann lést á Landspítalanum 11. febrúar 2011. Foreldrar hans voru Einar Jón Erlendsson Blandon, f. 28. janúar 1943, d. 1. mars 2002, og Bjarndís Ás- geirsdóttir, f. 21. október 1940, d. 15. júní 1981. Systk- ini Birgis í móðurlegg eru fjögur: Anna Sigríður Odd- geirsdóttir, f. 6. júlí 1967, Árni Þór Oddgeirsson, f. 29. júlí 1972, d. 10. janúar 1973, drengur Oddgeirsson, f. 23. október 1973, d. 23. október 1973, og Svanfríður Odd- geirsdóttir, f. 27. september 1974. Systkini Birgis í föð- urlegg eru sjö: Kolbeinn Blandon, f. 31. mars 1968, Einar Blandon, f. 8. ágúst 1971, Guðrún Inga Blandon, f. 12. september 1972, Úlfur Blandon, f. 5. maí 1979, Unn- ur Blandon, f. 5. október 1985, Sunna Dóra Blandon, f. föður síns, Erlendur Blandon & Co ehf. Eftir að Birgir lauk stúdentsprófi starfaði hann um tíma sem lögreglumaður í Reykjavík og í Björg- unarsveitinni Ingólfi með hundinn sinn Askó sem hann hafði þjálfað sem leitarhund. Næst lá leið Birgis til Banda- ríkjanna í flugnám hjá North American Institute of Av- iation (NAIA) og lauk hann atvinnuflugmannsprófi með blindflugs- og flugkenn- araréttindum árið 1988. Að námi loknu starfaði Birgir sem flugmaður og flugkenn- ari í Bandaríkjunum árin 1988-1989. Eftir að Birgir kom heim til Íslands starfaði hann sem flugmaður hjá Mý- flugi árin 1990-1991, hjá Air Atlanta árin 1992-1994 og hjá Cargolux í Lúxemborg árin 1994-1996. Frá árinu 1996 starfaði Birgir hjá Flugleiðum og síðar Ice- landair. Birgir varð flug- stjóri hjá Icelandair árið 2004 og starfaði þar sem slíkur allt fram að veikindum sínum. Birgir átti sæti í stjórn FFF (Frjálsa flug- mannafélagsins) 1994, í stjórn FÍA 2002-2003 og í trúnaðarráði FÍA árið 2010- 2011. Útför Birgis fer fram frá Digraneskirkju í dag, 21. febrúar 2011, og hefst at- höfnin kl. 13. 14. júlí 1986, og Fjóla Kristín B. Blandon, f. 14. mars 1993. Birgir hóf sam- búð með Að- alheiði Guðgeirs- dóttur 1987 og þau giftu sig 1995. Þau eign- uðust þrjú börn, Bjarndísi Sjöfn Blandon, f. 26. september 1994, Guðgeir Inga Blandon, f. 30. mars 2000, og Einar Dag Blandon, f. 10. júní 2002. Birgir og Að- alheiður slitu samvistir 2009. Birgir hóf sambúð með Ingu Helgu Jónsdóttur árið 2010. Birgir ólst upp í Reykjavík fyrstu fjögur ár ævi sinnar en fluttist síðar til Akureyrar þar sem hann bjó til tíu ára aldurs. Því næst fluttist fjöl- skylda Birgis aftur til Reykjavíkur þar sem Birgir lauk grunnskólaprófi frá Hagaskóla. Í framhaldinu fór Birgir í Menntaskólann í Reykjavík þaðan sem hann lauk stúdentsprófi árið 1985. Meðfram námi starfaði Birg- ir hjá Eimskip og heildsölu Elsku pabbi minn. Ég á svo erfitt með að koma orðum að því hversu sárt ég sakna þín en þetta ljóð finnst mér segja það sem segja þarf. Fljúgðu frjáls um loftin blá, burtu þrautum þínum frá þú fagri flotti maður! Með lífi þínu gleði gafst, gáska, hlýju og mikinn kraft, með þér var margur glaður! Ég þakka fyrir samveruna og sendi út í náttúruna fingurkoss til þín! Þó í skugga sálar nú sé svart ég sé þitt blíða brosið bjart, birta upp hugarfylgsni mín! Ég elska þig af öllu mínu hjarta. Þín að eilífu, Bjarndís. Í dag kveð ég fósturson minn sem var hjá mér fyrsta áratuginn í lífi sínu. Tveir bræður hans létust ungir og var það mikil lífsreynsla fyrir ungan dreng. Við sátum úti eitt heiðskírt vetrarkvöld og horfðum á stjörnurnar blika á himninum og hugsuðum til þeirra. Við reyndum að sjá til- gang lífsins og hvert þeir höfðu farið frá okkur. Síðar þurfti Birgir að sjá á eftir móður sinni og föður fara sömu leið. Birgir var ljúfur og elskulegur drengur og ólst upp með systrum sínum, Önnu Siggu og Svanfríði. Þau héldu góðu sambandi sín á milli alla tíð og stóðu systur hans við hlið hans þar til yfir lauk. Það eitt er öruggt í þess- um heimi að allir þurfa að yf- irgefa þetta líf, stíga yfir þröskuldinn og falla í faðm ættingja og vina sem hafa far- ið á undan okkur. Birgir gekk í Barnaskóla Akureyrar og eignaðist þar marga góða vini. Ýmislegt var brallað á þeim árum eins og vera ber hjá ungum og heil- brigðum börnum. Eitt sinn datt hann í sjóinn af bryggj- unni og var honum þá veru- lega brugðið. Hann skildi ekk- ert í því hvernig það gat gerst. Hann fór mjög ungur á skíði sem voru mjög frumstæð tré- skíði með gormabindingum. Minningarnar um góðan dreng munu lifa áfram um ókomin ár meðal ættingja og vina. Í ágúst sl. fórum við Biggi saman í veiðitúr ásamt Svan- fríði. Biggi var með strákana sína, Guðgeir og Einar, og Svana með tvö af sínum börn- um, Alexander og Margréti. Ég gleymi aldrei eftirvænt- ingunni og gleðinni í augum Birgis þegar hann kallaði „hann er á“, og skömmu síðar var fallegum sjóbirtingi land- að. Þegar ég hugsa til baka þegar við Biggi fórum til veiða í Laxá í Aðaldal, en þá var hann aðeins átta ára, þá var það sama eftirvæntingin og gleðin í augum hans þótt ára- tugir séu á milli veiðiferða. Í minningu góðs drengs mun ég fara árlega ásamt ættingjum hans í veiðiferð á sama stað og á sama tíma. Með þessum orðum kveð ég þig, Biggi minn, megi Guð veita börnum þínum styrk og trú á þessum erfiðu tímum. Ég og móðir þín létum gera eftirfarandi skrift yfir bræðr- um þínum: Dagurinn kemur. Oddgeir Þór Árnason. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Para- dís. Við götu mína fann ég fjal- arstúf og festi á hann streng og rauð- an skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Og eins og barnið rís frá svefnsins sæng, eins sigrar lífið fuglsins mjúka væng. Er tungan kennir töfra söngs og máls, þá teygir hann sinn hvíta svanaháls. Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar guðs í Para- dís. (Davíð Stefánsson) Kær kveðja frá ömmu Jakobínu (Jöggu). Brosið hans var sólskin, glettnin krydd tilverunnar og hjartað svo hlýtt, að návist hans var stórlega mannbæt- andi. Hann var athafnasamt barn, forvitinn og fljótur að lesa í umhverfi og atburði líð- andi dags. Hann brást eld- snöggt og af leiftrandi fjöri við gríni og glensi. Sorgin var honum þó strax ungum mis- kunnarlaus og þegar hann hafði misst tvo kornunga bræður sína og hundinn sinn á sama árinu spurði hann: „Mamma, deyr allt sem ég eignast?“ Hann átti sem betur fer tvær hálfsystur í móður- legg og tók að sér umhyggju- samt forystuhlutverk í félagi við þær, og hann átti fleiri góð systkin í föðurlegg. Birgir tókst á við lífið af áhuga og hugrekki og hóf sig upp úr þrúganda lífsins, bæði í eigin- legri og óeiginlegri merkingu. Flugstjórinn Birgir var far- sæll og eftirsóttur. Hann var samt ætíð mikill ömmustrák- ur, ekki síst eftir skyndilegan og ótímabæran móðurmissi, 16 ára, enda svo heppinn að þær báðar, amma Sigga og amma Inga, voru einstakar og frábærar í því að efla gáfur hans til góðra verka og næmi á fólk og mannlíf. Ef Inga amma ögraði honum með bein- skeyttri spurningu var hann skarpur til svars og þau urðu óaðskiljanlegir vinir, þótt oft væri hálfur hnötturinn á milli þeirra. Einu sinni þegar amma Sigga hafði lýst því yfir að hún myndi aldrei ferðast með flugvél vegna hræðslu sinnar bauð hann henni í bíl- túr, sem endaði með flugferð. Þegar hún kom svo heim að kveldi þess sama dags var hún læknuð af flughræðslunni og gat sagt glaðbeitt frá góðum „bíltúr“ til Þýskalands. Margt læknaðist þegar þau voru saman. Börnin hans og Heiðu eru ljósgeislar og einstaklega vel af Guði gerð, sigurinn í sorginni. Inga Helga var Birgi förunautur og unnusta síðustu misserin og í hjartans gleði sinni eignuðust þau vináttu og ást, sem gaf honum þróttinn til að mæta örlögum sínum af reisn. Góður Guð blessi minn- ingu Birgis, vaki yfir börnum hans og ástvinum öllum. Birgir Ásgeirsson. Það er erfitt að sjá á eftir jafn lífsglöðum manni og Bigga frænda. Hann var ávallt jákvæður, glaður, orkumikill og með stórt hjarta. Brosið hans lýsti upp allt í kring. Frá því hann var lítill ljóshærður hnokki með freknur og stór blá augu var alltaf eins og sól- in byggi í huga hans. Í minn- ingunni um Bigga kemur allt- af fyrst upp í hugann hvað það var gaman að vera með hon- um. Hjá honum var alltaf stutt í grín og glens og uppátækin og prakkarastrikin voru enda- laus. Systur hans, Anna Sigga og Svana, sem gengið hafa með honum hönd í hönd, voru helstu fórnarlömbin er kom að stríðni og á unglingsárum okkar fékk Sigga amma oft að finna fyrir prakkaraskapnum. Aðallega voru þetta símtöl þar sem Biggi fór í hin ýmsu gervi og æsti gömlu konuna sem var mjög auðtrúa. Ég var heldur ekki undanskilin þessu gríni og brást stundum hin versta við, jafn auðtrúa og amma, og þá hló Biggi dátt. Biggi var einstaklega ljúfur og hjarta- hlýr. Hann var kletturinn í lífi margra og alltaf var hægt að leita til hans. Hann var mjög vinsæll og vináttuböndin við systkini, nána vini og ættingja voru einlæg og sterk. Börnin hans og Heiðu; Bjarndís Sjöfn, Guðgeir Ingi og Einar Dagur, voru gullmolarnir í lífi hans sem hann varðveitti svo blíðlega. Í veikindum sínum bar Biggi sig hetjulega með dyggri hjálp Ingu Helgu unn- ustu sinnar. Hann var æðru- laus í erfiðri baráttu sinni fyrir lífinu og honum var fyrst og fremst annt um að hlúa að vel- ferð barna sinna. Ég kveð með sorg í hjarta minn kæra frænda, sem ég er svo stolt af og minnist hans af gleði. Þórunn Birgisdóttir. Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur, og æðrast ei, þótt straumur lífs sé þungur, en set þér snemma háleitt mark og mið, haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni og stýrðu síðan beint í Jesú nafni á himins hlið. (Matthías Jochumsson) Elsku yndislegi Biggi minn, nú er þessum hryllilega bar- daga þínum loksins lokið. Ég kem aldrei til með að hætta að dást að viljakrafti þínum, seiglu og ótrúlegu æðruleysi í gegnum allan þennan erfiða tíma. Nú tekur hins vegar við hræðilegur tómleiki og sökn- uður hjá okkur hinum. Að hugsa sér lífið án þín er nánast útilokað en ég reyni að hugga mig við að þú ert að minnsta kosti laus við alla vanlíðan. Þú ert vafalaust ein besta mann- eskja sem ég hef kynnst á æv- inni en líka sú skemmtileg- asta. Sem betur fer vorum við fjölskyldan dugleg að vera saman í sumar og eignuðumst því enn fleiri skemmtilegar minningar. Þá kom í ljós eins og oft áður hversu mikils virði þú varst börnunum í fjölskyld- unni sem halda óskaplega mikið upp á þig og eru nú búin að missa uppáhaldsfrændann. Barnabörnum mínum varstu alltaf uppáhaldsfrænd- inn og eitt dæmið er að Stein- þór Ingi bað mig reglulega að fá að hringja í þig, þegar þú varst búinn að heilsa honum sagði Steinþór bara: Sko, sko, hvar ertu ? Steinþór var líka mjög stoltur af því þú hefðir byrjað að kenna honum að hjóla þegar við fórum á afmæli Silvu í Viðey. Silva talar stöð- ugt um hvað allar ferðirnar sem við fórum saman voru skemmtilegar. Af öllum ferð- unum sem við fórum í sumar eru tvær sem standa upp úr, ferðin að Helgufossi og ferðin á Fiskidaga á Dalvík. Ég get samt aldrei þakkað nógsam- lega fyrir að þú skyldir leggja á þig að koma austur til okkar Matta og Ingu ömmu á sunnu- daginn var. Já, það er bara rúm vika síðan þú heimsóttir okkur í sveitina, elsku Biggi minn, og þá var líka hlegið og fíflast eins og alltaf þegar þið komuð, þrátt fyrir að þú værir kvalinn og píndur. Þú varst Írisi minni alltaf besti, flottasti og skemmtileg- asti stóri bróðirinn og nutuð þið félagsskapar hvor annars í ykkar svarta húmor oftar en ég gæti talið. Elsku Biggi minn, amma Inga saknar nú aðalaðstoðar- manns síns enda varstu alla tíð svo ótrúlega góður og nær- gætinn við hana og hennar að- alstoð og stytta alla tíð. Jæja, Biggi minn, það eru ófáir hrekkirnir sem við Matti lentum í af þinni hálfu en það var nú eitt af því skemmtileg- asta sem þú gerðir að hrekkja og stríða okkur og reyndar öll- um öðrum sem þú þekktir. Þú ert hins vegar fyrst og fremst fyrsti litli frændinn minn og munt alltaf skipa sérstakan sess í mínu hjarta, elsku hjart- ans kúturinn minn. Fyrir utan alla hina yndis- legu kostina þína, elsku Biggi minn, er óhætt að segja að öll- um hafi borið saman um að hláturinn og húmorinn hafi einkennt þig alla tíð. Það sést líka á glampanum í augunum á þér, elskan. Nú er svo komið að leiðar- lokum og það er sárt. Ég bið algóðan Guð að gefa Bjarndísi, Guðgeiri, Einari Degi, ömmu Ingu, Ingu Helgu, Önnu Siggu, Svönu, vinunum, Blandonunum og öllum öðrum ástvinum Bigga, styrk, kjark og huggun í þessari miklu sorg. Takk fyrir allt og allt, elsku vinurinn minn. Íris og Marteinn. Elsku elsku besti Biggi minn, ég get ekki hætt að gráta, hvernig eigum við að fara í gegnum næstu sumur/ár og öll grillpartíin án þín? Amma Inga bannar mér að gráta á milli þess sem hún skellir á og grætur sjálf og ég veit að nú ertu laus við allar kvalir en ég er bara svo reið og mér finnst þetta svo óréttlátt. Þú ert búinn að vera svo mikil hetja og svo töff, t.d. á mið- vikudaginn var þegar ég kíkti við uppi á spítlala varstu bara á leiðinni heim, í mat hjá mér um helgina, slide show hjá Svönu, vorum að plana sum- arbústaðaferðina í Stykkis- hólm í mars og þú ætlaðir að mæta og sjá Silvu á sviði í Borgó í apríl, sem ég reyndar stóla á að þú gerir samt. Og á fimmtudaginn þegar ég droppaði við með blaðið varstu að láta útskrifa þig, þetta sýn- ir bara hvað þú varst þrjóskur og harður nagli sem ætlaði að sigrast á þessu. En þeir deyja víst ungir sem guðirnir elska en það bara elskuðu þig svo margir hérna líka. Núna er að skella á mott- umars sem minnir mig á mott- una þína í fyrra, þú varst á leiðinni á eitthvert geim hjá Icelandair og komst við hjá mér að fá lánaðan maskara til að dekkja þína, og guð hvað mér fannst þetta ekkert töff en þér fannst það og þú slóst í gegn, nema hvað. Elsku Biggi minn, mig vant- ar þig svo núna, þinn svarta húmor og stríðni, ég veit ekki um neinn sem var eins snögg- ur að kveikja á svörtum húm- or og þú. Held ég hafi án gríns aldrei lagt símann frá mér eða kvatt þig án þess að vera búin að hlæja endalaust. Hver á núna að svara mér þegar ég byrja að bulla? Og svo allur fjölskylduhitt- ingurinn, þú vildir alltaf hafa sem flesta með í allt sem við gerðum, þó það væri ekki nema grilla á virku kvöldi eða safnast saman hjá mömmu og Matta á Ekru, allir, og bara tjalda úti í garði og plottið okkar fyrir afmælið hennar mömmu. Það hefði aldrei gengið svona upp án þín, Biggi minn. Eins líka ef eitthvað kom upp á hjá einhverjum, þá varstu alltaf mættur fyrstur. Eins og um jólin þegar ég kom að ömmu Ingu fárveikri og vissi ekkert hvað ég átti að gera, þá hringdi ég í þig, það var alltaf hægt. Þú varst klett- urinn, tryggasti og besti vin- urinn, besti húmoristinn, besti bróðirinn, besti frændinn, besti pabbinn og Biggi minn, hjá mér ertu án efa æðisleg- asta og skemmtilegasta manneskja sem ég hef á æv- inni kynnst. Nú er bara tóm gjá. Það er ótrúlega sárt að kveðja þig, elsku Biggi minn, og þetta verður svo erfitt en ég reyni að hugsa um þig og að þér líði vel. Vonandi hittumst við aftur. Elsku Bjarndís Sjöfn, Guð- geir Ingi, Einar Dagur, amma Inga, allir Blandons, Inga, systur, vinir og allir ástvinir, nú bið ég Guð að hjálpa okkur öllum í gegnum þessa miklu sorg. Minning þín er ljós í lífi okkar. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín; líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. Nei, nei það varla óhætt er englum að trúa fyrir þér; engill ert þú og englum þá of vel kann þig að lítast á. (Steingrímur Thor- steinsson) Kveðja. Þín litla Íris. Elsku Biggi minn, ég mun aldrei gleyma þér og ég mun alltaf elska þig og sakna. Þú ert minn besti og skemmtileg- asti frændi í heimi. Bara svo þú vitir það þá elska ég þig svo, svo mikið og við náðum ekki einu sinni að kveðja þig. Ég gleymi aldrei þegar við fórum í Helgufoss og ég vil þakka þér fyrir að við héldum svona mörg ættarmót og takk fyrir að vera með mér í afmæl- inu mínu. Ég elska þig alltaf. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Þín litla frænka, Silva Líf. Hárfínn og beittur húmor er það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um hann Bigga. Prakkari af Guðs náð og ógjörningur að átta sig á hvort um grín eða alvöru væri að ræða þegar hann átti í hlut. Alltaf tókst honum að búa til snilldarfléttu, lék hlutverkið til enda, og fékk stundum fleiri í lið með sér til þess að plottið myndi nú ganga snurðulaust fyrir sig. Ég á eft- Erlendur Birgir Blandon HINSTA KVEÐJA Elsku Biggi minn, þú varst langbesti frændi minn. Þú sofnað hefur síðsta blund í sælli von um endurfund, nú englar Drottins und- urhljótt þér yfir vaki – sofðu rótt. (Aðalbjörg Magnúsdóttir) Þinn Steinþór Ingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.