Morgunblaðið - 21.02.2011, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
✝ ErlendurBirgir Bland-
on flugstjóri
fæddist í Reykja-
vík 23. febrúar
1965. Hann lést á
Landspítalanum
11. febrúar 2011.
Foreldrar hans
voru Einar Jón
Erlendsson
Blandon, f. 28.
janúar 1943, d. 1.
mars 2002, og Bjarndís Ás-
geirsdóttir, f. 21. október
1940, d. 15. júní 1981. Systk-
ini Birgis í móðurlegg eru
fjögur: Anna Sigríður Odd-
geirsdóttir, f. 6. júlí 1967,
Árni Þór Oddgeirsson, f. 29.
júlí 1972, d. 10. janúar 1973,
drengur Oddgeirsson, f. 23.
október 1973, d. 23. október
1973, og Svanfríður Odd-
geirsdóttir, f. 27. september
1974. Systkini Birgis í föð-
urlegg eru sjö: Kolbeinn
Blandon, f. 31. mars 1968,
Einar Blandon, f. 8. ágúst
1971, Guðrún Inga Blandon,
f. 12. september 1972, Úlfur
Blandon, f. 5. maí 1979, Unn-
ur Blandon, f. 5. október
1985, Sunna Dóra Blandon, f.
föður síns, Erlendur Blandon
& Co ehf. Eftir að Birgir lauk
stúdentsprófi starfaði hann
um tíma sem lögreglumaður
í Reykjavík og í Björg-
unarsveitinni Ingólfi með
hundinn sinn Askó sem hann
hafði þjálfað sem leitarhund.
Næst lá leið Birgis til Banda-
ríkjanna í flugnám hjá North
American Institute of Av-
iation (NAIA) og lauk hann
atvinnuflugmannsprófi með
blindflugs- og flugkenn-
araréttindum árið 1988. Að
námi loknu starfaði Birgir
sem flugmaður og flugkenn-
ari í Bandaríkjunum árin
1988-1989. Eftir að Birgir
kom heim til Íslands starfaði
hann sem flugmaður hjá Mý-
flugi árin 1990-1991, hjá Air
Atlanta árin 1992-1994 og
hjá Cargolux í Lúxemborg
árin 1994-1996. Frá árinu
1996 starfaði Birgir hjá
Flugleiðum og síðar Ice-
landair. Birgir varð flug-
stjóri hjá Icelandair árið
2004 og starfaði þar sem
slíkur allt fram að veikindum
sínum. Birgir átti sæti í
stjórn FFF (Frjálsa flug-
mannafélagsins) 1994, í
stjórn FÍA 2002-2003 og í
trúnaðarráði FÍA árið 2010-
2011.
Útför Birgis fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 21.
febrúar 2011, og hefst at-
höfnin kl. 13.
14. júlí 1986, og
Fjóla Kristín B.
Blandon, f. 14.
mars 1993.
Birgir hóf sam-
búð með Að-
alheiði Guðgeirs-
dóttur 1987 og
þau giftu sig
1995. Þau eign-
uðust þrjú börn,
Bjarndísi Sjöfn
Blandon, f. 26.
september 1994, Guðgeir
Inga Blandon, f. 30. mars
2000, og Einar Dag Blandon,
f. 10. júní 2002. Birgir og Að-
alheiður slitu samvistir 2009.
Birgir hóf sambúð með Ingu
Helgu Jónsdóttur árið 2010.
Birgir ólst upp í Reykjavík
fyrstu fjögur ár ævi sinnar
en fluttist síðar til Akureyrar
þar sem hann bjó til tíu ára
aldurs. Því næst fluttist fjöl-
skylda Birgis aftur til
Reykjavíkur þar sem Birgir
lauk grunnskólaprófi frá
Hagaskóla. Í framhaldinu fór
Birgir í Menntaskólann í
Reykjavík þaðan sem hann
lauk stúdentsprófi árið 1985.
Meðfram námi starfaði Birg-
ir hjá Eimskip og heildsölu
Elsku pabbi minn. Ég á svo
erfitt með að koma orðum að
því hversu sárt ég sakna þín
en þetta ljóð finnst mér segja
það sem segja þarf.
Fljúgðu frjáls um loftin blá,
burtu þrautum þínum frá
þú fagri flotti maður!
Með lífi þínu gleði gafst,
gáska, hlýju og mikinn kraft,
með þér var margur glaður!
Ég þakka fyrir samveruna
og sendi út í náttúruna
fingurkoss til þín!
Þó í skugga sálar nú sé svart
ég sé þitt blíða brosið bjart,
birta upp hugarfylgsni mín!
Ég elska þig af öllu mínu
hjarta.
Þín að eilífu,
Bjarndís.
Í dag kveð ég fósturson
minn sem var hjá mér fyrsta
áratuginn í lífi sínu. Tveir
bræður hans létust ungir og
var það mikil lífsreynsla fyrir
ungan dreng. Við sátum úti
eitt heiðskírt vetrarkvöld og
horfðum á stjörnurnar blika á
himninum og hugsuðum til
þeirra. Við reyndum að sjá til-
gang lífsins og hvert þeir
höfðu farið frá okkur. Síðar
þurfti Birgir að sjá á eftir
móður sinni og föður fara
sömu leið. Birgir var ljúfur og
elskulegur drengur og ólst
upp með systrum sínum,
Önnu Siggu og Svanfríði. Þau
héldu góðu sambandi sín á
milli alla tíð og stóðu systur
hans við hlið hans þar til yfir
lauk. Það eitt er öruggt í þess-
um heimi að allir þurfa að yf-
irgefa þetta líf, stíga yfir
þröskuldinn og falla í faðm
ættingja og vina sem hafa far-
ið á undan okkur.
Birgir gekk í Barnaskóla
Akureyrar og eignaðist þar
marga góða vini. Ýmislegt var
brallað á þeim árum eins og
vera ber hjá ungum og heil-
brigðum börnum. Eitt sinn
datt hann í sjóinn af bryggj-
unni og var honum þá veru-
lega brugðið. Hann skildi ekk-
ert í því hvernig það gat gerst.
Hann fór mjög ungur á skíði
sem voru mjög frumstæð tré-
skíði með gormabindingum.
Minningarnar um góðan
dreng munu lifa áfram um
ókomin ár meðal ættingja og
vina.
Í ágúst sl. fórum við Biggi
saman í veiðitúr ásamt Svan-
fríði. Biggi var með strákana
sína, Guðgeir og Einar, og
Svana með tvö af sínum börn-
um, Alexander og Margréti.
Ég gleymi aldrei eftirvænt-
ingunni og gleðinni í augum
Birgis þegar hann kallaði
„hann er á“, og skömmu síðar
var fallegum sjóbirtingi land-
að. Þegar ég hugsa til baka
þegar við Biggi fórum til veiða
í Laxá í Aðaldal, en þá var
hann aðeins átta ára, þá var
það sama eftirvæntingin og
gleðin í augum hans þótt ára-
tugir séu á milli veiðiferða. Í
minningu góðs drengs mun ég
fara árlega ásamt ættingjum
hans í veiðiferð á sama stað og
á sama tíma.
Með þessum orðum kveð ég
þig, Biggi minn, megi Guð
veita börnum þínum styrk og
trú á þessum erfiðu tímum.
Ég og móðir þín létum gera
eftirfarandi skrift yfir bræðr-
um þínum: Dagurinn kemur.
Oddgeir Þór Árnason.
Snert hörpu mína, himinborna
dís,
svo hlusti englar guðs í Para-
dís.
Við götu mína fann ég fjal-
arstúf
og festi á hann streng og rauð-
an skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við
sjó,
ég fugla skar og líka úr
smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Og eins og barnið rís frá
svefnsins sæng,
eins sigrar lífið fuglsins mjúka
væng.
Er tungan kennir töfra söngs
og máls,
þá teygir hann sinn hvíta
svanaháls.
Nú fljúga mínir fuglar, góða
dís.
Nú fagna englar guðs í Para-
dís.
(Davíð Stefánsson)
Kær kveðja frá ömmu
Jakobínu (Jöggu).
Brosið hans var sólskin,
glettnin krydd tilverunnar og
hjartað svo hlýtt, að návist
hans var stórlega mannbæt-
andi. Hann var athafnasamt
barn, forvitinn og fljótur að
lesa í umhverfi og atburði líð-
andi dags. Hann brást eld-
snöggt og af leiftrandi fjöri við
gríni og glensi. Sorgin var
honum þó strax ungum mis-
kunnarlaus og þegar hann
hafði misst tvo kornunga
bræður sína og hundinn sinn á
sama árinu spurði hann:
„Mamma, deyr allt sem ég
eignast?“ Hann átti sem betur
fer tvær hálfsystur í móður-
legg og tók að sér umhyggju-
samt forystuhlutverk í félagi
við þær, og hann átti fleiri góð
systkin í föðurlegg. Birgir
tókst á við lífið af áhuga og
hugrekki og hóf sig upp úr
þrúganda lífsins, bæði í eigin-
legri og óeiginlegri merkingu.
Flugstjórinn Birgir var far-
sæll og eftirsóttur. Hann var
samt ætíð mikill ömmustrák-
ur, ekki síst eftir skyndilegan
og ótímabæran móðurmissi,
16 ára, enda svo heppinn að
þær báðar, amma Sigga og
amma Inga, voru einstakar og
frábærar í því að efla gáfur
hans til góðra verka og næmi á
fólk og mannlíf. Ef Inga amma
ögraði honum með bein-
skeyttri spurningu var hann
skarpur til svars og þau urðu
óaðskiljanlegir vinir, þótt oft
væri hálfur hnötturinn á milli
þeirra. Einu sinni þegar
amma Sigga hafði lýst því yfir
að hún myndi aldrei ferðast
með flugvél vegna hræðslu
sinnar bauð hann henni í bíl-
túr, sem endaði með flugferð.
Þegar hún kom svo heim að
kveldi þess sama dags var hún
læknuð af flughræðslunni og
gat sagt glaðbeitt frá góðum
„bíltúr“ til Þýskalands. Margt
læknaðist þegar þau voru
saman. Börnin hans og Heiðu
eru ljósgeislar og einstaklega
vel af Guði gerð, sigurinn í
sorginni. Inga Helga var Birgi
förunautur og unnusta síðustu
misserin og í hjartans gleði
sinni eignuðust þau vináttu og
ást, sem gaf honum þróttinn
til að mæta örlögum sínum af
reisn. Góður Guð blessi minn-
ingu Birgis, vaki yfir börnum
hans og ástvinum öllum.
Birgir Ásgeirsson.
Það er erfitt að sjá á eftir
jafn lífsglöðum manni og
Bigga frænda. Hann var ávallt
jákvæður, glaður, orkumikill
og með stórt hjarta. Brosið
hans lýsti upp allt í kring. Frá
því hann var lítill ljóshærður
hnokki með freknur og stór
blá augu var alltaf eins og sól-
in byggi í huga hans. Í minn-
ingunni um Bigga kemur allt-
af fyrst upp í hugann hvað það
var gaman að vera með hon-
um. Hjá honum var alltaf stutt
í grín og glens og uppátækin
og prakkarastrikin voru enda-
laus. Systur hans, Anna Sigga
og Svana, sem gengið hafa
með honum hönd í hönd, voru
helstu fórnarlömbin er kom að
stríðni og á unglingsárum
okkar fékk Sigga amma oft að
finna fyrir prakkaraskapnum.
Aðallega voru þetta símtöl þar
sem Biggi fór í hin ýmsu gervi
og æsti gömlu konuna sem var
mjög auðtrúa. Ég var heldur
ekki undanskilin þessu gríni
og brást stundum hin versta
við, jafn auðtrúa og amma, og
þá hló Biggi dátt. Biggi var
einstaklega ljúfur og hjarta-
hlýr. Hann var kletturinn í lífi
margra og alltaf var hægt að
leita til hans. Hann var mjög
vinsæll og vináttuböndin við
systkini, nána vini og ættingja
voru einlæg og sterk. Börnin
hans og Heiðu; Bjarndís
Sjöfn, Guðgeir Ingi og Einar
Dagur, voru gullmolarnir í lífi
hans sem hann varðveitti svo
blíðlega. Í veikindum sínum
bar Biggi sig hetjulega með
dyggri hjálp Ingu Helgu unn-
ustu sinnar. Hann var æðru-
laus í erfiðri baráttu sinni fyrir
lífinu og honum var fyrst og
fremst annt um að hlúa að vel-
ferð barna sinna.
Ég kveð með sorg í hjarta
minn kæra frænda, sem ég er
svo stolt af og minnist hans af
gleði.
Þórunn Birgisdóttir.
Legg þú á djúpið, þú, sem enn
ert ungur,
og æðrast ei, þótt straumur
lífs sé þungur,
en set þér snemma háleitt
mark og mið,
haf Guðs orð fyrir leiðarstein í
stafni
og stýrðu síðan beint í Jesú
nafni
á himins hlið.
(Matthías Jochumsson)
Elsku yndislegi Biggi minn,
nú er þessum hryllilega bar-
daga þínum loksins lokið. Ég
kem aldrei til með að hætta að
dást að viljakrafti þínum,
seiglu og ótrúlegu æðruleysi í
gegnum allan þennan erfiða
tíma. Nú tekur hins vegar við
hræðilegur tómleiki og sökn-
uður hjá okkur hinum. Að
hugsa sér lífið án þín er nánast
útilokað en ég reyni að hugga
mig við að þú ert að minnsta
kosti laus við alla vanlíðan. Þú
ert vafalaust ein besta mann-
eskja sem ég hef kynnst á æv-
inni en líka sú skemmtileg-
asta. Sem betur fer vorum við
fjölskyldan dugleg að vera
saman í sumar og eignuðumst
því enn fleiri skemmtilegar
minningar. Þá kom í ljós eins
og oft áður hversu mikils virði
þú varst börnunum í fjölskyld-
unni sem halda óskaplega
mikið upp á þig og eru nú búin
að missa uppáhaldsfrændann.
Barnabörnum mínum
varstu alltaf uppáhaldsfrænd-
inn og eitt dæmið er að Stein-
þór Ingi bað mig reglulega að
fá að hringja í þig, þegar þú
varst búinn að heilsa honum
sagði Steinþór bara: Sko, sko,
hvar ertu ? Steinþór var líka
mjög stoltur af því þú hefðir
byrjað að kenna honum að
hjóla þegar við fórum á afmæli
Silvu í Viðey. Silva talar stöð-
ugt um hvað allar ferðirnar
sem við fórum saman voru
skemmtilegar. Af öllum ferð-
unum sem við fórum í sumar
eru tvær sem standa upp úr,
ferðin að Helgufossi og ferðin
á Fiskidaga á Dalvík. Ég get
samt aldrei þakkað nógsam-
lega fyrir að þú skyldir leggja
á þig að koma austur til okkar
Matta og Ingu ömmu á sunnu-
daginn var. Já, það er bara
rúm vika síðan þú heimsóttir
okkur í sveitina, elsku Biggi
minn, og þá var líka hlegið og
fíflast eins og alltaf þegar þið
komuð, þrátt fyrir að þú værir
kvalinn og píndur.
Þú varst Írisi minni alltaf
besti, flottasti og skemmtileg-
asti stóri bróðirinn og nutuð
þið félagsskapar hvor annars í
ykkar svarta húmor oftar en
ég gæti talið.
Elsku Biggi minn, amma
Inga saknar nú aðalaðstoðar-
manns síns enda varstu alla
tíð svo ótrúlega góður og nær-
gætinn við hana og hennar að-
alstoð og stytta alla tíð.
Jæja, Biggi minn, það eru
ófáir hrekkirnir sem við Matti
lentum í af þinni hálfu en það
var nú eitt af því skemmtileg-
asta sem þú gerðir að hrekkja
og stríða okkur og reyndar öll-
um öðrum sem þú þekktir. Þú
ert hins vegar fyrst og fremst
fyrsti litli frændinn minn og
munt alltaf skipa sérstakan
sess í mínu hjarta, elsku hjart-
ans kúturinn minn.
Fyrir utan alla hina yndis-
legu kostina þína, elsku Biggi
minn, er óhætt að segja að öll-
um hafi borið saman um að
hláturinn og húmorinn hafi
einkennt þig alla tíð. Það sést
líka á glampanum í augunum á
þér, elskan.
Nú er svo komið að leiðar-
lokum og það er sárt. Ég bið
algóðan Guð að gefa Bjarndísi,
Guðgeiri, Einari Degi, ömmu
Ingu, Ingu Helgu, Önnu
Siggu, Svönu, vinunum,
Blandonunum og öllum öðrum
ástvinum Bigga, styrk, kjark
og huggun í þessari miklu
sorg.
Takk fyrir allt og allt, elsku
vinurinn minn.
Íris og Marteinn.
Elsku elsku besti Biggi
minn, ég get ekki hætt að
gráta, hvernig eigum við að
fara í gegnum næstu sumur/ár
og öll grillpartíin án þín?
Amma Inga bannar mér að
gráta á milli þess sem hún
skellir á og grætur sjálf og ég
veit að nú ertu laus við allar
kvalir en ég er bara svo reið og
mér finnst þetta svo óréttlátt.
Þú ert búinn að vera svo mikil
hetja og svo töff, t.d. á mið-
vikudaginn var þegar ég kíkti
við uppi á spítlala varstu bara
á leiðinni heim, í mat hjá mér
um helgina, slide show hjá
Svönu, vorum að plana sum-
arbústaðaferðina í Stykkis-
hólm í mars og þú ætlaðir að
mæta og sjá Silvu á sviði í
Borgó í apríl, sem ég reyndar
stóla á að þú gerir samt. Og á
fimmtudaginn þegar ég
droppaði við með blaðið varstu
að láta útskrifa þig, þetta sýn-
ir bara hvað þú varst þrjóskur
og harður nagli sem ætlaði að
sigrast á þessu. En þeir deyja
víst ungir sem guðirnir elska
en það bara elskuðu þig svo
margir hérna líka.
Núna er að skella á mott-
umars sem minnir mig á mott-
una þína í fyrra, þú varst á
leiðinni á eitthvert geim hjá
Icelandair og komst við hjá
mér að fá lánaðan maskara til
að dekkja þína, og guð hvað
mér fannst þetta ekkert töff
en þér fannst það og þú slóst í
gegn, nema hvað.
Elsku Biggi minn, mig vant-
ar þig svo núna, þinn svarta
húmor og stríðni, ég veit ekki
um neinn sem var eins snögg-
ur að kveikja á svörtum húm-
or og þú. Held ég hafi án gríns
aldrei lagt símann frá mér eða
kvatt þig án þess að vera búin
að hlæja endalaust. Hver á
núna að svara mér þegar ég
byrja að bulla?
Og svo allur fjölskylduhitt-
ingurinn, þú vildir alltaf hafa
sem flesta með í allt sem við
gerðum, þó það væri ekki
nema grilla á virku kvöldi eða
safnast saman hjá mömmu og
Matta á Ekru, allir, og bara
tjalda úti í garði og plottið
okkar fyrir afmælið hennar
mömmu. Það hefði aldrei
gengið svona upp án þín, Biggi
minn.
Eins líka ef eitthvað kom
upp á hjá einhverjum, þá
varstu alltaf mættur fyrstur.
Eins og um jólin þegar ég kom
að ömmu Ingu fárveikri og
vissi ekkert hvað ég átti að
gera, þá hringdi ég í þig, það
var alltaf hægt. Þú varst klett-
urinn, tryggasti og besti vin-
urinn, besti húmoristinn, besti
bróðirinn, besti frændinn,
besti pabbinn og Biggi minn,
hjá mér ertu án efa æðisleg-
asta og skemmtilegasta
manneskja sem ég hef á æv-
inni kynnst. Nú er bara tóm
gjá. Það er ótrúlega sárt að
kveðja þig, elsku Biggi minn,
og þetta verður svo erfitt en
ég reyni að hugsa um þig og að
þér líði vel. Vonandi hittumst
við aftur.
Elsku Bjarndís Sjöfn, Guð-
geir Ingi, Einar Dagur, amma
Inga, allir Blandons, Inga,
systur, vinir og allir ástvinir,
nú bið ég Guð að hjálpa okkur
öllum í gegnum þessa miklu
sorg. Minning þín er ljós í lífi
okkar.
Verndi þig englar, elskan mín,
þá augun fögru lykjast þín;
líði þeir kringum hvílu hljótt
á hvítum vængjum um miðja
nótt.
Nei, nei það varla óhætt er
englum að trúa fyrir þér;
engill ert þú og englum þá
of vel kann þig að lítast á.
(Steingrímur Thor-
steinsson)
Kveðja. Þín litla
Íris.
Elsku Biggi minn, ég mun
aldrei gleyma þér og ég mun
alltaf elska þig og sakna. Þú
ert minn besti og skemmtileg-
asti frændi í heimi. Bara svo
þú vitir það þá elska ég þig
svo, svo mikið og við náðum
ekki einu sinni að kveðja þig.
Ég gleymi aldrei þegar við
fórum í Helgufoss og ég vil
þakka þér fyrir að við héldum
svona mörg ættarmót og takk
fyrir að vera með mér í afmæl-
inu mínu.
Ég elska þig alltaf.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Þín litla frænka,
Silva Líf.
Hárfínn og beittur húmor
er það fyrsta sem mér dettur í
hug þegar ég hugsa um hann
Bigga. Prakkari af Guðs náð
og ógjörningur að átta sig á
hvort um grín eða alvöru væri
að ræða þegar hann átti í hlut.
Alltaf tókst honum að búa til
snilldarfléttu, lék hlutverkið
til enda, og fékk stundum
fleiri í lið með sér til þess að
plottið myndi nú ganga
snurðulaust fyrir sig. Ég á eft-
Erlendur Birgir
Blandon
HINSTA KVEÐJA
Elsku Biggi minn, þú
varst langbesti frændi
minn.
Þú sofnað hefur síðsta blund
í sælli von um endurfund,
nú englar Drottins und-
urhljótt
þér yfir vaki – sofðu rótt.
(Aðalbjörg Magnúsdóttir)
Þinn
Steinþór Ingi.