Morgunblaðið - 21.02.2011, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
ir að sakna bliksins í augunum
hans og hlátursins sem alltaf
var stutt í þegar upp um hann
komst.
Þessa síðustu og erfiðu
daga höfum við æskuvinahóp-
urinn komið saman og rifjað
upp sögur af Bigga. Það hefur
verið gott að geta hlegið og
brosað í gegnum tárin, því
margs er að minnast, enda
hefur vinskapurinn varað í yf-
ir 30 ár.
Mér er eftirminnileg veiði-
ferð sem farin var í Kjósina
fyrir rúmum tveimur árum.
Stór og góður vinahópur
dreifði sér um þessa miklu lax-
veiðiá, en engin var veiðin, því
úti var steikjandi hiti og sól-
skin og áin nánast vatnslaus.
Sjálf reyndi ég árangurslaust
að beita nánast öllu flugubox-
inu mínu, en ekkert gerðist. Í
næsta hyl stóð Biggi hins veg-
ar og tók hvern laxinn á fætur
öðrum og fagnaði gífurlega. Í
byrjun samgladdist ég honum
auðvitað, en eftir þriðja fisk-
inn tók mér að renna í skap og
eftir þann fjórða pakkaði ég
dótinu mínu saman í reiðikasti
og hætti frekari veiðimennsku
þann daginn. Mig grunaði
helst að hann væri svo ósvífinn
að nota spún eða önnur ólög-
leg veiðarfæri, en Pétur veiði-
félagi hans var þögull sem
gröfin. Það var ekki fyrr en
seinna um kvöldið að sannleik-
urinn kom í ljós. Biggi og Pési
höfðu undirbúið sig óvenju-
lega vel fyrir þessa ferð og
komið við í fiskbúð. Mættu
þeir í ferðina með skottið fullt
af laxi, til þess eins að plata
mig enn og aftur upp úr skón-
um. Þetta var ekki í fyrsta
sinn, en því miður tók hrekkj-
unum nú að fækka.
Það hefur tekið á að horfa á
heilsu hans Bigga hraka. Ár
eftir ár hreppti þessi hrausti
maður titilinn „besti skíða-
maðurinn“ í vinahópnum og
var það innileg von mín að
keppnisskapið gæti að lokum
fært honum sigur í glímunni
við krabbameinið, enda hafði
hann svo sannarlega margt að
lifa fyrir. Yndislegu börnin
hans þrjú, Bjarndís, Guðgeir
og Einar, voru stolt hans og
yndi og elskaði hann þau heitt
og innilega. Nýverið hafði
hann einnig kynnst ástinni
sinni, henni Ingu, sem hefur
reynst honum klettur í veik-
indunum. Fegurra og einlæg-
ara samband hef ég vart upp-
lifað. Vildi ég óska þess að
draumar þeirra hefðu ræst og
þau fengið að lifa saman og
halda áfram að vera ham-
ingjusöm.
Ég sendi Ingu og börnun-
um hans Bigga mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur um leið
og ég kveð minn kæra vin að
sinni, svo rík af minningum og
þakklæti fyrir að hafa þekkt
þennan góða dreng.
Góða ferð elsku vinur.
Anna Margrét.
Í dag mun ég kveðja vin
minn, Birgi Blandon, og kvíði
nú okkar hinstu kveðjustund,
þegar kista hans verður borin
til grafar.
Birgir þurfti ungur að upp-
lifa slíkt, þegar Bjarndís móð-
ir hans lést langt fyrir aldur
fram, og hann þá einungis 15
ára. Við Biggi höfðum nýverið
bundist miklum vináttubönd-
um, þá ungir vesturbæingar
þeysandi um á skellinöðrum.
Man ég hvað mér þótti hann
bera sorg sína mannalega, því
sjálfur gat ég ekki ímyndað
mér meiri sársauka. Þetta
snemmbæra áfall hefur ef-
laust átt sinn þátt í að móta
hans unga hjarta og gera hann
að þeim góða dreng, sem ég
mun ávallt minnast.
Á unglingsárunum verða
drengir menn. Við taka spenn-
andi tímar, þar sem ný spor
eru stigin og heimurinn kann-
aður frekar. Skólalóðin verður
að fortíðarminningu og götur
bæjarins taka við. Hinn
ókrýndi konungur skellinöðr-
ugengisins fékk bílprófið sitt
og voru nú ýmis hraðamet
slegin á götum sem ekki má
nefna. Ökutækið var sendi-
ferðabíll merktur Erl. Bland-
on & co, í eigu fyrirtækis föður
hans. Allt var þetta kol-
ólöglegt og ekki til eftir-
breytni og aftur í sat unglinga-
hópurinn er síðar varð að
vinahópnum góða, sem enn er
bundinn svo þéttum vinabönd-
um að ekki verður sundur slit-
ið. Vissulega hafa orðið breyt-
ingar á og nýir bæst í hópinn.
Sumar kærusturnar urðu að
eiginkonum en aðrar urðu
ekki svo heppnar. Svo tók að
fjölga í heiminum og föður-
skyldur kölluðu, en ávallt var
stutt í glens og gaman. Fátt
benti til annars en að gamli
góði vinahópurinn ætti fyrir
höndum að fylgjast að langt
fram á elliárin og dunda sér
við golf, skíði og annan óþarfa.
Það var því mikið reiðarslag
að heyra af sjúkdómi Bigga
snemma síðasta árs. Sjálfur
sannfærði hann okkur um að
þetta væri bara verkefni sem
þyrfti að sigla í gegnum og
virtist sjá þetta með augum
flugmannsins. Spenna beltin,
einungis væri um að ræða
tímabundna ókyrrð. Annað
átti því miður eftir að koma í
ljós og við tók erfiður tími,
sem þó átti eftir að færa
manni enn frekar heim sann-
inn um hve gífurlegan styrk
Birgir hafði að geyma. Var
stórkostlegt að sjá hve styrka
hönd hann hélt áfram að veita
börnum sínum, þrátt fyrir að
sjúkdómurinn minnti stöðugt
meira á sig.
Enn stórkostlegra var að
sjá ástina blómstra á milli
Bigga og Ingu, sem birtist inn
í líf hans nánast eins og engill
sendur af himnum ofan.
Elsku Inga. Það er örstutt
síðan við sátum öll og skröf-
uðum yfir pizzum, daginn sem
þið fluttuð saman í Klukku-
bergið, á meðan litlu dreng-
irnir hans Bigga vöppuðu
hamingjusamir um. Það var
auðséð að þeir hlökkuðu mikið
til þess að hreiðra um sig á
nýja heimilinu, sem var bók-
staflega baðað í ást.
Mér er líka hugsað til ykk-
ar, Bjarndís, Guðgeir og Ein-
ar Dagur. Þið munuð nú þurfa
að vaxa úr grasi án besta
pabba í heimi. Ég trúi því hins
vegar, að ef þið hlustið vel og
vandlega getið þið heyrt í hon-
um leiðbeina ykkur í framtíð-
inni. Kannski geta Heiða
mamma og Inga einnig frætt
ykkur um hvað hann hefði
sagt.
Ég vil þakka Birgi fyrir ára-
langa vináttu og bið Guð um
að taka vel á móti þessum
mæta manni.
Örn Þór Halldórsson.
Nú kveðjum við okkar besta
vin, Bigga. Hinn mikla keppn-
ismann og óvenju góðan
dreng. Það var aðeins fyrir
tæpu ári sem við fengum þau
válegu tíðindi að Biggi hefði
greinst með vágest sem allir
hræðast. Það setti beyg að
okkur vinunum enda fréttirn-
ar ekki góðar. Hins vegar hafa
fáir mætt slíku mótlæti af
meiri yfirvegun en naglinn
hann Biggi. Við veltum því oft
fyrir okkur hvort hann fyndi
ekki fyrir meiri beyg en hann
sýndi. Hann taldi okkur trú
um að hann liti á þetta sem
verkefni þótt leiðinlegt væri.
Þó var það þannig að í þessu
mótlæti upplifðum við sterkt
hliðar á Bigga sem seint verða
útmáðar. Kærleika, hlýju og
vinskap sem lifir með okkur
um alla daga.
Vinskapur okkar spannar
meira en 30 ár. Allan þennan
tíma hefur hann borið með sér
einkenni þess að vera drengur
góður. Ótrúlega mikill kappi í
öllu sem hann tók sér fyrir
hendi frá skellinöðrum til
flugs á stærstu ferlíkjum sem
fljúga heimshorna á milli, frá
skíðamennsku til fallhlífar-
stökks.
Þrátt fyrir keppnisskapið
bar hann með sér æðruleysi
og aldrei voru neinir árekstrar
eða leiðindi þegar Biggi var
annars vegar. Eftir á að
hyggja er þetta ótrúleg gæfa
að hafa kynnst manni sem var
bæði svona drífandi en jafn-
framt þægilegur og skemmti-
legur félagi í öllum okkar fjöl-
breyttu athöfnum og
ævintýrum.
Biggi gat ekki sætt sig við
að vera númer tvö í hraðamæl-
ingu á skíðum og ekki var far-
ið heim fyrr en fullreynt var.
Hann var eðlilega í Svarta
genginu, þeirra sem unnið
höfðu sig upp virðingarstig-
ann í ógleymanlegum ævin-
týraferðum vinahópsins. Þá
var hann ljúfur félagi þegar
við sofnuðum við lestur á
Njálssögu í litlu göngutjaldi á
Hornströndum. Biggi hafði
mikinn húmor og kom á óvart
sem óvenju skemmtilegur
penni í bloggskrifum sem
tengdust ferðum okkar. Hann
hafði sérstaklega gaman af
stríðni og voru textarnir tví-
ræðir. Margir féllu í gildrur
hans og endist það okkur æv-
ina að hlæja að þessu.
Biggi var sannarlega „besti
pabbi í heimi“. Hann var alltaf
að hugsa til barnanna og oft
heyrði maður hlýjuna og ást-
ina í samskiptum hans við
börnin sín.
Við erum sannfærðir um að
sú hlýja muni lifa dauðann og
verða lifandi með börnunum
áfram. Elsku Bjarndís, Guð-
geir og Einar. Við vottum ykk-
ur okkar innilegustu samúð.
Pabbi ykkar var sannarlega
góður vinur.
Það var erfitt að átta sig á
því hvort Biggi hafði trú enda
var hann ekki vanur að bera
vandræði sín á torg. Hins veg-
ar sagði hann að Ingu hefði
líklega verið engill sendur til
að vera með honum í mótlæt-
inu.
Það var í miðjum harmi
hughreystandi að sjá hve fal-
leg þau voru saman. Það
minnir mann á hve kærleikur-
inn í þessu lífi er í raun mikill.
Elsku Inga, takk fyrir að elska
Bigga svona fallega þegar
mest á reyndi. Það var okkur
mikilvægara en þig grunar og
við vottum þér samúð okkar
og þakklæti.
Í dauðanum felst ákveðin
þverstæða. Þú hefur aldrei
verið jafn ljóslifandi í hugum
okkar og nú. Þú verður ávallt
órjúfanlegur hluti hópsins.
Það er í miklum harmi sem við
kveðjum okkar góða vin. Megi
minning þín lifa, Biggi.
Pétur Þór Halldórsson,
Stefán Bragi Bjarnason,
Tómas Ottó Hansson.
Elsku Biggi. Það er erfitt að
trúa því að þú sért farinn. Þú
varst mikill gleðigjafi, hafðir
skoðun á öllum hlutum, stríð-
inn og hnyttinn sem gerði þig
svo einstakan. Við vorum ekki
gamlar þegar við fórum að
umgangast þig í gegnum
Svönu og Önnu Siggu. Við lit-
um því strax á þig sem stóra
bróður og eftir því sem við
urðum eldri var erfitt að út-
skýra þessu flóknu fjölskyldu-
tengsl. Minningarnar um þig
eru margar og hafðir þú ávallt
áhuga á því sem við tókum
okkur fyrir hendur. Komst að
horfa á Kollu í fegurðarsam-
keppni og gast rökrætt mikið
við Kötu um jafnrétti. Það sem
þú kunnir að gera var að njóta
lífsins og kenndir þú öðrum að
gera slíkt hið sama. Stoltastur
varstu af börnunum þínum
sem standa sig svo vel, missir
þeirra er mikill. Á erfiðum
tíma stóð við hlið þér yndisleg
manneskja, hún Inga, ham-
ingjan skein af ykkur hvert
sem þið fóruð.
Við minnumst þín með gleði
í hjarta, megi minning þín
verða ljós í myrkrinu.
Elsku Bjarndís, Guðgeir
Ingi, Einar Dagur og Inga, við
vottum ykkur okkar dýpstu
samúð sem og öðrum ástvin-
um.
Kolbrún Ýr og Katrín Sif.
Góður félagi, E. Birgir
Blandon, er fallinn frá allt of
snemma. Bigga kynntist ég
fyrir um 20 árum er ég var
flugkennari og flugmaður hjá
Flugtaki á Reykjavíkurflug-
velli en Biggi var flugstjóri hjá
Mýflugi. Leið okkar í fluginu
lá eftir sama slóða, fórum báð-
ir til Atlanta, svo Cargolux og
að síðustu til Flugleiða. Á ár-
um áður, þá sérstaklega hjá
Atlanta, dvöldum við lang-
dvölum erlendis og þá skipti
máli að hafa góða félaga með í
för. Biggi var heilsteyptur og
hress karakter sem ávallt var
skemmtilegt að eiga samveru-
stundir með. Ég minnist
Bigga líka fyrir ákveðni og
staðfestu og var ekki ónýtt að
hafa hann um borð þegar
fyrsta stjórn FFF, stéttar-
félags Atlantaflugmanna, var
mynduð.
Veikindum sínum tók Biggi
líka af ákveðni og staðfestu, og
uppgjöf kom ekki til greina í
þeim málaflokki. Hann mætti
sjálfur keyrandi nokkrum
dögum fyrir andlátið á kaffi-
hús til að hitta okkur félagana
vopnaður myndavél. Þá var
þriðja lyfjameðferðin að hefj-
ast og gat maður ekki annað
en dáðst að seiglunni og bar-
áttuviljanum. En Biggi gerði
sér grein fyrir því að brugðið
gæti til beggja vona þegar
hann mundaði myndavélina í
kaffisamsæti sem ekki á eftir
að líða okkur félögunum úr
minni. E. Birgi Blandon þakka
ég fyrir ánægjuleg kynni.
Ástvinum Bigga votta ég
mína dýpstu samúð og bið Guð
að styðja þá í sorginni.
Langur dagur liðinn,
ljósum hinstu kvöldskin slær -
aðeins eftirbiðin!
Aftanhúmið færist nær
þessu höfði að halla við
hvíldarvon og næturfrið.
(Stephan G. Stephansson)
Jón Reykjalín Björnsson.
Fallinn er frá góður dreng-
ur langt um aldur fram. Ég
kynntist Bigga Blandon fyrst í
skíðaferð til Ítalíu fyrir tæp-
um 10 árum, en hann er í vina-
hópi konu minnar. Þessar
skíðaferðir urðu síðan að ár-
legum viðburði, þar sem hóp-
urinn var misstór og fór jafn-
vel yfir 30 manns. Fyrst voru
þetta svokallaðar fullorðnis-
ferðir, þar sem skíðað var á
fullu á daginn og djammað á
kvöldin. Fyrir nokkrum árum
breyttust ferðirnar hins vegar
í fjölskylduferðir og þá voru
börn á öllum aldri tekin með.
Slíkar fjölskylduferðir urðu
alls þrjár. Man ég vel þá
fyrstu, en þá var Biggi með
son sinn Guðgeir og ég með
minn yngsta son, en þeir voru
þá báðir smápollar sem aldrei
höfðu staðið á skíðum. Í byrj-
un gekk þetta hálfbrösulega
hjá okkur, en í lok ferðarinnar
voru pollarnir farnir að fylgja
stoltir feðrum sínum út um all-
ar grundir. Ári seinna tók
Biggi yngsta son sinn Einar í
kennslu en ég hafði það náð-
ugra með son minn í fram-
haldskennslu. Biggi var fríður
sýnum, grannholda og kraft-
mikill keppnismaður. Hann
var alltaf til í allt sem krafðist
líkamlegrar áreynslu og fór
m.a. í fallhífarstökk rétt áður
en hann veiktist. Hann var
einnig hrókur alls fagnaðar í
ýmsum árlegum viðburðum
og uppákomum vinahópsins.
Hann tók t.d. hin árlegu jóla-
boð hópsins mjög föstum tök-
um, en þá tíðkaðist að klæða
sig eftir ákveðnu þema. Meðal
annars man ég eftir honum í
löggu- og hermannabúningi
að ógleymdum diskó-friskó-
búningnum í glæsilegu
fertugsafmæli eins úr hópnum
fyrir nokkrum árum.
Biggi greindist með
krabbamein í byrjun síðasta
árs, stuttu eftir enn eina frá-
bæra fjölskylduskíðaferðina
til Ítalíu með vinahópnum.
Það dró mjög fljótt af honum
og lést hann í blóma lífsins að-
eins 45 ára að aldri. Eftir lifir
minning um góðan dreng, sem
verður sárt saknað. Ég votta
fjölskyldu hans og ættmönn-
um samúð mína. Blessuð sé
minning Birgis Blandons.
Ragnar Birgisson.
Á lífsins göngu hittum við
marga félaga sem hafa mis-
mikil áhrif á okkur. Í okkar
starfi höfum við kynnst mörg-
um frábærum vinnufélögum
og einn þeirra er Birgir
Blandon sem við kveðjum í
dag. Magn er ekki sama og
gæði og þótt við höfum unnið
mismikið með honum varð
hann fljótt einn af uppáhalds-
starfsfélögum okkar allra.
Hann hafði einstaklega góða
nærveru og mikla útgeislun.
Sagt er að fegurðin komi
innan frá, sem er vissulega
rétt, en í hans tilfelli kom hún
ekki síður utan frá og skartaði
hann því þeirri góðu vöggu-
gjöf yst sem innst. Hann var
háttvís og hnyttinn, skilnings-
ríkur og skemmtilegur og
heyrðum við honum aldrei
hallmælt af neinum enda gaf
hann örugglega enga ástæðu
til þess.
Æviskeið hans varð ekki
langt en á leið sinni stráði
hann fræjum góðmennsku og
glæsileika í meira magni en
margur gerir á langri ævi. Við
sjáum að starfsfélagar hans í
stjórnklefanum nota oft orðið
„heiðursmaður“ þegar þeir
minnast hans. Við tökum und-
ir með þeim og heils hugar
finnst okkur að það orð eigi
ekki betur við neinn mann en
Birgi Blandon.
Við þökkum fyrir þá
ánægjulegu samleið sem við
áttum með þessum ágæta
heiðursmanni og vottum fjöl-
skyldu hans og vinum okkar
innilegustu samúð.
Skarð er fyrir skildi nú
er skilið við oss hefur þú
heillavinur sanni.
Ég tel mig alveg fullvissan
um að sjaldan skartar tilveran
slíkum heiðursmanni.
Við endurlit úr safni mínu
ég sé þig stýra fleyi þínu
um háa himingeima.
Minning þín með okkur lifir,
lýsir allt í kring og yfir
okkar hugarheima.
(Í. Dungal)
Kristinn Páll
Guðmundsson,
Níels Dungal
Guðmundsson,
Íris Dungal.
Í miðju sumarfríi síðastliðið
sumar hringdi í mig sam-
starfskona og bað mig að fara
fyrir sig næturflug til Kaup-
mannahafnar. Ég ætlaði ekki
að nenna, en lét þó tilleiðast.
Um nóttina átti ég erindi fram
í flugstjórnarklefann og kom
þá upp í huga mér, að það var
l. júlí.
„Strákar, nú eru nákvæm-
lega 42 ár síðan ég fór í mitt
fyrsta flug, næturflug til New
York.“ „Þetta er súrrealískt,“
sagði aðstoðarflugmaðurinn.
Við vorum frekar sein sam-
kvæmt áætlun og varð ég því
undrandi þegar flugstjórinn,
Birgir Blandon, hljóp inn í
flugstöðina.
Skömmu seinna er kallað á
mig. „Oddný, flugstjórinn þarf
að ræða við þig.“
„Æ, hvað nú? Ætli eitthvað
sé að?“ Nei. Það var ekkert að.
Birgir Blandon vildi heiðra
mig með gjöf á þessum merk-
isdegi og þakka mér fyrir
samstarfið.
Ég þekkti Birgi frá ungra
aldri. Fjölskyldur okkar
þekktust. Ég varð glöð þegar
hann hóf störf með okkur hjá
Icelandair. Ég minnist glaðra
samverustunda á Kúbu og
Ítalíu. Hann var góður félagi,
fær og góður flugmaður. Hans
er sárt saknað.
Biggi minn, ég þakka þér
fyrir samstarfið.
Sendi ungum börnum hans,
systkinum, Ingu ömmu, Írisi
og Erni einlægar samúðar-
kveðjur.
Oddný
Björgólfsdóttir.
Það er með miklu þakklæti
og söknuði sem okkur langar
til að minnast Bigga Blandon.
Árið 1990 hóf Mýflug hf.
áætlunarflug á milli Mývatns-
sveitar og Reykjavíkur og var
þá Biggi ráðinn til starfa og
ekki spillti það fyrir ráðning-
unni að hann hafði ættar-
tengsl við Voga í gegnum eig-
inkonu sína sem þá var. Hann
var því fyrsti flugmaður Mý-
flugs sem flaug áætlunarflug
fyrir félagið.
Hann sinnti því starfi af
miklum dugnaði og trú-
mennsku á TF-MYV, Piper
Chieftain-vél félagsins. Það
var ekki alltaf auðvelt að vera
eini flugmaðurinn, en á þess-
um tíma var það ekki komið í
reglur að tveir flugmenn
skyldu ávallt fljúga áætlunar-
eða leiguflug.
Ýmislegt kom upp á en okk-
ur er sérstaklega minnisstætt
eitt leiguflug sem Biggi flaug
og rifjuðum við það gjarnan
upp með honum í hvert skipti
sem við hittum hann og hlóg-
um dátt saman, en honum var
líklega ekki hlátur í hug á
meðan á flugferðinni stóð.
Biggi var síðan ráðinn sem
flugmaður hjá Icelandair, eins
og svo margir aðrir sem byrj-
að hafa að fljúga hjá okkur og
átti hann þar góðan starfsferil.
Einstök samkennd hefur
myndast á milli flugmanna
sem starfað hafa fyrir okkur
hjá Mýflugi í gegnum árin og
lýsti það sér best þegar við
héldum upp á 25 ára afmæli
félagsins síðastliðið vor. Þá
áttum við saman góðan dag á
Reykjahlíðarflugvelli sem
endaði með veislu í Vogafjósi,
fyrir starfsfólk Mýflugs fyrr
og nú og fjölskyldur þeirra.
Biggi og synir hans komu og
voru með okkur á þessum degi
og erum við óumræðilega
þakklát fyrir það.
Einnig erum við þakklát
fyrir þær stundir sem við átt-
um með honum og fjölskyldu
hans á nokkrum Gúmmí-
skóaættarmótum sem haldin
hafa verið hér í Vogum, ásamt
öllum öðrum stundum sem
okkur hlotnaðist að vera með
þeim.
Hvíl í friði, elsku Biggi,
minningin um þig mun lifa í
hjörtum okkar um ókomna tíð.
Fyrir hönd starfsmanna
Mýflugs vottum við börnunum
hans, þeim Bjarndísi Sjöfn,
Guðgeiri Inga og Einari Degi,
ásamt unnustu hans og öðrum
aðstandendum okkar dýpstu
samúð. Megi góður Guð
styrkja ykkur í sorginni.
Mýflug hf.,
Leifur og
Gunnhildur.