Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 29
sælgæti í okkar huga því sjald- an fengum við þessa ávexti á öðrum tíma árs. Minningar um hve gaman var og gott að koma til ykkar á Laugarásveginn, kúra í ykkar rúmi, fara í sund- laugina, strætóferðirnar og gönguferðirnar í Laugardalinn. Síðan eftir að afi dó og þú flutt- ir í Furugerðið, hvað þú tókst alltaf hlýlega á móti mér og mínum, aldrei var neitt mál að fá gistingu ef svo bar undir. Alltaf mundir þú eftir afmælinu mínu og hringdir í mig í tilefni þess. Eins eftir að strákarnir mínir fæddust, þá fengu þeir alltaf kveðju frá þér á afmæl- isdögum sínum. Öll sendibréfin og síðar símtölin sem við höfum átt í gegnum tíðina eru mér dýrmæt, þú varst alltaf að fylgj- ast með fólkinu þínu fyrir aust- an. Eftir að ég flutti á Suður- landið og þú á Litlu-Grund var alltaf ljúft að koma til þín og spjalla, og þótti litlu prinsess- unni minni líka gott að koma og knúsa langömmu og fá súkku- laðimola í munninn. Ekki held ég að það sé hægt að óska sér betri ömmu en þín, öll þau lífs- gildi sem þú kenndir mér og ég hef reynt að hafa í huga í gegn- um tíðina eru mér mikils virði. Hlýja þín og alúð hefur umvafið mig og fjölskyldu mína alla tíð. Setningin sem ég heyrði alltaf þegar ég kom: „Nei, er þetta ekki hún Anna Heiða,“ og svo tókstu um kinnar mér með hlýju höndunum þínum og smelltir kossi á vanga minn, er sem greypt í huga minn núna þegar þú hefur kvatt þennan heim. Guð geymi þig, elsku amma mín, knúsaðu afa og litlu engl- ana mína frá mér, við hittumst svo aftur seinna. Hvíl í friði. Þín Anna Aðalheiður Arnardóttir. Mig langar að minnast Krist- jönu frænku minnar með nokkrum orðum. Kitty, eins og hún var jafnan kölluð af vinum og ættingjum, var dóttir Maríu móðursystur minnar. Maríu tókst með einskærum dugnaði að koma báðum börnum sínum til manns eins og það var kallað í þá daga. Kitty lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík með láði enda var hún afburða- nemandi. Fáum árum seinna flytur fjölskyldan til Reykjavík- ur og Kitty hefur störf í Út- vegsbankanum og Þorvaldur bróðir hennar sem var tveimur árum eldri en hún las lögfræði við Háskólann. Þorvaldi reynd- ist hún sterkur bakhjarl þegar hún las námsbækurnar upphátt fyrir hann, en hann þjáðist af höfuðkvölum sem gerðu honum erfitt fyrir að lesa námsbæk- urnar. Í mínum augum var Kitty engin venjuleg kona. Hún var frænkan sem ég óskaði mér að líkjast þegar ég yrði stór og milli okkar ríkti einstakur vin- skapur alla tíð. Þegar Kitty giftist tók hún að sér tvö móð- urlaus stjúpbörn, Örn og Ro- semarie, og saman eignuðust þau önnur fjögur. Nú var ég orðin stóra frænka sem kom í heimsókn, en hjá þeim hjón- unum átti ég ávallt skjól þegar ég var ung að feta mig áfram í höfuðborginni fjarri fjölskyld- unni. Kitty veiktist af berklum þegar yngsta barnið var í vöggu og þurfti að dvelja á Vífilsstöð- um í rúmt ár. Hún gekkst undir mikla skurðaðgerð þar sem hluti annars lunga var fjarlægð- ur og eins og að líkum lætur hefur það tekið unga móður sárt að dvelja svo lengi fjarri heimili sínu og börnum, en heimsóknir til Vífilsstaða voru miklum takmörkum háðar. Seinna dvöldu þrjú elstu börnin hennar á heimili foreldra minna tímabundið á sumrin. Ég fékk að taka Maríu, þá aðeins 5 ára, með mér vestur í Önundarfjörð og er mér sú ferð mjög min- isstæð. Það var mikið traust sem þau hjón sýndu mér og okkur öllum í Holti að veita okkur hlutdeild í umönnun barnanna sinna. Eftir að við Kitty vorum báð- ar orðnar ekkjur, áttum við margar góðar stundir saman. Við áttum mörg sameiginleg áhugamál og höfðum gaman af ferðalögum. Við heimsóttum Austurríki saman. Það var gam- an að fara með Kitty á tónleika, hún var mjög vel að sér í heimi tónlistarinnar, hafði fallega söngrödd og spilaði á píanó. Eftirminnilegasta ferðin er þó ferð okkar systranna og Kittyj- ar en Kitty var í raun elsta stelpan í hópnum. Hún var ein af okkur. Við flugum til Lúx- emborgar. Við ókum um Evr- ópu og hver dagur var ævintýri. Alltaf var stutt í glensið og hlegið ef bílstjórarnir tóku ranga stefnu og rétta leiðin fundin. Í Safnaðarheimili Áskirkju sóttum við Guðrún systir ásamt Kitty o.fl. fræðslu um Biblíuna. Þessi fræðsla opnaði mér nýja sýn og er ég frænku minni þakklát fyrir samveruna í þeim félagsskap. Á seinni árum heim- sótti ég Kitty í Furugerðið, við röltum um Fossvogsdalinn eða sátum í stofunni hennar og spjölluðum um gamla tíma. Fyrir hönd okkar allra systk- inanna eru henni nú færðar hjartans þakkir. Ég kveð hana að sinni. Far þú í friði, kæra frænka, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Ástvinum hennar votta ég mína dýpstu samúð. Sigríður Jónsdóttir. Föðursystir mín, Kristjana Kristjánsdóttir, er látin. Hún hefði orðið 90 ára þann 14. mars næstkomandi. Þau voru tvö systkinin frá Kirkjubóli í Valþjófsdal við Ön- undarfjörð. Hún var litla systir hans pabba. Það markaði djúp spor í líf systkinanna að missa föður sinn ung að aldri, Kitty var aðeins kornabarn. Þau systkinin voru afar sam- rýmd og kært á milli þeirra alla tíð. Pabbi átti við veikindi að stríða þegar hann nam lögfræði við Háskóla Íslands og átti erf- itt með að lesa, Kitty las þá bara upphátt fyrir hann náms- bækurnar til þess að hann gæti sinnt náminu og tekið próf. Á yngi árum sóttu þau saman skemmtanir, þau voru alla tíð miklir vinir og félagar. Þegar maður hlustaði á Kitty og pabba spjalla saman var um- ræðan oftar en ekki um gömlu dagana, æskuárin á Flateyri, ættingja og vini þaðan. Hún fylgdist vel með fjöl- skyldunni og skipti varla máli hvort það voru hennar eigin börn og barnabörn eða aðrir fjarskyldari ættingjar, hún vissi alltaf hvað hver var að gera og hvernig gekk. Ég og mín börn vorum þar ekki undanskilin. Hún samgladdist mér í vel- gengni og gleði en veitti styrk og samkennd þegar á reyndi. Ávallt stakk hún nammipoka eða súkkulaðistykki að Þorvaldi Garðari yngri þegar þau hitt- ust, sem var nokkuð oft síðari árin í sunnudagsmat í Einars- nesinu hjá foreldrum mínum. Ekki fannst Kitty tiltökumál að spila undir þegar Þorvaldur Garðar yngri var skírður fyrir rúmum 15 árum, þó þá væru liðin fjöldamörg ár síðan hún spilaði á orgelið í kirkjunni á Flateyri. Ég, Heimir, Þorvaldur Garð- ar, Freyr og Beta litla minn- umst frænku með hlýhug og væntumþykju. Hugur okkar er hjá börnum hennar, tengda- börnum og barnabörnum. Elísabet I. Þorvaldsdóttir. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 ✝ Bára Mar-sveinsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 13. júní 1931. Hún lést á Landspítalanum 13. febrúar 2011. Foreldrar hennar voru Marsveinn Jónsson, f. 25. okt. 1897 í Ranakoti á Stokkseyri, d. 8. mars 1984, og Sól- veig Guðsteinsdóttir, f. 15. des. 1905 í Kringlu í Gríms- nesi, d. 12. apríl 1988. Systkini Báru voru: Haukur Mar- sveinsson, f. 7. júní 1925, d. 1995, Valgerður Marsveins- dóttir, f. 7. nóv. 1926, d. 2004, Bragi Marsveinsson, f. 11. feb. 1929, d. 1990, Guðrún Mar- sveinsdóttir, f. 6. feb. 1930, d. 1988, Rúna Marsveinsdóttir, f. 2. ágúst 1938. Bára var fjórða í röðinni af systkinahópnum. Bára var gift Lúðvík Guð- mundssyni, f. 13. mars 1925 á Skjaldvararfossi, Barða- strandasýslu, d. 3. júlí 1977. Börn Báru eru: Sólveig Magn- úsdóttir, hún er gift Erlingi Sig- urðsyni, saman eiga þau tvö börn og fjögur barna- börn. Birna Lúð- víksdóttir, var gift Kristjáni Guðna- syni, saman eiga þau eina dóttur. Marsveinn Lúð- víksson, á tvær fósturdætur í Búlgaríu. Erna Lúðvíksdóttir, sem á tvö börn og eitt barna- barn úr fyrra hjónabandi með Viktori Sigurðssyni og eitt barn með núverandi eig- inmanni sínum, Einari Jóns- syni. Erla Lúðvíksdóttir er gift Kristjáni Magnússyni og saman eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn en fyrir átti Erla eina dóttur sem Bára reyndist einstaklega vel. Útför Báru fer fram frá Frí- kirkju Hafnarfjarðar í dag, 21. febrúar 2011, og hefst athöfn- in kl. 15. Mig langar í nokkrum orðum að minnast tengdamóður minnar sem lést 13. febrúar síðastliðinn. Kynni okkar hófust er við Sólveig fórum að vera saman eins og kall- að er fyrir 38 árum. Allan þann tíma hefur Bára verið mér einkar góð. Bára var gift Lúðvík Guð- mundssyni sem lést langt um ald- ur fram árið 1977. Það voru þung spor að koma úr Krísuvíkurrétt- um þar sem Lúðvík lést og hitta á Báru heima nýbúna að frétta af andláti eiginmannsins. Þeim fréttum tók hún af festu og æðru- leysi og hélt sínu lífi áfram með fimm börn og stórt heimili, en leysti það af dugnaði sem ein- kennir hennar kynslóð. Í gegnum árin hefur fjölskyldan haft einn samastað og hist á sunnudögum þar sem allir koma saman í kaffi og kökur. Fyrstu árin var það hjá foreldrum Báru, þeim Sólveigu og Marsveini á Álfaskeiðinu. Þar var oft fjölmennt þegar öll stórfjöl- skyldan kom saman. Eftir lát þeirra hittist okkar leggur hjá Báru og þar var líka oft fjölmennt enda barnabörnin og barnabarna- börnin farin að koma. Þau hænd- ust öll að ömmu Báru sem oftar en ekki hafði búið eitthvað skemmti- legt til í höndunum sem gaman var að leika með á stofugólfinu. Ófáar eru þær tær og puttar sem hafa notið góðs af prjónaskap Báru um dagana og það er ekki nema um hálfur mánuður síðan hún var að segja við mig hvað henni fyndist gaman að flest barnabörnin væru farin að stunda prjóna- og saumaskap eins og hún hafði gert. Bára var mikil barna- kerling og fannst gaman að öllum barnabörnunum og ófá eru skipt- in sem hún minntist á sínar með- göngur og þegar hún vissi að hún gekk með tvíburana en læknarnir sögðu bara eitt barn. Þá vissi hún betur. Nú er Bára öll og hópurinn okkar hefur misst góðan förunaut sem naut virðingar allra sem hana þekktu. Mest umskipti verða þó líklega hjá Marsveini syni hennar sem hefur búið heima hjá móður sinni allan tímann og stutt hana í þeim veikindum sem hún hefur átt við að stríða undanfarin ár, þar hafa Erna, Lovísa og Birna einnig gert allt sem þær gátu til að létta undir með henni. Við biðjum góð- an Guð að gefa Báru ljós og frið og þökkum fyrir allar stundirnar á liðnum árum. Erling. Elsku amma okkar er farin. Þótt við værum búin að búast við þessum degi í nokkurn tíma þá kom síðasti sunnudagur okkur mjög á óvart. Ekki datt okkur í hug, þegar farið var með hana upp á spítala, að hennar tími væri kominn. En það er nú gott að hún kvaldist ekki meira. Amma okkar var algjört æði, prjónar, kaffi og sígó er það fyrsta sem manni dettur í hug. Við erum óendanlega þakklát fyrir allar húfurnar, sokkana og barnafötin sem við eigum eftir hana. Það var hefð að hittast hjá ömmu á sunnudögum, þar var mikið hlegið, borðað, prjónað og borðað svo aðeins meira. Við eig- um eftir að sakna þess að koma til þín elsku amma okkar. Við kveðjum þig, elsku amma Bára, og þökkum þér fyrir allt. Við eigum eftir að sakna þín og sunnudagarnir verða aldrei aftur eins. Bára Hlín og Svava Huld. Elsku amma mín, nú er kallið þitt komið. Þó að það hafi verið óskaplega sárt að horfa á þig fara veit ég að þú hefur fengið hvíldina sem þú þráðir. Ég hugga mig við það að afi og aðrir ástvinir taki á móti þér opnum örmum. Stund- irnar sem við áttum saman eru mér ómetanlegar, allir sunnudag- arnir standa mér ofarlega í huga þar sem við fjölskyldan hittumst heima hjá þér og áttum góðar stundir saman. Sunnudagarnir verða tómlegir án þín en þessa hefð erum við ákveðin í að halda í og munum við áfram hittast á sunnudögum. Þú varst svo flink í höndunum og þau voru ófá skiptin sem ég kom til þín og fékk ömmu- sokka og -vettlinga, ömmuprjón var alltaf best. Þú varst dugleg að láta mig vita að þú værir stolt af mér og sýndir áhugamálum mín- um alltaf mikinn áhuga og þá sér- staklega handavinnunni minni og það þótti mér vænt um. Ég er svo þakklát fyrir tímann sem ég átti með þér og mun ég ávallt minnast þín með gleði í hjarta. Hinsti bjarmi dagsins dvín, dimman foldu vefur. Ástarfaðir, upp til þín önd vor glöð sig hefur. Send oss vernd, af himni hljótt, helgra máttarvalda. Láttu engla nú í nótt náttvörð um oss halda. (Vald. V. Snævarr) Ég kveð þig að lokum með orð- unum sem þú kvaddir okkur alltaf með: Guð blessi þig, elsku amma mín. Kristíana Kristjánsdóttir (Nana). Systir og mágkona hefur kvatt. Bára Marsveins var fjórða barn hjónanna Marsveins og Sólveigar sem lengst af bjuggu á Álfaskeiði 28 í Hafnarfirði. Systkinin voru sjö en sex þeirra eru nú látin. Það var ómetanlegt fyrir okkur yngstu hjónin í Marsveinsfjöl- skyldunni að eiga þá eldri að. Gott að geta heimsótt ættingja, sníkt kaffi og þegið góð ráð. Samveru- stundir okkar voru í meira lagi góðar því Lúðvík, maður Báru, var einstaklega hress og fljótur að svara fyrir sig. Á þessum árum vann Lúlli hjá prentsmiðjunni Hilmi sem varð til þess að við fór- um oft heim með vikublaðið Vik- una sem var gríðarlega vinsælt á þessum árum. Það kom sér vel fyrir afkomu okkar þegar við heimilisfeðurnir tókum upp á því að fara að setja upp loftnet sem næðu sjónvarpsútsendingum frá Keflavík, góð búbót fyrir heimilis- reksturinn og gaf fjölskyldunum margar samverustundir en Lúlli var verkmaður góður. Lúlli lést aðeins fimmtíu og eins árs, Það þarf kjark og dugnað til að vera ekkja rúmlega 40 ára með 5 börn á framfæri, en með seiglunni tókst það með miklum ágætum. Þó heilsa Báru hafi ekki verið upp á það allra besta síðustu árin var hún heppin að geta búið á eigin heimili allt til enda, nær áttræðu. Ég, mágurinn, met mikils að hafa heimsótt hana á stuttri spítalavist hennar og séð hve jákvæð hún var og ótrúlega minnug á ýmsa at- burði sem við áttum sameiginlega á lífsleiðinni; skemmtilegt setu- stofuspjall. Við þökkum Báru samfylgd í lífinu og sendum fjöl- skyldu hennar samúðarkveðjur. Geirrún (Rúna) og Gunnar. Bára Marsveinsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Bára. Þegar ég hugsa til baka um stundirnar sem við áttum saman þá get ég ekki annað en glaðst. Ég gat ávallt treyst á að þú tækir vel á móti mér. Við gátum alltaf fundið okkur eitthvað til að dunda okkur við og einn- ig var alltaf jafn notalegt að kíkja til þín í sunnu- dagskaffið þar sem fjöl- skyldan kom saman og átti góða stund. Þín verður sárt saknað á mínum bæ. Mér þykir mjög vænt um hversu vel þú tókst á móti unn- ustu minni og hversu góð langamma þú varst. Við munum ávallt sakna þín því þú skipaðir stór- an sess í lífi mínu og minnar fjölskyldu. Nú ert þú komin á betri stað. Lúðvík, Eva Dögg og María Björg. ✝ Hilmar S.R.Karlsson fædd- ist í Reykjavík 19. maí 1929. Hann andaðist á Land- spítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 13. febrúar 2011. Foreldrar hans voru Karl Stefán Daníelsson prent- ari, f. 8. apríl 1902, d. 21. des. 1951 og Þuríður Jón- asdóttir húsmóðir, f. 18. mars 1901, d. 4. nóvember 1994. Systkini Hilmars eru Birna Guð- rún, f. 1926, dó í frumbernsku, Hera, f. 26.6. 1927. Sammæðra eru Guðrún, f. 18.2. 1938, Svan- ur, f. 28.9. 1939, d 8.2. 1959. Samfeðra eru Sigríður, f. 28.4. 1929, Daníel, f. 1.10. 1934, Jón- ína, f. 13.6. 1940, Hulda, f. 4.12. 1940, Ólafur, f. 29.10. 1942, Björn, f. 4.3. 1944 og Ólafía, f. 25.4. 1945. Hilmar giftist hinn 5. júlí 1958 Halldóru Jónsdóttur, f. 18. júní 1937, d. 1. júlí 2003. For- eldrar hennar voru Jón Sigurðs- son rakari, f. 9.3. 1913, d. 26.6. 1977 og Guðrún Einarsdóttir húsmóðir, f. 3.10. 1913, d 17.11. 1980 hársnyrtir og förðunarfr. maki Gunnar Hafliðason raf- virki og barn þeirra er Jón Andri, f. 2.12. 2004. Theodór, f. 12.6. 1983 tæknifræðingur, sam- býliskona Inga Rán Gunn- arsdóttir sjúkraþjálfari. Elín nemi, f. 27.3. 1992. 2) Guðrún, vistmaður á Skálatúnsheimilinu, f. 3.12. 1959. 3) Reynir Halldór sjómaður, f. 21.7. 1961, d. 11.9. 2003. Börn hans eru: Jóney Rún læknir, f. 3.12. 1981. Karen nemi, f. 10.6. 1984, og Anna Jóna nemi, f. 12.7. 1991. 4) Berg- lind förðunarfræðingur, f. 11.2. 1967, maki Unnsteinn Ólafsson málari, f. 7.7. 1966, barn þeirra er Arna Björk nemi, f. 14.1. 1994. 5) Svanur Pálmar fram- kvæmdastjóri, f. 30.3. 1997, börn hans eru; Aníta Lísa nemi, f. 23.11. 1989, Hilmar Rafn nemi, f. 4.5. 1996, Kristófer Ar- on, f. 23.10. 2002 og Alexander Ísak, f. 26.6. 2008. Hilmar stund- aði sjómennsku á yngri árum. Stofnaði Ál- og stáltækni verk- takafyrirtæki við Álverið í Straumsvík og starfaði sem leigubílstjóri síðustu starfsárin. Hilmar og Halldóra bjuggu lengst af í Breiðholtinu og á Álftanesi. Síðustu árin bjó Hilm- ar á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Hilmars verður gerð frá Fríkirkunni í Reykjavík í dag, mánudaginn 21. febrúar 2011, og hefst athöfnin klukkan 15. 1984. Hilmar og Halldóra eignuðust fimm börn. Fyrir átti Hilmar Dag- björtu Bergmann skrifstm. f. 14.12. 1947, maki Hjálmar Þ. Diego við- skiptastjóri, f. 2.8. 1943. Börn þeirra eru: Bjarki lögfr., f. 19.3. 1968, maki Svanhvít B. Hrólfs- dóttir viðskiptafr, börn þeirra eru: Davíð Jóhann, f. 14.11. 2001, Andri Sæberg, f. 12.5. 2003 og Birkir, f. 4.4. 2005. Þor- kell yfirkennari, f. 5.1. 1971, maki Sigríður J. Sigurðardóttir hjúkrunarfr. Börn þeirra eru: Þórunn, f. 25.3. 1998, Hjálmar Tumi, f. 10.1. 2002 og Hulda María, f. 12.4. 2006. Dagbjört Ágústa viðskiptafr., f. 19.8. 1979, sambýlismaður Snorri Thors. Börn hennar eru: Máni Freyr, f. 29.11. 2003 og Saga Steindóra, f. 14.4. 2007. Börn Halldóru og Hilmars eru: 1) Jón húsgagnasmiður, f. 28.12. 1956, maki Guðrún Helga Theodórs- dóttir verslunarstj., f. 7.5. 1958. Börn þeirra eru: Halldóra, f. 1.7. Afi minn, Hilmar, var besta sál, Göldróttur, töfrandi og ægiklár! Allt gat hann skapað, svo einfalt var það, ekkert er ómögulegt, hann kátur kvað. En svo brestur hjartað, og fram spretta tár, og endalokin koma, svo óend- anlega sár. (ABU) Aftur ég kveð, en óska mér afa faðmlags. Elsku afi minn, hvíldu í friði. Þín verður sárt saknað. Knúsaðu nú hana ömmu mína frá mér. Þín afastelpa, Arna Björk Unnsteinsdóttir. Hilmar S.R. Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.