Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
✝ Lárus Hall-dórsson fæddist
á Selvöllum í Helga-
fellssveit 10. októ-
ber 1920. Hann lést
á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 15. febrúar
2011.
Foreldrar Lár-
usar voru Halldór
Þórarinn Sveinsson,
f. á Hraunhálsi í
Helgafellssveit 24.2. 1879, d. 1.4.
1946 og Kristín Sigurlín Hafliða-
dóttir, f. á Kljá í Helgafellssveit
31.7. 1883, d. 9.9. 1960. Systkini
Lárusar sammæðra voru Kári
Gíslason, f. 1905, d. 1992, Hafliði
Jón Gíslason, f. 1906, d. 1993,
Guðrún Gísladóttir, f. 1908, d.
1942, Sæmundur Gíslason, f.
1909, d. 1930, Árni Gíslason, f.
1911, d. 1972, Björn Gíslason, f.
1912, d. 1980, og Gíslína Kristín
Gísladóttir, f. 1914, d. 1994.
Lárus kvæntist 15. september
Norðurlöndum 1949. Hann þjón-
aði í Flatey á Breiðafirði með
aukaþjónustu á Brjánslæk frá
1945-1955. Árið 1955 nam Lárus
sálgæslustörf í sjúkrahúsum í
Noregi og Danmörku. Hann var
ráðinn farprestur þjóðkirkj-
unnar árið 1957 og starfaði hann
m.a. á Húsavík og Selfossi, ásamt
því að sinna ýmsum öðrum störf-
um fyrir kirkjuna. Einnig sáu
Lárus og Nanna um sumarbúðir
þjóðkirkjunnar á Kleppjárns-
reykjum og Löngumýri nokkur
sumur. Samhliða prestsstörfum
sinnti Lárus einnig kennslu um
árabil. Sr. Lárus var fyrsti prest-
ur í Breiðholtshverfum Reykja-
víkur og þjónaði þar frá 1972-
1986. Eftir að Lárus lét af störf-
um sem sóknarprestur leysti
hann af sem prestur víða um
land, m.a. á Akureyri, Bolung-
arvík og Seyðisfirði. Rit eftir
Lárus eru Ljós á vegi og Jólin,
ritröð sem kom út á nokkurra
ára tímabili.
Útför Lárusar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag, 21. febrúar
2011, og hefst athöfnin kl. 15.
1945 Þórdísi Nönnu
Nikulásdóttur, f.
14.5. 1922, d. 27.1.
2006. Foreldrar
Nönnu voru María
Þórðardóttir, f.
13.2. 1899, d. 18.9.
1978, og Nikulás
Jónsson, f. 18.9.
1892, d. 8.10. 1930.
Börn Nönnu og Lár-
usar eru: Anna
María, f. 19.3. 1946,
hún á þrjú börn, María Kristín, f.
14.3. 1948, maki Birgir Sím-
onarson. Þau eiga þrjú börn og
tvö barnabörn. Sigríður, f. 22.1.
1950, maki Stig Henriksen er lést
2003. Þau eiga eitt barn og tvö
barnabörn. Halldór Nikulás, f.
7.8. 1954, maki Árný Jóhanns-
dóttir, þau eiga eitt barn og fimm
barnabörn.
Lárus varð stúdent í Reykja-
vík 1941 og lauk cand. theol-prófi
frá Háskóla Íslands 1945. Hann
kynnti sér sjómannatrúboð á
Aðeins örfá kveðjuorð frá okk-
ur krökkunum, pabbi. Þú kenndir
okkur svo margt í lífinu. Þú
kenndir okkur að tala rétta og
góða íslensku. Þú kenndir okkur
að lesa. Þú kenndir okkur að
skrifa. Þú kenndir okkur að
hlusta. Þú kenndir okkur að gleðj-
ast yfir litlu jafnt sem miklu. Þú
kenndir okkur að það er í lagi að
gráta. Þú kenndir okkur hvað föð-
urkærleikur er. Þú kenndir okkur
að reima skóna okkar. Þú kenndir
okkur að veiða hornsíli. Þú kennd-
ir okkur að þræða maðk á öngul.
Þú kenndir okkur að spila á spil.
Þú kenndir okkur að tefla skák.
Þú kenndir okkur að hjóla. Þú
kenndir okkur að skauta. Þú
kenndir okkur að súrt slátur væri
herramannsmatur. Þú kenndir
okkur að þekkja, meta og elska
landið okkar. Þú kenndir okkur
jarðfræði Íslands. Þú kenndir
okkur ljóð. Þú kenndir okkur sög-
ur. Þú kenndir okkur að syngja.
Þú kenndir okkur að virða og
elska alla menn. Þú kenndir okk-
ur að fyrirgefa. Þú kenndir okkur
að gefa fremur en þiggja. Þú
kenndir okkur hvað vinátta er. Þú
kenndir okkur að elska Guð. Þú
kenndir okkur svo margt margt
annað, í reynd allt það góða sem
við kunnum.
Nú ertu farinn héðan til fundar
við elskuna þína, hinn kennarann
okkar í lífinu og saman fáið þið að
njóta nærveru Jesú Krists, sem
þið elskið.
En þið voruð ekki aðeins kenn-
arar okkar, þið voruð þeir bestu
foreldrar sem hægt er að hugsa
sér … en þú kenndir okkur nú
líka að hverjum þyki sinn fugl fag-
ur. Við elskum þig og söknum, þú
varst góður pabbi.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Anna María, María
Kristín, Sigríður og
Halldór Nikulás.
Ekki get ég hugsað mér betri
tengdaföður en hann Lárus.
Hann og Nanna, konan hans
heitin, reyndust mér alltaf vel.
Enda fengu þau oft að heyra frá
mér að þau væru bestu tengdafor-
eldrar í heimi og það voru þau.
Nú eru þau bæði horfin, okkar
er missirinn, en þau eru búin að
hittast þar sem engin sorg né
dauði ríkir og ég veit að gleði
þeirra er fullkomin að vera saman
á himnum með Guði og frelsara
sínum Jesú.
Lárus var maður í miklum met-
um og sem prestur. Ósjaldan hitti
ég fólk á öllum aldri sem segir
mér með miklu stolti hversu ynd-
islegur hann sé og hann hafi gift
þau, skírt eða fermt á sínum tíma.
Hann var óskaplega fróður um
alla hluti. Reyndar hafsjór af fróð-
leik. Vissi eiginlega bara allt! Ég
sagði oft að hann ætti að melda
sig í spurningaþáttinn „Viltu
vinna milljón“. Ég var sannfærð
um að hann færi heim með millj-
ónina. Reyndar sátum við stund-
um hjónin með þeim hjónum og
horfðum á þáttinn og í flestum til-
vikum vissi hann svörin.
Lárus þjónaði Guði og hans
kirkju með mikilli gleði, visku og
fúsleik. Það var gaman að hlusta á
predikanir hans. Hann lagði mik-
ið í það að gefa fólki af brauði lífs-
ins af visku og á máli sem maður
skildi. Ég á eftir að sakna hans
eins og ég hef saknað Nönnu. Nú
eru þau bæði farin og það er eitt-
hvað svo endanlegt núna þegar
Lárus er farinn líka.
Það er auðvelt að fá tár í augun
við minningarnar um það þegar
við sátum við útvarpstækið hjá
þeim á jólum, hlustuðum á jóla-
guðspjallið og þau rödduðu svo
fallega undir sálmana sem fluttir
voru. Það voru yndislegar stundir
og ég þakka fyrir þær og allar hin-
ar sem við áttum saman.
Já, minningar og myndir eig-
um við, jafnvel vídeóspólur til að
horfa á til að minnast þeirra. Það
er mér dýrmætur fjársjóður.
Blessuð er minning þín, elsku
tengdapabbi.
Árný Björg Jóhannsdóttir.
Þegar sr. Lárus Halldórsson er
kvaddur fylgir þar mikil virðing
okkar náinna samstarfsmanna
hans og vina. Hann átti merkan
starfsferil þar sem hann kom víða
við. Það reyndi stundum mikið á,
honum var oft fært mikið í fang.
Hann var sannur merkisberi trú-
arinnar, talaði um frelsarann sem
náinn vin. Átti þá trú sem varir til
eilífs lífs, það sem gott er að
þekkja á kveðjustundum.
Leiðir okkar lágu fljótt saman.
Hann var vinur foreldra minna,
baráttufélagi föður míns. Þá vin-
áttu erfði ég ungur skólastrákur,
lærði að meta sr. Lárus. Á há-
skólaárum mínum varð samstarf
okkar mikið eins og æ síðan. Við
unnum að sumarbúðamálum
Þjóðkirkjunnar, þar sem starf var
gróskumikið víða um land. Um
nær tveggja ára skeið höfðum við
tveir með hendi hálfsmánaðarlega
þætti í útvarpi um kirkjuna að
starfi. Í því nána samstarfi fann
ég vel, hversu snjall Lárus gat
verið, var víða vel heima og vel
lesinn. Það var gott að starfa með
honum og eiga hann að vini.
Hann hafði óvenjulega fjöl-
breytta reynslu sem prestur.
Þjónusta hans varð víða, einkum
þegar hann þjónaði sem farprest-
ur. Það var sama hvar á landinu
tal barst að, hann var alls staðar
kunnugur. Og að baki öllu skein í
gegn brennandi áhugi hans fyrir
starfinu. Honum var lifandi trú
mikil lífshugsjón, nokkuð sem
hann vildi öllu fyrir fórna. Mest
reyndi á það, þegar hann var kall-
aður til að verða fyrsti presturinn
í Beiðholtshverfi og þar með
frumherji kirkjustarfs í þeirri
miklu byggð. Þegar ég kom þang-
að til starfa og varð prestur í
Breiðholtinu, sá þriðji, var þar
vinum að mæta með sr. Lárusi og
sr. Hreini, sem nú eru báðir látn-
ir. Það var okkur öllum mikil gæfa
að mega vinna svo náið saman
sem við gerðum. Þar var sr. Lárus
elstur og hafði rutt brautina,
áhugasamur, hlýr og hugmynda-
ríkur. Það var líka oft gaman og
líflegt og þar lagði hún Nanna
konan hans oft mikið til.
Ákaflega margt og víðtækt
blasir við, þegar hugsað er til lífs-
starfs sr. Lárusar Halldórssonar.
Um það hugsum við sem vorum
samstarfsmenn hans, og metum
þær minningar mikils. Hjá mér
ber þó hæst þakklætið fyrir góðan
vin, sem gott var að tala við, eiga
hugsjónir með. Þær hugsjónir
sem mestar eru, um verk frels-
arans Jesú Krists hér á jörðu, það
sem við fengum að vinna saman
að. Við þær hugsanir er gott að
þekkja orðin um upprisu og eilíft
líf. Guð blessi minningu heiðurs-
manns og hetju.
Valgeir Ástráðsson.
Lárus Halldórsson
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Hestamannafélagið
Gustur
Aðalfundarboð
Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins
Gusts mánudaginn 28. febrúar 2011 kl. 20.00,
fyrir árið 2010. Fundurinn verður haldinn í sal
félagsins í Glaðheimum.
Félagslíf
HEKLA 6011022119 IV/V H&V
GIMLI 6011022119 I° EDDA 6011022119 Heims.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Antikklukkur og viðgerðir
Sérhæfð viðgerðarþjónusta á
gömlum klukkum og úrum.
Guðmundur Hermannsson úrsmíða-
meistari, ur@ur.is, s. 554 7770 -
691 8327.
Dýrahald
Labrador Retriever svartir
Erum orðnir 6 mánaða og húsvanir.
Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir.
Örmerktir. Nótt á kr. 190 þús. og
Mökkur og Nóri á kr. 160 þús.
Uppl. í síma 695 9597 og 482 4010.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s. 897- 5300.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Tölvur
Tölvuviðgerðir
Tölvuviðgerðir, vírushreinsun, gagna-
björgun, kem í heimahús, sæki og
sendi. Tuttugu ára reynsla af tölvum
og netbúnaði. 20% afsláttur FEB &
ÖBÍ. Stefán, sími 821 6839.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf., Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Þjónusta
ERFÐASKRÁR
Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara-
nemi í lögfræði, tek að mér
samningu erfðaskráa, þannig að
öllum lagaskilyrðum sé fullnægt.
Hóflegt verð — persónuleg
þjónusta. Sími: 696 8442,
netfang: hth56@hi.is
Ýmislegt
Stóll til leigu á 101 Hárhönnun,
Skólavörðustíg 8, sími 551 3130.
Ódýr gæðablekhylki og tonerar
í prentarann þinn. Öll blekhylki
framleidd af ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517 0150
Náttföt - Sloppar
Náttkjólar - Undirkjólar
Sundföt - Nærföt
Vönduð vara - Gott verð
Tegund A991
Tegund A992
Tegund 389
Tegund 917
Tegund 407
Sandalar og inniskór fyrir dömur
í úrvali. Úr leðri og skinnfóðraðir.
Góðir sólar. Stærðir: 36 - 42
Verð: 10.900,- og 11.870,-
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18,
laugardaga 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
40% afsláttur af
sölulaunum
Planið bílasala
www.planid.is
517-0000
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Öruggur í vetraraksturinn.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Húsviðhald
Glerjun og gluggaviðgerðir
Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum
smíðaverkefnum. Glugga- og hurða-
þjónustan, s. 895 5511, smidi.is.
Þak og
utanhússklæðningar,
gler og gluggaskipti.
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.