Morgunblaðið - 21.02.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 21.02.2011, Qupperneq 32
32 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GRETTIR! ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR, ENGAR ÁHYGGJUR HÆ HUNDUR SÆLL HUNDUR, ÉG HEITI 5 OG ER NÝFLUTTUR Í HVERFIÐ SAGÐIST HANN HEITA „5” EÐA „V”? HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA Í DAG HRÓLFUR? HVAÐ SEGIRÐU UM AÐ VIÐ VEIÐUM FISK? ...GOTT OG VEL EN ÞAÐ ER MJÖG ERFITT FYRIR MIG AÐ VEIÐA MEÐ BERUM HÖNDUM ÞETTA ER EINAR VINUR MINN, HANN SÉR UM ÖRYGGISPRÓFANIR Á BÍLUM ERU FLEIRI Í FJÖLSKYLDUNNI ÞINNI SEM VINNA VIÐ ÖRYGGIS- PRÓFANIR? NEI, ÉG ER SÁ EINI ÞEGAR ÉG VAR LÍTILL ÞÁ SAGÐI MAMMA MÉR AÐ ÉG VÆRI SLYS MIKIÐ VAR VEÐRIÐ VONT Í GÆRKVÖLDI JÁ, ÉG VAR AÐ HUGA AÐ SKEMMDUM KOM EITTHVAÐ ALVARLEGT FYRIR? NEI, ÞAÐ ER ALLT Í GÓÐU HJÁ OKKUR EN ÉG GET EKKI SAGT ÞAÐ SAMA UM NÁGRANNANA ÞETTA ÆTTI AÐ HALDA HONUM SOFANDI... ...FYRIR RANNSÓKNIR ÉG GET NOTAÐ AÐRA HENDINA TIL AÐ... ... SKERA KLÆRNAR AF HINNI Icesave og fleira Nú hefur ríkis- stjórnin loks fengið Icesave- frumvarpið samþykkt í þriðju til- raun og er hinn hár- prúði fjármálaráð- herra væntanlega ánægður með það. Annars má segja það almennt um þessa ríkisstjórn Jóhönnu að hún er aumasta og ráðalausasta ríkis- stjórn sem hefur set- ið á Íslandi frá lýð- veldisstofnun 1944. Má nefna ýmis dæmi þar um. Hún hefur vart komið öðru í verk en að flæma Davíð Oddsson seðla- bankastjóra úr starfi og banna notkun sól- baðsbekkja yngra fólki en 18 ára. Þó verð ég að nefna til einn ráðherra, Katr- ínu Júlíusdóttur iðn- aðarráðherra, sem hefur staðið sig vel í starfi. Má nefna að hún beitti sér fyrir kynningarátaki til að sporna við hruni í ferðamannastraumi til landsins sem útlit var fyrir vegna eldgosa á liðnu ári. Sigurður Guðjón Haraldsson. Ást er… … einhver sem bætir ljóma í kvöldið þitt. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Geysir-Bistrómótið í fé- lagsvist þriggja skipta mótaröð kl. 13.30, glæsilegur aðalvinningur. Vinnu- stofa kl. 9, útskurður/myndlist kl. 13. Árskógar 4 | Handavinna/smíði/ útskurður kl. 9. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, handa- vinna, leikfimi kl. 13, sögustund kl. 13.45. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, bænastund kl. 9.30, söngur á 2. hæð kl. 10.30, leikfimi kl. 11 og 14. Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Eigum nokkur sæti laus í ferðina til Ítalíu 4.-11. júní nk. Allar uppl. í síma 898-2468. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Danskennsla kl. 17, kennari Lizý Steinsdóttir. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9. Botsía kl. 11. Handverksklúbbur kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbeinandi í handavinnu kl. 9, botsía kl. 9.30, gler og postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17, skap- andi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- lín kl. 9, ganga kl. 10. Handavinna og brids kl. 13. Félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, vatns- leikfimi kl. 12.10. Bingó-og kaffikvöld í Jónshúsi á morgun kl. 20 í boði Lions. Spil og kaffi á Garðaholti á fim. í boði Kvenfél. Gb., skrán. í Jónshúsi. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, m.a. tréútskurður og handavinna. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Félagsvist í Setrinu kl. 13. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30, gler- bræðsla/tréskurður kl. 13, félagsvist og botsía kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.40. Kvöldvaka Lions fim. 24. febr. kl. 20. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13, kaffisala. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30. Korpúlfar Grafarvogi | Gönguhópur kl. 10 í Egilshöll, sjúkraleikfimi kl. 14.30 í Eirborgum og á morgun er sundleikfimi kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við Hringborðið, spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks- og bókastofa kl. 11.30, prjónaklúbbur o.fl. kl. 13, botsía kl. 13.30, söngstund kl. 15. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handa- vinna kl. 9/13. Útskurður kl. 13. Sam- vera með djákna kl. 14-15. Vesturgata 7 | Handavinna og botsía kl. 9, leikfimi kl. 10.30, kóræfing kl. 13, tölvukennsla kl. 12. Þriðjudaginn 22. feb. kl. 13 kemur sr. Hjörtur Pálsson í heim- sókn í leshópinn. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband og postulínsmálun kl. 9, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 19, upp- lestur kl. 12.30, handavinnustofan opin eftir hádegi, spilað, stóladans kl. 13. Jón Arnljótsson orti þegar leið ávikuna að gefnu tilefni: Óláfr liggur undir feld. Ekkert mun hann segja í kveld. Kannski á morgun. Kannski hinn. Kannski bara á mándaginn, eða þá á þriðjudag. Þá við kveðum nýjan brag. Ætli hann segi alveg þvert oní það sem fyrr var gert, eða segi ekki nei og ekki já, en bara þei. Hvað sem meina með því kann. Menn svo illa skilja hann! Davíð Hjálmar Haraldsson svar- aði að bragði: Þeim sem kunna kóng að máta, kýr að mjólka, byggja rann, Ólafur er auðveld gáta. Aðeins þarf að ráða hann. Og Hjálmar Freysteinsson lagði orð í belg: Mætavel ég málið skil, mikilvægast sýnist að allir mæni Ólafs til, ekki leiðist honum það. Davíð Hjálmar Haraldsson orti svo í gær eftir að forsetinn vísaði Icesave-samningnum til þjóð- arinnar: Ólafur segir aftur nei, ekki má honum þoka. Til hvers að bjóða hesti hey hrakið, úr sama poka? Það rifjar upp vísu Egils Jón- assonar: Fyrir eðli ótuktar engin gæði metur. Yfir fóðri Framsóknar fýlir grön en étur. Loks yrkir Hallmundur Krist- insson: Ísseifur dvelur enn um sinn. Ára hans misvel þokkuð. Fagna má því að forsetinn framlengdi líf hans nokkuð. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af forseta og Icesave - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is ...þú leitar og finnur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.