Morgunblaðið - 21.02.2011, Síða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Undirritaðan rak í rogastans þegar
hann rakst á myndband við lag Jan-
elle Monáe, „Tightrope“, á dög-
unum. Gat þetta verið? Að bandarísk
R&B-söngkona væri kappklædd í
tónlistarmyndbandi, svo kappklædd
að aðeins sæist í hendur, háls, höfuð
og ökkla? Jú, það bar ekki á öðru. Og
í smóking! Stórkostlegt. Getur verið,
þegar öllu er á botninn hvolft, að tón-
listin sé það sem skiptir máli, ekki
líkami tónlistarmannsins? Það
skyldi þó aldrei vera. Tónlistina þarf
víst ekki alltaf að selja með holdi,
þótt það sé nú oft svo í R&B-
geiranum. Ekki svo að skilja að
Monáe sé ekki kynþokkafull, það er
hún vissulega, stúlkan. Og dansinn,
þvílík tilþrif! Sá sem ekki skekur
skrokk við taktfastan trommuslátt-
inn í „Tightrope“ er varla með lífs-
marki.
Leiklistin vék fyrir tónlist
En hver er þessi Janelle Monáe?
Monáe fæddist 1. desember árið
1985 í Kansas-borg. Í viðtölum hefur
Monáe m.a. sagt frá því að sig hafi
dreymt frá unga aldri að verða söng-
kona og skemmtikraftur. Monáe
nam leiklist í New York og stefndi að
frama sem leikkona á Broadway.
Henni snerist þó fljótlega hugur og
leiðin lá í tónlistina, list sem getur
breytt heiminum, eins og hún hefur
orðað það. Hún flutti
til borgarinnar Atl-
anta og
kynntist
þar Big Boi
og félaga
hans André
3000, dúett-
inum OutKast.
Monáe lagði fé-
lögunum lið við
gerð plötunnar
Idlewild, söng í
tveimur lögum
og Big Boi
kynnti hana fyr-
ir vini sínum Sean
Combs, útgefanda og tón-
listarmanni. Combs féll
fyrir tónlist Monáe og út-
liti og þá einkum fata-
stíl, að hún kæmi ekki
fram á nærhaldinu
eins og svo algengt
er með kvenkyns
Stendur föstum fótum í hefðinni
Bandaríska tónlistarkonan Janelle Monáe hefur skotist upp á stjörnuhimininn sem kvenvélmennið
Cindi Mayweather Hefur vakið mikla athygli fyrir sérstakan dansstíl, hárgreiðslu og klæðaburð
Reuters
Stjarna Janelle Monáe er ferskur andblær í R&B-tónlistarheiminum,
skemmtikraftur og listamaður sem vakið hefur mikla athygli. Myndin var tek-
in á skemmtun sem haldin var fyrir Grammy-verðlaunin síðustu, 12. febrúar.
R&B-flytjendur. Þá vakti dansfimi
Monáe ekki síður athygli Combs.
Hér var eitthvað nýtt á ferðinni.
Vélmennið kynnt til sögunnar
Monáe komst á samning hjá plötu-
útgáfu Combs, Bad Boy Records, ár-
ið 2007, en hafði þá þegar gefið út
EP-konseptplötuna Metropolis:
Suite I (The Chase). Framan á henni
birtist Monáe í gervi vélmennis sem
búið er að slíta af handlegg og fót-
legg. Á plötunni er sögð saga af
kvenvélmenninu Cindi Mayweather,
framleiddu í stórum stíl árið 2719
fyrir samfélag þar sem stéttaskipt-
ing er mikil. Í upphafslagi plötunnar,
eða öllu heldur inngangi, segir af vél-
menni nr. 57821, Cindi Mayweather,
sem verður ástfangið af manni, Ant-
hony Greendown, en sá hefur verið
gerður útlægur úr borginni Metro-
polis. Fyrir þetta á að refsa
Cindi, taka vélmennið í
sundur.
Platan var endur-
útgefin ári síðar og
Monáe hlaut tilnef-
ingu til Grammy-
verðlauna árið
2009 fyrir lag af
henni, „Many
Moons“. Platan
komst þó ekki of-
arlega á sölulista í
Bandaríkjunum
en annað varð
upp á ten-
ingnum
með nýjasta verk hennar og jafn-
framt fyrstu hljóðversbreiðskífu,
The ArchAndroid (Suites II and III)
sem kom út í fyrra. Platan er fram-
hald á sögunni af Metropolis, enda
vísað í „erkivélmenni“ í titlinum.
Platan hlaut almennt lof gagnrýn-
enda vestanhafs og var Monáe á ný
tilnefnd til Grammy-verðlauna, fyrir
bestu R&B-breiðskífuna og smellinn
„Tightrope“ sem fyrr var nefndur.
Hún hlaut verðlaun í fyrrgreinda
flokkinum. Salan á plötunni stað-
festir vinsældir Monáe, hún komst í
17. sæti á bandaríska plötulistanum.
Áhrif sótt víða að
Á The ArchAndroid (Suites II and
III) má segja að Monáe sé birting-
armynd femínískrar umræðu um
stöðu kvenna í karlasamfélagi, tákn-
mynd fyrir frelsi en um leið varpar
hún fram þeirri spurningu hvort
konur þurfi að fórna mannlegum til-
finningum og hlýju til að öðlast sjálf-
stæði og styrk. Cindi Mayweather
snýr aftur sem Kristsgervingur í
samfélagi vélmenna í Metropolis,
táknmynd fyrir einangraðan og kúg-
aðan minnihlutahóp. Í þessu mikla
konseptverki Monáe má greina ýmis
listræn áhrif og þá m.a. úr kvik-
myndinni Metropolis frá árinu 1927
sem hún segir „guðföður vís-
indaskáldskaparkvikmynda“.
Marga tónlistarmenn má nefna
sem mögulega áhrifavalda Monáe og
ekki þarf að hlusta lengi til að mynda
tengingar við fönk-goðið James
Brown, Michael Jackson, OutKast
og Motown-tónlist sjöunda áratug-
arins. Monáe stendur föstum fótum í
hefðinni, arfleifð Motown-stjarn-
anna en hefur þó sinn eigin, einstaka
stíl. Í þeim 18 lögum sem finna má á
The ArchAndroid (Suites II and III)
kemur hún víða við í tónlistinni í
tveimur svítum, hvor þeirra
hefst með forleik og síðan er
stiklað milli ólíkra tónlist-
artegunda þótt R&B sé
grunnurinn. Má þar nefna
fönk, rapp, þjóðlagatónlist,
sýru- eða glamrokk, diskó
og jafnvel kabaretttónlist.
Monáe hefur hlotið mikið
lof gagnrýnenda fyrir
þennan tilraunakennda
stíl og dirfsku. Þannig
tekst henni að
búa til einstakan
hljóð- og sögu-
heim.
Einkennisklæðnaður Monáe er smóking með svartri þverslaufu og tví-
litir blankskór, svartir og hvítir, „two tone shoes“ svokallaðir. Monáe
sagði í viðtali við vefinn i09 í fyrra að sér þætti hún hafa ákveðnum
skyldum að gegna þegar kæmi að klæðaburði ungra stúlkna, að endur-
skoða klæðaburð kvenna og hvernig konur eigi að líta út. Óþarft væri
að greina fatnað í karla- og kvennaföt, hún klæddist þeim fötum
sem henni þættu glæsileg.
Smóking og tvílitir skór
ÁHRIFAVALDUR Í TÍSKUNNI
Monáe mætir prúðbúin til Grammy-
verðlaunahátíðarinnar síðustu.
Vélmenni Umslag plötunnar The
ArchAndroid (Suites II and III).
Goðið James
Brown í stuði á
tónleikum.
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3.30 - 5.40 - 8 - 10.20 L
BIG MOMMA´S HOUSE LÚXUS KL. 10.20 L
THE EAGLE KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
JUST GO WITH IT KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
BLACK SWAN KL. 8 16
BLACK SWAN LÚXUS KL. 5.30 16
GREEN HORNET 3D KL. 5.25 12
THE DILEMMA KL. 10.30 L
GULLIVER´S TRAVEL 3D KL. 3.30 L
ALFA OG OMEGA 3D KL. 3.30 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
127 HOURS KL. 5.50 - 8 - 10.10 12
BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
FIGHTER KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%
5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-H.S.S.,MBL
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
JUST GO WITH IT KL. 8 - 10.10 L
THE FIGHTER KL. 5.50 14
-H.S.S., MBL
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
ÁTAKANLEG SAGA SEM SKILUR ENGAN EFTIR ÓSNORTINN.
.. FRANCO ER ÓAÐFINNANLEGUR.
-H.H., MBL
MISSIÐ EKKI AF EPÍSKRI STÓRMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA THE LAST KING OF SCOTLAND
HEIMSFRUMSÝNING
LAUGARÁSBÍÓ
BIG MOMMA’S HOUSE 3 Sýnd kl. 8 og 10:15
TRUE GRIT Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:25
JUST GO WITH IT Sýnd kl. 8 og 10:25
ALFA OG ÓMEGA Sýnd kl. 6 ísl. tal
MÚMÍNÁLFARNIR - 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Sýningartímar
Stundum þarf maður stelpu,
til að ná stelpunni
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF
HHH
„Myndin hin besta skemmtun
sem hentar öllum aldurshópum“
-H.H. - MBL
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is