Morgunblaðið - 21.02.2011, Side 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
Stjarna Hailee Steinfeld er einn mesti senuþjófur ársins og hún er líklega búin að skrifa nafn sitt á spjöld kvikmyndasögunnar líkt og fyrrnefndar
barnastjörnur hafa áður gert. Steinfeld stelur senunni í kvikmynd Coen-bræðra, True Grit, þar sem hún leikur bráðskarpa og hugrakka stúlku.
Reuters
Hjördís Stefánsdóttir
hjordst@hi.is
Ný stjarna hefur skotist upp á dýrðarhimin
Hollywood. Hin knáa Hailee Steinfeld er að-
sópsmikil þessa dagana og sankar að sér til-
nefningum til margra virtustu kvikmynda-
verðlauna ársinins. Þetta er frækilegt afrek
þar sem leikkonan unga er aðeins nýorðin fjór-
tán ára og alls óreynd í bransanum. Það vekur
þó athygli að yfirleitt er hún tilnefnd sem
besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í
nýjustu mynd Coen-bræðra, True Grit, en þar
fer hún klárlega með burðarhlutverkið.
Á komandi Óskarsverðlaunahátíð etur hún
kappi við aukaleikkonurnar Melissu Leo og
Amy Adams úr The Fighter, Helenu Bonham
Carter úr The King’s Speech og Jacki Weaver
úr Animal Kingdom. Allt eru þetta verðugir
keppinautar en það sem aðgreinir Steinfeld frá
hinum skörungunum er að persóna hennar í
True Grit er í nánast hverri einustu senu
myndarinnar. Hún er aðalhetjan, sögumað-
urinn og drifkraftur atburðarásarinnar. Stór-
stjörnurnar og mótleikararnir Jeff Bridges og
Matt Damon blikna í samanburði við hana á
tjaldinu.
Augljóslega er verið að hlunnfara hina ungu
Steinfeld og má ætla að hér sé um mikið og
ófrýnilegt metorðakapp að ræða. Þegar að er
gáð kemur í ljós að nafn hennar prýðir ekki
einu sinni auglýsingaplaköt myndarinnar og
að það eru framleiðendur myndarinnar sem
halda mest aftur af henni. Háæruverðugur
fulltrúi Paramount-kvikmyndaversins sendi
frá sér yfirlýsingu þess efnis að það væri ekki
hefð fyrir því að titla óreynda leikkonu á
barnsaldri sem aðalleikonu stórmyndar. Það
væri heldur ekki viðeigandi að hefja hana upp
á stall með mikilsvirtum leikkonum á borð við
Nicole Kidman, Annette Bening og Natalie
Portman sem allar eru tilnefndar til Ósk-
arsverðlauna fyrir aðalleik í ár. Með þessum
lítilfjörlegu rökum réttlætir Paramount-
kvikmyndaverið þá ákvörðun að titla Hailee
Steinfeld aðeins aukaleikkonu í einni stærstu
mynd ársins.
Að sjá í gegnum skálkaskjól
Það þarf ekki mikið hyggjuvit til að sjá í
gegnum þetta skálkaskjól. Marskálkarnir hafa
augljóslega ekki talið Steinfeld eiga möguleika
á að vera tilnefnd og krækja í verðlaun í flokki
aðalleikkvenna og því þótt vænlegra að setja
markið skörinni lægra. Þetta er vissulega
smánarlegt manntafl en samkeppnin í brans-
anum er hörð og hvert framleiðslufyrirtæki í
Hollywood reynir að ýfa sem mest skraut-
fjaðrir páfugla sinna. Verðlaunabatteríin út-
nefna vænlegustu myndirnar og krýna sig-
urvegara en hver tilnefning getur skipt
sköpum jafnt í beinhörðum tekjum sem og við
að koma vænustu páfuglunum á rómuð spjöld
kvikmyndasögunnar.
Auðvitað geta verðlaunabatterí eins og ósk-
arsakademían valið að útnefna Hailee Stein-
feld til verðlauna í hvaða flokki sem er, en flest
þeirra veigruðu sér við að tilnefna hana leik-
konu ársins. Prettir á borð við þessa eru ekki
nýir af nálinni í Hollywood. Hin ellefu ára
gamla Anna Paquin sýndi stórleik í The Piano
(1993) og það sama má segja um tíu ára hnokk-
ann Tatum O’Neal í Paper Moon (1973) en
báðar voru tilnefndar og hlutu Óskarsverðlaun
sem leikkonur í aukahlutverkum þrátt fyrir að
vera í burðarhlutverkum. Haley Joel Osment
var sömuleiðis tilnefndur til Óskarsverðlauna
fyrir „aukahlutverk“ í The Sixth Sense (1999),
þá ellefu ára.
Ekki hægt að keppa við hval
Eina undantekningin í þessum skrípaleik er
Keisha Castle-Hughes sem var titluð í auka-
hlutverki í The Whale Ride en óskarsakademí-
an sá sóma sinn í að tilnefna hana sem bestu
leikkonu í aðalhlutverki árið 2004. Hugsanlega
var hægt að réttlæta þá tilnefningu með því að
benda á að helsti mótleikari hinnar þrettán ára
gömlu Keishu Castle-Hughes var hvalur. Hai-
lee Steinfeld leikur hins vegar á móti stór-
stjörnunni Jeff Bridges og er það varla óvænt
að hann er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir
aðalhlutverk karla í ár. Hvað sem Óskars-
verðlaunum líður er Hailee Steinfeld einn
mesti senuþjófur ársins og hún er líklega búin
að skrifa nafn sitt á spjöld kvikmyndasög-
unnar líkt og fyrrnefndar barnastjörnur hafa
áður gert.
Enginn verður óbarinn biskup
Nýliðar verða að ávinna sér tign í metorðastiganum áður en þeir sópa að sér stórum verðlaunum
Senuþjófurinn Hailee Steinfeld úr True Grit er því hálfhlunnfarin í tilnefningaflóðinu þetta árið
Aðalhlutverk? Keisha Castle-Hughes var titluð í aukahlutverki í Whale Rider en óskars-
akademían sá sóma sinn í að tilnefna hana sem bestu leikkonu í aðalhlutverki árið 2004.
Ákveðin Hailee Steinfeld með Jeff Bridges í kvikmyndinni True Grit. Steinfeld hefur hlotið
mikið lof fyrir leik sinn í myndinni og Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir bestan leik.
Leikstjórar Steinfeld í True Grit hafa einnig
átt í rimmu við kerfisbákn Hollywood. Coen-
bræður eru afar samrýndir og hafa alla tíð
framleitt og leikstýrt myndum sínum í sam-
einingu. Samkvæmt lögum stéttarfélags
leikstjóra í Bandaríkjunum getur þó aðeins
einn verið útnefndur leikstjóri myndar og því
var annar bræðranna titlaður sem slíkur en
hinn sem framleiðandi á löggiltum pappírum
framan af ferli þeirra. Eftir 20 ára samstarf
fengu þeir að skrá sig sem löggiltan leik-
stjóradúett en þeir skiptast eftir sem áður á
að vera skrifaðir sem aðalhandritshöfundur
og deila klipparanafnbót mynda sinna með
því að notast við dulnefnið Roderick Jaynes.
Kempur og nýliðar virðast því lenda jafnt í
titlatogi og slag um nafngiftir í Hollywood.
KEMPUR OG NÝLIÐAR Í SAMA SLAG
Coen-bræður og titlatog