Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 40

Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 40
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 52. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Viðurstyggileg móðgun við … 2. Lögregla lokaði skemmtistað 3. Forsetinn kominn að niðurstöðu 4. Forsetinn staðfestir ekki »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Starfsemi Möguleikhússins er nú í uppnámi vegna fjárskorts. „Starf- semi þessa leikhúss snýst um það hvort við viljum að börnin okkar fái að njóta menningar,“ segir Pétur Eggerz hjá Möguleikhúsinu. »34 Möguleikhúsið stend- ur á krossgötum  Sýningum á Faust lauk um helgina en í apríl heldur Vesturportshópurinn til Pétursborgar til að taka á móti evrópsku leiklistar- verðlaununum. Í tengslum við afhend- inguna mun hóp- urinn sýna tvö verk sín, Faust og Ham- skiptin. Færri kom- ust að en vildu á lokasýninguna og því verður verkið sett aftur upp í maí. Vesturport á leið með Faust til Rússlands  Tónleikaröðin Fuglabúrið heldur áfram annað kvöld, þriðjudags- kvöldið 22. febr- úar, á Café Rósen- berg og nú mæta til leiks sem fulltrúar ólíkra kynslóða þau KK og Myrra Rós sem eru bæði í fremstu röð íslenskra söngvaskálda. KK þarf vart að kynna fyrir alþjóð en von er á fyrstu sóló- plötu Myrru á þessu ári. Fuglabúrið heldur áfram á Rósenberg Á þriðjudag Norðaustan og austan 8-13 m/s og rigning með köflum S-lands, en él fyrir norðan. Hiti 0 til 6 stig. Á miðvikudag Austanátt með rigningu eða slyddu, en snjókomu N-lands. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag og föstudag Suðlæg átt með rigningu eða slyddu, einkum S-til. Fremur milt veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg austlæg átt og smáskúrir en fer síðan að rigna S-til. Gengur í norðaustan og norðan 8-15 m/s með éljum N-til seinni partinn. Hiti 2 til 7 stig, en frystir N-lands í kvöld. VEÐUR Aron Kristjánsson reiknar með því að snúa aftur heim til Ís- lands og þjálfa ís- lenskt lið eftir að hon- um var sagt upp störfum sem þjálfara Burgdorf í Þýska- landi. „Það ræðst reyndar dálítið af því hvaða tækifæri eru í boði heima,“ sagði Aron við Morgunblaðið. »1 Aron býst við að þjálfa á Íslandi „Aðalmarkmiðið núna var að vinna karlakeppnina í fyrsta sinn í langan tíma og það tókst þrátt fyrir nokkur skakkaföll,“ sagði Þráinn Hafsteinsson, yfirþjálfari ÍR, við Morgunblaðið eftir að félagið varð bikarmeistari í frjálsíþróttum innan- húss. »3 Aðalmarkmiðið var að vinna karlakeppnina Pavel Ermolinskíj og Bryndís Guð- mundsdóttir eru „Moggamenn“ bik- arúrslitaleikjanna í körfuboltanum. KR varð bikarmeistari karla í fyrsta skipti í 20 ár þar sem Pavel var í stóru hlut- verki og Bryndís átti stórleik með Keflavík sem vann bikarinn í kvenna- flokki í fyrsta skipti í sjö ár. Annað árið í röð hurfu Grindvíkingar frá leik- skipulagi sínu þegar á móti blés. »4-5 Pavel og Bryndís best í úrslitaleikjunum ÍÞRÓTTIR Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Fjörutíu sjálfboðaliðar frá fjórum löndum eru staddir á Hvolsvelli á vegum AFS í verkefni sem ber nafnið Ungmennaskipti og hefur þann til- gang að hvetja sjálfboðaliða til dáða. Þátttakendur eru frá Íslandi, Portú- gal, Belgíu og Tékklandi, flestir á aldrinum 18-25, og eru tíu manns frá hverju landi. Steinunn S. Kristjánsdóttir er hópstjóri íslenska hópsins. „Við erum að kynna okkur annars konar sjálf- boðaliðastarf en það sem fer fram á vegum AFS,“ segir hún en árið 2011 er Evrópuár sjálfboðaliðans. Ná- lægðin við Eyjafjallajökul er engin tilviljun en yfirskrift verkefnisins á Íslandi er Sjálfboðaliðastarf á ham- faratímum og fékk hópurinn kynn- ingu frá Landsbjörg í gær. Mikilvægt í öllum samfélögum Steinunn segir að síðar í vikunni verði kynning frá hinum löndunum þremur um hvers konar sjálf- boðaliðastarf fari fram í þeirra lönd- um í tengslum við náttúruhamfarir. Sjálf hefur Steinunn unnið að sjálf- boðaliðastarfi á vegum AFS frá 2006, m.a. farið í skólakynningar og tekið viðtöl við verðandi skiptinema. Hún hefur farið sem skiptinemi á vegum AFS, eins og flestir sjálfboðaliðanna, en hún fór til Frakklands árið 2005. Hún hefur unnið að þessu verkefni síðustu tvö ár í samvinnu við fjölda- marga aðra sjálfboðaliða AFS og heimsótt bæði Tékkland og Belgíu af því tilefni en Portúgalsförin er eftir. „Það er mikilvægt fyrir öll samfélög að hafa virka sjálfboðaliða. Það að vera þátttakandi í svona verkefni er rosalega dýrmætt og hjálpar manni að átta sig á því að heimurinn er miklu stærri en bara heimalandið. Félagsskapurinn er mjög góður og okkur finnst þetta skemmtilegt,“ út- skýrir hún og ítrekar að sjálf- boðavinnan sé gefandi en ekki kvöð. „Svona verkefni hvetur sjálf- boðaliðana til áframhaldandi starfa og það er heilmikil reynsla sem við fáum út úr þessu.“ Menningarmunur í hádeginu Verkefnið gefur líka fólki frá ólík- um löndum tækifæri til að kynnast og eru ýmis hópeflisverkefni áber- andi á dagskránni. Sem hópstjóri hefur Steinunn líka það hlutverk að kljást við menningarmun og sjá til þess að hann valdi engum misskiln- ingi. „Til dæmis líta þessar fjórar þjóðir hádegismat mismunandi aug- um! Við þurfum að mætast í miðjunni og vinna saman og hópstjórarnir sjá til þess.“ Hópurinn dvelur á Hvolsvelli til miðvikudags og heldur þá til Reykja- víkur þar sem fjölbreytt dagskrá verður í gangi til sunnudags. Sjálfboðavinna stækkar heiminn  Þemað er sjálf- boðaliðastarf á hamfaratímum Hópavinna Þátttakendurnir að kynnast betur í skemmtilegu hópeflisverkefni en hópurinn er staddur á Hvolsvelli. Verkefnið er fjármagnað að lang- stærstum hluta af Evrópu unga fólksins (EUF) á Íslandi, sem er hluti af menntaáætlun Evrópusam- bandsins. Helstu markmið með verkefninu eru að:  Vekja athygli á mikilvægi sjálf- boðaliðastarfs á hamfaratímum.  Læra um unga sjálfboðaliða sem starfa í tengslum við hamfarir.  Hvetja unga sjálfboðaliða til dáða.  Læra að meta starf allra sjálf- boðaliða að verðleikum og draga fram í dagsljósið það gagn sem samfélagið hefur af sjálf- boðaliðum.  Kynnast fjölbreytilegum sjálf- boðaliðastörfum eins og þau fara fram víða um heim.  Þróa frekar alþjóðleg sam- skipti og skilning. Er það meðal annars gert með ýmsum hópefl- isverkefnum. Hvatning og skilningur FJÁRMAGNAÐ AF EVRÓPU UNGA FÓLKSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.