Póstmannablaðið - 01.10.1942, Blaðsíða 8

Póstmannablaðið - 01.10.1942, Blaðsíða 8
Um póstkröfusendingar Það eru afar mikil þægindi fyrir menn, sem búa á meira eða minna afskekktum stöðum, þar sem af skiljanlegum ástæð- um er um lítið úrval að ræða, að geta setið heima og símað eða skrifað einhverri verzlun og pantað það, sem þá vanhagar um í það og það skiptið, en skilyrðin fyrir því, að svona löguð við- skipti verði kaupandanum til gagns og ánægju eru þau, að við- komandi verzlun velji vörurnar með mestu nákvæmni og af- greiði allar pantanir samvizkusamlega. í allmörg ár hefur RYELSVERZLUN Á AKUREYRI þannig sent ótal póstkröfusendingar til viðskiptamanna sinna um allt land, og hafa þau viðskipti verið í mesta máta ánægju- leg fyrir bæði kaupanda og seljanda, enda hafa þessi viðskipti aukizt mjög mikið með hverju ári. Nú er Ryels landsþekkta vefnaðarvöruverzlun fullkomnari og betur byrg en um mörg undanfarin ár, og þá sérstaklega af allskonar metravöru, nærfötum, prjónavörum allskonar, man- chetskyrtum, flibbum, bindum og ótal mörgu fleiru. Símið eða skrifið, og þið getið verið sannfærð um, að við afgreiðum um hæl hverja pöntun með mestu nákvæmni og samvizkusemi. Símnefni: RYEL Akureyri. Utanáskrift: BALDVIN RYEL Akureyri. Því meira sem þið kaupið í RYELSVERZLUN, því meira hagnist þið vegna hagstæðra innkaupa. BALDVIN RYEL PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.