Póstmannablaðið - 01.10.1942, Page 12

Póstmannablaðið - 01.10.1942, Page 12
betra. Sázt samt vel yfir Helgafellssveit til Stykkishólms og nokkrar eyjar á Breiðafirði, svo og til fjallaklasans í vestri. Þótti mönnum mikið til koma lit- auðgi fjallanna. Er við höfðum notið dásemda náttúrunnar var á ný ekið af stað. Það var glatt á hjalla í stóra bíln- um, menn voru léttir í skapi og sungu við raust. Var hin alræmda vasasöng- bók með í ferðinni og þar var upp- spretta hinna kynlegustu söngva og kvæða. Var bæði sungið einraddað, margraddað og ramfalskt og þótti skemmtun hin bezta. Hið tröllslega Fjórar blómarósir. Berserkjahraun vakti óskipta athygli manna fyrir litafegurð. Þóttust menn þar kenna „Kjarvalskt“ mótiv. Vegur- inn var bæði mjór og krókóttur, en bót var það í máli, að „Marsi“ bílstjóri var bæði gætinn og öruggur. Stýrði hann hinum fóthvata jó sínum með mikilli árvekni yfir kletta og klungur. Nokkuð þótti mönnum Hraunfjörður og Kol- grafarfjörður langir og krókóttir, enda var vegurinn seinkeyrður. En fagurt var þar víða um að litast. I Grundarfjörð komum við um kl. 4. Þar var staðar numið. Við snæddum þar skrínukost, sem við höfðum með- ferðis og töfðum þar rúma klukkustund. Veður var heldur leiðinlegt, þoka á fjöllum og kuldagjóstur inn fjörðinn. Þótti okkur illt að missa þá fögru fjalla- sýn sem þar er. Eftir að við höfðum snætt og hvílt okkur um hríð, þá var setzt í bifreiðarnar og haldið sömu leið til baka. Var nú bílsöngurinn enn á ný okkar helzti lífselexír. Er komið var í Berserkjahraun var bílveiki nokkuð farin að gera vart við sig meðal kven- þjóðarinnar. Var þá tafið lítið eitt og gengu menn út í hraunið til að teygja úr limum sínum eftir bílsetuna. En svo var haldið rakleitt í Stykkishólm og þangað komum við kl. rúml. 7. I Stykkishólmi var gist um nóttina. Við borðuðum kvöldverð í gistihúsinu. Heldur þótti okkur þægindasnautt í þeim annars ágæta bæ, þar sem vatn var ófáanlegt bæði til drykkjar og þvottar. Fjölmenni var mikið í gistihúsinu, því þar var Ferðafélagið komið fyrir. Sváfu sumir í stóra bílnum, aðrir í tjaldi, en flestir sváfu í flatsæng á háalofti gisti- hússins, þar sem rúm voru þar ófáan- leg. Við skoðuðum bæinn og leizt mönn- um þar vel á sig, enda er bærinn hinn snotrasti, útsýni fagurt, þótt ekki nyti þess sem bezt, veðurs vegna. Um kvöld- ið voru allir boðnir til Tómasar Möller póst- og símstjóra staðarins. Veitti Möller af mikilli rausn. Þar skemmtu menn sér við fjörugar samræður og söng. Bar þar góðan gest að garði, Árna sýsluskrifara Helgason, sem las gam- ankvæði við mikinn fönguð áheyrenda. Það var orðið framorðið þegar hóp- urinn hélt af stað heimleiðis. Fylgdi Möller okkur til gistihússins, og kvödd- um við hann þar og þökkuðum skemmti- lega kvöldstund. Var komið langt yfir miðnætti þegar menn gengu til náða. PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.