Póstmannablaðið - 01.10.1942, Qupperneq 14

Póstmannablaðið - 01.10.1942, Qupperneq 14
Sumardagar við Hreðavatn Þegar líður að hausti kemur stund- um nýtt efni inn í fábreytta dagskrá útvarpsins, til smekkbætis með íþrótta- þáttum, grammófónplötum og annari andlegri kjarnafæðu. Það gægist líka fram í dálkum blaðanna, þeim hluta, sem sérstaklega er ætlaður til lestrar yfir hvíldardaginn. Þetta eru ferðasög- ur frá sumrinu. Margir ferðast, sumir býsna langt, jafnvel um öræfi og jökla, aðrir smáspotta, eins og til Heiðmerk- ur eða Hveragerðis. Og flestir eiga það sameiginlegt, hvað sem vegalengd líður, að sjá eitthvað í ferðinni; sumir jafn- vel hugsa um það, sem fyrir augun ber, og í samband við það má setja. Það er svo margt sem getur komið fyrir á ferðalagi. Sumir koma á hvern bæinn af öðrum og mæta íslenzkri gestrisni, sem enn er ekki útkulnuð, sem betur fer, því hún er þjóðlegt verðmæti. Sum- ir hitta máske venzlafólk, sem tæplega á sinn líka í fornum dyggðum. Og þeg- ar upp á heiðina kom, var farið að rigna. Þetta er allt gott og blessað, þó meira væri. Ég er sólginn í ferðasögur, eink- um ef þær eru vel sagðar eða skrifaðar. En fátt er svo gott að ekki slæðist ein- hver agnúi með, einhver lítill angi, sem maður gætir ekki að fyrr en um seinan. Eigin frásagnarlöngun vaknar, en hún á ekki alltaf samleið með frásagnarlist. Flugan lendir á skökkum pappír, skrif- pappír en ekki límpappír. Það er aldrei hægt að vita hvar ein lítil fluga kann að lenda. Og nú fer ég, lítill karl, að dæmi þeirra stærri, en kemst hvorki í útvarp eða stórblað, heldur læt mér nægja að skrifa í lítið blað, um ferð, 6 sem eiginlega var engin ferð, en það getur þá orðið sumarþáttur um daginn og veginn. Vikurnar áður en hið langþráða sum- arleyfi hefst, eru jafnvel meira spenn- andi en sumarleyfið sjálft. Það á að fara langt, sjá fagra staði og afreka mikið. Líkami og sál eiga að hvílast og koma endurnærð aftur til daglegra starfa. Ég gerði margar áætlanir og var hver annari betri, en það var alltaf eitt sem ruglaði: auraleysið. Kjarabæt- ur ríkisins voru einhversstaðar í móðu framtíðarinnar. Óþekkt stærð og óviss. Meðan ég leitaði í huganum stöðugt, ódýrari staðar og styttra ferðalags, glotti auraleysið og spurði: ,,Hvað get- urðu nú?“ En loks tók ég af skarið og svaraði: „Ég skal þá sýna þér hvort ég kemst ekki að Hreðavatni!‘ Svo reysti ég tjald mitt átþeim góða stað laust. fyrir miðnætti laugardags- kvöld eitt í júlí. Það var norðannæðing- ur og ekki sem árennilegast að setjast að á víðavangi, en í von um sólskin að morgni lagðist ég til svefns og svaf vel. Það er fróðlegt að veita því athygli, hvernig fólk ver sumarleyfum sínum, þessum dýrmæta tíma hvíldar, tilbreyt- ingar og hressingar. Sumir sækjast eft- ir andstæðum þess, er þeir hafa búið við, þá mánuði, er liðið hafa frá síðasta sumarleyfi. Þeim er það fyrir mestu að komast af þröngum vegum borgarinn- ar á vegleysur öræfanna, þar sem ó- þarft er að líta í kringum sig við hvert fótmál, til að forðast árekstra. Kyrrð fjalldala er þeim góð, sem verða að búa við margskonar hávaða mestan hluta árs. Sumir kjósa að fara eina langa ferð PÓ STM ANNABL AÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.