Póstmannablaðið - 01.10.1942, Blaðsíða 17
i
I
Hinn 29. september síðastliðinn varð
Bjarni Benediktsson póstafgreiðslu-
maður á Húsavík 65 ára. Bjarni flutt-
ist frá Grenjaðarstað til Húsavíkur
1894 og vann hann í mörg ár hjá Þórði
heitnum Guðjohnsen, sem þá var verzl-
unarstjóri hjá örum & Wulff. Bréf-
hirðing var þá á Húsavík og hafði Guð-
johnsen umsjón með henni. Um 1902
fluttist Þórður Guðjohnsen af landi
brott og tók þá sonur hans Stefán Guð-
johnsen við verzluninni og bréfhirðing-
unni. Öll þessi ár, meðan Bjarni var í
þjónustu þeirra feðga, annaðist hann
bréfhirðingarstarfið.
Árið 1906 er póstafgreiðsla sett á
stofn í Húsavík og veitti Bjarni henni
forstöðu, unz faðir hans, síra Benedikt
Kristjánsson, póstafgreiðslumaður á
Grenjaðarstað, fluttist til Húsavíkur ári
síðar. Síra Benedikt fékk því veitingu
fyrir starfinu og hélt hann því þar til
hann lézt í janúarmánuði 1915.
Enda þótt síra Benedikt fengi veit-
ingu fyrir embættinu vann Bjarni sem
fyrr við póstafgreiðslustarfið með föð-
ur sínum. Bjarni Benediktsson er því
án efa í hópi þeirra póstafgreiðslu-
manna landsins, sem lengst hafa starf-
að í þjónustunni. Auk þess, sem hann
vann við póstafgreiðsluna hjá föður sín-
um á Grenj aðarstað, hefur hann frá
því árið 1894 unnið við póststörf á
Húsavík. Bjarni var þó ekki skipaður í
embættið fyr en 27. maí 1915.
Hann er maður vinsæll með afbrigð-
um og hinn mesti höfðingi heið að
sækja. I öllum viðskiptum er honum
viðbrugðið fyrir lipurð og samvizku-
semi.
Póstmannablaðið óskar Bjarna til
hamingju með afmælið og þakkar hon-
um í nafni póstmannastéttarinnar fyrir
langt og gott samstarf.
Collega.
Móðirin við dóttur sína: Nú verður
þú að velja milli þessara tveggja: Viltu
giftast manninum, sem elskar þig, eða
manninum sem getur klætt þig?“
Dóttirin: „Mamma, sem sönn hátízku-
stúlka, vel upp alin, þá verð ég að svara
spuningu þinni því, að þótt ástin sé
mjög æskileg, þá eru þó fötin ennþá
nauðsynlegri".
PÓSTMANNABLAÐIÐ
9